Morgunblaðið - 13.06.2005, Page 8

Morgunblaðið - 13.06.2005, Page 8
8 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þórólfur Þórlindsson,prófessor í fé-lagsvísindum við Háskóla Íslands, varpaði fram þeirri hugmynd á ný- legu málþingi á Akureyri hvort ekki væri orðin brýn þörf fyrir stofnun sérstaks fagfélags meðal háskóla- fólks. Málþingið var haldið á vegum félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Akureyri og fjallaði um til- urð akademísks samfélags. Það er ekki að undra að háskólamenn velti þessu fyrir sér í þeirri öru þróun sem á sér stað í íslensku háskóla- samfélagi í dag. Um leið hefur samkeppni háskólanna aukist, bæði um nemendur og hæft starfs- fólk, og meiru fé er varið í vísinda- og rannsóknastörf. Þórólfur segir við Morgunblaðið að í ljósi þessarar þróunar sé ekki hvað síst talin mikil þörf á að starfsmenn háskólanna; kennarar og rannsóknafólk, hafi sameigin- legan vettvang til að fjalla um sín faglegu málefni. Hugmyndin sé ekki sú að stofna nýtt stéttarfélag til að karpa um kaup og kjör, önn- ur hagsmunafélög séu til að sinna þeim verkefnum. Nýtt fagfélag geti vel dafnað við hlið starfandi stéttar- og hagsmunafélaga. Þórólfi finnst vera orðið tíma- bært að stofna öflugan vettvang til að ræða ýmis stefnumál sem tengj- ast háskólum, rannsóknum og fræðimennsku. Sé horft til annarra landa og til baka í tíma þá segir Þórólfur að samtök háskólakennara af þessu tagi hafi verið öflug á fyrri tímum. Síðan hafi dregið úr krafti þeirra og þátttaka orðið lítil, eða þar til að á allra síðustu missum sé svona fé- lag í Bandaríkjunum að lifna við. „Mikið er að gerast á þessum vettvangi í dag, bæði hér á Íslandi og annars staðar. Verið er að móta stefnu til framtíðar um vísindi og nýsköpun. Þjóðfélagsbreytingar hafa átt sér stað en mér finnst há- skólafólk ekki hafa látið nægilega mikið til sín heyra. Meiri þátttöku hefur vantað í umræðuna og stefnumótunin,“ segir Þórólfur. Auk stækkandi hóps háskóla- kennara bendir hann á að sífellt fleiri stundi eingöngu rannsókna- og þróunarstörf, bæði innan eða utan háskólanna. Nauðsynlegt sé að starfsmenn allra háskóla og rannsóknastofnana sameini krafta sína í einu fagfélagi. Taki þessir hópar ekki þátt í stefnumótuninni þá muni væntanlega einhverjir aðrir gera það. Straumarnir í Evr- ópu hafi einum of mikið komið frá embættismönnunum í Brussel, ekki frá fagfólkinu sjálfu, og fjöl- margt í þeirri stefnumótun sé hæpið. Þannig hafi of oft verið reynt að stjórna rannsóknum og nýsköpun ofan frá. Þórólfur saknar þess einnig að stjórnmálamenn láti til sín taka á þessum vettvangi. Á síðustu árum hafi skort á virka umræðu um málaflokkinn. Nýtt fagfélag geti kynt undir þeirri umræðu og kom- ið á skipulagi með hæfilegu sam- starfi og samkeppni. Sem dæmi um viðfangs- og um- ræðuefni fagfélags nefnir Þórólfur akademískt frelsi innan háskól- anna til rannsókna og kennslu, fjármögnun rannsókna og fyrir- komulag og gæði kennslunnar. Varðandi fjármögnun rann- sókna segir Þórólfur það skipta verulegu máli hvernig fjármunum er varið. Aukning hafi átt sér stað vegna fjölgunar nemenda en einn- ig hafi meiru fé verið varið til rann- sókna og þróunarstarfs. Þar sem búast megi við áframhaldandi aukningu á næstu árum sé mikil- vægt að háskólafólk komi þar að borðinu með einum eða öðrum hætti. Samstaða sé nauðsynleg og t.d. óþarfi að koma af stað átökum milli háskóla á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Skipta þurfi fjármagni á faglegum grunni, m.a. með árangurstengingu, og koma í veg fyrir að önnur sjónarmið verði látin ráða. Vel tekið hjá BHM Halldóru Friðjónsdóttur, for- manni Bandalags háskólamanna, BHM, líst vel á hugmynd Þórólfs og segir hana samræmast ágæt- lega því starfi sem fram hafi farið innan BHM að undanförnu. Bend- ir Halldóra þar á kynningarfund sem haldinn var sl. föstudag fyrir félög og hópa sem telja sig eiga samleið með bandalaginu. Hún segir BHM hafa velt því fyrir sér hvort einblínt hafi verið um of á þrönga kjara- og hagsmunabar- áttu, í stað þess að horfa betur til heildarhagsmuna háskólamennt- aðs fólks. Nýtt fagfélag geti vel átt heima innan BHM. Býst Halldóra við að þessi mál komi til umræðu í haust þegar bandalagið hyggst horfa til framtíðar og fara í nafla- skoðun. Frá því að Þórólfur varpaði hug- myndinni fram á málþinginu á Ak- ureyri hefur hann fengið jákvæð viðbrögð meðal starfssystkina sinna í háskólasamfélaginu. Úrtak- ið sé hins vegar ekki marktækt þar sem hinir jákvæðu láti ávallt fyrst í sér heyra! Um það hvort hann ætli ekki að láta slag standa og auglýsa stofnfund fagfélagsins segir Þór- ólfur að hann ætli að halda um- ræðunni áfram en hann ætli ekki að gefa kost á sér í formennsku. Fréttaskýring | Nýtt fagfélag háskólafólks að verða að veruleika? Ekkert karp um kjaramál Háskólamenn vilja hafa áhrif á stefnu- mótun og skiptingu fjár til rannsókna Háskólarnir tútna út eins og loftbelgur. Yfir tvö þúsund manns við rannsóknir og kennslu  Engar staðfestar tölur liggja fyrir um fjölda þeirra sem stunda kennslu og rannsóknir við háskóla hér á landi. Nýjustu tölur Hagstofunnar um há- skólana, upp á ríflega 1.600 manns, eru frá árinu 2003. Ef rannsóknastofnanir eru teknar með má reikna með að fjöldi þessa fólks sé vel yfir tvö þúsund. Eftir sameiningu Háskólans í Reykjavík og Tækniháskólans eru átta háskólar starfandi. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÞESSIR krakkar voru á ævintýra- og leikjanámskeiði hjá knattspyrnudeildinni Sindra frá Höfn í Hornafirði, þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Þeir höfðu verið að veiða en afli dagsins var aðeins tveir urriðar. Kannski eru þetta samt aflaklær framtíð- arinnar, enda höfðu margir orðið varir og hópurinn kvaðst hafa misst mjög marga fiska. Í baksýn breiðir Vatnajökull úr sér. Aflaklær framtíðarinnar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.