Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● GENGI bréfa breska lággjaldaflug-
félagsins Easyjet hækkaði um 4,6%
í kauphöllinni í Lundúnum í fyrradag.
Gengið hækkaði síðan um rúm 1% í
gær. Að sögn Reuters-fréttastof-
unnar komst á kreik orðrómur um að
FL Group hefði í huga að leggja fram
yfirtökutilboð. FL Group á rúmlega
10% hlut í breska félaginu sem
keyptur var í október sl.
Gengi EasyJet hækkar
vegna orðróms
● STJÓRN sænska líftæknifyrirtæk-
isins Fingerprint Cards, sem fram-
leiðir fingrafaralesara, hefur boðað til
aukaaðalfundar þar sem lagt verður
til að rekstri fyrirtækisins verði hætt.
„Markaðurinn fyrir líftækni þróast
mun hægar en búist var við og miðað
við það tekjuflæði sem fyrirtækið hef-
ur haft er of langt í að tekjur verði
hærri en gjöld,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu, en aðalfundurinn
verður haldinn 28. júní næstkomandi.
Fingerprint Cards er skráð í kaup-
höllina í Stokkhólmi og féll gengi
þess um 46% þegar tilkynningin
barst.
Hæg þróun markaðar
fyrir líftækni
● KB BANKI hefur ákveðið að
hækka vexti óverðtryggðra inn- og út-
lána frá og með deginum í dag, 11.
júní, að því er kemur fram í tilkynn-
ingu frá bankanum.
Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar til-
kynningar Seðlabankans fyrr í vik-
unni um hækkun stýrivaxta um 0,5%.
Munu vextir óverðtryggðra útlána
hækka um 0,4 til 0,5%, og vextir
óverðtryggðra innlána munu hækka
um allt að 0,5%, þó mismunandi eftir
innlánsformum.
KB banki hækkar
óverðtryggða vexti YFIRTAKA þeirra Pálma Har-
aldssonar og Jóhannesar Kristins-
sonar, eigenda Iceland Express, á
flugfélaginu Sterling er orðið sér-
stakt rannsóknarverkefni við Við-
skiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn. Tveir íslenskir stúdentar við
skólann, Bergur Þ. Gunnþórsson
og Guðrún Björg Brynjólfsdóttir,
vinna að verkefninu undir forsjá
Dr. Lise Lyck, sérfræðings á sviði
ferðamála.
Þau Bergur og Guðrún Björg
segjast hafa valið þetta verkefni
því þau telji að í fæðingu sé stór-
veldi á flugmarkaði. Aðkoma Ís-
lendinga að Sterling, og sú mikla
sneið sem Íslendingar virðist ætla
sér af alþjóðlegum flugmarkaði al-
mennt, hafi vakið mikla athygli í
Danmörku. Það er mat þeirra
Bergs og Guðrúnar Bjargar að
mikill vöxtur sé framundan á flug-
markaði í Evrópu og viðskipta-
tækifæri séu því hvarvetna. Því sé
líklegt að framhald verði á fjár-
festingum Íslendinga á þessum
markaði.
Gera úttekt á yfir-
tökunni á Sterling
Flugmarkaður Guðrún Brynjólfsdóttir og Bergur Gunnþórsson sjást hér
með Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem heimsótti
þau á dögunum og ræddu þau stöðu Íslands á alþjóðlegum flugmarkaði.
MILLJÓNAMÆRINGUM í
heiminum fjölgaði um 600.000 í
fyrra og var fjölgun þeirra meiri í
Norður-Ameríku og Asíu en í Evr-
ópu. Kemur þetta fram í skýrslu
sem birt var í vikunni.
Talið er að í heiminum séu nú um
8,3 milljónir manna sem eiga meira
en eina milljón Bandaríkjadollara,
að heimili sínu frátöldu, og fjölgaði
þeim um rúm 7% frá árinu 2003.
Það voru ráðgjafarfyrirtækin
Merrill Lynch og Capgemini sem
unnu skýrsluna. Í henni kemur
fram að auðæfi heimsins eru nú tal-
in nema yfir 30 trilljónum banda-
ríkjadala, eða yfir 30 milljónum
milljóna, og jukust þau um rúm 8%
á milli ára sem er mesti vöxtur í tvo
áratugi. Er talið að dragi úr vext-
inum á árinu 2005 og er í skýrsl-
unni spáð fyrir um að meðalvöxtur
á milli ára verði 6,5% næstu 5 árin.
Fjölgar um 10%
Í Norður-Ameríku eru um 2,7
milljónir milljónamæringa, eða tíu
prósentum fleiri en þegar síðast
var talið. Í Evrópu eru milljóna-
mæringarnir 2,6 milljónir, eða fjór-
um prósentum fleiri en síðast, og í
Asíu eru þeir 2,3 milljónir og hefur
fjölgað um átta prósent. Í Evrópu
fjölgaði milljónamæringum ein-
ungis í Bretlandi og á Spáni. Í
skýrslunni kemur jafnframt fram
að þeir milljónamæringar sem eiga
á bilinu 5-30 milljónir dollara eigi í
mestum erfiðleikum með að auka
auð sinn.
Milljónamær-
ingum fjölgar
BRESKA verslanakeðjan Somer-
field þarf að greiða 11,7 milljónir
punda á ári næstu sex árin til að
minnka eftirlaunaskuldir sínar en
þær nema samtals 112 milljónum
punda, ríflega 13 milljörðum króna.
Baugur hefur í samstarfi við aðra
fjárfesta lýst yfir áhuga á kaupum á
Somerfield en auk þess hafa tveir
aðrir hópar fjárfesta augastað á
verslanakeðjunni.
Forsvarsmenn Somerfield full-
yrða að eftirlaunamálið sé alls óskylt
fyrirhugaðri sölu á keðjunni, enda
hafi viðræður við lífeyrissjóði nú
staðið yfir um nokkra hríð.
Væntanlegum kaupendum hafi
auk þess alltaf verið kunnugt um líf-
eyrisskuldbindingar verslanakeðj-
unnar.
Somerfield
semur um líf-
eyrisskuld-
bindingar
ALLS ÓSKUÐU fjárfestar eftir því
að kaupa ríflega 8,6 sinnum fleiri
hluti í Mosaic Fashions hf. í almennu
hlutafjárútboði fyrirtækisins, sem
lauk í gær. „Við erum afskaplega
ánægð með þessi viðbrögð, þetta
gekk vonum framar,“ sagði Derek
Lovelock, forstjóri fyrirtækisins í
samtali við Morgunblaðið. Fjöldi
fjárfesta sem tóku þátt í útboðinu
var um 2400, en þeim stóð til boða að
kaupa liðlega 90,6 milljónir nýrra
hluta í Mosaic Fashions á genginu
13,6 krónur fyrir hvern hlut, samtals
að andvirði rúmlega 1,2 milljarðar
króna. Þetta eru um það bil 3% af
heildarhlutafé Mosaic eftir hækkun.
Lágmarksáskrift var 100 þúsund
krónur og hámarksáskrift 30 millj-
ónir.
Kauphöllin rétta valið
Lovelock segir næstu áfanga vera
skráningu félagsins á hlutabréfa-
markað íslensku kauphallarinnar
þann 21. júní nk. Lovelock segir
ákvörðunina um að skrá félagið hér á
landi hafa verið tekna með stærð fyr-
irtækisins í huga. „Miðað við stærð
okkar á breskum markaði, og það
fjármagn sem við vorum að reyna að
afla, er ekki víst að okkur hefði tekist
að ná jafngóðum árangri í hlutafjár-
útboðinu og raunin varð hér á landi,“
segir Lovelock. „Ég held að árang-
urinn af útboðinu núna sýni það svo
ekki verði um villst að við höfum tek-
ið rétta ákvörðun að þessu leyti.“
Þann 28. júní nk. verður fyrsta
árshlutaskýrsla fyrirtækisins birt og
segir Lovelock að árangurinn sé
samkvæmt áætlun og afkoman betri
en á sama tíma í fyrra.
Mosaic Fashions hf. er eignar-
haldsfélag Mosaic Fashions Ltd.,
sem aftur er móðurfélag fjögurra
tískuvörumerkja fyrir konur: Oasis,
Coast, Karen Millen og Whistles.
Merkin vinna vel saman
Stærsti hluthafinn verður eftir
sem áður BG Holding (sem er í eigu
Baugs Groups) með tæpan 37% hlut
og KB banki mun eiga 10%.Lovelock
segir stjórn fyrirtækisins ekki hafa
sett stefnuna á frekari yfirtökur á
næstunni, en ekki er langt um liðið
frá kaupunum á Karen Millen og
Whistles. „Í nánustu framtíð munum
við leggja áherslu á að byggja upp
þau merki sem við eigum nú í stað
þess að fjölga þeim.“
Lovelock segir enn margt ógert í
tengslum við kaupin á Karen Millen
og Whistles. „Auðvitað munum við
halda áfram að stækka Oasis og
Coast merkin, en megináherslan
verður á stækkun Karen Millen á al-
þjóðavettvangi.“
Helsti markaður fyrirtækisins er í
Bretlandi og Írlandi en ætlunin er að
víkka starfsemina út annars staðar
og segir Lovelock merkin fjögur að-
stoða hvert annað í þeirri útrás.
„Karen Millen er mjög vinsælt
merki í Rússlandi, en á næsta ári
verða verslanir undir því merki orðn-
ar fimm í því landi,“ segir Lovelock.
„Sérleyfishafinn þar hefur svo gert
samning um að opna sex Oasis versl-
anir í Rússlandi, þannig að við erum
strax farin að sjá kostina við kaupin.“
Eftirspurn 8,6 sinnum
meiri en framboð
Morgunblaðið/Jim Smart
Innri vöxtur Derek Lovelock, forstjóri Mosaic Fashions, segir útboðs-
fjárhæðinni verða varið til þess að styðja við innri vöxt félagsins bæði á
heimamarkaði í Bretlandi og öðrum mörkuðum.
BRÉF það sem Valgerður Sverris-
dóttir sendi hlutafélögum varðandi
fjölgun kvenna í stjórnum hefur ekki
skilað viðunandi árangri að hennar
mati. Áður en bréfið var sent voru
10,08% stjórnarmanna í hlutafélögum
konur en eftir aðalfundahrinuna sem
nú er lokið er hlutfallið 11,28%. Bréfið
var sent 81 fyrirtæki.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Valgerður þetta ekki vera góð tíðindi.
„Viðbrögðin við bréfinu voru jákvæð
sem og umræðan sem það vakti í
þjóðfélaginu. Markmiðið var að
hvetja til uppbyggilegrar umræðu um
málið því ég hef ennþá trú á því að
umræða bæti stöðuna. Ég er ennþá
þeirrar skoðunar að lagasetning sé
ekki ákjósanleg,“ segir Valgerður.
Hún segir fyrirtækin fara á mis við
mikinn mannauð því konur hafi kraft,
víðsýni og þekkingu sem geti nýst
fyrirtækjunum vel.
Valgerður hefur ekki ákveðið hvert
næsta skref verður. „Nú er að störf-
um nefnd, undir forystu Þórs Sigfús-
sonar framkvæmdastjóra Verslunar-
ráðs, sem ég skipaði um málið. Hún á
að leita leiða til þess að fjölga tæki-
færum kvenna í forystu íslenskra fyr-
irtækja. Boltinn er nú hjá nefndinni
en hún á að skila skýrslu í haust,“ seg-
ir Valgerður.
Hún segist þó vilja benda á að viss
árangur hafi náðst og bendir í því
samhengi á að FL Group og BYKO
hafa ráðið konur til starfs forstjóra
auk þess sem Kristín Ingólfsdóttir
hafi verið kjörin rektor Háskóla Ís-
lands, fyrst kvenna. Valgerður segir
það vera áberandi að útrásarfyrir-
tæki dragi vagninn þegar kemur að
því að ráða konur til æðstu starfa.
Óviðunandi
árangur
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði í gær um 0,25% og er
nú 4078,70 stig.
Viðskipti í kauphöllinni námu
9.999 milljónum króna, og þar af
voru viðskipti með hlutabréf fyrir um
3.250 milljónir. Mest voru viðskiptin
með bréf Íslandsbanka, eða fyrir rétt
rúman milljarð króna. Þrátt fyrir það
varð engin breyting á verði bréfana.
Enn mest verslað með
bréf Íslandsbanka
*
> &9 &
> %
?9%$
;
'
!"
"
!"#
!$
% "&' (&
)* &# &
)#&
$&' (& % "&'
+,"
-# .
/0,. /0 !. , &#(
1
# $ !%&'
! 0 % "&'
2 &'
20 .&
3(&
$45& .6 && 78,.
/%!
/"0 9
:9## � &
; && " &
<0 00 =/5(,# ($ ) * +,
( ! ,"' >9.. $&' 40 % "&'
/" ?"# /"&'
:5 5
+ - . @A>B
/4
,
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
,9 &#
9 ,
= =
=
= =
=
=
= =
= =
= = =
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
C =DE
=
=
C =DE
C = DE
C DE
=
=
C =DE
=
C =DE
C DE
=
C =DE
C = DE
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
2, "'
'# &
: "( 4 " '# F
) /"
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
; 4 *G
:2 H #&" !."'
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
:2= I 0 0"'&' " ".
:2= /9"' " ",##. 0 9 "( , &
:2= ;,#& 9 0 . 0#&& ?"#
:2= (, & G#,,&'
7 'J
/KL "8'02
!8!1&
<'#/
<'#2
D
D
!:/>
MN
$8'2'
%8$&0
='#%
='#$
D
D
AA -+N
%8!&%
/1$
='#/
='#!
D
D
)!N
7 ,
22!
!!82'%
='#%
=!#2
D
D
@A>N MO 3&,
%8'/&
!'8$!2
<'#2
='#!
D
D