Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 7
FRÉTTIR
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
28
19
1
05
/2
00
5
Nú fæst hinn feikivinsæli RAV4 í sérstakri útfærslu með sportlegu
yfirbragði. Aukahlutapakki að verðmæti 160.000 kr. fylgir. Pakkinn
inniheldur sílsahlíf, krómgrind á afturljós, sportgrill, krómstút á púst,
sílsarör og dráttarbeisli. RAV4 SPORT sameinar því þægindi, kraft,
öryggi, sportlegt útlit og hagstæð kjör, en hann fæst frá aðeins
2.720.000 kr. Komdu og prófaðu RAV4 SPORT í dag.
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
RAV4 SPORT. Fyrir allt sem í þér býr og meira til.
Aukahlutapakki að verðmæti 160.000 kr. fylgir með.
Verð frá 2.720.000 kr.
Jafnt í borg sem til fjalla
RAV4 SPORT
Sportgrill Sílsarör Krómgrind
á afturljós
Sílsahlíf Krómstút
á púst
Dráttarbeisli
sýndar á laugardaginn og 8 fis og
drekar og nokkrar óflughæfar vélar
mátti einnig sjá á jörðu niðri. Klúbb-
urinn sjálfur á eina vél, Cessna 170
sem nýlega var keypt frá Bandaríkj-
unum. Ottó sagði marga hafa heim-
sótt Tungubakka á laugardaginn.
Hjá Geirfugli var einnig margt um
manninn þar sem starfsemin var
kynnt. Félagið annast flugkennslu
og var gestum boðið í kynningarflug
á Cessnu 152 og Socata vélum fé-
lagsins. Nýjasta vél Geirfugls er Pip-
er Saratoga, sex sæta vél með 300
hestafla vél og segir Matthías Arn-
grímsson, talsmaður Geirfugls, vél-
ina vel útbúna og öfluga.
Ljósmynd/Sigurbjörn Ragnarsson
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá sjö kenn-
urum við Landakotsskóla:
„Við undirritaðir kennarar við
Landakotsskóla teljum að ein af
grundvallarforsendum fyrir fram-
förum í skólastarfi sé jákvæð gagn-
rýni sem byggist á faglegum, lög-
legum og siðferðislegum
vinnureglum.
Við teljum einnig að neikvæð
gagnrýni í formi baktals, rógburðar
og níðs um samstarfsfólk og nem-
endur sé ekki einungis siðlaus og
löglaus heldur vísasta leiðin til að
leggja allt heilbrigt skólastarf í rúst.
Aðför fyrrverandi kennararáðs og
skólanefndar að skólastjóra, aðstoð-
arskólastjóra, kennurum og nem-
endum var neikvæð gagnrýni í
óhuggulegasta skilningi þess orðs.
Hún var ófagleg, ólögleg, óskyn-
samleg og ósiðleg. Við munum aldr-
ei sætta okkur við starfsaðstæður
þar sem slík vinnubrögð eru í heiðri
höfð.
Sú afstaða fyrrverandi skóla-
nefndar að hlusta á rógburð kenn-
araráðsins fyrrverandi, víkja fyrr-
verandi aðstoðarskólastjóra úr
starfi á grundvelli rógsins og án
áminningar eða andmælaréttar,
stinga rógbréfinu undir stól og neita
að afhenda það þeim sem málið
varða, þrátt fyrir eftirgang úrskurð-
arnefndar upplýsingamála, sýnir
svo siðlausa og ófaglega afstöðu og
einbeittan brotavilja, að við slíkt
verður aldrei unað.
Prófsteinninn á sáttavilja núver-
andi skólastjórnar hlýtur því að fel-
ast í þeirri yfirbót, að draga fram
rógbréfið og afhenda það þeim ein-
staklingum og forráðamönnum sem
málið varðar.
Laufey Jónsdóttir, Jónas R. Sig-
fússon, Þorgeir Frímann Óðinsson,
Karen Ósk Úlfarsdóttir, Áslaug
María Gunnarsdóttir, Marta Guð-
jónsdóttir, Stephanie Scobie.“
Yfirlýsing sjö kennara
Landakotsskóla
Forsendur
framfara
skólastarfs
eru jákvæð
gagnrýni
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um áliðnaðinn hefst í
Reykjavík í dag og lýkur á miðvikudag með
heimsókn á virkjunarsvæðið við Kárahnjúka.
Þátttakendur eru um 200, flestir þeirra stjórn-
endur og yfirmenn allra helstu og stærstu álfyr-
irtækja heims. Gærdagurinn fór í skoð-
unarferðir þar sem heimsóttar voru virkjanir
Landsvirkjunar á Suðurlandi og farið á Grund-
artanga að skoða Norðurál og Járnblendiverk-
smiðjuna. Síðan var farið frá Reykjavík í fjöl-
menna hvalaskoðunarferð með Hafsúlunni í
gærkvöldi, þaðan sem myndin er tekin.
Um er að ræða árlega ráðstefnu sem fer nú
fram í tíunda sinn en í fyrsta sinn hér á landi.
Ráðgjafarfyrirtækið CRU hefur haldið ráðstefn-
una, nú með stuðningi íslenskra fyrirtækja.
Álfyrirtæki í
hvalaskoðun
Morgunblaðið/Jim Smart