Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 31

Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 31 MINNINGAR REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is LEGSTEINAR Helluhrauni 10, 220 Hf. • sími 565 2566 Englasteinar LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Ólafur E. Egg-ertsson fæddist í Ólafsvík 9. nóvember 1939. Hann lést 3. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Katrín Ólafsdóttir og Eggert Hjartarson. Maki Ólafs var Ingveldur Ingvadótt- ir, f. 9.11. 1943. Börn þeirra eru: 1) Katrín Ólafsdóttir, f. 17.8. 1970. Barn hennar er Alexandra Noor Douglas, f. 16.2. 1990. 2) Ólafur Ólafs- son, f. 7.5. 1973, maki: Harpa Lúthersdóttir, f. 5.10. 1977. Börn þeirra: Ísak Lúther Ólafsson, f. 24.7. 1996; Adam Dagur Ólafsson, f. 30.6. 1999, og Gabriel Natan Ólafsson, f. 18.2. 2004. Fósturdæt- ur Ólafs Eggertsson- ar eru: 1) Guðrún H. Sigfúsdóttir, f. 30.3. 1963. Dóttir hennar er Karlotta Sif Ólafs- dóttir, f. 11.2. 1985. 2) Heiðrún Sigfús- dóttir, f. 21.10. 1964, maki Kristján Garð- arsson, f. 16.3. 1963. Börn þeirra eru: Davíð Kristjánsson, f. 9.8. 1983; Emil K. Kristjánsson, f. 15.3. 1988; Hjörtur Krist- jánsson, f. 17.1. 1990; Inga Hrönn Kristjánsdóttir, f. 12.3. 1992; og Dagbjört H. Kristjánsdóttir, f. 18.9. 1995 Útför Ólafs verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Föstudagskvöldið 3. júní sl. lést á heimili sínu í Hafnarfirði Ólafur Emil Eggertsson á sextugasta og sjötta aldursári eftir skammvinn veikindi. Við þessi tímamót þegar þið Karon leysið landfestar og hald- ið yfir fljótið langar mig til að kveðja þig, svili minn og góði vinur, með stuttu minningarbroti og ósk um fararheill. Eitt af fyrstu verkum konu minn- ar eftir að okkar kynni hófust var að draga mig suður á Álftanes og kynna mig þar fyrir Ingveldi systur sinni og Ólafi manni hennar, en með þeim systrum hefur alla tíð verið afar kært og mikið og gott samband milli þeirra. Inga og Óli bjuggu þá í Tröð á Álftanesi, göml- um sveitabæ, með tveimur nær uppkomnum börnum sínum, Kötu og Óla litla, en tvær dætur Ingu og fyrri manns hennar, Guðrún og Heiða, voru farnar að búsýsla sjálf- ar með sínum mönnum. Ekki voru húsakynni þannig í Tröð að hægt væri að segja að þar væri hátt til lofts og vítt til veggja. Þó fann mað- ur aldrei til þrengsla þó oft væri setinn bekkurinn og má segja að þar hafi sannast kenningin um að ef hjartarýmið er nóg mun ekki skorta húsrýmið. Úr Tröð var víðsýni mikið og fal- legt að horfa út yfir Faxaflóann til Jökulsins og um fjallhringinn, um- hverfi sem vel átti við náttúrubarn- ið Óla. Síðar fluttust þau Inga og Óli í Hamrahlíð í íbúð í húsi Blindra- félagsins en þar tók Óli jafnhliða starfi sínu sem sölumaður hjá Blindraiðn að sér starf húsvarðar og sinnti því starfi af mikilli alúð til margra ára eða þar til hann veiktist sl. vetur. Það kom fljótlega í ljós að okkur Óla varð vel til vina, áttum gott með að tala saman áttum enda mörg sameiginleg hugðarefni um lífið og tilveruna sem gaman og fróðlegt var að ræða við hann um. Óli var langt frá því að vera allra og virtist við fyrstu kynni hálfgerð- ur einfari, skrápurinn stundum í hrjúfara lagi á yfirborðinu en ekki þurfti djúpt að skyggnast undir yf- irborðið til að finna að þar fór ein- stakur persónuleiki, félagsvera með hlýjar tilfinningar til alls sem lífs- anda dregur. Þá var náttúran og undur hennar Óla ekki síður hug- leikin og spjölluðum við oft um þau fyrirbæri. Ekki þurfti að ganga gruflandi um skoðanir Óla á hlutunum léti hann þær á annað borð uppi var það gert á kjarnyrtu máli, engar hálfkveðnar vísur og fór ekki milli mála hvað hann átti við. Svili minn sóttist ekki eftir met- orðum né söfnun veraldarauðs og vísaði ef þess háttar mál bar á góma gjarnan í helga bók um fugla himinsins og liljur vallarins, en stundum í húsfreyjuna á Útirauðs- mýri um búsorgir efnafólks í Sjálf- stæðu fólki. Óli var víðlesinn og hefði eflaust átt gott með lang- skólanám hefðu örlagadísir spunnið honum þann vef. Oft var hjá honum að finna hafsjó af fróðleik um óskyldustu málefni sem hann hafði þá aflað sér þekkingar um með lestri eða á annan aðgengilegan hátt. Við Rakel Rut áttum erindi í Reykjavík sl. vetur og heimsóttum þá eins og oftast á ferðum okkar Ingu og Óla í Hamrahlíðina. Óli var þá nýkominn heim af sjúkrahúsi eftir alvarleg veikindi, en batahorf- ur taldar sæmilega góðar. Við svil- arnir sátum í stofu en systurnar voru frammi í eldhúsi margt að spjalla og hafa til veitingar. Óli hafði orð á því hvað gott væri að vita af þeim systrunum og heyra malið í þeim eins og ljúfan lækj- arnið sem gott væri að sofna við. Verst ef þær þagna þá hrekkur maður upp sagði hann strákslega. Hann var hress þetta kvöld og óvenju létt um mál, við spjölluðum saman allt kvöldið um málefni okk- ur báðum hugleikin, lífsbaráttu fyrri tíma, hvernig menn komust af í baráttu við óblíða náttúru og veð- ur, hvernig hendingar eða forlög virðast geta gjörbreytt öllum gangi tilverunnar, skilið milli feigs og ófeigs, valdið straumhvörfum í lífi manna og þjóða. Þetta verður mér minnisstætt kvöld og þegar við kvöddumst vinirnir óvenju innilega held ég að við höfum báðir fundið það að við ættum ekki eftir að hitt- ast oft úr þessu hvað sem öllum batahorfum liði í augnablikinu. Ekki fór það svo að við hittumst ekki aftur því um hvítasunnuna vorum við hjónin í Reykjavík og lit- um þá inn hjá Óla og Ingu sem voru að koma sér fyrir í íbúð sem þau höfðu fest kaup á í Hafnarfirði. Nú var Bleik brugðið. „Hér er mikið umleikis og margt að sýsla, ég er fluttur með eins og hinir hlutirnir en geri ekkert gagn, hvorki við flutning né annað,“ og auðfundið á Óla þrátt fyrir að hann léti sér á sama standa á yfirborðinu að hon- um þótti miður og fann til vanmátt- ar síns. Við sátum svilarnir í eldhúsinu á nýja heimilinu þeirra Ingu og ég hafði orð á að útsýnið minnti mig undarlega mikið á Tröðina þar sem við hittumst fyrst. Víðsýnið út yfir Faxaflóa, til Jökulsins og fjallanna, ég hafði orð á að ég væri ánægður með að þau Inga skyldu eignast íbúð með þessu mikla útsýni sem hann gæti notið meðan hann safn- aði kröftum og næði heilsu á ný. Óli lét sér fátt um finnast en vitn- aði í Paradísarheimt eftir Laxness, sagði eins og stundum áður að upp- haf og endir þeirrar bókar væru al- veg eins og sér alltaf hugleikin. Bókin byrjar á því að Steinar bóndi í Hlíðum undir Steinahlíðum er að dytta að grjóthleðslu í túngarðinum hjá sér og í bókarlok er Steinar bóndi eftir viðburðamikið lífshlaup um veröldina búinn að finna sann- leikann, kominn aftur heim og byrj- aður að dytta að grjóthleðslu í tún- garðinum í Hlíðum undir Steinahlíðum. Allt leitar uppruna síns og hér er ég kominn. Ég skildi síðar að þar tjáði Óli á sinn sér- staka hátt að hann teldi að nú væru senn bókarlok hjá sér sem reyndist svo og rúmum tveim vikum síðar var svili minn og góði vinur allur. Ingveldur mágkona mín hringdi til okkar seint á föstudagskvöldið og flutti þessi sorgartíðindi. Ekki get ég sagt að andlát Óla hafi komið mér í opna skjöldu, Óli var alla tíð heilsuhraustur en veiktist hastar- lega sl. vetur og náði sér ekki eftir það. Hann komst þó aftur heim til Ingu sem var honum góð eiginkona og jafnframt besti vinur. Óli átti heima nokkrar góðar vikur og þó vonir stæðu til að hann næði heilsu á ný þá fór eins og jafnan að menn- irnir álykta en almættið ræður. Ég lýt höfði við kistu vinar míns og bið honum blessunar á hin ókunnu svið sem hann var svo sann- færður um að biði okkar að jarðlíf- inu loknu. Ingveldi og börnum, barnabörn- um og fjölskyldum þeirra vottum við Rakel Rut og fjölskylda okkar dýpstu samúð. Heiðar Kristinsson. Ólafur Emil Eggertsson, eða Óli hús eins og hann var jafnan kall- aður af samstarfsmönnum sínum og íbúum í húsi Blindrafélagsins, réðst til starfa hjá Blindravinnustofunni árið 1989. Fyrstu árin starfaði hann einkum við útkeyrslu og lagerstörf en fluttist síðar í söludeildina þar sem hann starfaði til dauðadags. Jafnframt störfum sínum hjá Blindravinnustofunni var Óli hús- vörður í húsi Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17 síðastliðin tíu ár. Sem húsvörður kynntist hann íbúum hússins náið. Hann leysti eftir bestu getu úr vanda þeirra sem til hans leituðu enda var maðurinn greiðvikinn með afbrigðum. Eins og nærri má geta voru erindin sem til hans bárust af margvíslegum toga þar eð margir íbúanna eru blindir eða sjónskertir. Auk þess að vera greiðvikinn, var Óli hús alltaf léttur í skapi og gerði óspart að gamni sínu jafnvel þótt heilsu hans færi hrakandi en hann átti við mjög þverrandi heilsu að stríða undan- farið ár. Óla hús er nú sárt saknað af íbú- um í Hamrahlíð 17 og samstarfs- fólki hjá Blindrafélaginu og Blindravinnustofunni. Fyrir hönd íbúa og samstarfs- manna sendum við Ingu og börnum þeirra hjóna innilegustu samúðar- kveðjur á sorgarstundu. Ólafur Haraldsson og Halldór Sævar Guðbergsson. ÓLAFUR EMIL EGGERTSSON ✝ Sigríður Brynj-ólfsdóttir fæddist á Þverhamri í Breið- dal 8. júlí 1922. Hún lést í Sjúkrahúsi Nes- kaupstaðar 4. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Brynjólfur Guð- mundsson, bóndi á Ormsstöðum, f. 18.5. 1892, d. 1975, og kona hans Guðlaug Eiríksdóttir húsmóð- ir, f. 19.8. 1894, d. 25.1. 1995. Systkini Sigríðar eru Guð- mundur Þór, f. 1920, d. 1963, Guðný, f. 1923, búsett í Hafnar- firði, gift Birni Jónssyni, Gyða, f. 1925, d. 1996, gift Skúla Steinssyni, f. 7.12. 1924, d. 1980, og Guðrún, f. 1927, búsett í Reykja- nesbæ, gift Valtý Sæmundssyni. Árið 1940 eignað- ist Sigríður dóttur, Sigrúnu Björnsdótt- ur, sem lést 1955. Sigríður ólst upp á Ormsstöðum í Breið- dal og bjó með for- eldrum sínum þar til hún tók við búinu að föður sínum látnum. Útför Sigríðar verður gerð frá Heydalakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Alltaf fylgir því söknuður þegar ættingi kveður þennan heim, og nú er komið að leiðarlokum hjá Siggu móðursystur okkar. Hún Sigga frænka var sómakona, stolt og bar höfuðið hátt. Hún var bóndi alla sína starfsævi og skilaði því vel, en varð að bregða búi fyrr en hún hafði hugsað sér sökum riðuveiki í fé. Ekki er hægt að segja að bú- skapurinn hafi verið tæknivæddur á Ormsstöðum, til dæmis var bærinn líklega sá síðasti í sveitinni til að fá dráttarvél, og alltaf var fengin aðstoð við sláttinn. Við systkinin áttum því láni að fagna að vera í sveit á Orms- stöum og kynnast sveitastörfunum og dýrunum á bænum. Og vegna þess hve lítið var um nútímaþægindi voru alltaf margir krakkar í sveit á sumrin og gerði það veruna að sjálf- sögðu skemmtilegri. Eitt sumar var oft í minnum haft sökum rigningar og kallaði Sigga það alltaf „vitlausa sumarið“ því þá voru krakkarnir að mestu inni með til- heyrandi ókyrrð. Frænka hafði ákveðnar skoðanir og stóð fast á sínu og gat stundum slegið í brýnu ef viðmælandinn var á öndverðum meiði, og endaði þá sam- talið gjarnan með orðunum: „Það er nú eins og það er og þýðir ekki að tala um það,“ og málið var útrætt. Sigga varð fyrir því áfalli 33 ára gömul að missa einkadóttur sína, þá 15 ára, úr krabbameini og hefur það eflaust sett mark á þessa ákveðnu konu. Til þess var tekið hversu vel hún var alltaf til höfð, jafnvel klæddi sig uppá á sunnudögum þegar ekki var nokkurra gesta von. Dýravinur var hún og mátti ekkert aumt sjá. Bú- skapurinn farnaðist henni vel og ærnar hennar hlýddu henni er hún kallaði, þannig að létt var að koma þeim í hús þegar þurfti með. Hún var mjög lánsöm hve nágrannarnir voru hjálpsamir og stóðu þau Einar og Stella í Felli henni næst, slógu túnin fyrir hana og hjálpuðu á allan hátt. Hún gat ekki hugsað sér að hún þyrfti að yfirgefa Ormsstaði og búa á einhverju hjúkrunarheimili og varð henni að ósk sinni í því tilfelli þar sem hún dvaldi heima þar til fyrir rúmum mánuði. Hvíl í friði, kæra frænka. Sæmundur, Guðlaugur, Anna Marta og Brynja Þóra. Elsku Sigga frænka. Mín fyrsta minning um þig er þegar þú dvaldir heima hjá foreldrum mínum eftir að- gerð, þá var ég sex ára. Þú sagðir mér sögur úr sveitinni frá ömmu, afa og dýrunum, ég var svo heilluð að mín stærsta ósk var að fara með þér austur um sumarið og var það auð- fengið. Við fórum með strandferða- skipi og veifaði ég til mömmu og pabba eins og heimsdama sem hefði ekki gert annað en að fara að heiman, sveitin heillaði það mikið. Í mörg sumur fór ég austur í Breiðdal að Ormsstöðum, dvaldi þar líka einn vetur eftir andlát föður míns, í góðu yfirlæti hjá ömmu, afa og þér. Þaðan á ég mínar bestu æskuminningar við leik og störf. Þú varst sterkur persónuleiki og hafðir einstaka lífssýn. Ekki voru það veraldlegir hlutir sem skiptu þig máli heldur blómin, náttúran og sveitin þín þar sem þú bjóst nánast alla tíð. Þín verður sárt saknað en minn- ingin um þig verður ávallt hjá mér, það hefur auðgað mig og þroskað að hafa notið þeirra forréttinda að kynnast þér. Ég kveð þig með söknuði, elsku Sigga mín, en veit jafnframt að nú ert þú búin að hitta Sigrúnu dóttur þína sem þú misstir unga og aðra ættingja sem farnir eru yfir móðuna miklu. Hvíl í friði. Þín frænka Guðrún. Ég var níu ára þegar ég fór fyrst í sveitina til sumardvalar hjá ömmu, afa og Siggu og var hjá þeim næstu fimm sumur. Margar eru minning- arnar sem streyma fram í hugann; fjallgöngur, rýja kindur, raka dreif og margt margt fleira. Enginn var bíllinn á bænum eða dráttarvél, bara fluga gamla sem sett var fyrir kerr- una á vorin og farið var út á Breið- dalsvík að kaupa hveiti- og sykur- sekki o.fl. sem þurfti fyrir sumarið, því við vorum svo mörg krakkarnir og sísvöng. Oft var fjör í kotinu og þurfti Sigga að ganga á milli okkar krakkanna í látunum og hafði lúmskt gaman af. Sigga sá að mestu um búskapinn því amma og afi voru orðin fullorðin. Hún var með rúmlega 100 kindur og þekkti hverja einustu með nafni. Það var nóg fyrir hana að flauta á þær úti, þá komu þær. Hún var dugnaðar- forkur í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, sérstaklega útiverkum sem hún sagðist hafa miklu meira gaman af en inniverkum, enda var hún mikið náttúrubarn og elskaði öll dýrin sín. Árið 1955 varð Sigga fyrir gífur- legu áfalli þegar hún missti sólar- geislann sinn, hana Sigrúnu, úr krabbameini aðeins 15 ára gamla. Oft sagði hún mér sögur af henni og fylltist svipur hennar þá svo mikilli blíðu að mann langaði til að gráta, fannst þetta svo óréttlátt. Ég er henni ævinlega þakklát fyrir hvað hún var mér alltaf góð að leyfa mér að vera þessi sumur og fá að vera með ömmu og afa og kynnast sveitalífinu. Nú veit ég að hún er komin til Sigrúnar sinnar og allra sem henni voru kærastir. Ég geymi alltaf minninguna um Siggu frænku. Guðlaug Skúladóttir. SIGRÍÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.