Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VÍÐTÆKAR UMRÆÐUR UM STJÓRNARSKRÁ Athyglisvert er að fylgjast meðvinnubrögðum stjórnarskrár-nefndar forsætisráðherra. Nefndin nálgast viðfangsefni sitt með allt öðrum hætti en fyrri stjórnarskrár- nefndir og raunar allt öðru vísi en flestar nefndir, sem settar eru á fót af hálfu hins opinbera til að marka stefnu í tilteknum málum. Fljótlega eftir að stjórnarskrárnefnd hóf störf opnaði hún vef á Netinu. Þar segir m.a.: „Nefndin hvetur til víðtækrar umræðu í þjóðfélaginu um stjórnar- skrána og breytingar á henni. Hyggst hún leggja sitt af mörkum til þess að sú umræða geti byggst á greinargóðum upplýsingum um starf nefndarinnar, ís- lenska stjórnskipun og stjórnar- skrárþróun í nágrannalöndum. Erindi frá félagasamtökum og stofnunum sem og önnur bréf sem berast verða lögð fyr- ir nefndina og birt á heimasíðu hennar.“ Ennfremur hefur nefndin lagt mikla áherzlu á að efni um stjórnarskrána og verkefni nefndarinnar sé almenningi að- gengilegt. Mikið efni er að finna á vef nefndarinnar, til dæmis dagskrá funda nefndarinnar, fundargerðir og erindi, sem nefndinni berast. Annað, sem ekki er til á tölvutæku formi, svo sem bækur, tímaritsgreinar og skýrslur, liggja frammi í Þjóðarbókhlöðunni, þar sem frátekinn hefur verið sérstakur bás und- ir efni sem tengist endurskoðun stjórn- arskrárinnar. Þeir, sem ekki geta heim- sótt Þjóðarbókhlöðuna geta nálgast gögn með millisafnaláni í gegnum bóka- söfn annars staðar á landinu. Stjórnarskrárnefndin hefur ennfrem- ur efnt til opinna funda um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ráðstefna um mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar var haldin í apríl og um nýliðna helgi var haldin önnur ráðstefna, þar sem fjallað var um endurskoðun stjórnarskrárinn- ar. Á þessum ráðstefnum gefst almenn- ingi bæði kostur á að fræðast um verk- efni nefndarinnar í víðu samhengi og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þessi vinnubrögð eru til mikillar fyr- irmyndar. Nefndir, skipaðar af hinu op- inbera til að marka stefnu í mikilvægum málum, starfa iðulega fyrir lokuðum tjöldum og lítið sem ekkert er vitað um starf þeirra þar til lokaskýrsla eða til- lögur liggja fyrir. Í máli eins og stjórn- arskrármálinu, þar sem sjálfur grund- völlur lýðræðiskerfis okkar, stjórn- skipunar og réttarríkis er til umfjöllunar, eru slík vinnubrögð auðvit- að sérstaklega mikilvæg. Verkefnið er augljóslega þess eðlis að almenningur hefur á því skoðanir, sem sjálfsagt er að eigi sem greiðasta leið til þeirra stjórn- mála- og embættismanna og sérfræð- inga, sem nefndina skipa. Það liggur hins vegar í augum uppi að slík vinnubrögð megi taka upp í miklu fleiri stórum málum. Af þeim nefndum, sem nú starfa, gæti Evrópunefnd for- sætisráðherra t.d. vafalaust sótt í smiðju stjórnarskrárnefndar, enda er þar um að ræða stórt mál, sem margir hafa skoðun og þekkingu á. Og slíkt getur átt við í miklu fleiri málaflokkum. Þótt nefndir, sem skipaðar eru til að móta opinbera stefnu, muni alltaf þurfa ákveðið næði til að gera þær pólitísku málamiðlanir sem nauðsynlegar eru, fel- ast miklir möguleikar í því að opna slíkt nefndarstarf með þeim hætti, sem stjórnarskrárnefnd hefur gert. VINNUÞRÆLKUN BARNA Barnaþrælkun er mun víðtækaravandamál en flestir gera sér grein fyrir. Nánast alls staðar í heiminum eru börn látin vinna, oft við hryllilegar aðstæður. Talið er að 246 milljónir barna sæti vinnuþrælkun um þessar mundir og er það óheyrilegur fjöldi. 73 milljónir þessara barna eru undir tíu ára aldri. Talið er að 22 þúsund börn láti lífið í vinnuslysum á ári hverju og ógerningur er að segja til um hve mörg börn glata heilsu sinni. Mest er um að börn séu látin vinna í Afríku, en mestur er fjöldinn í Asíu. Samkvæmt tölum frá Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna, UNICEF, vinnur 41% barna á aldrinum fimm til 14 ára í Afríku, 12% í Asíu og 17% í Rómönsku Ameríku og Karíbahafinu. Vegna íbúa- fjöldans í Asíu er 60% barna í heim- inum, sem búa við vinnuþrælkun, að finna þar. Mörg af þessum börnum eru þrælar, látin vinna í námum og þvinguð til að stunda vændi eða hermennsku. Börn ganga kaupum og sölum og fá oft ekki nema einn dollar eða um 70 krónur í laun á mánuði. Í heiminum eru 2,2 milljarðar barna og búa 1,9 milljarðar í þróunarríkjunum. Talið er að annað hvert barn í þróunarríkjunum búi við fátækt. Dagurinn í gær var helgaður barátt- unni gegn vinnuþrælkun barna. Al- þjóðavinnumálastofnunin, ILO, segir í skýrslu, sem birt var í gær, að nú eigi sérstaklega að leggja áherslu á að stöðva það að börn séu látin vinna í námum. Talið er að ein milljón barna vinni í námum. Þau vinna við erfiðar aðstæður og mikil þrengsli. Oft þurfa þau að rogast með byrðar, sem eru þyngri en þau. Iðulega eru lífshættuleg efni og gufur í námunum. Norman Jennings, námasérfræðingur ILO, seg- ir í viðtali við breska útvarpið, BBC, að umbætur hafi átt sér stað í námag- reftri, en alls ekki hafi verið nóg að gert. Neytendur, stjórnvöld og vinnu- veitendur megi ekki sofa á verðinum. Á föstudag skrifuðu 14 ríki undir sáttmála þar sem þau skuldbinda sig til að binda enda á að börn vinni í nám- um og eru Brasilía, Kólumbía, Gana, Tógó, Pakistan og Senegal þar á með- al. Nú er mikil áhersla lögð á það að draga úr fátækt í heiminum og vonir bundnar við að leiðtogar átta helstu iðnríkja heims samþykki áætlun um að gefa eftir skuldir fátækustu ríkja heims og grípa til annarra aðgerða til að draga úr fátækt. Í þeim efnum má ekki gleyma neyð barna í heiminum. Snar þáttur í því að binda enda á barnaþrælkun er að vinna á örbirgð foreldranna. Barnaþrælkun er ekki einangrað vandamál. Börn eru látin þræla við framleiðslu á vöru, sem seld er um allan heim. Þá eru dæmi um það að 15 ára börn séu þvinguð til að stunda vændi á Vesturlöndum. Barna- þrælkun er smánarblettur á samvisku okkar og ekki hægt að láta það við- gangast að tæplega 250 milljónir barna í heiminum búi við þau örlög að vera látin vinna erfiðisvinnu, oft við lífs- hættulegar aðstæður. S itt sýnist hverjum um ýmis atriði við endur- skoðun stjórnarskrár en önnur virðast njóta stuðnings úr ólíkum áttum, svo sem að breytingar á stjórnarskrá verði framvegis born- ar undir þjóðina í sérstakri at- kvæðagreiðslu. Á ráðstefnunni „Stjórnarskrá til framtíðar“ sem haldin var í Reykjavík á laugardag mættu til leiks fulltrúar þing- manna úr stjórnarskrárnefnd, sér- fræðingar í stjórnskipunarrétti og fulltrúar fjölda félagasamtaka en blaðamenn stýrðu umræðum í þremur málstofum. Telur nú eðlilegt að öll stjórnarskráin sé lögð undir Er þörf á að útfæra með öðrum hætti en nú lýðræðislegan rétt al- mennings til að hafa áhrif á stjórn- mál? Þessi spurning var ein þeirra stærstu sem lágu fyrir á fyrstu málstofu stjórnarskárráðstefn- unnar, sem bar yfirskriftina „Lýð- ræði á upplýsingaöld.“ „Rétt er að velta því fyrir sér hvort breyta eigi stjórnarskránni í þá veru að breytingar á henni skuli framvegis bornar sérstaklega und- ir þjóðaratkvæði,“ sagði Eiríkur Tómasson lagaprófessor í inngangi málstofunnar. Hann taldi að þann- ig yrðu skýrari skil milli hins al- menna löggjafa og stjórn- arskrárgjafans sem svo er nefndur. Þjóðin setti þá grundvall- arreglu í stjórnarskrána meðan Al- þingi yrði áfram aðalhandhafi lög- gjafarvaldsins. Annað tilvik, þar sem Eiríkur taldi koma til álita að breyta stjórnarskrá svo þjóðinni yrði falið endanlegt úrskurðarvald, er að taka upp í stjórnarskrána ákvæði um heimild til að framselja íslenskt ríkisvald til alþjóðastofnana. Í þessari málstofu tóku til máls fulltrúar sjö almennra fé- lagasamtaka og fóru víða í umræðu um stjórnarskrá. Öryrkjabandalag Íslands óskaði eftir að hert yrði á mannréttinda- kafla með tilliti til fatlaðra. Fulltrúi SUS lýsti hins vegar áhyggjum af þróun umræðunnar. Sífellt hávær- ari kröfur væru um óskýr stefnu- ákvæði en dómstólum væri þannig fært of mikið vald til túlkunar og þeir gerðir pólitískir. Undirbún- ingshópur kvenna um stjórn- arskrárbreytingar lagði áherslu á jákvæðar skyldur ríkisvaldsins til að tryggja jafnrétti í reynd og vildi bæta við setningum í stjórnarskrá um hlutfall karla og kvenna á þingi og við dómstóla. Félag heyrn- arlausra lagði til að tekið yrði upp ákvæði í stjórnarskrá um íslenskt mál en samhliða því íslenskt tákn- mál. ReykjavíkurAkademían velti upp áleitnum spurningum um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslu. Mannvernd vildi skýrar takmarkanir á notkun kennitölu í stjórnarskrá og Skýrslutæknifélag Íslands vakti athygli á hug- myndum um upplýsingatækni sem stuðlað gætu að upplýstri umræðu um stjórnarskrána. Fyrstu málstofu lauk með við- brögðum fulltrúa stjórnarskrár- nefndar, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Jónínu Bjartmarz. Báðar sögðust fyrst og fremst komnar til að hlusta. Ingibjörg benti þó t.d. á að lýðræði væri ann- ars vegar stjórnarform, hins vegar lífsstíll. Nokkra athygli vakti þegar Jónína Bjartmarz sagði af þeirri skoðun sinni að takmarka bæri endurskoðun stjórnarskrár við ákveðna kafla og teldi nú eðlilegt að öll stjórnarskráin væri lögð und- ir í vinnunni. Skiptar skoðanir um íslensku þjóðkirkjuna Þarf að endurskoða skráðar grund- vallarreglur um helstu handhafa ríkisvalds til þess að stjórnarskráin endurspegli betur raunveruleik- ann? Þessari spurningu var velt upp á annarri málstofunni en auk þess var til skoðunar hvort útfæra ætti betur hlutverk ólíkra embætta og stofnana til að tryggja sem best gagnkvæmt aðhald með ríkisvald- inu. Málstofan um „Þrískiptingu ríkisvalds – pólitíska forystu – virkt eftirlit“ hófst með inngangi frá Kristjáni Andra Stefánssyni, fulltrúa sérfræðinganefndarinnar. Kristján fjallaði um þrískiptingu ríkisvaldsins á breiðum grundvelli og það hvernig eftirlit með lýðræð- inu er að sumu leyti innbyggt í ís- lenskt stjórnkerfi. Sagðist hann telja þau orð halda fullu gildi, að ekki hefði orðið mikilvægari breyt- ing á lýðræðislegu stjórnarfari en tilkoma þingræðis. Fulltrúar félagasamtaka fengu þá orðið. Þjóðarhreyfingin lagði áherslu á þær valdhömlur á þingið sem fælust í málskotsrétti forseta. Siðmennt taldi ójafnræði felast í því að aðeins trúfélög en ekki önn- ur lífsskoðanafélög væru skrásett og ríkisstyrkt. Fulltrúi þjóðkirkj- unnar benti á að útilokun trúar frá almennri umræðu væri ekki rétt- lætanleg og ekki einungis einkamál hvers og eins heldur ætti þátt í mótun gildismats í samfélaginu. Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju bentu þá á að hægt væri að tryggja trúfrelsi án þess að kippa fótunum undan trúariðkan. BHM vildi m.a. koma á rétti til bindandi þjóðaratkvæðis án þess að önnur úrræði yrðu skert, og að ráðherrar yrðu ekki þingmenn. Hið íslenska félag áhugamanna um stjórn- skipan sagðist m.a. vilja nálgast stjórnarskrá út frá fólkinu, ekki ríkinu. Þá vildi félagið taka upp „actio popularis“ ákvæði um að hver sem væri gæti farið í mál við ríkið en þá aðeins varðandi frels- isréttindi sín. Viðbrögð fulltrúa stjórnarskrár- nefndar, Guðjóns A. Kristjáns sonar og Birgis Ármannssona voru nokkuð ítarleg en Guðjón m.a. styrkja stöðu þingminnih og taldi ýmissa breytinga þörf að efla lýðræðið. Hann taldi sk á valddreifingu í stjórnskipuni Birgir Ármannsson benti þá á ekki væri lýðræðisvandi að mi hlutinn fengi ekki sínu framge Jafnframt taldi hann skýrt að stjórnarskrá ættu aðeins heim skýrar grundvallarreglur um handhöfn ríkisvalds og almenn reglur um vernd borgaranna. Valdframsal til alþjóða- stofnana hugsanlega inn Er ástæða til að setja í stjórn- arskrá ákvæði um þátttöku í a þjóðlegu samstarfi? Í þriðju m stofu var leitað svara við þeirr spurningu og því hvort taka bæ upp annars konar ákvæði um grundvallargildi íslensku þjóð arinnar nú. Spurningin um hvort ekki v tímabært að stjórnarskrárgja tæki af skarið um að framsal r isvalds til yfirþjóðlegra stofna gæti verið heimilað, var meðal þeirra sem lagaprófessor Björ Thorarensen varpaði fram í in gangi sínum. Björg taldi vert a huga að því hvort stjórnarskrá ætti að taka afdráttarlausari a stöðu til þess að virðing fyrir mannréttindum væri ein af þe undirstöðum sem íslensk stjór skipun byggir á. Þá spurði Bjö hvort stjórnarskárverndun ré manna til umhverfis af tilteknu gæðum gæti undirstrikað mik ilvægi málaflokksins þrátt fyri einstaklingar gætu ekki byggt á slíku ákvæði. Að síðustu varp Björg fram hugmyndinni um h skilgreina þyrfti betur í stjórn arskrá aðdraganda þess að tek eru mikilvægar ákvarðanir í u ríkismálum og hlutverk þingsi því sambandi. Í máli fulltrúa sjö félagasam kom margt fram sem fyrr. Bar heill vildu að ákvæðum barnas mála SÞ yrði veitt stjórn- arskrárvernd. BSRB ítrekaði kröfur sínar um mikilvægi alm aðgangs að hreinu vatni við væ verði. Náttúruvaktin undirstri mikilvægi óskerts umgengn- isréttar Íslendinga við náttúru sem ekki mætti takmarkast um af eignarrétti. Samtök herstöð andstæðinga vildu festa vopnl Íslendinga í stjórnarskrá auk banns við hvers konar stuðnin stjórnvalda við hernað. Landv vildi setja ákvæði í stjórnarskr um aðgang Íslendinga að heil- Fulltrúar úr ýmsum áttum á ráðstefnunni Stjórnarsk Leikreglur lýðræ Margs konar ólíkir hópar áttu fulltrúa sína á ráðstefnunni um stjórnarskrána en hún var öllum opin. Stjórnarskrárbundinn réttur til umhverfi af tilteknum gæðum, aðskilnaður ríkis og kirkju og sérstakt þjóðaratkvæði um stjór arskrárbreytingar voru meðal umræðuefn sem oft bar á góma á þremur málstofum á ráðstefnu um endurskoðun stjórnarskrár Anna Pála Sverrisdóttir fylgdist með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.