Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 29
boli, húfur og lyklakippur. Vinsælasta
söluvaran er þó leikfangabjórflutn-
ingabílar. Margir Þjóðverjar safna
slíkum bílum, og að sögn sölumanna
eru dæmi um að menn eigi meira en
þúsund slíka bíla frá mismunandi
framleiðendum heima hjá sér.
Matvara og óáfengir drykkir
Hilmar Bürger segir að hátíðin sé
ekki aðeins fyrir sérfræðinga og ötula
bjórdrykkjumenn. „Á daginn koma
hingað margar barnafjölskyldur.
Héruðin sem hér eru að kynna bjór
bjóða um leið upp á ýmislegt annað,
til dæmis matvöru, óáfenga drykki og
ferðamannaupplýsingar. Einnig er
boðið upp á fjölbreytta skemmti-
dagskrá. Taumlaus drykkja er ekki
það sem við sækjumst eftir. Bjór er
menningardrykkur.“
Ljósmynd/Helgi Þorsteinsson
Nunnur buðu upp á bjór að hætti
Katrínar, eiginkonu Lúthers.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 29
FERÐALÖG
Góður undirbúningur fyrirferðalag getur komið í vegfyrir vandamál og leiðindi. Í
ferðablaði Berlingske Tidende voru
nýlega gefin ráð til að flugferðir
fjölskyldunnar gangi sem best.
Búið börnin vel undir ferðina, að
hún taki tíma og að maður þurfi að
sitja í sætinu með beltið spennt.
Gerið undirbúninginn að ein-
hverju skemmtilegu: Pakkið saman
í tösku og hafið uppáhalds-
leikfangið með. Farið á bókasafnið
og fáið lánaðar bækur. Takið með
litla rúsínupakka, Andrésblað o.fl.
til að eiga ef til seinkunar skyldi
koma.
Íhugið vandlega hvort bangsinn
á að fara með um borð eða hvort
hann á að vera í ferðatöskunni. Það
getur reynst dýrkeypt ef hann
gleymist í vélinni.
Takið hljóðið af tölvuspilum af
tillitssemi við aðra farþega og út-
skýrið það fyrir barninu.
Mörg flugfélög bjóða upp á sér-
stakar barnamáltíðir um borð og
þær þarf að panta oftast með 48
tíma fyrirvara hið minnsta. Athugið
þó af hverju barnamáltíðin sam-
anstendur þar sem það er ekki
skemmtilegt að öll sætaröðin verði
útötuð í jarðarberjasultu.
Það er skynsamlegt að koma
tímanlega á flugvöllinn þegar smá-
börn eru með í för. Borðið gjarnan
morgunverð þar svo ekki þurfi að
ganga frá heima um morguninn.
Pantið gluggasæti fyrir barnið
því þar er ró og útsýni sem börn-
unum getur þótt spennandi.
Munið að ganga úr skugga um
hvort barnavagn sem þið skiljið eft-
ir við hliðið verði afhentur aftur við
hlið þegar þið gangið frá borði eða
hvort hann komi með öðrum far-
angri.
Látið það vera síðasta verkið áð-
ur en gengið er um borð að skipta á
bleyjubarni.
Veljið næturflug ef um langt flug
er að ræða.
Börn fá oft í eyrun í flugi, sér-
staklega við lendingu. Fyrir ung-
börn er best að vera á brjósti eða fá
snuð eða pela. Stærri börn geta
fengið tyggjó og kvefuð börn nef-
dropa sem losa stíflur.
Gefið börnunum oft vatn að
drekka meðan á flugferðinni stend-
ur þar sem loftið er þurrt.
BÖRN
Góð ráð fyrir flugferðina
Á FERÐAVEF BBC má finna
nokkrar ráðleggingar sem vert er
að hafa í huga til að koma í veg fyr-
ir að vera rændur á ferðalaginu.
Ef einhver spyr þig hvort síminn
þinn hafi verið að hringja, þá setur
þú líklega höndina ósjálfrátt í vas-
ann eða töskuna þar sem síminn er
geymdur og athugar með hann.
Ekki gera það því þá gætir þú verið
að vísa þjófum á símann þinn.
Segðu frekar nei og bíddu með að
líta á símann þangað til þú færð
betra tækifæri til þess.
Þegar þú ferðast fótgangandi
skaltu hafa peningaveskið þitt í
vinstri vasa að framan. Flestir eru
rétthentir svo vasaþjófar beina at-
hygli sinni oftast að hægri vösum.
Svo er líka sniðugt að vera með
gamalt og tómt seðlaveski í rass-
vasanum til að plata vasaþjófana.
Ekki gefa þjóf-
um færi á þér
ÖRYGGI