Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Þ að hafa orðið gífurlega mikl-ar og hraðar tækniframfarirí læknisfræðilegri mynd-greiningu á síðustu árum, sjúklingar fá betri þjónustu, hægt er að gefa nákvæmari sjúkdómsgrein- ingu fljótt og hagræða í rekstri sjúkrahússins,“ segir Ásbjörn Jóns- son, sviðsstjóri myndgreiningarþjón- ustu Landspítala – háskólasjúkra- húss (LSH). Myndgreining, sem í dag er t.d. framkvæmd með nýjum og full- komnum tölvusneiðmyndatækjum og segulómtæki, er nú orðin stafræn og hagnýting stafrænnar tækni hefur gjörbylt vinnulagi á sjúkrahúsinu. „Þetta þýðir að við notum ekki lengur filmur, þeim hefur nánast ver- ið útrýmt,“ segir Ásbjörn. „Allar myndir eru teknar stafrænt og eru aðgengilegar til skoðunar, greiningar og geymslu í stafrænu myndvistunar- og samskiptakerfi. Áður þurfti að hlaupa með filmur milli hæða, skella þeim á ljósaborð og skoða þær, stund- um með stækkunargleri. Núna getum við skoðað þær og greint í tölvum, bráðlega hvar sem er á sjúkrahús- inu,“ segir Ásbjörn en unnið er að því að koma í gagnið kerfi á sjúkrahúsinu sem gerir læknum á öllum deildum, hvar sem er innan LSH, kleift að skoða myndir og kalla fram greiningu röntgenlækna, um leið og hún liggur fyrir. Það á eftir að spara starfsmönn- um ófá sporin. Þetta kerfi hefur t.d. þegar verið tekið í gagnið á slysa- og bráðamót- tökunni í Fossvogi og geta því læknar þar séð á tölvuskjá myndir af sjúk- lingum sínum og nálgast greiningu röntgenlæknanna fljótt og auðveld- lega. Myndir greindar í gegnum Netið Þegar rannsókn er framkvæmd í tölvusneiðmyndatæki á Hringbraut eða röntgentæki á Landakoti getur röntgenlæknir í Fossvogi skoðað myndina á tölvuskjá og greint hana. Á sama hátt getur röntgenlæknir á Hringbraut nálgast rannsóknir úr nýju segulómtæki í Fossvogi. Þá er stefnt að samstarfsverkefni við Heil- brigðisstofnun Suðurlands á Selfossi sem gerir röntgenlæknum á LSH kleift að greina myndir sem teknar eru á Selfossi í gegnum Netið. Einnig getur læknir á Selfossi séð niðurstöð- ur myndgreiningar sjúklings síns sé hún framkvæmd í tækjum LSH í Reykjavík. Sjúklingur á Selfossi er því að fá jafngóða og hraða röntgen- þjónustu og sá sem liggur á Landspít- alanum. „Þetta eru ekta fjarlækningar,“ segir Ásbjörn. „Hægt er að skoða sömu myndina hvar sem er og hve- nær sem er. Þetta er mikil breyting og þetta gerir mögulegt að bæta þjón- ustu við landsbyggðina.“ Með tímanum ætti að vera hægt að samtengja allar myndgreiningar- rannsóknir á landinu. Byrjað var að taka stafrænar rönt- genmyndir á LSH árið 2003 en áður voru röntgenmyndir teknar á filmu. Öll nýrri tæki eru og stafræn, eins og ný tölvusneiðmyndatæki bæði við Hringbraut og í Fossvogi og nýtt seg- ulómtæki í Fossvogi. Þá verður nýtt segulómtæki tekið í notkun á Hring- braut í lok ársins. Stafræn myndgerð var nauðsynleg til að geta lokið inn- leiðingu á stafrænu myndvistunar- og samskiptakerfi. „Við reiknuðum það út að með því að hætta að prenta á filmu og spara þar með filmukaup borgaði þessi fjárfesting sig upp á tveimur árum,“ segir Ásbjörn, en tug- ir milljóna króna fóru áður í filmu- kaup árlega. Í kjallara LSH í Fossvogi er stór salur þar sem röntgenmyndir sjúk- linga eru geymdar. Á spítalanum eru fleiri slíkar geymslur því samkvæmt reglugerð þarf að geyma myndirnar í heilan áratug. Greining röntgenlækn- anna er þó geymd í sjúkraskrá hvers sjúklings til framtíðar. „Núna kemst geymslan fyrir starfrænu myndirnar fyrir á tveimur fermetrum,“ segir Ás- björn og á þar við rafrænan gagna- grunn sem geymir allar myndir sem teknar eru á sjúkrahúsinu. Í framtíð- inni verður sá gagnagrunnur tengdur rafrænni sjúkraskrá sem verið er að þróa á LSH. Með nýrri og bættri tækni hefur sérgreinin myndgreining þróast mik- ið. Hún snýst þó ennþá fyrst og fremst um að gera greiningu á mynd- um er sýna innviði líkamans en með aðstoð hennar er nú hægt að með- höndla sjúkdóma á mun einfaldari hátt en áður. Hægt er að staðsetja mein nákvæmar og oft hægt að fram- kvæma inngrip í stað skurðaðgerða. „Hægt er að gera ýmsa hluti á ein- faldari hátt, t.d. setja stoðnet og fóðr- ingar í slagæðar í stað opinnar skurð- aðgerðar,“ nefnir Ásbjörn sem dæmi. „Það er ódýrara og miklu betra fyrir sjúklinginn. Við erum því að vissu leyti í meðferð líka en ekki aðeins greiningu.“ Tölvusneiðmyndatækið í Fossvogi er hluti af framvarðarsveit slysa- greiningar á LSH. Komi alvarlega slasaður sjúklingur á sjúkrahúsið fer hann í tölvusneiðmyndatöku um leið og ástand hans er orðið stöðugt. Á fáum mínútum er þá yfirleitt hægt að sjá hvers eðlis áverkar hans eru og hvaða aðgerða er þörf. Tölvusneið- myndatækið getur myndað sjúkling- inn mjög nákvæmlega, sneið fyrir sneið, ef svo má að orði komast, hvert einasta líffæri, eða það sem læknirinn vill skoða hverju sinni. „Í nýju tölvusneiðmyndatækjunum getum við sneitt líkamann niður í litla ferninga sem eru minni en einn milli- metri og skoðað innviði líkamans í þrí- vídd ef því er að skipta, hvort sem það eru bein, ákveðin líffæri eða æðarn- ar,“ útskýrir Ásbjörn. „Hægt er að skoða fleira með meiri hraða en áður. Við höfum mest verið að skoða útlit líffæranna hingað til, en sífellt meira er hægt að skoða um leið starfsemi þeirra og í því liggur framtíðin. Þá verður hægt að gera enn nákvæmari greiningar.“ Í nýju tölvusneiðmyndatækjunum er algengt að taka um 800 sneiðar af brjóst- eða kviðarholi. Eins og gefur að skilja er ógerlegt að prenta svo margar myndir út á filmu og því eru stafrænar lausnir og öflugar tölvur nauðsyn í dag. Þessi tækni býður upp á betri og nákvæmari greiningar- möguleika en áður var hægt að fá. Mjúkvefir líkamans skoðaðir Í segulómtæki sjást mjúkvefir lík- amans nákvæmar en í tölvusneið- myndatæki. T.d. er hægt að skoða miðtaugakerfið, þ.e. heila og mænu, betur en í tölvusneiðmyndatæki. Seg- ulómun hentar einnig vel til greining- ar sjúkdóma og áverka í beinum og liðum, t.d. brjósklos. Einnig er það helsta tækið sem notað er við grein- ingu á MS-sjúkdómnum í dag. Sjúkdómseinkenni sjúklings ráða því hvor myndgreiningarleiðin hentar betur hverju sinni. „Kosturinn við segulómunina er að þar er engin geislun heldur byggist hún upp á út- varpsbylgjum og segulsviði,“ segir Ásbjörn. „Þess vegna er t.d. æski- legra að nota segulómun hjá börnum og yngra fólki frekar en tölvusneið- myndatæki sem notast við röntgen- geisla.“ Viðvaranir við segulómtækið, þar sem bannmerki af ýmsum toga eru hangandi á veggjum, eru nauðsynleg- ar því segulsvið tækisins er þrjátíu- þúsundfalt á við segulsvið jarðar. Það þýðir að tækið dregur að sér alla málmhluti af miklu afli. Ekki geta því sjúklingar með gangráða, svo eitt- hvað sé nefnt, farið í slík tæki. Engan skal því undra að byggja þurfti sér- staklega utan um segulómtækið í Fossvoginum og má nefna að ekki hefði mátt staðsetja legudeild þar sem sjúklingar með hjartagangráða lægju, á næstu hæð. Nýting á myndgreiningarbúnaði sjúkrahússins er mjög mikil og eru framkvæmdar yfir hundrað þúsund rannsóknir árlega á röntgendeildun- um. Segulómtækið er mjög ásetið og vonast röntgenlæknar til þess að með nýju tæki á Hringbraut verði hægt að fara að sinna t.d. æðarannsóknum og rannsóknum á illkynja sjúkdómum í meiri mæli en áður. Tæki á tveimur stöðum Myndgreining er rekin bæði á Hringbraut og í Fossvogi enda verða myndgreiningartækin og sjúkling- arnir að vera á sama stað. Oft er ómögulegt og óæskilegt að flytja þá á milli. Það hefur í för með sér að dýr tækjabúnaður þarf að vera til á báð- um stöðum en undanfarin misseri hef- ur sjúkrahúsið í auknum mæli tekið slík tæki á rekstrarleigu. Það hefur marga kosti, sérstaklega þar sem tækninni fleygir stöðugt fram og tæk- in verða fljótt úrelt og því óhagstætt að vera að fjárfesta í mjög dýrum tækjum til framtíðar. „Frá sameiningu sjúkrahússins hefur tekist mjög vel að endurnýja dýrari tæki,“ segir Ásbjörn. „Samein- ingin hefur gert það að verkum að fjármunir hafa nýst betur og með leigunni höfum við fengið mörg ný tæki. Hins vegar voru væntingar uppi um það að með sameiningu sjúkra- húsanna væri hægt að vera með eitt tæki í stað tveggja en það er alveg óraunhæft hvað myndgreininguna varðar fyrr en við förum í eitt hús. Það er ekki hægt að búast við slíkri hagræðingu á meðan við erum með fulla starfsemi á tveimur stöðum,“ segir Ásbjörn. Myndgreining er ein af sérgreinum læknisfræðinnar en á Landspítala – háskólasjúkrahúsi starfa nú um tuttugu röntgenlæknar auk 45 geislafræðinga. Við greiningarvinnu sína nota læknarnir myndir af innviðum líkamans sem teknar eru t.d. í tölvusneiðmyndatækjum eða segulómtækjum. „Þetta er sérgrein sem er að mörgu leyti í bakgrunninum og fólk áttar sig ekki alltaf á umfangi hennar,“ segir Ásbjörn Jónsson, sviðs- stjóri myndgreiningarþjónustu Landspítalans. „Við túlkum hverja ein- ustu röntgenmynd sem tekin er á sjúkrahúsinu. Rannsóknin er ekki eingöngu myndin heldur svarið sem röntgenlæknarnir gefa.“ Röntgenlækningar eru ekki nýjar af nálinni, þær má rekja til ársins 1895 þegar Wilhelm Conrad Röntgen uppgötvaði geisla sem kenndir hafa verið við hann allar götur síðan. Þar til á allra síðustu árum hefur uppistaða greinarinnar verið röntgenmyndir sem teknar voru á filmu. „Allir verkferlar hafa snúist í kringum filmuna,“ útskýrir Ásbjörn. „Myndin var á einum stað og ef hún týndist þá var hún glötuð.“ Nú er hins vegar öldin önnur og með stafrænni tækni er LSH nánast orðið filmulaust sjúkrahús. Hægt er að nálgast allar myndir sem tekn- ar eru í tölvu, þar sem þær eru skoðaðar, greindar og geymdar í tíu ár í gagnagrunni sjúkrahússins. Nákvæmari og hraðari mynd- greining með stafrænni tækni „Þetta þýðir að við notum ekki lengur filmur, þeim hefur nánast verið útrýmt,“ segir Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri myndgreiningarþjónustu LSH. sunna@mbl.is Hvað er myndgreining? Hvernig húsnæði Land- spítalans mótar starfsemina vegna mikilla þrengsla. Á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.