Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 30
30 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Opið alla virka daga í sumar frá kl. 13-17 og um helgar frá kl. 13-18.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
„Andlit Þjórsdæla“ – áhugaverð sýning um mannlífið
í Þjórsárdal í 1100 ár.
Blöndustöð í Húnaþingi
Þorir þú 200 metra niður í jörðina?
Hvað verður í göngum Blöndustöðvar
í sumar? Magnaður viðkomustaður.
Skelltu þér í bíltúr um helgina og skoðaðu áhugaverðar sýningar og virkjanir – við höfum heitt á könnunni.
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
7
3
6
Sumarið er okkar tími! Tilvalið að líta inn
&
LIÐUR í sýningunni Always a Little
Further, [Alltaf skrefinu lengra] sem
Rosa Martínez, annar sýningarstjóra
Feneyjatvíæringsins stýrir, var opn-
un á verki Ólafs Elíassonar, Black
Horizon, á eyjunni San Lazzaro í
Feneyjum. Verkið er unnið fyrir T-B
A21 (Thyssen-Bornemisza Art Con-
temporary) undir stjórn Francescu
af Habsburg, sem m.a. var sam-
starfsaðili nýafstaðinnar Listahátíðar
í Reykjavík við uppsetningu á verki
Christofs Schlingensiefs.
Verk Ólafs er í nýreistum skála
sem breski arkitektinn David Adjaye
teiknaði í nánu samstarfi við lista-
manninn. Skálinn er skammt frá
klaustri San Lazzaro degli Armeni, á
ákaflega friðsælum og fögrum stað,
fjarri skarkala tvíæringsins og jafn-
framt borgarinnar sjálfrar.
Skálar á ferð um heiminn
Um hádegisbilið á opnunardaginn
– áður en sjálf opnunarveislan hófst –
var blaðamaður kominn til eyjar-
innar í fylgd listamannsins til að
fylgjast með pallborðsumræðum
hans, Francescu, David Adjaye og
Daniels Birnbaum, rektors Listahá-
skólans í Frankfurt. Þar kom fram að
verkið er einskonar upptaka á sólar-
ljósi því sem einkennir eyjuna á þess-
um tíma árs, frá sólarupprás til sól-
seturs. Upptökunum á ljósinu var
síðan þjappað niður í u.þ.b. átta mín-
útna ferli sem kemur fram í ljós-
streymi láréttrar ræmu rétt fyrir
neðan augnhæð í kolsvörtum sal skál-
ans. Áhorfandinn getur því horft á
heilan dag líða hjá á þessum örfáu
mínútum. Titill verksins Black Hori-
zon, helgast af því að þegar áhorfand-
inn hefur horft á sjóndeildarhringinn
í nokkra stund sér hans einskonar
„bergmál“ af ljósinu í formi svartra
lína er mynda þannig nýjan sjón-
deildarhring fyrir augum hans. Verk-
ið er skylt sjóndeildarhringsverki því
sem Ólafur sýndi í Listasafni Reykja-
víkur í byrjun síðasta árs, en býr þó
yfir mjög ólíkum karakter og um-
gjörð.
Verkefni þetta á vegum T-B A21
hefur hlotið heitið Limited Edition
Art Pavillion, og er skálinn sá fyrsti
sinnar tegundar og hannaður þannig
að hægt er að taka hann í sundur og
flytja í gámi á nýjan stað ásamt verki
Ólafs. Gert er ráð fyrir að skálinn
standi á San Lazzaro í tvö ár áður en
hann verður fluttur úr stað, en á þeim
tíma munu væntanlega fleiri skálar
verða byggðir víðar um heim undir
verk annarra vel þekktra listamanna.
Skáli Adjayes miðar að því að búa til
einskonar millirými fyrir áhorfand-
ann áður en hann fer inn; þar sem
mörkin á milli hins ytra og innra eru
leyst upp með viðarbjálkum er rjúfa
sjóndeildarhringinn yfir hafið án
þess þó að skerða það til mikilla
muna. Hann ýtir þannig undir þann
sjónræna leik sem Ólafur er að vinna
með inni í skálanum sjálfum.
Samstarf er saklaust
Í umræðunum skýrði Francesca frá
því að hið vel þekkta safn Thyssen-
Bornemisza í Madríd, en þar er alda-
gömul listaverkeign fjölskyldunnar til
sýnis ásamt nýrri verkum er faðir
hennar keypti, væri mjög hefðbundið
og í raun íhaldssamt. „Mig langar til
að skapa ólíkan vettvang, hreyfan-
legri og í meira samræmi við þá
löngun listamanna samtímans til að
skapa verk sín fyrir tiltekinn stað eða
rými.“ Hún lýsti jafnframt ánægju
sinni með samstarfið við þá Ólaf og
David með því að vísa til orða hins
fræga myndlistarmanns Dan
Grahams; „samstarf er saklaust“, en
þannig taldi hún að vinnan við verkið
hefði verið; sakleysislegt upphaf sem
hefði að lokinni mikilli vinnu þeirra
allra myndbirst á ákaflega ánægju-
legan hátt.
Myndlist | Verk Ólafs Elíassonar á Feneyjatvíæringnum opnað á eyjunni San Lazzaro
Svart bergmál sjóndeildarhringsins
Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur
fbi@mbl.is
Fólk tekið að streyma inn í skálann er hýsir Black Horizon á San Lazzaro.
Morgunblaðið/Fríða Björk
Daniel Birnbaum, David Adjaye, Ólafur og Francesca af Habsburg.
Ólafur Elíasson myndlistarmaður.
EVA Rún Þorgeirsdóttir og Halla
Ólafsdóttir hlutu fyrstu verðlaun í
dansleikhússamkeppninni 25 tímar
í Borgarleikhúsinu í fyrrakvöld fyr-
ir verk sitt Beðið eftir hverju. Verð-
launin voru 250.000 kr. sem Ólafur
Haraldsson, framkvæmdastjóri
SPRON, afhenti þeim stöllum.
Önnur verðlaun hlaut Peter And-
erson fyrir verk sitt Twelve points,
en þriðju verðlaunin hlutu þær
Halldóra Geirharðsdóttir, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir og Elma Lísa
Gunnarsdóttir fyrir verkið Örlög
systra. Áhorfendasalur Borgarleik-
hússins var fullskipaður og komust
færri að en vildu, en áhorfendur
völdu einnig eitt verk til verðlauna.
Það voru þau Álfrún Örnólfsdóttir
og Friðrik Friðriksson sem hlutu
þau fyrir verkið 9:50 alla virka
daga.
Samkeppnin var nú haldin í
þriðja sinn og að vanda í samvinnu
við SPRON sem frá upphafi hefur
stutt keppnina.
Beðið eftir hverju
bar sigur úr býtum
Morgunblaðið/Golli