Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn hefur háleitar hugmyndir um
endurbætur á heimilinu. Hann vill bæði
lagfæra það sem er bilað og standsetja.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Næstu vikur verður nautið önnum kafið í
stuttum ferðum, verslun og viðskiptum
og á spjalli við náungann. Takturinn í
daglega lífinu verður hraður.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Á næstu vikum verður tvíburinn sífellt at-
kvæðameiri í félagsstarfi, ekki síst hópum
sem tengjast íþróttum. Hann spáir líka
mikið í peningamálin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Merkúr (hugsun) fer í krabbamerkið í
dag og verður þar næstu tvær vikur.
Hann finnur til mikillar þarfar fyrir að tjá
sig fyrir vikið, og liggur nokkuð á hjarta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið finnur sig æ knúnara til þess að
fara aðra af tveimur leiðum á næstunni.
Annað hvort vill það ferðast og skoða
heiminn eða helga sig útgáfu og fjöl-
miðlun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan blandar oftar geði en endranær
við vini eða í félagasamtökum á næstu
vikum. Tilfinningar hennar eru sterkari
en venjulega núna. Hún vill vita hvað öðr-
um finnst um ótilgreint efni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er friðarsinni í eðli sínu og vill hafa
jafnvægi í umhverfi sínu. Mars (fram-
kvæmdaorka) verður beint á móti vog-
armerkinu í dag og eykur líkur á rifr-
ildum við maka.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn iðar í skinninu eftir að
verða skipulagðari og mun þar af leiðandi
leggja meira á sig á næstunni við að koma
öllu í röð og reglu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn daðrar og lyftir sér upp
sem aldrei fyrr á næstunni. Hann langar
mest til þess að skemmta sér og slakar á
með því að vera hann sjálfur, án allrar til-
gerðar eða afsökunar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óreiða og erill fer vaxandi heima fyrir á
næstunni hjá mörgum steingeitum.
Ástæðan er hugsanlega endurbætur,
flutningar eða gestagangur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er einstaklega sannfærandi
á vinnusviðinu núna. Hann trúir á það
sem hann er að gera og vill að aðrir skilji
hvað hann á við. Sannfæringarkraftur
hans er með mesta móti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er til í að eyða meiri peningum
í skemmtanir á næstunni en oft áður.
Jibbí! Kannski eyðir hann fjármunum
sínum í tómstundir eða eitthvað handa
börnunum.
Stjörnuspá
Frances Drake
Tvíburar
Afmælisbarn dagsins:
Hugrekki þitt og iðjusemi gera að verkum
að þú hikar ekki við áreynslu og ferð oft
næstum því yfir strikið. Þú ert dygg að eðl-
isfari og nokkurs konar eilífðarstúdent sak-
ir forvitni þinnar og áhuga á heiminum.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Dagana 22.–26. júní verður alþjóðleg leik-listarhátíð Bandalags íslenskra leik-félaga haldin í annað sinn. Hátíðin erhluti af listasumri á Akureyri og taka
leikhópar víðs vegar af landinu þátt í henni. Verða
alls sýndar ellefu sýningar dagana sem hún stend-
ur yfir, þar af tvær erlendar. Lárus Vilhjálmsson
er formaður framkvæmdanefndar hátíðarinnar.
Hvers konar sýningar verða á hátíðinni?
„Þetta eru mjög fjölbreyttar sýningar. Níu af
þeim eru íslenskar og eru allt sýningar sem hafa
verið frumsýndar af áhugaleikfélögum í vetur og
voru valdar sérstaklega á hátíðina. Þetta eru verk
af öllum toga, bæði íslensk og erlend, og eru allt
frá því að vera gamanleikir upp í hádramatísk
verk. Síðan fáum við tvo erlenda leikhópa í heim-
sókn. Cirkity Gravikus kemur frá Gautaborg, en
þau hafa sérhæft sig í leikhúsi þar sem blandast
saman sirkus, látbragð og trúðleikur. Þetta er al-
þjóðlegur hópur sem hefur starfað í sex ár og
ferðast um allan heim. Síðan fáum við leikhóp frá
bænum Jonava í Litháen. Þau sýna verk sem heit-
ir „Bobos“, eða konur, og er byggt á þjóðsögum og
ævintýrum. Það er mikill fengur að fá þau hingað
enda er þetta þekkt leikfélag í Litháen og er á
mjög háu plani eins og mörg áhugaleikfélög frá
Eystrasaltsríkjunum.“
Verður fleira í boði á hátíðinni en sýningarhald?
„Já, það verður stanslaus dagskrá alla daga há-
tíðarinnar frá morgni og fram á nótt. Við verðum
með leiksmiðjur sem eru öllum opnar og hægt er
að skrá sig í á upplýsingamiðstöð hátíðarinnar í
Húsinu. Til dæmis verður kennsla í svokölluðu
stompi, sem er eins konar dans og tónlistarflutn-
ingur í bland, og einnig leiksmiðja í slagsmálum á
sviði. Svo verður Bernd Ogrodnik
með fyrirlestur og sýnikennslu í leikbrúðugerð
sem við teljum virkilega spennandi. Á hverjum
degi verða síðan opnir fundir þar sem gagnrýn-
endur ræða við aðstandendur og aðra áhugasama
um sýningarnar og á kvöldin verðum við með há-
tíðarklúbb í Græna hattinum og í Deiglunni.
Þangað eru allir velkomnir og verða þar ýmsar
uppákomur og skemmtiatriði. Hátíðin opnar með
útileikhúsi um alla Akureyri og lýkur með verð-
launaafhendingu fyrir bestu sýninguna og annað
sem þykir verðlaunavert.“
Hvað búist þið við mörgum þátttakendum og
gestum?
„Starfsmenn hátíðarinnar og þátttakendur eru
um 180 manns og svo vonumst við til að sjá sem
flesta gesti. Óskandi er að Norðlendingar taki
þessu vel og eins þeir sem verða á ferðinni á svæð-
inu á þessum tíma.“
Leiklist | Alþjóðleg leiklistarhátíð áhugamanna á Akureyri 22.–26. júní
Sýningar og leiksmiðja fyrir alla
Lárus Vilhjálmsson
er fæddur 1961. Hann
lauk háskólaprófi í
ensku og stjórn-
málafræði og er fram-
kvæmdastjóri Ný-
listasafnsins.
Lárus hefur starfað hjá
Leikfélagi Hafn-
arfjarðar í 23 ár sem
leikari, höfundur og
leikstjóri. Hann er einn-
ig varaformaður Bandalags íslenskra leik-
félaga og formaður framkvæmdanefndar leik-
listarhátíðar félagsins.
Lárus býr á Álftanesi og er kvæntur, þriggja
barna faðir.
Tónlist
Hóladómkirkja | Einsöngstónleikar sunnu-
dag kl. 14. Marta Halldórsdóttir sópran
syngur við undirleik Arnar Magnússonar.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð
| Jagúar blása til útgáfuveislu kl. 15.
Svarthvíta hetjan veitingahús | Hljóm-
sveitin VAX spilar í kvöld.
Ingólfstorg | Lúðrasveitin Svanur verður
með sumartónleika klukkan 17:00 og verð-
ur leikið í hálftíma.
Kaffi Hljómalind | Hljómsveitin Misery
Loves Company heldur tónleika kl. 21.
Myndlist
101 gallery | Ólafur Elíasson til 1. júlí.
Café Karólína | Hugleikur Dagsson.
Energia | Sigurður Pétur Högnason.
Feng Shui húsið | Diddi Allah sýnir olíu- og
akrýlverk.
Gallerí i8 | Lawrence Weiner til 6. júlí.
Gallerí Sævars Karls | Kristín Blöndal.
Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn-
ara II er opin virka daga frá kl. 11–17 og um
helgar frá kl. 13–17.
Grafíksafn Íslands | Samsýning þýskra
listamanna. Síðasta sýningarhelgi.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal.
Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Bene-
diktsson Fiskisagan flýgur.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21. ágúst.
Hallgrímskirkja | Guðbjörg Lind Jónsdóttir
sýnir myndverk í forkirkju og kór. Þórólfur
Antonsson og Hrönn Vilhelmsóttir sýna
ljósmyndir í turni.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auður
Vésteinsdóttir.
Hrafnista Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð-
jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum.
Hönnunarsafn Íslands | Circus Design frá
Noregi. Til 4. sept.
Kaupfélag listamanna | KFL – group er
með hressandi myndlist í Gamla Kaupfélag-
inu í Hafnarfirði að Strandgötu 28, 2. hæð.
Opið alla daga frá 14–18. Aðgangur er
ókeypis.
Kling og Bang gallerí | John Bock til 26.
júní.
Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð.
Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia
Pérez de Siles de Castro til 3. júlí.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið er alla
daga nema mánudaga frá kl. 14–17.
Listasafnið á Akureyri | Matthew Barney,
Gabríela Friðriksdóttir til 26. júní.
Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel
Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza-
dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir,
John Latham, Kristján Guðmundsson.
Listasafn Reykjanesbæjar | 365 skúlptúr-
ar eftir Martin Smida.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischert til 21. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sumarsýning Listasafns Íslands.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sum-
arsýning – Aðföng, gjafir og lykilverk eftir
Sigurjón Ólafsson. Opið kl. 14-17.
Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf
Opdahl.
Norska húsið í Stykkishólmi | Ástþór Jó-
hannsson.
Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn.
Safn | Carsten Höller til 10. júlí.
Saltfisksetur Íslands | Kristinn Benedikts-
son ljósmyndari með ljósmyndasýningu.
Slunkaríki | Elín Hansdóttir, Hreinn Frið-
finnsson til 26. júní.
Skaftfell | Anna Líndal til 26. júní.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð
| Ólöf Nordal og Kelly Parr. Coming Soon.
Suðsuðsvestur | Sólveig Aðalsteinsdóttir.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson. Sjá: www.or.is.
Við fjöruborðið | Inga Hlöðvers.
Vinnustofa Aðalheiðar Valgeirsdóttur |
Málverkasýning Grettisgötu 3, opið fim.–
sun. kl. 14–18 til 12. júní.
Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga-
sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru
Kristjánsdóttur á listgripum Þjóðminja-
safnsins frá 16., 17. og 18. öld.
Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi,
Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu.
Dans
Kramhúsið | Helgina 10.–12. júní verður
helgarnámskeið í hinum sívinsæla argent-
ínska tangódansi í Kramhúsinu við Berg-
staðastræti. Gestakennarar frá Buenos Air-
es, Cecilia Pugin og Mariano Galeano. Í
helgarlok verður Milonga-kvöld á Iðnó.
Tangósveit lýðveldisins leikur fyrir dansi og
Cecilia og Mariano sýna dans.
Söfn
Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljósmyndum
úr fórum Kópavogsbúa af börnum í bænum
í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og
skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu.
Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar
frá kl. 9–17.
Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð-
húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir
uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg-
undir og furðufiska.
Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu eru opnar alla daga frá kl.
11 til 17. Helstu sýningar eru: Handritin, Fyr-
irheitna landið og Þjóðminjasafnið – svona
var það. Á veitingastofunni Matur og menn-
ing er gott að slaka á og njóta veitinganna
og útsýnisins yfir Arnarhólinn og höfnina.
Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband
2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk
eftir jafnmarga bókbindara frá Norðurlönd-
unum. Sýningin fer um öll Norðurlöndin og
verður í Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst.
Skemmtanir
Ari í Ögri | Geiri Sæm og Tryggvi Hubner í
kvöld.
Borgfirðingahátíð | Brákarball, útidans-
leikur fyrir alla fjölskylduna í Brákarey á
laugardagskvöld. Á móti sól leikur fyrir
dansi undir berum himni frá kl. 21–1.
Cafe Catalina | Garðar Garðars spilar á
Catalinu í kvöld.
Café Victor | DJ Jón Gestur a.k.a Nonni
900 spilar í kvöld.
Celtic Cross | Spilafíklarnir - á efri hæðinni
leikur hljómsveitin 2 á milli strengja.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Sixties með hörku dansleik.
Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit skemmta gestum í kvöld.
Minjasafnið á Akureyri | Söngferðalag í tali
og tónum um íslenska tónlistarsögu frá
miðöldum til okkar daga í viðeigandi um-
gjörð Minjasafnskirkjunnar á Akureyri. Efn-
isskráin er afar fjölbreytt og spannar allt frá
dróttkvæðum miðalda til söngva og þjóð-
laga frá 19. og 20. öld. Söngvakan hefst kl.
20.30.
VÉLSMIÐJAN Akureyri | Kiddi Grétar og
Sigga Beinteins í kvöld. Húsið opnað kl. 22.
Mannfagnaður
Borgfirðingahátíð | Borgfirðingahátíð
verður haldin 10.–12. júní, og er það í sjötta
sinn sem Borgfirðingar bregða á leik með
fjölbreyttri fjölskyldudagskrá. Hátíð-
arhöldin standa fram á sunnudagskvöld.
Meðal viðburða má nefna miðnætursund í
Hreppslaug á föstudagskvöld, útihátíð við
Hyrnutorg á laugardag, frían morgunverð í
Skallagrímsgarði á sunnudagsmorgun og
leiki og létt grín á nýjum ferðaþjónustustað
í Fossatúni.
Fundir
OA-samtökin | OA-karladeild alla þriðju-
daga klukkan 21–22, að Tjarnargötu 20,
Gula húsinu, 101 Reykjavík. Meginmarkmið
okkar er að halda okkur frá hömlulausu
ofáti og bera boðskap samtakanna til þeirra
sem enn þjást af matarfíkn.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | 3ja daga námskeið
(12 klst.) fyrir stafrænar myndavélar. 13.–16.
júní kl. 18–22. Verð kr. 14.900. Myndavélin *
Myndatakan * Ljósmyndastúdíó * Tölvan *
Photoshop. Fyrir byrjendur og lengra
komna. Skráning á www.ljosmyndari.is eða
síma 898 3911.
Útivist
Alviðra fræðslusetur | Útivist og fræðsla
þegar Guðmundur Halldórsson skordýra-
fræðingur skoðar smádýralífið með gestum
í Alviðru kl. 14–16. Fyrir alla aldurshópa.
Þátttökugjald er 800 kr. fyrir fullorðna 300
fyrir börn 6–15 ára, kakó og kleinur innifalið.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fiskur, 8 spræna,
9 kompa, 10 ferskur,
11 bygginga, 13 ákveð,
15 fars, 18 ljúka við,
21 eldiviður, 22 drembna,
23 mannsnafn, 24 afbrota-
manns.
Lóðrétt | 2 ísstykki,
3 hindra, 4 auðugra,
5 orðum aukinn, 6 grip,
7 raggeit, 12 nálægari,
14 illmenni, 15 vöndur,
16 skeldýr, 17 valda tjóni,
18 rispa, 19 elskan, 20 for-
ar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 bófar, 4 sópur, 7 letur, 8 rokið, 9 táp, 11 næði,
13 fráa, 14 lyfta, 15 stál, 17 ráma, 20 ern, 22 klæki,
23 ókind, 24 seiðs, 25 tónar.
Lóðrétt | 1 bólin, 2 fátíð, 3 rýrt, 4 sorp, 5 pokar, 6 riðla,
10 álfar, 12 ill, 13 far, 15 síkis, 16 áræði, 18 ásinn,
19 andar, 20 eims, 21 nótt.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
ÞORVALDUR Óttar Guðlaugsson
sýnir íslensk fjöll í Listmunahorn-
inu í Krambúð Árbæjarsafns. Sýn-
ingin opnar í dag kl. 14 og stendur
til 23. júní. Safnið er opið daglega
frá kl. 10 til 17. Á sýningunni, sem
ber nafnið „Tvær Esjur og einn
Þorbjörn“, er að finna þrívíðar lág-
myndir unnar úr postulíni. Við-
fangsefnin eru íslensk staðarfjöll
sem hann mótar undir berum himni
frá ýmsum sjónarhornum.
Íslensk fjöll úr postulíni