Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 20
HÆKKAÐUR blóðþrýstingur er
mjög algengur áhættuþáttur hjarta-
og æðasjúkdóma. Jafnvel vægur há-
þrýstingur getur skaðað hjarta- og
æðakerfið til lengdar. Allar klín-
ískar leiðbeiningar um meðferð há-
þrýstings leggja áherslu á að í byrj-
un þarf að leggja höfuðáherslu á
aðra þætti en lyf, svo sem hollt mat-
aræði, að nota ekki tóbak og að
neyta áfengis í hófi, að ástunda slök-
un og ekki síst reglubundna lík-
amlega áreynslu. Undanfarið hefur
verið mikil umræða um lyf og auka-
verkanir þeirra. Lyf eru oft nauð-
synleg, en aldrei má þó gleyma því
að lífsstílsbreytingar geta gert sama
gagn eða meira og án aukaverkana
eða kostnaðar.
Jákvæð áhrif hreyfingar
á blóðþrýsting
Samantekt af niðurstöðum 15 vel
gerðra rannsókna (svokölluð meta-
analysa) sem gerð var fyrir fáeinum
árum, sýndi að reglubundin hreyf-
ing og áreynsla lækkaði blóðþrýst-
ing hjá 75% þátttakenda. Lækkun
efri marka varð að meðaltali sem
svarar 11 millímetrum kvikasilfurs,
en meðaltalslækkun neðri marka
var 8 mm kvikasilfurs. Þetta er
veruleg lækkun, eða sú sama og bú-
ast má við eftir notkun algengra
blóðþrýstilyfja. Reglubundin hófleg
áreynsla virtist gefast best til að
lækka blóðþrýstinginn.
Hægt er að mæla með hraðri
göngu í hálftíma á dag.
Áhrif hreyfingar á blóðþrýsting
koma fljótt fram og áhrifanna gætir
allt að 24 klukkustundum eftir
áreynsluna. Auk áhrifa til lækkunar
blóðþrýstings eykur áreynsla
næmni frumanna fyrir insúlíni og
lækkar blóðsykur, en fólk með há-
þrýsting hefur gjarnan jafnframt
hækkaðan blóðsykur, sem enn frek-
ar veikir æðakerfið. Þessar nið-
urstöður styrkja mikilvægi hreyf-
ingar sem fyrsta skrefs til
meðhöndlunar á vægum háþrýstingi
og sem stoðmeðferð þegar óhjá-
kvæmilegt er að nota lyf.
Jákvæð áhrif innhverfrar
íhugunar á dánartíðni
Góðar rannsóknir sýna að reglu-
bundin ástundun innhverfrar íhug-
unar (Trancedental Meditation) get-
ur leitt til lækkunar á blóðþrýstingi.
Rannsóknir bandarískra vísinda-
manna hafa nú sýnt að iðkun inn-
hverfrar íhugunar leiðir til lækk-
unar á dánartíðni og birtust
niðurstöður í tímariti bandarísku
hjartalæknasamtakanna (The Am-
erican Journal of Cardiology) þann
1. maí sl. og vöktu talsverða athygli.
Leitað var að rannsóknum, sem
uppfylltu ströng skilyrði og dregnar
ályktanir af þeim. Tvær slíkar rann-
sóknir uppfylltu öll skilyrði. Nið-
urstaða þeirra var sú að innhverf
íhugun hafði verulega áhrif til lækk-
unar á dánartíðni, bæði úr hjarta-
og æðasjúkdómum og krabbameini
þegar sjúklingum var fylgt eftir í
mörg ár og var talin sambærileg við
rannsóknir á lyfjameðferð við há-
þrýstingi hjá þeim aldurshópi sem
þátt tók í rannsókninni. Um var að
ræða rannsókn þar sem fólki var til-
viljanakennt vísað á mismunandi
meðferðarform eða svokallaða
slembirannsókn, en sú aðferð var
skilyrði þess að rannsóknin kæmi til
mats. Með því er hægt að koma í
veg fyrir að aðrir þættir en þeir sem
til rannsóknar eru valdi miklu um
niðurstöðuna. Innhverf íhugun hafði
vinninginn hvort heldur var miðað
við aðrar slökunaraðferðir eða hefð-
bundna meðferð.
Innhverf íhugun er tiltölulega
auðlærð tækni, en þarf að ástunda í
20 mínútur einu sinni eða tvisvar á
dag.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið
Hreyfing og innhverf íhugun
lækkar blóðþrýsting
Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir.
Morgunblaðið/Golli
20 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | HEILSA
Inga Þórsdóttir prófessor ínæringarfræði hjá HáskólaÍslands og Landspítalanumsegir fólk eiga að fá öll vítam-
ín og steinefni, sem það þarf, úr
venjulegum mat ef það fer eftir al-
mennum ráðleggingum um rétt mat-
aræði. „Örfáar undantekningar eru
þó á því. Hér á landi er það eingöngu
D vítamín þörfin sem við náum ekki
að uppfylla með venjulegum mat,
það er að segja ef við tökum ekki lýsi
og borðum ekki verulegt magn af D
vítamín bættum matvælum. Það er
vegna þess að D vítamín fæst í gegn-
um sólarljósið og hér er oft ekki mik-
ið af því. Svo eru til einstaka hópar
sem, á ákveðnum æviskeiðum, þurfa
aukalega vítamín og þá er það ráð-
lagt í samræmi við það æviskeið. Oft
eru þetta aldraðir eða þungaðar kon-
ur.“
Inga segir að ekki þurfi að gefa
börnum vítamín ef þau eru að borða
fjölbreyttan og hollan mat. En það
skaði ekki að gefa þeim vítamíntöflu
sem ekki inniheldur meira magn en
ráðlagðan dagskammt af næring-
arefnum. „Ég mæli ekki með því að
börn taki töflur með háu vítamín- og
steinefnainnihaldi nema fyrir liggi
sérstök greining á því að þeim skorti
eitthvað af þeim.“
Ójafnvægi næringarefna
Langvarandi há neysla á sumum
vítamínum og steinefnum getur leitt
til eitrunaráhrifa.
„Ekki er æskilegt að fólk taki
stærri skammta af vítamíni en mælt
er með. Það eru til tölur um hámarks
inntöku á vítamínum og ekki er
æskilegt að fólk fari upp fyrir þær
tölur í magni til langs tíma. Ofneysla
getur leitt til þess að það verður
truflun á jafnvægi á milli næring-
arefna í líkamanum, þá er meiri upp-
taka á einu efni sem leiðir til þess að
það verður minna frásog á öðru efni.
Til dæmis minnkar mikil neysla á
sinki frásog á járni og kopar og það
getur leitt til járnskorts. Náttúran
hefur ekki reiknað með að við séum
að dæla í okkur risaskömmtum af til-
teknum efnum. Ýmiskonar einkenni
verða við ofneyslu næringarefna til
langs tíma, svo er líka hægt að fá
bráðaeitrun,“ segir Inga og bætir við
að í dag séum við að kljást við of-
neyslu á orku miðað við orkuþörf en í
framtíðinni gætum við verið að kljást
við ofneyslu á ýmsum öðrum efnum,
eins og vítamínum, sem við eigum
líklega eftir að sjá slæmu áhrifin af.
Ein teskeið af lýsi nóg
„Það er yfirgengilega frekt að
halda að hægt sé að ganga fram og
bæta næringarefni í sem flest mat-
væli, þannig að við eigum eftir mjög
fá hrein matvæli frá náttúrunnar
hendi. Þetta er kannski ekki gert í
frekju því að sumir matvælafram-
leiðendur halda að þeir séu að gera
voðalega mikið gagn. Vítamínbætt
vara er oft ekki nauðsynleg. Auðvit-
að er það svoleiðist að manneldisráð
út um allan heim biðja um að bætt sé
bætiefnum í einhver tiltekin matvæli
til þess að koma í veg fyrir skort. Til
dæmis að D vítamíni sé bætt í fitulitl-
ar mjólkurvörur til þess að bæta D
vítamín búskapinn hjá unglings-
stelpum sem ekki taka lýsi eða joði í
salt þar sem joðskortur ríkir.
Matvælaiðnaðurinn hefur áhuga á
að bæta fleiri efnum við fleiri mat-
vörur og gerir þetta í góðri trú og er
kannski sannfærður um að þetta sé
hollt og gott en einnig er þetta gert í
þeirri von að það seljist meira. En
það verður að byggjast á þeirri
þekkingu sem fyrir er og iðnaðurinn
verður að hlusta þegar sagt og sýnt
er að ekki sé þörf fyrir svona mikið
af vítamínbættum vörum.“
Hér á landi selst mikið af vítam-
ínbættum vörum og bætiefnum. En
Inga ráðleggur fólki að fara ekki um-
fram ráðlagðan dagskammt.
„Við heilbrigða fólkið sem borðum
rétt eigum ekki að þurfa að taka ann-
að inn en eina teskeið af lýsi á dag.
Ef það verður alltaf bætt meira í
matvæli þá stendur neytandinn
frammi fyrir því að hann verður að
leita að hreinu vörunni sem er þá eft-
irsóknarverðari. Markaðurinn mun
snúast gegn sjálfum sér í þessu máli.
Ástæðan fyrir því að það er hægt að
ganga svona langt í að bæta vítam-
ínum í matvæli er að almenning
vantar grunnþekkingu í líffræði
mannsins og næringarfræði og veit
ekki hvað hann þarf. Við verðum að
auka okkar eigin þekkingu til þess að
geta spornað gegn auglýsingabrell-
um. Ef þekkingin er léleg þá kaupir
fólk eins og fyrir það er lagt.“
MATUR | Vítamínbætt matvæli
Ofneysla vítamína
getur leitt til eitrunar
Nú til dags eru ýmis matvæli með viðbættum vít-
amínum og steinefnum. Flestir telja það hollt og
gott fyrir sig en svo er ekki alltaf því rétt mataræði
á að færa okkur þau vítamín sem við þurfum.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Morgunblaðið/Eyþór
„Við heilbrigða fólkið, sem borðum
rétt, eigum ekki að þurfa að taka
annað inn en eina teskeið af lýsi á
dag,“ segir Inga Þórsdóttir, pró-
fessor í næringarfræði.
Inga segir að ekki þurfi að gefa
börnum vítamín ef þau borða fjöl-
breyttan og hollan mat.
TRÖNUBERJASAFI getur
verið gagnlegur í baráttunni
við veirusýkingar í maga og
þörmum að því er bandarískir
vísindamenn telja. Áður hefur
verið sýnt fram á að trönu-
berjasafi getur gagnast gegn
bakteríusýkingum í þvagfær-
um, að því er m.a. kemur fram
á vef MSNBC.
Rannsóknir vísindamanna
við St. Francis háskólann og
Mt. Sinai læknaháskólann í
Bandaríkjunum á dýrum benda
til þess að trönuberjasafi geti
haft fyrrgreind áhrif á
ákveðnar veirutegundir. Vís-
indamennirnir benda á að frek-
ari rannsókna sé þörf og þá á
mönnum. Veirusýkingar í
maga og þörmum geta valdið
krömpum og niðurgangi og
geta verið banvænar, sér-
staklega í þróunarlöndum.
Trönuberja-
safi gegn
veirusýkingu
HOLLUSTA
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 ● sími 551 3930