Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Borgarnes | Borgfirðingahátíð var haldin í ljúfu og þurru blíðviðri um helgina, en nokkurra ára hefð er komin á hátíðahöld helgina fyrir 17. júní. Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt; á föstudeginum hófst gamanið með leikjum, leiktækjum og sprelli við Hyrnutorg. Í Fé- lagsbæ hófst sýning á bútasaums- verkum og öðru handverki sem þær stöllur í bútasaumsklúbbnum Samansaumaðar stóðu fyrir. Þegar fréttaritari leit inn á sýn- inguna var þar hópur kvenna sem hafði komið af höfuðborgarsvæð- inu til þess að skoða hannyrðir. Sæbjörg Kristmannsdóttir, kenn- ari og meðlimur í Samansaum- uðum, sagði mikinn áhuga fyrir bútasaumi, um 15 konur væru virkar í félagsskapnum og flest á sýningunni væri afrakstur vetr- arins. Hún stillti sér upp við ,,Verkfallsteppið“ sem hún saum- aði í kennaraverkfallinu sl. haust. Kynslóðirnar skemmta sér saman Baðstofukvöld var haldið í Hlöð- unni á Indriðastöðum í Skorradal þar sem Álftagerðisbræður tróðu upp. Voru þar um 240 manns sem skemmtu sér og tóku þátt í gleðinni. Eftir baðstofukvöldið var boðið upp á miðnætursund í Hreppslaug hvar fjöldi manns naut þess að synda um albjarta sum- arnótt. Að morgni laugardags var fjallganga UMSB á Varmalækj- armúla í Andakíl. Kvennahlaupið hófst í Borgarnesi á hádegi og til bifhjólakappanna í Röftunum sást þar sem þeir þeystu á fákum sín- um. Við gamla Bónusplanið fóru fram skemmtiatriði þar sem m.a. persónur úr Ávaxtakörfunni komu fram og heilluðu yngri kynslóðina. Um kvöldið var haldið Brákarball á sláturhúsplaninu í Brákarey. Þar hitaði upp hljómsveitin ,,Maður spyr sig“ en hún er skipuð ungum Borgnesingum. Hljómsveitin ,,Á móti sól“ lék fyrir dansi og er áætlað að þegar mest lét hafi um 700 manns, allt frá kornabörnum upp í eldri borgara, verið á staðn- um og tekið snúning. Morgunkaffi undir berum himni Morgunverður í Skallagríms- garði svíkur aldrei og að þessu sinni var það foreldrafélag 5. flokks í knattspyrnudeild Skalla- gríms sem sá um framreiðslu. Um 400 gestir nutu þess að drekka morgunkaffið utanhúss, en eins og hefð er komin á hélt séra Þorbjörn Hlynur Árnason útimessu í garð- inum. Lagði hann út af sögunni um ,,glataða soninn“ og gerði uppeldi að aðalefni í predikun sinni. Síðustu dagskrárliðir á Borg- firðingahátíð voru glens og gaman að Fossatúni, nýjum ferðamanna- og veitingastað í Andakíl, og um kvöldið endaði hátíðin á gosp- eltónleikum í Borgarneskirkju undir stjórn Zsuzsönnu Budai. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Líf og fjör í Borgarnesi Útimessa var í Skallagrímsgarði og þar var einnig boðið uppá morgunverð. Til hægri er Sæbjörg Kristmannsdóttir við verkfallsteppið. Baðstofukvöld og kvennahlaup á Borgfirðingahátíð Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur gve@ismennt.is Fjölbreytt dagskrá Börnin lifðu sig inn í skemmtiatriðin. VESTURLAND Á SÍÐUSTU sex til tólf mánuðum hafa orðið gagngerar breytingar á íslenskum gjaldeyris- markaði með tilkomu erlendra fjárfesta sem hafa tekið stöðu á innlendum fjármagnsmark- aði. Erfitt er að meta umfang þessara viðskipta en flest bendir þó til að þau hlaupi á tugum milljarða króna. Ókosturinn við þessa þróun er sá að líkurnar á gjaldeyriskreppu og snöggu gengisfalli krónunnar hafa aukist verulega þar sem skammtímafjárfestar geta – þegar á reyn- ir – yfirgefið stöður sínar í miklu hasti. Afleið- ingin gæti orðið mjög snöggt gengisfall krón- unnar líkt og hefur gerst í mörgum öðrum löndum. Segir ekkert um umsvif erlendra fjárfesta Þetta kemur fram í nýjum Efnahagsfregn- um Kaupþings banka. Þar kemur og fram að tilkoma erlendra spákaupmanna sé megin- ástæða þess að stýrivaxtahækkanir Seðlabank- ans hafa haft svo mikil áhrif á gengið sem raun ber vitni þar sem erlendir aðilar nýta sér í auknum mæli gífurlegan vaxtamun á milli Ís- lands og umheimsins; gjaldeyrisinnflæði sem ýtt hefur krónunni upp að undanförnu megi því aðeins að mjög litlu leyti rekja til erlendrar lán- töku innlendra aðila. Vegna bankaleyndar fást nöfn þessara er- lendu aðila ekki uppgefin en eftir því sem næst verður komist eru þetta að miklu leyti fjár- málastofnanir í helstu fjármálamiðstöðvum heimsins, oft mjög stórar, og vegur London þar mjög þungt. Ingólfur Bender, yfirmaður greiningar Ís- landsbanka, tekur undir það að sveiflur á gjald- eyrismarkaði hafi verið að aukast. Hann segir hins vegar að ekki sé sjálfgefið að þessar auknu sveiflur séu tengdar erlendum fjárfestum. „Sveiflurnar hafa oft verið meiri og þó að þær hafi rétt undanfarið verið yfir meðaltali síðustu ára þá segir það ekkert um veru eða umfang er- lendra fjárfesta á þessum markaði.“ Talsmenn Seðlabankans segjast ekki hafa mikið um þátt spákaupmanna að segja, bank- arnir séu í miklu betri stöðu til þess að þekkja til umsvifa þeirra. Ljóst sé að spákaupmenn bregðist við væntingum um vaxtabreytingar Seðlabankans eins og aðrir á markaðinum. Hins vegar sé ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir því hversu stór hlutur erlendu spákaup- mannanna sé vegna þess að spákaupmennska verði ekki auðveldlega greind frá annars konar starfsemi á gjaldeyrismarkaði. Líka kostir við þróunina Raunar tekur greiningardeild Kaupþings banka fram í Efnahagsfregnum sínum að ekki sé verið spá fyrir um gjaldeyriskreppu heldur sé aðeins verið að benda á ákveðnar hættur sem fylgi því að nota nafnvaxtamun á milli landa sem tæki til þess að halda verðbólgu niðri. Þá er bent á að kosturinn við þessa þróun sé sá að vaxtahækkanir Seðlabankans hafi meiri áhrif á gengið. Það tákni þó einnig að gengisleið peningamálastefnunnar, þ.e. að halda verðbólgunni í skefjum með stýrivaxta- hækkunum sem styrki krónuna, sé orðin mun varasamari en áður fyrir fjármálastöðugleik- ann. Ásgeir Jónsson, hjá greiningardeild Kaup- þings banka, segir að vissulega sé það einnig kostur að meiri velta sé á gjaldeyrismarkaði. Ásgeir bendir á að áhrif þessara spákaup- manna megi einnig sjá í styrkingu krónunnar á síðustu misserum þrátt fyrir metviðskipta- halla, flestir innlendir aðilar hafi kosið að auka ekki gjaldeyrisáhættu sína með frekari er- lendri lántöku. „En fyrst krónan getur farið miklu hærra upp en allir bjuggust við þá getur hún auðvitað líka farið miklu lengra niður. Hægt er að velta fyrir sér þróuninni þegar Seðlabankinn byrjar að lækka vexti og minnka vaxtamuninn.“ Ásgeir tekur fram að ekki sé rétt að líta á þessa erlendu fjárfesta sem illvirkja eða fjár- plógsmenn. Þeir séu einfaldlega að bregðast við aðstæðum sem Íslendingar hafi sjálfir skap- að. Spákaupmenn sé að finna á öllum frjálsum fjármagnsmörkuðum og það sé vonum seinna að þeir skuli nú vera komnir á íslenska mark- aði. Spurður um afleiðingar af hugsanlegu snöggu gengisfalli krónunnar segir Ásgeir áhrifin á heimilin myndu verða lítil en slíkt fall gæti haft áhrif á mörg fyrirtæki. „Það eru ein gleðilegustu tíðindin að heimilin skuli ekki hafi farið að taka lán í erlendri mynt. Ef það hefði gerst væri ástæða til þess að hafa áhyggjur af sveiflum í greiðslubyrði heimilanna. Um 88% af skuldum heimilanna er í löngum verðtryggðum lánum með fastri ávöxtunarkröfu en það felur það í sér að greiðslubyrðin hreyfist mjög lítið þó gengið falli og verðbólga vaxi.“ Ásgeir segir flest stærri fyrirtæki vera með öflugri skuldastýringu og hljóti að hafa bæði augun vel opin þegar kemur að gengisáhættu. Engar tölur til Ingólfur Bender, yfirmaður greiningar Ís- landsbanka, segir að ekki sé sjálfgefið að aukn- ar sveiflur á gjaldeyrismarkaði séu tengdar er- lendum fjárfestum. Á markaðinum sé að vísu talað um að erlendir fjárfestar hafi verið í meira mæli á innlendum gjaldeyrismarkaði í ár en í fyrra. „Það eru hins vegar engar opinberar tölur til um umsvif þessara aðila á innlendum gjaldeyrismarkaði og því varhugavert að full- yrða nokkuð. Það eitt að menn telja sig verða í auknum mæli varir við þessa aðila þarf líka að skoða í því ljósi að heildarviðskipti eru hratt vaxandi á markaðinum. Hlutfall erlendra aðila í heildar- veltu á markaðinum þarf því ekki að vera að aukast þó svo að eitthvað verði meira vart við þá,“ segir Ingólfur. Ingólfur segir ekki forsendur til þess að full- yrða neitt um hættuna á gjaldeyriskreppu vegna umsvifa erlendra spákaupmanna á inn- lendum gjaldeyrismarkaði. „Það liggja ekki fyrir upplýsingar sem gera mönnum kleift að kveða upp dóm varðandi þetta. Fyrst þarf að afla gagna og þegar þau liggja fyrir verður að taka með í reikninginn aðra þætti sem varða líkur á gjaldeyriskreppu. Umræðan hvetur vonandi til þess að úr þessum gagnaskorti verði bætt,“ segir Ingólfur. Erlendir spákaupmenn farn- ir að spá í íslensku krónuna Morgunblaðið/Golli Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is Lítið hægt að fullyrða um umsvifin segir yfirmaður greiningar Íslandsbanka VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.