Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 9
FRÉTTIR
Eddufelli 2, sími 557 1730
Sumarpeysur
Verð kr. 2.900
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Gallajakkar,
-pils og -buxur
iðunn
tískuverslun
Kringlunni,
sími 588 1680
Ný sending af
BASS
sandölum litir
svart, rautt,
blátt og beige
RALPH LAUREN
25% afsláttur
af gallabuxum,
dömu og herra,
frá fimmtudegi
til sunnudags
SMÁRALIND - SÍMI 561 1690
Opið frá 10-22
Alla daga vikunnar
Verið velkomin
SUMARBÆKLINGURINN
ER KOMINN
Heilsudrekinn
Kínversk heilsulind
Ármúla 17a
Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.isKung Fu
Skeifunni 3J
Smáralind • Sími 528 8800 • www.drangey.is
Mikið úrval af
glæsilegum
töskum við
öll tækifæri
- margir litir - r ir litir
Sumarkápur Sumarjakkar
Sumardragtir
HAFNARSTJÓRN Faxaflóahafna hefur sam-
þykkt að hafnarstjórinn í Reykjavík kanni kosti
þess að hefja reglubundnar farþegasiglingar frá
meginlandi Evrópu til Reykjavíkur. Í desember
var tillaga Kjartans Magnússonar, borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, samþykkt einróma en
tillagan var tekin upp að nýju fyrir skömmu í
ljósi þess að ný stjórn, hafnarstjórn Faxaflóa-
hafna, stjórnar nú höfninni.
Kæmi sér vel fyrir þá
sem þjást af flughræðslu
Í greinargerð með tillögunni segir að frum-
skilyrði þess að hægt sé að koma á slíkum sigl-
ingum sé að hafnaryfirvöld geti boðið viðhlítandi
ferjuaðstöðu. Að sögn Kjartans Magnússonar er
rétt að kanna hvort raunhæft sé að hefja reglu-
bundnar farþegasiglingar hingað til lands í ljósi
þess að farþegasiglingar hafi aukist í heiminum.
„Þannig yrðu millilandasiglingar að nýju raun-
hæfur valkostur fyrir stóran hluta Íslendinga og
myndi það til dæmis eflaust koma sér vel fyrir
þá sem þjást af flughræðslu,“ segir Kjartan en
hann taldi rétt að setja tillöguna fram í kjölfarið
á þeim miklu breytingum sem hafa orðið í hafn-
armálum Reykjavíkur en búið er að stofna fyr-
irtækið Faxaflóahafnir sf. og sameina hafnirnar
í Reykjavík, Grundartanga, Akranesi og Borgar-
nesi. „Ég vildi setja þessar farþegasiglingar inn
í þá þróunarvinnu sem er nú hafin en ég geri
mér jafnframt grein fyrir því að við sem sveitar-
félag getum ekki farið að reka
farþegaskip sjálf og höfum
ekki endanlega um það að
segja hvort slíkur rekstur
kemur til landsins. Hins vegar
getum við búið í haginn fyrir
slíka starfsemi og boðið menn
velkomna. Þannig yrði ekki
lagt út í kostnaðarsamar
framkvæmdir nema vitað væri
að einhver ætlaði sér að koma
á fót slíkri starfsemi. Ég vil
því setja þetta inn í okkar stefnumótun og þegar
það liggur fyrir hvaða staður væri hentugastur
gætum við sett það inn í okkar stefnumótun og
markaðssetningu erlendis. Þá væri hægt að
markaðssetja þetta þannig að við værum tilbúin
að taka á móti farþegaskipi í áætlunarsiglingum
ef einhver vildi láta á slíkt reyna.“ Þá bendir
Kjartan á að ef áætlun bílferjunnar Norrænu
myndi breytast væri möguleiki á að hún gæti
lagt að í Reykjavík.
Raunhæft ef áhugi er fyrir hendi
Kjartan telur að líklegast væri að reglubundn-
ar farþegasiglingar yrðu fólgnar í því að hingað
kæmu bílferjur en bent hefur verið á að stæði
fyrir bílaferju kalli á umtalsvert pláss við
hafnarkantinn og að ráðast þurfi í framkvæmdir
sem kosti mörg hundruð miljónir króna. „Það er
spurning hvað við þyrftum að leggja út í miklar
framkvæmdir. Fyrst þyrftu menn að setja sig í
samband við okkur og segja hvað þeir væru með
stórt skip. Við eigum bryggju sem væri hægt að
nota ef skipin væru af ákveðinni stærð. Sumir
segja að það kæmu svo stór skip að við gætum
ekki tekið á móti þeim nema fyrir mörg hundruð
milljónir en þróunin er sú í þessum ferjusigl-
ingum að menn eru að taka upp hraðferjur sem
eru minni en gömlu skipin,“ segir Kjartan en lík-
legt er ef úr verður að ferjur og erlend farþega-
skip leggi upp að Skarfabakka í Sundahöfn þar
sem nú er verið að koma upp bryggjustæði. „Ef
áhugi fyrir því að koma á fót slíkum farþegasigl-
ingum er fyrir hendi lít ég svo á að þetta sé
raunhæfur möguleiki,“ segir Kjartan að lokum.
Erfitt að sigla allt árið um kring
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóa-
hafna sf., segir að matið á því hvort um raun-
hæfan kost sé að ræða velti að miklu leyti á því
hvernig aðstöðu þurfi að byggja upp og hvort
þjónustan eigi að vera allt árið um kring. „Þetta
er samt sem áður þess virði að skoða það og þá
sérstaklega ef áhugi er fyrir hendi,“ segir Ágúst
en bendir á að erfitt sé að koma því í kring að
hafa farþegasiglingar allt árið um kring.
„Vandamálið er alltaf að finna skip ef einungis á
að sigla hluta úr árinu og einnig fylgir þessu
mikill kostnaður. Sem dæmi má nefna að ferju-
aðstaðan á Seyðisfirði kostaði rúmar 600 milj-
ónir króna. “
Kostir farþegasiglinga milli Evrópu og Reykjavíkur verða kannaðir
Frumskilyrði að geta boðið
fram viðhlítandi ferjuaðstöðu
Kjartan
Magnússon
MIKLAR umræður spunnust um hugmyndir Sjálfstæðisflokksins
um framtíðarskipulag í Reykjavík á íbúaþingi sem haldið var af
borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna í veitingatjaldi Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins á fimmtudag. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti borgarstjórnarflokksins, setti þingið og kynnti hugmyndir um
betri borg.
Þátttakendur á þinginu voru um áttatíu talsins og tóku flestir
virkan þátt í umræðum sem stjórnað var af borgarfulltrúum flokks-
ins. Þátttakendur skiptu sér í fjóra starfshópa í því skyni að reifa
eigin hugmyndir og tjá sig um málin.
Flestum leist vel á þær hugmyndir Sjálfstæðisflokksins að
byggja meðfram ströndinni og nýta eyjar borgarinnar; Akurey og
Engey ásamt Örfirisey til íbúðabyggðar.
Þó höfðu sumir áhyggjur af því að vegna húsnæðisskorts þyrfti
að bregðast skjótt við og hefjast handa en margir þátttakenda vildu
að byrjað yrði á framkvæmdum í Geldinganesi og jafnvel í Engey.
Margir voru hrifnir af hugmyndinni um einhvers konar byggð í Við-
ey og vildu sumir ganga lengra og byggja hana alla. Aðrir vildu
halda henni sem útivistarsvæði og höfðu efasemdir um vegteng-
ingu. Í þremur starfshópum kom upp sú hugmynd að flytja Árbæj-
arsafn í Viðey.
Þá var bent á að grípa þyrfti til aðgerða í samgöngumálum ef
hugmyndir um byggð í eyjunum ættu að verða að veruleika.
Skiptar skoðanir voru um framtíð Vatnsmýrarinnar og Reykja-
víkurflugvallar en bent var á að taka þyrfti afstöðu til þeirra mála
samhliða því sem settar væru fram hugmyndir um framtíðarskipu-
lag í Reykjavík.
Fjörlegar umræður á íbúa-
þingi Sjálfstæðisflokksins
Morgunblaðið/Sverrir
Gestir íbúaþingsins kynntu sér hugmyndir
um betri borg og ræddu málin fjörlega.
FRÉTTIR
mbl.is