Morgunblaðið - 13.06.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ENSKA liggur best fyrir grunn-
skólanemum, en stærðfræði og sam-
félagsfræði valda þeim hins vegar
mestum vandræðum, miðað við nið-
urstöður úr samræmdum prófum í
10. bekk, sem birtar voru á dögun-
um. Meðaleinkunn á samræmdu
prófi í ensku er hæst alls staðar á
landinu, fer í fjórum kjördæmum yf-
ir 7,0 og er 7,2 í það heila. Lægst er
meðaleinkunnin í samfélagsfræði,
5,9 en lægsta meðaleinkunnin í ein-
stökum kjördæmum var í stærð-
fræði í Suðurkjördæmi, eða 5,3.
Námsmatsstofnun birtir einkunn-
ir úr prófunum og eru þær flokkaðar
eftir kjördæmum og kemur höfuð-
borgarsvæðið best út.
Í Reykjavík suður, Reykjavík
norður og Suðvesturkjördæmi eru
hæstu meðaleinkunnir í öllum grein-
um og Reykjavík suður kemur best
út í fjórum af sex prófum.
Suðurkjördæmi kemur hins vegar
í öllum tilvikum verst út úr sam-
ræmdu prófunum, eins og sjá má á
meðfylgjandi töflu.
27% nemenda tók öll sex prófin
Allir grunnskólanemar þreyta
próf í íslensku, stærðfræði og ensku
en valfrjálst er að taka próf í dönsku,
náttúrufræði og samfélagsfræði. Í ár
tóku 27% nemenda öll sex prófin og
er það mun lægra hlutfall en árið áð-
ur þegar 38,1% nemenda þreytti
próf. Þennan mun má að miklu leyti
skýra með kennaraverkfallinu í
fyrrahaust, að sögn Sigurgríms
Skúlasonar, sviðsstjóra hjá Náms-
matsstofnun.
Sigurgrímur segir erfitt að bera
niðurstöður prófanna í ár saman við
eldri próf, þar sem ekki sé sama próf
lagt fyrir. Hins vegar geti nemendur
fengið nokkra vísbendinga um hvar
þeir standi í samanburði við aðra
með því að skoða einkunnadreifingu.
Yfir 4.300 nemendur þreyttu sam-
ræmt próf í íslensku í ár en örlítið
færri tóku próf í stærðfræði, eða
4.272 og ensku en í henni tóku 4.209
nemendur próf. Færri tóku próf í
hinum fögunum. Um 3.500 þreyttu
próf í dönsku, 2.637 í samfélagsfræði
og 2.264 í náttúrufræði, en það er um
51% nemenda, sem er mun lægra
hlutfall en í fyrra, þegar 65% tóku
próf í náttúrufræði og um 70% árið
2003.
Yngri próftökum fjölgar
Alls tók 301 yngri nemandi sam-
ræmd próf, eitt eða fleiri, og voru
þeir allir í 9. bekk nema tveir. Fjöldi
yngri nemanda sem tekur sam-
ræmdu prófin hefur aukist milli ára,
en í fyrra tók 181 nemendur úr yngri
bekkjardeildum prófin.
Niðurstöður úr samræmdum prófum 10. bekkjar
Nemendur á höfuðborg-
arsvæðinu koma best út
! "#
! "$%
#!
&
$%
!
&
$%
&
#
&
'('
)
'(
*(
'(+
'(
(,
! Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
HALLDÓR Björgvin Ívarsson,
kennari við Varmárskóla í Mos-
fellsbæ, hefur sent Námsmats-
stofnun greinargerð þar sem gerð-
ar eru athugasemdir við samræmt
próf í samfélagsfræði.
Athugasemdir Halldórs varðandi
spurningar á prófinu eru í fimm lið-
um; að þær hafi ekki verið sam-
kvæmt efnisatriðum inntakstöflu,
ekki í samræmi við grunn-
kennslubækur, að nokkrar spurn-
ingar hafi verið rangar og aðrar
haft tvo rétta svarmöguleika og
loks var vægi spurninga úr áherslu-
flokki 1 og 2 ekki í samræmi við
inntakstöflu, en í henni koma fram
leiðbeiningar frá Námsmatsstofnun
um þau atriði sem spurt verður um
á prófinu.
Ekki í samræmi við
grunnkennslubækur
Taflan er byggð á aðalnámskrá,
að sögn Halldórs. Í bréfi sínu gerir
Halldór athugasemdir við 20 af 72
prófspurningum og má sem dæmi
nefna spurningu 65 þar sem gert er
ráð fyrir því að alþingiskosningar
séu dæmi um beint lýðræði, sem er
rangt.
Ýmsar spurningar eru ekki í
samræmi við grunnkennslubækur,
að mati Halldórs, og nefnir hann
fjórar prófspurningar sem dæmi. Í
einni þeirra, spurningu 39, er spurt
um vélbátaútgerð og togaravæð-
ingu og segir Halldór að þótt fjallað
sé um þetta efni í grunnlesefni, sé
það ekki með þeim hætti að nem-
endur geti sagt til um hvort íbúa-
fjöldi í Vestmannaeyjum hafi fjór-
faldast á árunum 1900–1920 vegna
vélbátaútgerðar eða togaravæð-
ingar, eins og krafist er á prófinu.
Þá segir Halldór að í inntakstöflu
komi fram að um 70% af prófinu
eigi að vera úr áhersluflokki 1 en
um 30% úr áhersluflokk 2.
Hins vegar hafi þessum áherslum
ekki verið fylgt og um 90% þeirra
spurninga sem hægt var að finna
samastað í inntakstöflu verið úr
áhersluflokki 2 en 10% úr flokki 1.
Segir Halldór ósamræmi við settar
leikreglur „einstaklega slæmt fyrir
þá nemendur sem af samviskusemi
hafa undirbúið sig í samræmi við
þær“, í bréfi sínu.
Ennþá hægt að breyta
einkunnagjöfinni
Þar óskar hann eftir skjótum og
rökstuddum svörum en segist hins
vegar enn ekki hafa fengið svör
þegar liðnar eru þrjár vikur frá því
bréfið var sent og einkunnum þeg-
ar verið skilað.
Halldór Björgvin segir að lokum
að enn sé þó hægt að gera breyt-
ingar á einkunnum áður en fresti til
að sækja um í menntaskóla lýkur,
en ýmislegt bendi til þess að prófið
hafi verið of þungt og einkunnir
nemenda ekki í samræmi við þekk-
ingu.
Kennari hefur gert athugasemdir við
samræmda prófið í samfélagsfræði
Gagnrýnir 20 af
72 spurningum
SÓLIN lék við gesti á tjaldsvæð-
inu á Flúðum um helgina. Þar,
líkt og víðar sunnanlands, var
margt fólk á tjaldsvæðum og
naut veðurblíðunnar. Hitinn fór
yfir 20 stig á laugardag og bærð-
ist varla hár á höfði í skjóli birki-
trjánna.
Að sögn Árna Hjaltasonar hjá
Ferðamiðstöðinni á Flúðum hefur
verið óvenju góð aðsókn að tjald-
svæðinu þar það sem af er sumri.
Taldi hann betri viðlegubúnað
fólks eiga sinn þátt í aukinni að-
sókn. Fjölgun fellihýsa og hjól-
hýsa væri áberandi, einkum hjól-
hýsa upp á síðkastið. Þá er komið
rafmagn á tjaldsvæðið sem not-
endur felli- og hjólhýsa kunna vel
að meta.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sumarblíða
sunnan-
landsParís
síðustu sætin í júní
frá kr. 12.990 a. l.
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri sími 461 1099 • www.terranova.is
Terra Nova býður frábært tækifæri í beinu flugi til Parísar í sumar, 16., 23., 27.
og 30. júní. París er einstök borg, hvort sem
þú vilt þræða listasöfnin, spranga um í
Latínuhverfinu eða njóta lífsins lystisemda.
Notaðu tækifærið og bjóddu elskunni þinni
til Parísar á einstökum kjörum.
kr. 12.990
Flugsæti aðra leið með sköttum.
Netverð á mann.
- SPENNANDI VALKOSTUR
ICELANDAIR hafnar í fimmta
sæti á lista yfir þau flugfélög sem
týna hvað sjaldnast farangri farþega
sinna, en farangur á vegum Ice-
landair tapast í 8,4 skipti fyrir
hverja 1.000 farþega sem fljúga með
félaginu, að því er fram kemur í
frétt norska vefmiðilsins Nett-
avisen.
Með töpuðum farangri er átt við
farangur sem ekki skilar sér við
lendingu en í fréttinni kemur fram
að slíkur farangur skili sér í 85% til-
vika innan tveggja daga eftir að
hann týndist.
Í fréttinni er enn fremur vísað til
þess sem fram kemur hjá Svenska
Dagbladet, að farþegar tapi farangri
að meðaltali einu sinni í 66 ferðum.
Á listanum yfir flugfélögin kemur
fram að mestar líkur eru á að far-
angur skili sér ef ferðast er með Air
Malta, en farangur tapast í 2,9 skipti
fyrir hverja 1.000 farþega. Þeir sem
ferðast með hollenska flugfélaginu
KLM eru hins vegar líklegastir til
að glata farangri sínum, því þar tap-
ast farangur í 22,3 skipti fyrir hverja
1.000 farþega. Forsvarsmenn fé-
lagsins segja þennan mikla fjölda
stafa af tæknilegum vandamálum á
Schiphol-flugvelli og að verið sé að
endurbæta kerfið á vellinum.
Mjög sjaldgæft að
farangur tapist alveg
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi FL Group, segir að farangur
tapist endrum og sinnum eins og
gefur að skilja. „Þetta er mjög mis-
munandi eftir flugvöllum og það má
segja að almenna reglan sé sú að því
stærri sem flugvellirnir eru þeim
mun algengara er þetta, út frá okk-
ar sjónarhóli,“ segir Guðjón.
Hann bendir hins vegar á að þetta
sé ekki vaxandi vandamál. „Þetta
gengur betur og betur og það eru
mjög góð tölvukerfi sem halda utan
um þetta núorðið,“ segir Guðjón og
bætir við að það sé orðið mjög sjald-
gæft í dag að farangur glatist alveg.
Þrátt fyrir að farangur tapist yfir-
leitt á flugvöllum eru það flugfélögin
sem bera ábyrgð á farangrinum, ef
hann tapast.
Ýmislegt hefur áhrif á líkur þess
að slíkt gerist og bendir Guðjón á að
líkurnar séu t.d eðlilega meiri í
tengiflugi en þegar flogið er beint.
Aðspurður hvort Icelandair beiti
einhverjum sérstökum aðgerðum til
að gæta farangurs segir Guðjón að
auk þess að hafa góð tölvukerfi fylg-
ist starfsmenn Icelandair mjög vel
með öllum tækninýjungum í þessum
efnum.
Farangur týnist
sjaldan í flugi
Icelandair
"# $ "
$ % "
&
'(
&"&
")(
*"+
,
-,#
& )
!
"#$
./
0/
1/
2/
3/
.4/
.5/
00/
01/
03/
6
78
!
%
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Finnst innan
tveggja daga í
85% tilvika