Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atvinnuauglýsingar Byggingafræðingur óskast sem allra fyrst á arkitektarstofu í Hafn- arfirði. Skilyrði að vera reyklaus. Umsóknir sendist á netfangið: arkitektar@solark.is . Ferðaskrifstofustarf Starfsmaður óskast á innanlandsdeild ferða- skrifstofu. Starfið felst í bókunum og úrvinnslu ferða fyrir erlenda ferðamenn. Menntunar- og hæfniskröfur:  Góð tungumálakunnátta, franska og enska nauðsynleg.  Góð tölvukunnátta. Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst. Umsóknir sendist á margret@terranova.is. Boðað er til aðalfundar Hjartaverndar, landsamtaka, þriðjudaginn 14. júní n.k. að Holtasmára 1, Kópavogi, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 12:00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Hjartavernd sjálfseignarstofnun, samþykkt skipulagsskrár. 3. Önnur mál. Aðalfundur Hjartaverndar Stjórnin. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET FINNBOGADÓTTIR, lést á Líknardeild Landspítalans mánudaginn 6. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Öllum þeim sem sýnt hafa samúð og vinarhug við andlát og útför Elsu eru færðar hugheilar þakkir. Finnbogi Gunnarsson, Anna Jóhannsdóttir, Sigríður Jóhanna Gunnarsdóttir, Steinar Jónsson, Sigurður Már Gunnarsson, Indíana Unnarsdóttir og barnabörn. NÝLEGA útskrifuðust 33 leiðsögumenn frá Leiðsögu- skóla Íslands. Að þessu sinni útskrifuðust 32 af al- mennu kjörsviði og einn af göngukjörsviði. Nemendur af almennu kjörsviði voru nýkomnir heim úr 6 daga hringferð um landið en kennslu- og æfingaferðir eru mikilvægur liður í náminu. Í haust verður boðið upp á þrjár leiðir í leiðsögunámi, almenna leiðsögn, göngu- leiðsögn og nýtt kjörsvið, afþreyingarleiðsögn. Útskrift frá Leiðsöguskóla Íslands SAMTÖK sjálfstæðra skóla hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er ánægju með jákvæða þróun í fjár- framlögum til sjálfstæðra skóla og þær hækkanir sem orðið hafa. „Á undanförnum árum hefur mikið verið fjallað um fjárhagsvanda sjálf- stæðu skólanna enda hafa fjárfram- lög með nemendum þeirra verið mun lægri en í þeim grunnskólum sem sveitarfélögin reka sjálf,“ segir í frétt frá samtökunum. „Reykjavíkurborg hefur hækkað framlag sitt til sjálf- stæðu skólanna og Samband ís- lenskra sveitarfélaga hefur hækkað útreikninga sína en enn vantar tals- vert upp á að sambærilegt fjárfram- lag fylgi öllum nemendum. Þannig hyggst Reykjavíkurborg greiða um 413.000 kr. með hverjum nemanda í sjálfstæðum skóla og sveitarfélög sem fylgja reglum Sambands ís- lenskra sveitarfélaga greiða frá 331.000 kr. og upp í 429.000 kr. eftir stærð skóla og 524.000 fyrir fámenna skóla með færri en 10 börn í árgangi.“ Eru þessar hækkanir sagðar mikil réttarbót, „en betur má ef duga skal til að tryggja sjálfstæðum skólum sama rekstrar- og afkomugrundvöll og skólum sveitarfélaganna. Aðeins eitt sveitarfélag á landinu, Garðabær, hefur tekið það skref til fulls og greið- ir nú sama framlag, 516.000 kr., með hverjum nemanda óháð því hvaða skóli verður fyrir valinu,“ segir þar ennfremur. Samtök sjálfstæðra skóla fagna einnig auknum framlögum til leik- skólareksturs og taka heils hugar undir það sjónarmið sem fram kemur í nýjum samþykktum bæjarráðs Garðabæjar um að fullar greiðslur með börnum í sjálfstæðum leikskól- um hefjist strax við eins árs aldur. Samtök sjálfstæðra skóla fagna auknum fjárframlögum kannski dag og dag. Bára hefur ekki síst umsjón með gistihúsinu og segir hún þar 4-5 starfsmenn yfir sumarið en að vetrinum er gestum þjónað frá veitingaskálanum. „Hér er talsverð eftirspurn eftir gistingu fyrir hópa og með þessari stækkun getum við þjónað þeim enn betur,“ segir Kristinn Guðmunds- son og segir ágæta nýtingu á gisti- heimilinu réttlæta þessa fjárfest- ingu. Húsið var flutt frá SG einingahúsum á Selfossi og verður sett saman á fáum dögum. Er von á fyrstu gestunum fyrir mánaðamót. Kristinn segir um 60 störf tengd rekstrinum yfir sumarið, ársstörf má telja um 35. Fyrir þremur árum tóku þau einnig við rekstri veit- VERIÐ er að taka í notkun 8 her- bergja viðbótarhúsnæði sem bætist við 18 herbergja Gistihús Stað- arskála sem tók til starfa fyrir ell- efu árum og er steinsnar frá skál- anum. „Við höfum litið á þennan rekstur sem þjónustu við vegfar- endur,“ segir Bára Guðmundsdóttir sem enn stendur vaktina eftir 45 ár en 9. júní voru liðin 45 ár frá Stað- arskáli tók til starfa. Það er næstum því skylda eða hefð meðal ferða- manna að hafa viðdvöl í Stað- arskála á ferð milli Norður- og Suð- urlands. Bára og maður hennar, Magnús Gíslason sem nú er látinn, og bróðir hans Eiríkur hófu reksturinn og Ei- ríkur er einnig ennþá við störf, sinnir bílstjórum sem koma um og eftir lokun klukkan hálftólf og nokkuð fram eftir nóttu. Má segja að þetta sé lýsandi fyrir þá þjónustu sem Staðarskáli hefur veitt gegnum árin, þar eru menn alltaf á vakt og boðnir og búnir að veita greiða – ekki síst ef eitthvað bjátar á. Bára segir að dóttir sín, Vilborg, og tengdasonur, Kristinn Guðmunds- son, hafi nú tekið mikið við daglegri stjórn en hún er þó alltaf viðloð- andi. „Ég er hér yfirleitt ef ég er ekki í burtu“, og er því trúað varlega að hún sé nokkuð að ráði í burtu, ingaskálans við Brú. Þá hafði Olíu- félagið sinnt honum í nokkur ár en lagði hann síðan inní hlutafélagið Staðarskáli ehf. Þau Bára og Kristinn segja um- ferðina hafa aukist mjög síðari ár eftir því sem vegir hafi batnað og flutningar á landi aukist. Ekki sé lengur tiltökumál að renna fram og tilbaka milli landshluta á einum og sama degi og umferðin hefjist strax snemma að morgni. „Hér er opið frá 8 til 23.30 og við fáum oft fólk sem hefur lagt af stað snemma hingað inn í morgunkaffi og þeir sem fara fram og tilbaka á sama degi koma gjarnan við á báðum leiðum.“ Flutningabílstjórar eru fastagestirnir og koma þeir í löngum röðum bæði að norðan og sunnan á hverjum degi. Leggja þeir upp síðdegis eða undir kvöldmat og taka stutta hvíld í Staðarskála, fá eldsneyti fyrir bílana og skrokkinn. Finnst bílstjórunum þægilegt að fá þjónustu fyrir bílana meðan þeir fá næði til að borða en Gunnar Jóns- son sér um bensínstöðina, setur olíu á bílana og færir þá til og frá meðan karlarnir nærast. Gunnar kann fag- ið nokkuð vel því hann ók hjá KEA á árum áður eða þar til aksturinn var boðinn út fyrir um áratug. Þá var honum boðið að vinna í Staðarskála í nokkra daga og þeir standa enn. Stækka gistihúsið við Staðarskála Húsinu með herbergjunum átta slakað á grunninn. Morgunblaðið/jt Mæðgurnar Bára Guðmundsdóttir og Vilborg Magnúsdóttir í sal skálans. Morgunblaðið/jt Kristinn Guðmundsson og Gunnar Jónsson utan við skálann. Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is Karl Guð- mundsson þýddi Rangt var farið með nafn þýð- anda ljóðsins Kviksaga frá býlinu eftir írska skáldið Daíthí Ó hÓgá- in sem birtist í Lesbók sl. laug- ardag. Rétt er að Karl Guðmundsson þýddi ljóðið. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT FRJÁLSLYNDI flokkurinn (FF) krefst opinberrara rannsóknar á sölu ríkisbankanna. FF minnir á orð Sverris Hermannssonar á landsþingi FF 2003: ,,Sala ríkisbankanna myndi hafa orðið banabiti ríkisstjórnar í venjulegu lýðræðis- og þingræðis- ríki... Þegar formanni Framsóknar hafði tekizt að vekja upp gamla SÍS- drauga og framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins vildi ekki sleppa sín- um tökum og flokksins á Landsbank- anum (LÍ), söðlaði ráðstjórnin alveg um og seldi sér og sínum ráðandi hluti í bönkunum.“ FF segir að nú hafi ver- ið upplýst að LÍ hafi lánað vinum ráð- herranna fé til kaupanna og að for- sætisráðherra hafi stýrt sölu Búnaðarbanka og VÍS. „Þessa spilltu stjórnarhætti verður að leggja af.“ Krefst rannsóknar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.