Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 14

Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Þ að kostaði 28 millj- arða að reka Land- spítala-háskóla- sjúkrahús (LSH) á síðasta ári og tók reksturinn til sín 9,06% af fjárlögum og fjáraukalögum. Kostnaður á föstu verðlagi hefur nán- ast staðið í stað frá sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík fyrir fimm árum, samkvæmt upplýsingum stjórnenda sjúkrahússins. Á sama tíma fjölgaði íbúum landsins um rúm- lega tíu þúsund eða um 3,6% og öldr- uðum yfir 67 ára um 6,5%. Að auki hafa tækniframfarir gert mögulegt að veita sífellt meiri þjónustu sem skilar sér m.a. í hækkandi meðalaldri þjóð- arinnar. Þrátt fyrir þetta er um það deilt á Alþingi hvort þensla heilbrigðiskerf- isins sé óhófleg. Var það m.a. niður- staða Ríkisendurskoðunar, sem fór yfir árangur af sameiningu sjúkra- húsanna árið 2003, að áætlanir fjár- laga um kostnað við rekstur sjúkra- hússins hefðu engan veginn staðist þau ár sem liðin væru frá sameining- unni. Þess hefði verið vænst að sam- einingin leiddi til sparnaðar. Það hefði hins vegar ekki tekist. Ástæður þess væru að hluta til aukinn kostnaður vegna tækninýjunga og nýrra lyfja en einnig hefðu miklar launahækkanir starfsmanna sjúkrahússins vegið þungt. Niðurstaða Ríkisendurskoð- unar vakti mikla umræðu um rekstur LSH. Spítalinn svaraði gagnrýninni og taldi viðmið sem notuð voru við út- reikninga á rekstrarkostnaði villandi. Árið 2004 var spítalanum engu að síð- ur gert að draga rekstrarkostnað saman og náðist það markmið að mestu. Telja stjórnendur aðhaldsað- gerðir sem gripið var til ekki hafa komið niður á þjónustunni og tekur heilbrigðisráðherra undir það. Við- mælendum Morgunblaðsins ber sam- an um að álag á starfsfólk hafi aukist og margir álíta það óhjákvæmilega hljóta að hafa komið niður á þjónustu við sjúklingana. Margt áunnist Fjárheimildir og sértekjur LSH námu 27,6 milljörðum króna á síðasta ári sem þýðir að rekstrarhalli nam 289 milljónum króna eða um 1%. Eyk- ur þetta enn frekar á uppsafnaðan halla spítalans sem var um einn millj- arður í lok síðasta árs. Skuldahalinn hefur veruleg áhrif á rekstur spítalans. Árlega eru greiddir tugir milljóna í dráttarvexti og hefur þetta haft áhrif á samskipti sjúkra- hússins og birgja. En þrátt fyrir uppsafnaðan halla og hagræðingarkröfu stjórnvalda á síð- asta ári og í ár, er það mat stjórnenda að LSH sé vel rekið sjúkrahús og að sameining hafi nú skilað rekstrarleg- um ávinningi. „Góður árangur hefur náðst í rekstri spítalans,“ segir Anna Lilja Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga LSH. „Kostnaður á föstu verðlagi hefur staðið í stað í fimm ár, hlutfall fram- laga til spítalans af heildarútgjöldum ríkisins hefur lækkað og starfsemi hefur aukist sem skilar sér í fækkun á biðlistum. Stjórnendur og starfsmenn Landspítala - háskólasjúkrahúss hafa því náð þeim árangri að auka starf- semi spítalans á mjög hagkvæman hátt.“ Segir hún að sameining sérgreina sjúkrahúsanna tveggja hafi verið um- fangsmikið og flókið verkefni en því sé að mestu lokið. Í kjölfarið hafi náðst framleiðniaukning. Með sam- einingunni hafa sérgreinar stækkað sem gefi færi á meiri sérhæfingu inn- an hverrar þeirra með bættri þjón- ustu við sjúklinga. Þá hafi mikil vinna verið lögð í endurskoðun verkferla á spítalanum. Stefna hafi verið sett í öll- um helstu málaflokkum, s.s. inn- kaupastefna, vísindastefna og stefna í upplýsingatækni. Ný upplýsinga- kerfi, bæði fjárhags- og mannauðs- kerfi og læknisfræðileg (klínísk) kerfi hafa verið tekin í notkun sem bæta upplýsingagjöf og gera þjónustu við sjúklinga markvissari. Þá sé unnið að innleiðingu rafrænnar sjúkraskrár. „Meiningin var að sameiningin myndi skila aukinni hagkvæmni, bæði aukinni rekstrarlegri hagkvæmni og faglegum framförum,“ segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra. „Það er ljóst að hún hefur gert það. Auk þess verður að taka tillit til þess að við höfum tekið ákveðna starfsemi út úr spítalanum undanfarin ár en á sama tíma hafa fjármunir ekki verið dregnir frá spítalanum. Þess verður að geta í þessum samanburði.“ Á ráð- herrann hér við lokun Gunnarsholts, Kópavogshælis og Arnarholts en sú þjónusta fluttist að hluta til annarra aðila en LSH. Kostnaðargreiningu lokið Sjúkrahúsið hefur unnið undanfar- in ár að því, í samstarfi við hin Norð- urlöndin, að kostnaðargreina alla starfsemina og er þeirri vinnu nú lok- ið. Með innleiðingu svokallaðs DRG- kerfis (Diagnosis Related Groups), og kostnaðargreiningu á þjónustu sjúkrahússins sem unnin er samhliða, er hægt að mæla afköst og kostnað, hvað hvert læknisverk kostar á sjúkrahúsinu og þar með hver deild og hvert svið. Með því að breyta fjár- mögnun LSH í þá veru að greiða eftir DRG-kerfi getur kaupandi þjónust- unnar, þ.e. ríkisvaldið, því stjórnað hversu mikla þjónustu hann vill að sjúkrahúsið veiti, hversu margar að- gerðir hann vill að það framkvæmi o.s.frv. „En stjórnvöld hafa enn ekki verið tilbúin að breyta fjármögnunar- kerfinu þannig að fjárframlög verði reiknuð út frá DRG-kostnaðargrein- ingu,“ segir Anna Lilja. „Ég hef minnt Geir H. Haarde [fjármálaráð- hera] á ræðu sem hann flutti árið 1999 þar sem hann sagði að spítalinn væri ekki tilbúinn í fjármögnun eftir um- fangi í stað fastra fjárlaga. Nú segjum við: Við erum tilbúin!“ Stjórnendur LSH telja að fjár- mögnun hafi ekki verið breytt vegna þess að stjórnvöld telji hættu á að með breytingunni verði framleiðslan óheft og að kostnaður muni rjúka upp úr öllu valdi. Anna Lilja segir þetta hins vegar óþarfa áhyggjur. Vel sé hægt að stýra framleiðslunni. En með fjármögnun sem tengist beint verk- efnum heilbrigðisþjónustunnar sé það hins vegar á valdi stjórnvalda að ákveða hver verkefnin eigi að vera. „Með þessu móti eru yfirvöld orðnir upplýstir kaupendur – þetta yrði ekki aðeins ein föst tala sem þeir hefðu litla stjórn á hvað gert yrði við.“ Samanburður við útlönd Meðallegutíminn er stærsta breyt- an þegar kemur að kostnaði við rekst- ur sjúkrahúss. Með kostnaðargrein- ingunni er auðveldara en áður að bera Stjórnvöld vildu sparnað af sameiningunni of fljótt Búið er að kostnaðargreina starfsemi Landspítala – háskólasjúkrahúss og vilja stjórnendur að fjármögnun sjúkra- hússins verði breytt hið fyrsta. Stjórn- völd eru ekki enn tilbúin að borga LSH miðað við afköst. Þau hræðast óheft framboð heilbrigðisþjónustu og kostn- aðarsprengju í kjölfarið. Eitt markmiða sameiningar spítalanna var að gera reksturinn skilvirkari og er því nú náð. Aðhaldsaðgerðir sem gripið var til komu niður á starfsfólki sem telur ekki hægt að ganga lengra í sparnaði. Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmda- stjóri fjárreiðna og upplýsinga, telur að stjórnvöld hafi viljað sparnað af sameiningunni of fljótt. Fimm ár í sameiningarferli sé ekki langur tími. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur Ljósmyndir Þorvaldur Örn Kristmundsson Spítali í spennitreyju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.