Morgunblaðið - 13.06.2005, Page 28

Morgunblaðið - 13.06.2005, Page 28
28 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FORELDRAR mínir, Valdimar Kristjánsson og Magnúsína Magn- úsdóttir, bjuggu í Svangrund á Refa- sveit í A-Hún. frá far- dögum árið 1933 til jafnlengdar árið 1944. Svangrund er um 6 km norðan Blönduóss og eru Bakkakot og Sölvabakki, sem er norðan megin, næstu bæir. Þessar 3 jarðir eru sjávarjarðir og eiga sérhrognkelsa- lagnir í sjó fyrir landi sínu. Í jarðabók Árna og Páls er þess getið, að Svangrund á torf- ristu ítak í Síðulandi gegn uppsátri í Selvík í landi Svan- grundar. Og Sölvabakki á sams kon- ar ítak í landi Kúskerpis gegn upp- sátri í Bakkavík í landi Sölvabakka. Fleiri aðkomubátar en bátur Síðu- bónda munu nokkuð oft hafa haft uppsátur í Selvík. Að jafnaði munu fleiri aðkomubátar hafa róið úr Bakkavík en Kúskerpisbátur því á Sölvabakka var heimræði og þaðan var gert út á vertíðir áður fyrr. Vegna að- komu bátanna áttu jarðirnar sérlagnir, oft- ar en ekki þær bestu. Þótti kostur, ef ekki var langróið í lögnina og þar væri lítil hætta á, að netin ónýttust í stór- veðrum og brimi. Það er ekki ofmælt, að nokkur eftirvænting var í sveitinni ár hvert, eftir því að hrognkelsin færu að veiðast. Ný- metið var vel þegið og góður afli var mikil búbót. Oft var einhver samvinna með bændum frá áðurnefndum bæjum um veiðina. Ég man eftir lýsandi dæmi þess, að réttur sérlagnanna var virtur. Í Bakkakoti bjó Valdimar Stefánsson, fræg veiðikló og frábær skytta. Þeir nafnar, faðir minn og hann voru gamlir og góðir kunningjar. Eitt sinn kom hann til föður míns og var honum mikið niðri fyrir. Blöndu- ósingar höfðu lagt hrognkelsanet í sérlögn Bakkakots. Faðir minn ráðlagði nafna sínum að kæra til sýslumanns yfirganginn. Þetta gerði Bakkakotsbóndi og næstu daga voru netin færð. Það var þakkað röggsömu yfirvaldi. Nú hafa þau stórmæli gerst, að Hæstiréttur hefur skv. fréttum dæmt sjómann í stórsektir fyrir það eitt að veiða hrognkelsi innan sinna netlaga og hagnýta sér veiðina. Tvisvar í búskapartíð foreldra minna í Svangrund rak þar á fjörur lifandi loðnu í miklu magni. Drapst hún að sjálfsögðu og spillti um tíma allri fjörubeit. Nokkuð var hirt nýtt og saltað til skepnufóðurs. Væri það leyfilegt í dag? Hafa sjávarbændur loðnukóta?. Lifandi hafsíld var á síldarsumri fyrir stríð, tekin í pollum við stór- straumsfjöru og nýtt af föður mínum, bæði til mann- eldis og til skepnufóðurs. Hver yrði sekt hans í dag?. Sérhrognkelsalagnirnar skv. framanrituðu nutu fyllsta réttar í nokkrar aldir og voru virtar a.m.k. á búskaparárum foreldra minna í Svangrund. Hver er þessi réttur í dag? Hér með skora ég á alla, sem þekkja slík dæmi, sem ég hefi nú greint frá, eða önnur svipuð að láta frá sér heyra. Best er að koma því efni til Ragnars Aðalsteinssonar hrl., sem fer með málefni bænda, sem eiga veiðirétt í sjó skv. netlögum. Sér hrognkelsa- lagnir utan netlaga Lárus Þ. Valdimarsson ritar opið bréf til allra sem málið kann að varða ’… Hæstiréttur hefurskv. fréttum dæmt sjó- mann í stórsektir fyrir það eitt að veiða hrogn- kelsi innan sinna net- laga og hagnýta sér veiðina.‘ Lárus Þ. Valdimarsson Höfundur er fv. framkvæmdastjóri. MAT Á umhverfisáhrifum fram- kvæmda hefur nú verið við lýði á Ís- landi í rétt rúman áratug og hefur oftar en ekki verið efni umræðna þar sem sitt sýnist hverjum. VSÓ Ráð- gjöf hefur með styrk Vegagerð- arinnar og Landsvirkjunar nýverið lokið við skýrslu sem fjallar um skil- virkni mats á umhverf- isáhrifum fram- kvæmda. Verkið var byggt á viðhorfskönnun sem send var til fram- kvæmdaraðila, ráð- gjafa, umsagnaraðila, sérfræðinga og annarra sem að matinu koma. Þetta er í annað sinn sem VSÓ Ráðgjöf gerir slíka könnun, en hin fyrri var gerð árið 1999. Markmið könnunar- innar var meðal annars að athuga hvort viðhorf fólks til mats á um- hverfisáhrifum hafi breyst og að kanna skil- virkni mats á umhverf- isáhrifum fram- kvæmda. Niðurstöður könn- unarinnar voru um margt áhugaverðar og verður stiklað á þeim helstu hér á eftir. Skýrsluna má finna á www.vegagerdin.is Það sem fyrst vekur athygli er að tilgangur mats á umhverfisáhrifum virðist ekki vera sá sami í lögum ann- ars vegar og í hugum þátttakenda könnunarinnar hins vegar. Ekki er hér um vanþekkingu á tilgangi lag- anna að ræða því allir svarendur sögðust hafa kynnt sér lög og reglu- gerð um mat á umhverfisáhrifum. Sem dæmi um þetta misræmi þá kemur það hvergi fram í markmiðum laganna að matið eigi að leiða til þess að framkvæmd hafi minni umhverfis- áhrif en ella. Hins vegar telur meiri- hluti þátttakenda að tilgangur mats- ins sé að koma í veg fyrir eða breyta framkvæmd og lágmarka þannig áhrifin. Enda virðist, samkvæmt áliti meirihluta þátttakenda, matið draga úr áhrifum á umhverfið, hvort sem það er ætlunin samkvæmt laganna hljóðan eða ekki. Annað athyglisvert atriði snýr að eftirfylgni úrskurða í mati á um- hverfisáhrifum. Eftir feril matsvinnu, samráðs og úrskurðar virðist ekkert taka við sem tryggir að ákvæði úr- skurðar séu uppfyllt eða að ráðist sé í mótvægisaðgerðir. Með öðrum orð- um er eftirliti með að úrskurði sé framfylgt talsvert ábótavant. Í könnuninni var spurt um umfjöll- un aðal- og aukaatriða í mats- skýrslum. Um helmingur þátttak- enda taldi mjög vel eða vel tekið á umhverfisþáttum sem skipta máli og sömuleiðis taldi helmingur of ítarlega tekið á umhverfisþáttum sem ekki skipta máli. Hér skal taka það fram að mat manna á því sem skiptir máli eða ekki get- ur verið æði misjafnt. Þessar niðurstöður benda þó til þess að of ít- arlega sé farið í auka- atriði á meðan gera mætti aðalatriðum hærra undir höfði. Svör um það hvernig bæta mætti skil- virkni matsins renna stoðum undir þessa ályktun því þar kom sterklega fram að þátt- takendur vilja styrkja umfjöllun um aðalatriði og að dregið verði úr kröfum um umfjöllun minna mikilvægra atriða. Því til áréttingar má benda á að nær allir töldu að umfjöllun um fram- kvæmd og hönnun væri gerð góð skil á meðan talsvert færri töldu vel staðið að umfjöllun um mótvægisaðgerðir, nú- verandi ástand og áhrif á umhverfi og samfélag. Virkt samráð á milli umsagnaraðila og fram- kvæmdaraðila sem hæfist fyrr gæti hjálpað til við að greina á milli aðal- og aukaatriða. En til þess að það megi verða þarf að skilgreina hlut- verk umsagnaraðila betur þar sem nokkur óvissa virðist ríkja um verk- svið þeirra í dag. Þannig taldi aðeins fjórðungur þátttakenda að verksvið og hlutverk umsagnaraðila í matinu væri mjög eða frekar vel skilgreint og aðeins 36% taldi umfjöllun um- sagnaraðila hlutlausa. Breytingar sem hafa orðið á við- horfi þátttakenda frá könnuninni árið 1999 eru helst þær að þeim hefur fækkað sem telja að lögin stuðli að þátttöku almennings sem er umhugs- unarvert sérstaklega í ljósi þeirrar áherslu sem lögð er á þátttöku al- mennings og íbúalýðræði í dag. Þeim hefur fækkað sem telja ráðgjafa við- hafa fagleg vinnubrögð í matsvinn- unni en þó er meirihluti þátttakenda á þeirri skoðun að framkvæmdarað- ilar, sérfræðingar (rannsóknaraðilar) og ráðgjafar standi faglega að mat- inu. Þrátt fyrir að helmingur þátttak- enda telji umfjöllun í matsskýrslum mjög oft eða oft hlutlausa þá hefur þeim fjölgað sem telja hlutleysis mjög eða frekar sjaldan gæta í um- fjöllun í matsskýrslum. Talsverð fjölgun hefur orðið í hópi þeirra sem telja matið hafa áhrif á staðsetningu og hönnun og sömuleiðis hefur þeim fjölgað sem telja matið hafa dregið úr áhrifum á umhverfið. Hver er þá niðurstaðan? Er mat á umhverfisáhrifum framkvæmda skil- virkt? Svarið við þessu er ekki ein- hlítt. Góðu fréttirnar eru þær að mat- ið virðist draga úr áhrifum framkvæmda á umhverfið og myndu margir sjálfsagt telja að þar með væri tilganginum náð. Á hinn bóginn þarf greinilega að huga að nokkrum þáttum til þess að treysta skilvirkn- ina, en samkvæmt þátttakendum við- horfskönnunarinnar er það hægt með því að:  Einfalda matið, lög og reglur  Halda sig við aðalatriðin  Útbúa skýrari forskrift að mati  Auka samráð og samvinnu  Skilgreina betur hlutverk og verksvið umsagnaraðila. Það verður því spennandi að sjá hvort endurskoðuð lög um mat á um- hverfisáhrifum komi til með að taka á ofangreindum atriðum. Skilvirkni mats á umhverfisáhrifum Auður Magnúsdóttir fjallar um mat á umhverfisáhrifum Auður Magnúsdóttir ’Góðu frétt-irnar eru þær að matið virð- ist draga úr áhrifum fram- kvæmda á um- hverfið …‘ Höfundur er starfsmaður VSÓ Ráðgjafar. FYRR á öldum var latína al- þjóðamál, sem eingöngu mennta- menn töluðu og skrifuðu, en hún má sannarlega muna sinn fífil fegri, enda er nokkuð langt um liðið síðan enska ruddi þessari forntungu al- veg úr vegi og tók þannig alveg yf- irhöndina sem alþjóðamál og hafði óneitanlega þann höfuðkost fram yfir það fyrrnefnda að vera bæði aðgengilegri og auðlærðari og enn- fremur laus við að vera aðeins einkamál menntamanna. Áður en meira er sagt er rétt að geta þess að fyrir meira en einni öld á að giska fengu nokkrir bjart- sýnir málvísindamenn þá flugu í höfuðið að unnt væri að setja sam- an alþjóðamál úr einskonar sam- bræðingi ýmissa tungumála og kölluðu fyrirbærið „esperanto“. Orðið sjálft vísar til vonar, en það má hins vegar til sanns vegar færa að þetta nýja alþjóðamál hafi reynst hálfgerður vonarpeningur, enda ekki hlaupið að því að búa til tungumál í einskonar til- raunaglasi, því fór sem fór og er því ekki of- mælt að lífdagar esperantos séu þar með taldir. Fyrir nokkrum ára- tugum var haft viðtal við unga íslenska mál- vísindakonu er numið hafði fræði sín í háskóla nokkrum í Bandaríkj- unum og lokið þar námi með glæsi- brag. Hún hafði vitanlega frá ýmsu fróðlegu að segja, en það sem vakti greinilega mestu athygli manna var sú staðreynd að hún hafði engar sérstakar taugar til ylhýra málsins okkar og taldi það reyndar mestu fásinnu að jafn fámenn þjóð og við Íslendingar skyldum enn vera að burðast við að tala okkar eigið tungumál í stað þess að taka upp t.d. ensku og verða þannig gjald- gengari hvar sem er í heiminum. Henni láðist hins vegar alveg að geta þess hversu fjölmenn þjóð þyrfti að vera til að geta leyft sér þann munað að mæla á eigin tungu, ein milljón eða kannski tíu millj- ónir. Í sama streng tekur reyndar David Crystal, enski málvís- indamaðurinn er sótti nýlega mál- þing hér í Reykjavík, enda er eng- an veginn ofmælt að þau bæði kveði upp hálfgerðan dauðadóm yfir tungumálum sem mælendur eiga fáa. Er nokkur ástæða til að út- rýma þeim rétt eins og kaupmann- inum á horninu? Eiga þau ekki í einu orði sagt jafnmikinn til- verurétt og aðgangsfrekt alþjóða- mál? Sé vikið að hreinum tungum, mishreinum og óhreinum er óhætt að fullyrða með nokkuð gildum rök- um að engin tunga sé tandurhrein. Í íslensku finnst t.a.m. nokkur fjöldi tökuorða, en þau eru langtum færri en í ensku, sem veit ekki tökuorða sinna tal. Af erindi þessa enska fræðimanns mátti helst ráða að okkur Íslendingum væri fyrir bestu að gefa alla nýyrðasmíð alveg upp á bátinn og nota frekar erlend orð og orðtök í ríkara mæli. Sem betur fer sætti þetta viðhorf vel rökstuddri gagnrýni í ágætum greinum í Morgunblaðinu eftir Kristin Kristmundsson, fyrr- verandi skólastjóra, Þorgrím Gestsson, blaðamann, svo og leið- arahöfund blaðsins. Sá síðastnefndi taldi m.a. upp nokkur falleg nýyrði. Við þann ágæta lista mætti gjarnan bæta þyrlu og síma. Stöndum við öll í ómældri þakkarskuld við þá hugmyndaríku og skapandi menn sem auðgað hafa íslenska tungu með óviðjafnanlegum orðum sem þessum. Mér er ennfremur spurn hver hefðu orðið viðbrögð manna á borð við Jónas Hallgrímsson, Rasmus Kr. Rask og Jean Paul Brillouin, franska konsúlinn, við ofan- greindum ummælum væru þeir nú á meðal vor. Vel á minnst, sá síðast- nefndi sem bjó á Höfða fyrir fyrri heimsstyrjöldina sagði einhverju sinni að engin þjóð ætti fegurri kveðju en við Íslendingar. Kveðju sem við öll þekkjum en notum nú æ sjaldnar og hljóðar svona: „Komdu og vertu sæll“. Ég efast stórlega um að konsúllinn, þessi frábæri málamaður, hefði kunnað að meta útlensku á borð við „hæ“ og „bæ“ sem nú er svo að segja á hvers manns vörum. Er þetta virkilega það sem við viljum? Sá sem hér heldur á penna á erf- itt með að botna í þeim náungum sem virðast leggja allt sitt kapp við að losa okkur við tungumál fá- mennra landa eða þjóðarbrota ef ekki hreinlega að ganga alveg af þeim dauðum. Fari tungum þeim sem jarðarbúar tjá sig á fækkandi yrði tungumálaflóra okkar um leið fáskrúðugri og fátæklegri. Yrði það æskileg þróun? Tæplega. Þegar spænsku nýlenduherr- arnir lögðu undir sig Suður- og Mið-Ameríku ásamt Mexíkó kváð- ust þeir m.a. gera það í þeim há- leita tilgangi að mennta og kristna villimenn og skrælingja enda voru jafnan prestar og trúboðar í far- arbroddi innrásarherja þeirra, en áhöld eru enn um það meðal fræði- manna hvorir voru í rauninni sann- eða siðmenntaðri, Spánverjar eða svonefndir „frumbyggjar“ og megi í því sambandi benda aðeins á Maj- ana og meistaraleg og frábær mannvirki þeirra, svo og Inkana og ótrúlegar skurðaðgerðir þeirra á höfuðkúpu sjúklinga er fram- kvæmdar voru með borunum eins og nú tíðkast á vorum dögum. En eitt er víst að Spánverja vant- aði ekki sjálfsálit frekar en aðra ný- lenduherra. Ljóðlist Majanna sem varðveitt var á einskonar bark- arþynnum var þeim slíkur þyrnir í augum að þeim þótti full ástæða til að eyða þeim að mestu sem hverju öðru illgresi. Menn hafa lygilega gott lag á því að réttlæta vafasöm- ustu gjörðir sínar í nafni hugsjóna eins og t.a.m. trúar sinnar sem þeir telja jafnan vera þá einu réttu eða þá í nafni óljósra hugmynda um lýðræði eins og nú er títt á vorum dögum. Nýlega var greint frá því í Víð- sjárþætti RÚV að bandarísk menntakona sem lengi hefur verið búsett í Mexíkó hafi komist í kynni við afkomendur Majanna í suður- hluta landsins, einkum konur og lært mál þeirra. Enda þótt þær væru ólæsar voru þær engu að síð- ur allar talandi skáld, þ.e.a.s. þær töluðu allar eingöngu i bundnu máli. Að mínu viti er slíkur fundur gulls ígildi og ef til vill miklu meira en það. Megi tungur fámennra þjóða lifa sem lengst, enda eru þær gersemar sem okkur ber siðferðileg skylda til að slá skjaldborg um svo lengi sem við drögum andann. Er móðurmál okkar í hættu? Halldór Þorsteinsson fjallar um móðurmálið ’Megi tungur fámennraþjóða lifa sem lengst, enda eru þær gersemar sem okkur ber siðferði- leg skylda til að slá skjaldborg um…‘ Halldór Þorsteinsson Höfundur er skólastjóri Málaskóla Halldórs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.