Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 45
MINNINGAR
✝ Sigurður Sigur-jónsson fæddist í
Heiðarbót í Reykja-
hverfi 8. september
1913. Hann lést á
dvalarheimilinu
Hvammi aðfaranótt 3.
júní síðastliðins. For-
eldrar hans voru
Sigurjón Pétursson
bóndi í Heiðarbót, f. á
Núpum 7. maí 1893,
d. 29. október 1982 og
kona hans Jónína Sig-
urðardóttir, f. í Heið-
arbót 5. desember
1879, d. 2. júlí 1937.
Systkini Sigurðar eru Þuríður
Hólmfríður, f. 29. október 1914,
Helga, f. 23. júlí 1916, Stefán Pét-
ur, f. 16. desember 1918 og Hreið-
ar, f. 7. ágúst 1920. Hálfbróðir
Sigurðar, honum samfeðra var
Sigtryggur, f. 28. febrúar 1943.
Eftirlifandi eru systurnar Þuríður
og Helga.
Sigurður kvæntist 8. september
1962 Guðnýju Jósepsdóttur, f. á
Sigurður ólst upp í Heiðarbót og
stundaði þar búskap með föður
sínum til ársins 1944 er hann flutt-
ist til Húsavíkur. Þar var hann
rútubílstjóri, vörubílstjóri og
leigubílstjóri í mörg ár. Sigurður
var um tíma stundakennari í söng
í Barnaskóla Húsavíkur á árunum
1940 til 1960 og var húsvörður í
Barnaskóla Húsavíkur á árunum
1961 til 1985. Hann var einnig
ökukennari á Húsavík með öðrum
störfum. Sigurður hafði alla tíð
mikið yndi af söng og það var mik-
ið sungið á bernskuheimili hans í
Heiðarbót. Söng hann ásamt
bræðrum sínum og föður í Karla-
kór Reykhverfinga um árabil með-
an fjölskyldan bjó enn í Heiðarbót.
Einnig sungu þeir feðgar saman í
kvartett sem kom víða við á söng-
skemmtunum. Ungur að árum tók
hann til við að semja lög og útsetja
og samdi hann fjölmörg lög um
æfina. Eftir að hann fluttist til
Húsavíkur söng hann í Kirkjukór
Húsavíkur og Karlakórnum Þrym.
Hann tók við kórstjórn í Þrym
1951 og stjórnaði honum allt fram
til 1969. Síðar stjórnaði hann kór
eldri borgara á Húsavík.
Sigurður verður jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Breiðumýri í Reykja-
dal 12. júní 1929, d. 9.
júní 1999. Foreldrar
Guðnýjar voru Jósep
Kristjánsson, f. á
Litlulaugum 29. maí
1887, d. 14. febrúar
1981 og kona hans
Gerður Sigtryggs-
dóttir, f. á Hallbjarn-
arstöðum 11. júlí
1896, d. 4. júlí 1978.
Synir Sigurðar og
Guðnýjar eru: 1) Jós-
ep, f. 9. nóvember
1963, kvæntur Guð-
rúnu Árnýju Guð-
mundsdóttur, f. 17. september
1966, börn þeirra eru Aron Bjarki,
Elín og Gunnar Ingi. 2) Sigurjón,
f. 27. nóvember 1964, kvæntur El-
ínu Hildi Jónsdóttur, f. 22. desem-
ber 1961, börn þeirra eru Sigurð-
ur og Nanna. 3) Örn, f. 11
nóvember 1966, sambýliskona Sól-
veig Guðmundsdóttir, f. 26. apríl
1970, börn þeirra eru Signý og
Bergþór.
Nú er langri lífsleið lokið. Sigurð-
ur tengdapabbi er farinn til æðri
heima. Hann vissi það þegar hann
fór að hann myndi fara yfir á annað
tilverustig og óttaðist ekkert. Hann
var tilbúinn þegar kallið kom. Hann
var sáttur við lífshlaup sitt og hafði
lagt sitt af mörkum til samfélagsins.
Hann vissi að Gunsa biði eftir honum
hinum megin og hann hlakkaði til
endurfundanna.
Ég kynntist Sigurði fyrir tæpum
16 árum. Ég man sérstaklega eftir
því þegar ég sá hann fyrst þegar þau
hjónin komu suður til Reykjavíkur
að skoða litla sonarsoninn. Siggi,
þessi ljúfi, rólegi og hógværi maður,
og Gunsa, hin glaðlega og fjöruga
kona, sem hreif alla með sér í áhuga
á lífinu og fólkinu í kringum sig. Í
þessum hjónum voru miklar and-
stæður, þau virtust svo ólík, en samt
svo samrýnd. Á milli þeirra ríkti
greinilega mikil virðing og væntum-
þykja. Seinna þegar litla fjölskyldan
mín ákvað að dvelja sumarlangt á
Húsavík komst ég betur að því
hversu heppin ég var að tengjast
þessu öndvegisfólki. Þau tóku mér
opnum örmum og ég upplifði mig
strax sem eina af fjölskyldunni. Ég
held að ástæðan fyrir því hversu vel
mér leið á Húsavík hafi verið að ég
tengdi alltaf Húsavík við þessi ynd-
islegu hjón. Þau áttu líka stóran þátt
í því að við fluttum til Húsavíkur
nokkrum árum seinna, með börnin
okkar sem voru þá orðin þrjú.
Á Húsavík kynntist ég tengdafor-
eldrum mínum betur og á þeim bæ
var mikla reynslu og visku að finna.
Gunsa umvafði okkur með hlýju og
ástúð og passaði upp á að aldrei
skorti mat. Við Siggi áttum margar
góðar stundir þar sem spjallað var
um lífið og tilveruna. Af þeim lærði
ég margt.
Siggi hafði mikinn áhuga á um-
hverfinu og fólkinu. Honum var um-
hugað um mannfólkið og sárnaði
hversu illa margt fólk færi með tæki-
færi sitt í lífinu. Honum sárnaði þeg-
ar hann frétti af mannvonsku, stríði
og ofbeldi. Hann var trúaður maður
og trúði því að með því að breyta rétt
myndum við hafa áhrif á fólkið og líf-
ið í kringum okkur. Hann hafði mik-
inn áhuga á andlegum málum og
trúði því alltaf að við ættum í vænd-
um líf eftir dauðann. Það var gaman
að spjalla við Sigga um þessi málefni.
Siggi var maður hófseminnar.
Hann lifði eftir sinni sannfæringu.
Hann var stakur bindindismaður og
talaði mikið gegn áfengisdrykkju og
tóbaksneyslu. Hann lagði áherslu á
að maður ætti að rækta vel líkama og
sál. Hófsemi og skynsemi í fæðuvali
og góð hreyfing fannst honum mikil-
vægt ásamt góðum samræðum um
lífið og tilveruna.
Siggi var stoltur af sonum sínum
og lagði mikla rækt í uppeldi þeirra.
Honum var umhugað um að þeir
yrðu að góðum mönnum. Síðustu ár-
in nefndi hann það oft hversu ánægð-
ur hann væri með þá og hversu sátt-
ur hann væri við hvað hafði orðið úr
þeim. Hann hafði líka mikinn áhuga
á barnabörnunum sínum sjö. Hann
sinnti þeim vel, talaði við þau og lék
við þau. Hann gaf sér alltaf tíma til
að skoða með þeim umhverfið og
spjalla. Siggi var líka ákaflega fjör-
ugur og léttur á sér og hafði gaman
af því að hlæja. Hann hafði sérstak-
lega gaman af því að vera í fótbolta
og fram á níræðisaldur tók hann þátt
í boltaleikjum með barnabörnunum,
skellihlæjandi. Siggi hafði líka mik-
inn áhuga á að synir hans veittu
börnum sínum gott uppeldi og gaf
oft góð ráð.
Tónlistin átti hug og hjarta Sigga
frá unga aldri. Hann lagði líka mikla
áherslu á að styðja syni sína í tónlist-
arnámi og vildi að þeir ræktu tónlist-
arhæfileikana sem greinilegt er að
þeir hafa allir erft frá pabba sínum.
Hann kenndi þeim raddaðan söng
um leið og þeir höfðu aldur til. Gunsa
sagði okkur frá því hversu gaman
hefði verið á ferðalögum þegar þeir
feðgar sungu allir saman í bílnum.
Við eigum líka góðar minningar um
stundir þar sem þeir feðgar sungu
saman. Helst voru þá sungin lög eftir
Sigga. Eitt uppáhaldslag Gunsu var
lagið Vögguljóð eða Bí, bí og blaka
eftir Sigga, og það hefur orðið að
uppáhaldslagi okkar fjölskyldunnar
líka. Á síðustu dögum Sigga spiluð-
um við mikið tónlist, þá sérstaklega
lögin hans sungin af Karlakórnum
Hreimi. En í undirbúningi er að gefa
út geisladisk með lögum Sigga og
búið er að taka upp hluta laganna.
Veitti það honum mikla gleði að
hlusta á þennan góða söng. Hann
virtist allur vakna upp og ljómaði
eins og sól í heiði. Lögin hans veittu
honum líka mikla ró og vellíðan og
söng hann stundum með.
Siggi var líka mjög ánægður með
að barnabörnin hans stunduðu tón-
listarnám og stundum spiluðu þau
fyrir afa sem var hæstánægður,
klappaði og hló. Honum fannst mikil-
vægt að þau ræktuðu tónlistarhæfi-
leika sína og vildi gjarnan að þau
stunduðu líka söng. Siggi sagði að
það væri svo hollt og gott að syngja.
Ég er þakklát fyrir hafa fengið
tækifæri til að kynnast þessum vel
gerða manni og fá að njóta visku
hans. Ég er líka þakklát fyrir að hafa
kynnst þessum yndislegu hjónum.
Ég veit að nú er Siggi kominn til
Gunsu sinnar og syngur nú þar af
lífsins lyst. Ég veit líka að þau munu
örugglega fylgjast með okkur áfram
frá nýjum stað.
Minningin lifir í hjarta okkar.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft-
ur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran/Gunnar Dal.)
Guðrún Árný Guðmundsdóttir.
Hetjan mín. Af hverju þú? Af
hverju þarft þú að fara? Vill Guð fá
þig til sín?
Þú hefur átt langa ævi, þú hefur
gengið í gegnum margt. Þú hefur
misst marga, þú hefur glatt marga,
þú hefur hjálpað mörgum. Þú varst
alltaf svo sterkur, glaðlyndur og kát-
ur, góður og skemmtilegur. Og þú
munt alltaf verða hetjan mín.
Ég veit þú vilt fara, hitta gamla
vini. Hitta ömmu Gunsu, og mömmu
þína, pabba þinn og svo marga fleiri,
sem hafa farið á meðan þú lifðir þinni
löngu, erfiðu og góðu lífsgöngu þinni.
Þú ert, og verður alltaf hetjan mín.
En mundu, ekki hafa allar hetjur
grímur.
Tileinkað Sigga afa.
Elín Jósepsdóttir.
Lítil þökk
Góði félagi og vinur. Ég þakka þér
fyrir tónana þína og sönginn. Menn
eins og þú deyja ekki, þeir lifa áfram
í söngvum sínum. Ég þakka þér líka
fyrir góð kynni og hlýju sem alltaf
stafaði frá þér í garð allra, líka í tón-
verkunum. Þú átt heima þar sem þú
ert nú, meðal himneskra tóna hæstu
hæða. Þeim sem eftir lifa sendi ég
samúðarkveðjur.
Guðmundur Sæmundsson.
SIGURÐUR
SIGURJÓNSSON
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Kær vinkona mín,
Steinunn Norðfjörð,
er látin. Mig langar
að minnast hennar
með nokkrum orðum.
Eina sem við vitum er að öll mun-
um við deyja, en að hennar tími
væri kominn er erfitt að sætta sig
við.
Hún hafði þá barist við veikindi
síðustu árin, en það var eins og
hún væri bjartsýnni en oft áður og
liði betur.
Ég kynntist Steinunni fyrir
u.þ.b. 45 árum. Við vorum ungar
og lífið blasti við. Síðar þegar við
vorum með börnin ung, sátum við
saman, saumuðum út og spjölluð-
um um heima og geima. Steinunn
hafði mikinn áhuga fyrir mönnum
og málefnum og skorti okkur aldr-
ei umræðuefni.
Hún hafði ákveðnar skoðanir og
var oft mjög hnyttin í svörum,
gerði góðlátlegt grín að sjálfri sér
og öðrum.
Steinunn var mjög skemmtileg
kona og átti það til að hringja í
mig óvænt til að segja mér góðan
brandara, án þess að tilefnið væri
annað.
Steinunn eignaðist tvö börn með
fyrrverandi eiginmanni sínum
Guðmundi Þ. Jónssyni og bar hún
STEINUNN MAR-
GRÉT NORÐFJÖRÐ
✝ Steinunn Mar-grét Norðfjörð
fæddist í Reykjavík
20. október 1943.
Hún lést á heimili
sínu á Ljósvallagötu
20 í Reykjavík 12.
maí síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kapellu 23. maí.
hag þeirra ávallt fyrir
brjósti. Ekkert var of
gott fyrir þau. Síðar
komu barnabörnin.
Fjórar yndislegar
stúlkur sem voru
augasteinar hennar.
Þær hafa misst mikið.
Steinunn hugsaði
mikið um andleg mál-
efni. Hún var lengi í
Sálarrannsóknafélag-
inu og var sannfærð
um líf eftir dauðann.
Steinunn var ein-
staklega ljúf og gjaf-
mild kona sem vildi
frekar gefa en þiggja. Ég mun
sárt sakna að heyra ekki rödd
hennar framar. Eina huggunin er
þó sú að henni líður örugglega vel
núna með foreldrum sínum og vin-
um.
Gengin er glæsileg og góð kona
sem tekið var eftir hvar sem hún
fór.
Minningu um góða vinkonu mun
ég varðveita í hjarta mínu.
Hvíl í friði, elsku Steinunn mín.
Börnun hennar, barnabörnum
og ættingjum votta ég mína
dýpstu samúð.
Hrafnhildur.
Okkur langar að
minnast Sigurjóns
með þessum orðum.
„Einstakur“ lýsir fólki
sem stjórnast af rödd
SIGURJÓN G.
SIGURJÓNSSON
✝ Sigurjón G. Sig-urjónsson fædd-
ist í Reykjavík 12.
september 1943.
Hann lést á heimili
sínu, Birkigrund 71,
20. maí síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Digraneskirkju
31. maí.
síns hjarta og hefur í
huga hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýr-
mætir og hverra skarð
verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem
best lýsir þér.
(Terri Fernandez.)
Góðmennska og ör-
læti kemur upp í hug-
ann þegar hugsað er
til Sigurjóns og
Önnu.
Ég var svo heppin
að fá vinnu hjá þeim fyrir tæpum
14 árum síðan. Jafn miklu þakk-
læti og hugulsemi hafði ég ekki
kynnst. Sigurjón gaf sér alltaf
tíma til að spjalla, athuga hvernig
gengi, hvort allt væri í lagi og
kvaddi með þessum orðum: Þakka
þér kærlega fyrir. Lét mann vita
ef honum mislíkaði eitthvað, á
sinn einstaka hátt, nærgætinn en
ákveðinn.
Ég bar mikla virðingu fyrir
Sigurjóni og verð honum og fjöl-
skyldu hans ævinlega þakklát fyr-
ir kynnin.
Elsku Anna, Freyja, Þórir og
synir.
Ásgeir, Silja og börn.
Drífa, Óli og börn.
Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Gunnþórunn, Árni og
börn.
Elsku hjartans afi/
langafi. Þó að þú hafir
nú yfirgefið þennan
heim getur enginn
tekið frá okkur minn-
ingarnar um góðar
stundir í návist þinni. Þessar minn-
ingar munum við geyma í hjarta
okkar og ylja okkur við. Fyrir þér
voru allir jafnir, hvort sem um var
GUÐNI JÓHANNES
ÁSGEIRSSON
✝ Guðni JóhannesÁsgeirsson fædd-
ist í Hnífsdal 1. mars
1930. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akraness
miðvikudaginn 18.
maí síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Akraneskirkju 25.
maí.
að ræða börn eða full-
orðna.
Við mæðgur upplifð-
um báðar einlægan
kærleika og hlýju frá
þér. Á mínum yngri
árum sat ég oft í fangi
þínu og söng fyrir þig
að þinni ósk. Það sama
átti við um dóttur
mína. Þú fékkst gjarn-
an að velja þér óskalög
og söng ég oftast fyrir
þig Maístjörnuna en
Elva Rós kunni sálm-
inn Í bljúgri bæn utan
að og flutti gjarnan
fyrir þig. Þann sálm munum við láta
fylgja hér með enda hugsum við
ávallt til þín þegar við raulum hann
saman.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín. Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Elsku afi, það er okkar von að þér
líði vel á nýja staðnum. Við sjáumst
síðar og getum við þá verið vissar
um að fá hlýtt faðmlag og koss á
kinnina frá þér.
Elsku amma, börn og aðrir ætt-
ingjar. Megi góður Guð styrkja
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Þínar afastelpur,
Guðlaug Jóna
og Elva Rós.