Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 23
Í
slendingar eru þekktir fyrir góðan ár-
angur í hönnun brimvarnargarða úr
stórgrýti og í öryggismálum sjófarenda,
en hér hefur verið þróað upplýs-
ingakerfi um veður og sjólag sem á ekki
sinn líka í heiminum. Þetta kom fram á al-
þjóðlegri ráðstefnu á Höfn í Hornafirði í vik-
unni, þar sem fjallað var um náttúrufar hafs og
strandar, öryggi sjófarenda og mannvirki á
ströndinni.
Megináhersla var lögð á gerð og stöðugleika
sjávarstranda, hönnun brimvarna- og sjó-
varnagarða, sjávarfallaósa, öldu- og brotöldusp-
ár, spár um sjávarföll og öryggi sjófarenda. Um
150 gestir frá átján löndum komu til landsins
vegna ráðstefnunnar og 90 fyrirlestrar voru
fluttir.
Íslensk hönnun vekur athygli
Gísli Viggósson, verkfræðingur hjá Sigl-
ingastofnun, var formaður undirbúningsnefndar
ráðstefnunnar, en Siglingastofnun sá um fagleg-
an hluta hennar. Að ráðstefnunni stóðu einnig
Hornafjarðarbær, Háskóli Íslands og sam-
gönguráðuneytið. Gísli segir að margir af þekkt-
ustu prófessorum og vísindamönnum á þessu
sviði í heiminum hafi tekið þátt í ráðstefnunni,
og sérstakt sé að ritstjórar tveggja helstu fag-
tímaritanna, „Journal of Coastal Research“ og
„Coastal Engineering“, voru með.
Íslendingar hafa vakið athygli fyrir hönnun
sína á svokölluðum bermugörðum, en það eru
brimvarnargarðar með þykkri grjótvörn utan á.
Þegar aldan skellur á garðinum fer hún í hol-
rými á milli grjótsins og eyðist þar. Garðarnir
þola mikla áraun og hafa sannað sig við mjög
erfiðar aðstæður.
Sigurður Sigurðarson, verkfræðingur á Sigl-
ingastofnun, segir Íslendinga standa í far-
arbroddi í gerð þessara garða og að íslenska út-
gáfan hafi verið tekin sem valkostur í erlendum
athugunum á heppilegum brimvarnargörðum
fyrir umfangsmiklar hafnarframkvæmdir.
Það sé töluverð viðurkenning þótt mikilvæg-
ast sé að þeir hafi sannað sig við íslenskar að-
stæður.
„Fjölmargir bermugarðar verja hafnir hér á
landi, en einnig höfum við annast tvö stór verk-
efni í Noregi. Aðalatriði er að við erum að nýta
flestar steinastærðir og þannig fullnýtum við
allt efni sem kemur úr námunni. Ísland er að
vekja athygli á sér á þessu sviði.“
Víðtækt upplýsinga- og öryggiskerfi
Íslendingar hafa einnig komið sér upp öflugu
upplýsingakerfi um veður og sjólag, sem eykur
öryggi sjófarenda, en það er að finna á vef Sigl-
ingastofnunar, www.sigling.is. Gísli segir svona
kerfi hvergi vera til nema hérlendis. „Sjómenn
hafa aðgengilegar rauntímaupplýsingar um
ölduhæðir, ölduspár, hættulegar öldur og fleira
og því geta skipstjórnendur tekið réttar og
ábyrgar ákvarðanir um siglingar og sjósókn.
Við höfum náð árangri með því að tengja saman
tækni og aðferðafræði okkar hjá Siglingastofn-
un og reynslu sjómanna. Gagnkvæmt traust rík-
ir; sjómenn vita að þeir geta treyst gögnunum
okkar og við vitum að þeir nota þau rétt. Vís-
indamenn nýta sér einnig þetta kerfi, til dæmis
til að reikna út hvar þorskur, sem í hefur verið
sett mælitæki sem mælir sjávarföll, heldur sig.“
Gísli segir ráðstefnuna hafa tekist afar vel og
að gott sé að vera vel kynntur í samfélagi fræði-
manna. Þá hafi myndarlega verið unnið að und-
irbúningi á Höfn. Segir Albert Eymundsson,
bæjarstjóri, að verið sé að markaðssetja bæinn
sem ákjósanlegan ráðstefnustað.
Gott dæmi um kunnáttu Íslendinga í hönnun brimvarnargarða er svonefndur bermugarður í Bolungarvík, en slíkur garður er með þykkri grjótvörn.
Alþjóðleg ráðstefna um strandrannsóknir á Höfn í Hornafirði
Íslendingar komnir á kortið
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Daninn Helge Gravesenog Norðmaðurinn dr.Emil Dahle voru í hópierlendra fræðimanna
sem tóku þátt í ráðstefnunni.
Helge er aðstoðarprófessor við
tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn og sérfræðingur í hafn-
argerð og strandverkfræði. Emil
er skipaverkfræðingur og sér-
fræðingur í öryggismálum sjófar-
enda, auk þess sem hann hefur
lengi unnið í rannsóknarnefnd
sjóslysa í Noregi varðandi fiski-
skip.
Helge stýrði pallborðs-
umræðum í lok ráðstefnunnar,
þar sem meðal annars voru rædd-
ar lausnir Íslendinga varðandi
hönnun.
Helge segir að mikilvægt sé að
brimvarnargarðar séu gerðir
rétt, svo að þeir skili hlutverki
sínu, og er ánægður með íslensku
lausnirnar. „Íslendingar hafa sér-
þekkingu á vissum sviðum og fá
þarna aðgang að fræðimönnum
víða að úr heiminum. Það er mik-
ilvægt fyrir okkur öll að hitta
aðra vísindamenn, fá innblástur
frá þeim og nýta til samráðs og
ráðgjafar. Auðvitað keppum við
um verkefni en andinn á milli
okkar er mjög góður“.
Emil segir að hið þéttofna upp-
lýsinga- og öryggiskerfi fyrir sjó-
farendur sem Íslendingar hafa
þróað sé frábært, og að öll lönd
ættu að taka það upp.
Helge bendir á að gagnkvæmt
traust milli aðila hafi gert kleift
að byggja upp það upp, sem öðr-
um hafi ekki tekist.
Emil segir að í Noregi séu ör-
yggismálin á höndum mismun-
andi aðila í stjórnkerfinu og því
hafi ekki gengið að byggja upp
sterkt öryggiskerfi. Mikilvægast
sé þó að sjófarendur nýti sér þær
upplýsingar sem séu til staðar, til
að auka öryggi sitt.
Helge nefnir að lokum að til-
komumikið sé hvernig Íslend-
ingar takist á við þá hættu sem
fylgi búsetu í nánd við jökla og
mikla eldvirkni, en á ráðstefn-
unni var meðal annars rætt um
Kötluhlaup.
Emil hlær við og bendir á að
þeir séu alveg að fara heim.
„Öll lönd ættu að taka upp íslenska öryggiskerfið“
Morgunblaðið/RAX
Helge GravesenDr. Emil DahleSigurður Sigurðarson
Gísli Viggósson (fyrir miðju), Ari Th. Thorsteinsson og Ingunn Erna Jóns-
dóttir, en þau komu mest að undirbúningi ráðstefnunnar.
brigðu og hollu umhverfi og lagði
áherslu á sjálfbæra þróun. Heims-
sýn, félag sjálfstæðissinna í Evr-
ópumálum, lagði áherslu á að ef til
valdframsals til alþjóðastofnana
kæmi, þyrfti aukinn þingmeiri-
hluta og helst þjóðaratkvæði til
staðfestingar. Mannréttinda-
skrifstofa Íslands vildi m.a. að við
endurskoðunina yrðu mannréttindi
höfð að leiðarljósi og lýðræðisleg
þátttaka tryggð. Fulltrúi þeirra
vakti einnig athygli á að væru efna-
hagsleg og félagsleg réttindi ekki
tryggð yrði borgaralegra og
stjórnmálalegra réttinda ekki not-
ið.
Fulltrúar stjórnarskrárnefndar
voru Steingrímur J. Sigfússon og
Þorsteinn Pálsson. Steingrímur
sagði stóraukna alþjóðasamvinnu
kalla á að þjóðir deildu með sér
völdum og slíkt yrði að búa betur
um í stjórnarskrá. Hann lagði
áherslu á að ábyrgð á sjálfbærri
þróun í umhverfismálum yrði lögð
á alla. Steingrímur vildi her- og
vopnleysi í stjórnarskrá og ís-
lensku sem ríkismál. Hann vildi
enn fremur sjá sjálfstæða kosningu
um stjórnarskrá sem fram færi
samhliða þingkosningum. Þor-
steinn Pálsson sagði sum hugð-
arefni eiga heima í stjórnarskrá en
ekki önnur. Hann sagði réttindi og
skyldur alls ekki mega slíta úr
samhengi, þannig að einn megi
eyða meðan annar þurfi að afla.
Þorsteinn ræddi einnig nokkuð um
hlutleysi Íslendinga í átökum.
Sagðist hann ekki vilja binda hend-
ur Íslendinga með stjórnarskrár-
ákvæði um hlutleysi, þar sem það
gæti komið í veg fyrir að Ísland
tæki afstöðu í átökum þar sem
mannréttindi og lýðræði lægju
undir.
Fjárstjórnin forsenda
þingræðis
Í umræðum í lok málstofunnar var
nokkuð gengið á tíma Geirs H.
Haarde, varaformanns stjórn-
arskrárnefndar, sem sleit ráðstefn-
unni og flutti lokaávarp. Hafði
Steingrímur J. það í flimtingum að
ræðan batnaði stöðugt eftir því
sem á liði.
Í ræðu sinni sagði Geir að ekki
þýddi að ætla sér um of með endur-
skoðun stjórnarskrárinnar í heild,
þótt ekki hefði verið lokað á slíkt.
Hann ræddi einnig um þjóð-
aratkvæðagreiðslur og lagði þar
áherslu á að tiltekinn fjölda þing-
manna eða kjósenda ætti að þurfa
til að krefjast þjóðaratkvæðis og þá
fleiri en færri. Þjóðaratkvæði ætti
að vera um mál sem væru óaft-
urkallanleg og hefðu áhrif á alla.
Auk þess sagðist Geir leyfa sér að
ganga svo langt að segja að „Fjár-
stjórn þingsins væri nauðsynleg
forsenda þingræðis,“ og vísaði til
þess að völd og ábyrgð þyrftu að
fara þar saman. Hann taldi enn-
fremur dómstóla illa fallna til að
stjórna landinu og því þýddi ekki
að hafa óljós ákvæði í stjórnarskrá.
Ekki mætti koma til átaka á landa-
mærum löggjafar- og dómsvalds-
ins.
s-
ar,
n vildi
hluta
f til
korta
inni.
á að
inni-
engt.
í
ma
nar
al-
mál-
ri
æri
ð-
væri
finn
rík-
ana
l
rg
nn-
að
áin
af-
eim
rn-
örg
ttar
um
k-
ir að
t rétt
paði
hvort
n-
knar
tan-
ins í
mtaka
rna-
sátt-
menns
ægu
ikaði
u sína
m of
ðva-
eysi
ngi
vernd
rá
-
krá til framtíðar
æðisins
Morgunblaðið/Jim Smart
is
rn-
na
á
r.
aps@mbl.is