Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ástkær dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, SVAVA EGGERTSDÓTTIR, frá Vestmannaeyjum, er látin. Jóna Guðrún Ólafsdóttir, Eggert Jón Magnússon, Hildur Björk Leifsdóttir, Guðrún Björk Magnúsdóttir, Kristbjörn Gunnarsson, Sigurður Hjalti Magnússon, Íris Aðalsteinsdóttir, barnabörn og systkini hinnar látnu. ✝ Hrafn Pálssonfæddist í Reykja- vík 16. ágúst 1950. Hann lést 3. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Valdís Er- lendsdóttir, f. 29. nóvember 1929, og Páll Andrés Arnljóts- son, f. 4. desember 1927, d. 26. júní 1959. Bræður Hrafns eru: 1) Örn Pálsson, f. 11. desember 1948, kvæntur Margréti Haraldsdóttur , f. 12. júlí 1948, börn þeirra eru: A) Auður, gift Inga Rafni Össurarsyni, hún á tvo drengi frá fyrra hjónabandi. B) Valdís, sam- býlismaður Þorlákur Runólfsson, eiga tvo drengi. C) Haraldur, sam- býliskona Erla María Andrésdótt- ir. 2) Erlendur Páls- son, f. 1. maí 1955, kvæntur Elsu Jóns- dóttur, f. 5. júní 1957. Börn þeirra eru: Páll Arnar, Hlynur og Telma. Hrafn lærði til þjóns á Hótel Loft- leiðum og lauk sveinsprófi 1971. Hann fékk meistara- réttindi 1981 og starfaði á hinum ýmsu veitingastöð- um í gegnum tíðina en síðustu árin rak hann ásamt Erlendi bróður sínum Veitingahúsið Opus í Hafnar- stræti. Hrafn verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Það var sárt að heyra að elskuleg- ur frændi minn væri fallinn frá, svona óvænt og skyndilega. Það að setjast niður og skrifa nokkur orð til að minnast hans var ekki það sem ég átti von á að gera á næstu árum. Þeg- ar ég hugsa til liðinna ára er margs góðs að minnast af Hrafni frænda, eða Labba eins og við systkinin köll- uðum hann á yngri árum. Þó að samskipti okkar hefðu minnkað með árunum þá var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Hann var alltaf einstaklega góður frændi. Frá barnæsku minnist ég þess hversu góður hann var alltaf við okk- ur systurnar. Alltaf var hann tilbúinn að leika við okkur í þeim uppátækj- um sem okkur datt í hug og setti sig í hlutverk og var með. Á seinni árum hittumst við oftast hjá ömmu í Langó. Það var aðdáun- arvert að sjá hve góður hann var allt- af við ömmu. Hann tók hana með í allt sem hann gerði, bauð henni út að borða og keyrði hana um allan bæinn í bíltúr. Það var alltaf gaman þegar þau fóru í bíltúr í Grafarholtið og komu í heimsókn til mín. Þá sátum við og töluðum um daginn og veginn, alltaf horfði hann aðdáunaraugum á golfvöllinn og sagði: „Ég vann við að leggja þennan golfvöll, þá var þetta uppi í sveit.“ Það var alltaf stutt í húmorinn hjá honum og auðvelt var að fá hann til að hlæja. Hann var einstakur fagurkeri, vildi hafa fallega hluti í kringum sig og tókst það svo vel allt sitt líf. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku amma. Megi guð styrkja þig á þessum erfiðu tímum. Valdís Arnardóttir. Það var erfiður dagur þegar mamma hringdi í mig heim til Eng- lands og sagði mér að Hrafn frændi (eða Labbi frændi eins og ég kallaði hann þegar ég var lítil) væri dáinn. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Minningarnar streymdu fram og augun fylltust af tárum en ég man að ég var svo fegin að hafa gefið honum stórt knús þegar við kvöddumst um jólin. Hrafn var yndislegur í alla staði, átti glæsilegt heimili og var mikill gestgjafi. Það var alltaf svo gaman að hitta hann og mikið gátum við talað þegar við hringdumst á. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd og engin orð fá því lýst hversu góður hann var við ömmu en það segir allt um það hversu frábær maður hann var. Missirinn er mikill eins og alltaf þegar einhver kveður en minning- arnar um uppáhalds frænda minn varðveiti ég vel í hjarta mínu. Bless, elsku besti frændi. Megi guð geyma þig og gefa okkur hinum sem eftir erum allan þann styrk sem við þurfum á þessum erfiðu stundum. Auður. Með nokkrum fátæklegum orðum langar mig að minnast eins besta vin- ar míns, Hrafns Pálssonar, sem lést fyrir nokkrum dögum, langt fyrir aldur fram. Stundum er sagt að menn verði að vera dánir til að vel sé um þá talað og af sanngirni. Menn verði ekki góðir í samfélagi manna fyrr en eftir að þeir kveðja þessa jarðvist. Það átti ekki við um Hrafn Pálsson. Hann var í lif- anda lífi góður maður og vel þokk- aður af öllum samferðamönnum. Ljúfur í lund og með afar góða ná- vist. Sannkallaður mannkostamaður. Það voru forréttindi, sem ég verð æv- inlega þakklátur fyrir, að fá að njóta vináttu við þennan góða mann. Ég kynntist Krumma, eins og hann var oft kallaður, í veitingahús- inu Naustinu fyrir 30 árum. Hann starfaði þar sem framreiðslumaður og lærði ég þar þá iðn einnig, – með hann sem minn helsta læriföður. Af honum var allt hægt að læra sem góður framreiðslumaður þarf að hafa til að bera, s.s. heiðarleika, kurteisi, samvinnu, snyrtimennsku. Enda var það svo að hann var jafnan eftirsótt- ur starfskraftur og ávallt vinsæll meðal vinnufélaga. Allt frá kynnum okkar í Naustinu forðum daga myndaðist með okkur Hrafni órjúfanleg vinátta – vinátta sem er nú rofin með ótímabærri kveðjustund. Eftir sitjum við vinir og ættingjar með sorg og eftirsjá, sem nístir hjart- að. Síðustu árin höfum við báðir verið önnum kafnir við rekstur á eigin fyr- irtækjum og því miður gleymir mað- ur í því kapphlaupi oft því mikilvæg- asta, sem er fjölskyldan og traustir vinir. Hvað ég gæfi ekki fyrir fleiri góðar samverustundir með Hrafni vini mínum. En af því verður ekki í þessari tilveru. Minningarnar skjóta upp kollin- um. Nú fer ég ekki lengur á Þorláks- messu með dætur mínar á fund Krumma og við skiptumst á gjöfum. Þau verða ekki fleiri símtölin á kvöld- in til að ræða daginn og veginn og reksturinn.Upp rifjast ferðin góða til Noregs þar sem við unnum saman og leigðum okkur íbúð saman. Það voru góðir dagar. Ég tolldi ekki hjá Norð- mönnum nema í hálft ár, en Hrafn varð eftir og dvaldist þar í ein fimm ár í góðu yfirlæti og lagði gott til norsks samfélags. Síðan kom hann til baka og vann þá sem þjónn á veit- ingastöðum og þar á meðal hjá mér. Síðar stofnaði Hrafn sitt fyrirtæki með Ella bróður sínum og ráku þeir það með miklum sóma. Samheldni þeirra bræðra var til fyrirmyndar. Og ekki má gleyma öðlingskonunni Valdísi, móður þeirra, sem studdi þá með ráðum og dáð. Ekki kann ég frekar en aðrir svör- in stóru við þeirri spurningu, hvers vegna góðir menn eru á einu auga- bragði kallaðir á brott. Þau svör kann Hrafn nú vonandi skil á verandi á öðru tilverustigi. Elsku Valdís mín, ég veit að sorg þín er mikil. Megi góður Guð styrkja þig og hugga. Þá er hugur minn einn- ig hjá kærum bræðrum Hrafns og fjölskyldum þeirra. Ég vil að leiðarlokum þakka mín- um kæra vini fyrir samferðina og trausta og góða vináttu, sem aldrei bar skugga á. Góðmennska Krumma í garð barna minna verður einnig seint fullþökkuð. Guð geymi þig, góði vinur. Jóhannes Viðar Bjarnason. Föstudagurinn 3. júní rann upp bjartur og fagur. Sólin skein og sum- arið var loksins komið. En þennan dag dró skyndilega ský fyrir sólu þegar síminn hringdi og mér var til- kynnt að minn besti vinur Hrafn Pálsson hefði fallið frá mjög skyndi- lega og langt fyrir aldur fram. Þetta var reiðarslag fyrir alla. Leiðir okkar Krumma eins og vinir hans kölluðu hann alltaf lágu saman fyrir um 17 árum, er við hófum bæði störf um haust í Þórskaffi við Brautarholt. Með okkur myndaðist vinátta sem aldrei bar skugga á. Við töluðum saman oft í viku í síma eða hann kom í kaffi heim til mín. Krummi var hreinn og beinn, sagði sínar skoðanir tæpitungulaust og oft var gaman að heyra í honum tala um þjóðmálin, því hann hafði skoðanir á þeim eins og gengur og gerist. Krummi átti fallegt heimili og hafði virkilega gaman af því að hafa fallegt í kringum sig enda smekkmaður mikill. Honum fannst gaman að eiga góða og fallega bíla og þar af leiðandi oft að skipta um bíla. Hann sá líka um að bíllinn væri alltaf vel bónaður og þrifinn. Hann sá ekki bara um að þrífa sinn bíl, heldur tók oft bíl móður sinnar og þreif hann líka. Hann var mjög duglegur að hjálpa henni og var einstaklega góð- ur við hana og því er missir hennar mjög mikill. Krummi var menntaður framreiðslumaður og vann við fagið alla tíð ef frá eru talin nokkur á sem hann og Elli bróðir hans ráku saman söluturn sem þeir keyptu í Engi- hjalla í Kópavogi. Eftir að þeir bræð- ur seldu söluturninn, keyptu þeir saman Píanóbarinn í Bankastræti og breyttu honum fyrir um tveimur ár- um og gáfu nýtt nafn Opus 7. Missir Ella er mikill því Krummi var ekki bara bróðir, heldur líka mjög góður vinur og besti félagi hans. Krummi var einstaklega góður heim að sækja og skiptumst við á að bjóða hvort öðru í mat og stækkaði hópurinn þegar Elsu og Ella var boð- ið í hópinn líka og var það gaman. Þetta voru skemmtileg og afar glæsi- leg kvöld og komum við til með að sakna þeirra. Þegar við Þórhallur ákváðum að gifta okkur kom aldrei annað til greina en minn besti vinur mundi leiða mig upp að altarinu og eftir smá umhugsun þá ákvaðstu að gera það og er ég þér ævinlega þakklát fyrir það, elsku Krummi minn. Ég man að þú sagðir að þú gætir ekki neitað þinni bestu vinkonu um þennan greiða. Þetta var yndislegur dagur og yndisleg athöfn. Einnig langar mig að minnast þess að Valdís dóttir okkar kallaði þig alltaf Krumma afa og mun hún sárt sakna þín, en er sér- staklega ánægð yfir því að þú sást þér fært að koma í ferminguna hjá henni um síðustu páska. Nú skiljast leiðir okkar í bili en við hittumst aftur á öðrum stað. Vertu sæll, elsku vinur minn, og þakka þér fyrir allt og allt. Ég vil að lokum senda móður, bræðrum og öðrum fjölskyldumeð- limum þeirra mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja þau í þeirra miklu sorg. Guð blessi ykkur öll. Þín vinkona, Elín Margrét Jóhannsdóttir. Elsku Hrafn. Við vorum staddir saman, ég og Rikki, þegar síminn hringdi. Eva var á línunni og færði okkur þær sorgarfréttir að þú værir farinn. Við stigum út úr bílnum og reyndum að átta okkur á því hversu fljótt lífið getur breyst. Við vorum búnir að vera að undirbúa tískusýn- inguna allan daginn og ætluðum að fara yfir síðustu málin með þér um kvöldið. Þú varst okkur alltaf meira en bara yfirmaður, þú varst okkur kær vinur sem alltaf var svo gaman að tala við. Við munum sakna þess að mæta á Opus og geta ekki eytt fyrsta klukkutímanum af vaktinni inní eld- húsi að tala við þig um daginn og lífið einsog við gerðum svo oft. Við getum bara með engum orðum lýst því hve mikill söknuður okkar er. En við þökkum guði fyrir þær stundir sem við áttum með þér og erum þakklátir fyrir það að hafa kynnst þér og átt þær stundir með þér sem við áttum. Þínir vinir Andri og Ríkharð. HRAFN PÁLSSON ✝ Valgerður EstherJónsdóttir fædd- ist í Reykjavík 15. júní 1934. Hún andað- ist í Ogden í Utah í Bandaríkjunum 27. október 2003. For- eldrar hennar voru Sigurlaug Guð- mundsdóttir, f. 22. desember 1905, d. 12. nóvember 1991 og Jón Vigfússon, f. 12. ágúst 1899, d. 6. des- ember 1978. Systir hennar var María Guðrún flugfreyja, f. 1. nóvember 1932, d. 14. apríl 1963, dóttir hennar er Sigurlaug Halldórsdóttir, f. 9. nóvember 1959, gift Pálma Gestssyni. Esther giftist 13. maí 1961 Ray- mond Miller, f. 7. nóvember 1937, d. 4. júní 1994. Foreldrar hans voru Elizabeth Miller og Arch Mill- er. Synir Estherar og Raymonds eru: 1) Jón Raymond Miller, f. 30. janúar 1962, kvæntur Ragnhildi Rúriksdóttur, f. 12. febrúar 1964, börn þeirra eru Rú- rik Rafnar, f. 27. mars 1997 og Vera Björk, f. 2. júní 2001. 2) Rangkene Miller, f. 5. desember 1963, í sambúð með Rex- Anne Bock, f. 25. júlí 1970. Dætur þeirra eru Jordan Rae, f. 25. júlí 2001 og Katrín Elise, f. 23. júní 2003. Áður en Esther giftist vann hún ýmis verslunarstörf hér heima. Hún bjó til fjölda ára í Banda- ríkjunum, m.a. í Texas, Arizona, Tennessee og Kaliforníu og hún bjó einnig í Þýskalandi um tíma. Árið 1981 flutti Esther til Íslands og bjó þá á Reynimel 52 og vann hér ýmis verslunarstörf, lengst af í versluninni Veiðimanninum. Árið 1992 flutti hún aftur til Bandaríkj- anna og bjó síðan í Utahfylki. Esther verður jarðsungin frá Kapellunni í Fossvogi í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Í dag, mánudaginn 13. júní, verður minningarathöfn um frænku mína Esther Jónsdóttur, sem andaðist í Bandaríkjunum Sonur hennar Jón Miller og Ragnhildur kona hans komu með ösku hennar til Íslands og leggja til hinstu hvíldar við hlið for- eldra Estherar, Sigurlaugar Guð- mundsdóttur og Jóns Vigfússonar af- greiðslumanns, og Maríu systur hennar. Esther ólst upp í Vesturbænum og þá lengst af á Hringbraut 47 í góðu yf- irlæti foreldra og systur en þær voru mjög samrýndar og það var mikið áfall fyrir fjölskylduna, þegar María flugfreyja fórst í Hrímfaxaslysinu í Noregi 1963 og þá ekki síst fyrir unga dóttur hennar Sigurlaugu (Dillý), sem amman og afinn tóku að sér að ala upp og gerðu það með miklum sóma. Esther flutti um þetta leyti til Bandaríkjanna með manni sínum, Raymond Miller, en honum hafði hún kynnst hér, en hann var veðurfræð- ingur bandaríska hersins á Keflavík- urflugvelli. Esther og Miller slitu samvistum í kringum 1981 og flutti Ester þá til Íslands og bjó með móður sinni, sem þá var flutt á Reynimelinn og áttu þær mæðgur nokkur góð ár saman ásamt dóttur Maríu, Dillý. Esther afgreiddi þá í versluninni Veiðimaðurinn í Hafnarstræti og skil- aði góðu starfi, enda vön, vann á yngri árum hjá Silla og Valda í versluninni við Freyjugötu, og versluninni Best í Vesturveri í Morgunblaðshúsinu við Aðalstræti. Eftir andlát móður sinnar flutti Ester aftur út til Bandaríkjanna og bjó hjá yngri syni sínum Rangkene til dauðadags. Við frændsystkin og vinir á Íslandi kveðjum Esther og vottum eftirlif- andi börnum og fjölskyldu samúð okkar. Halldór Sturla Friðriksson. ESTHER JÓNSDÓTTIR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR ÞORGEIRSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Álfaskeiði 49, Hafnarfirði, lést þann 11. júní sl. að Hrafnistu Hafnarfirði Þorgeir Sæmundsson, Margrét Guðmundsdóttir, Helgi Sæmundsson, Guðbjörg Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.