Morgunblaðið - 13.06.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 35
DAGBÓK
Lifun hefur fest sig í sessi
sem nýstárlegt tímarit
Blaðið er unnið á faglegan hátt þar sem samspil fallegra
mynda og áhugaverðra uppskrifta opnar auglýsendum
nýja leið að mikilvægum markhópi.
Lifun er dreift í 60.000eintökum
og mun fimmta tölublaðið koma út 25. júní
næstkomandi.
Panta þarf auglýsingar fyrir
kl. 16 miðvikudaginn 15. júní
Umsjón: Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson.
Auglýsingar: Sif Þorsteinsdóttir, sími 569 1254.
– auglýsingar 569 1111
Fátækt og aldraðir
UNDANFARIN misseri hefur farið
fram nokkur umræða um málefni
aldraðra og fyrir stuttu var greina-
flokkur í Morgunblaðinu um þessi
mál og í leiðara sama blaðs í dag,
þriðjudag 31. maí, er sagt að félags-
málaráðherra og heilbrigð-
ismálaráðherra hafi gert vel við
aldraða og þá sérstaklega við hina
lægst launuðu. Oft er vitnað í að
tekjutryggingarauki hafi hækkað
verulega, sem er rétt, hann hækkaði
um 2.000 kr. eftir samning 2002, en
það gleymist alltaf að segja frá því
að þennan tekjutryggingarauka
óskertan fengu aðeins 347 manns
miðað við 1. des. 2004, og ef menn
vinna fyrir nokkrum krónum til að
bæta kjör sín, þá skerðast greiðslur
frá Tryggingastofnun strax. Samtök
eldri borgara samþykktu á lands-
fundi sínum fyrir nokkru athygli-
verða tillögu um lagfæringu launa til
hinna lægst launuðu aldraðra, en í
tillögu þessari er bent á að eldri
borgarar, sem eru komnir á eft-
irlaun, eða við það að komast á eft-
irlaun, verða nú að greiða skatta af
þeim grunnlífeyri sem þeir fá frá al-
mannatryggingum. Aldraðir hafa
alla sína tíð greitt gjald til almanna-
trygginga án þess að það hafi nokk-
urn tíma verið dregið frá skatti og er
ellilífeyririnn raunveruleg endur-
greiðsla þess fjár. Þarna eru aldr-
aðir að greiða skatta af endur-
greiðslu sem þeir eru að fá og voru
búnir að greiða skatta af áður. Þetta
er því raunveruleg tvísköttun. Þeir
eldri borgarar sem fá einhverjar
greiðslur úr lífeyrissjóðum, verða að
búa við það, að þessar greiðslur hafa
áhrif á tekjutrygginguna og að
tekjutrygging lækkar í hlutfalli við
auknar greiðslur úr lífeyrissjóði.
Þannig virka auknar tekjur úr líf-
eyrissjóði sem lækkun bóta al-
mannatrygginga. Þá má benda á að
hækkun frítekjumarka fylgir ekki
kaupgjalds- eða launavísitölu, og
skattleysismörk hafa lækkað mikið
sem hlutfall af launum frá 1988 er
staðgreiðslukerfið var tekið upp.
Þannig má það vera öllum ljóst að ef
farið verður að tillögum sambands
eldri borgara og grunnlífeyrir eða
ellilífeyrir verður skattfrjáls virkar
það sem kjarabót til hinna tekju-
minnstu eftirlaunaþega, hefur engin
áhrif til þeirra tekjuhæstu vegna
skerðingar ákvæða í lögum um
Tryggingastofnun.
Það eru fleiri atriði í samþykktum
eldri borgara frá landsfundinum,
sem benda á leiðir til kjarabóta aldr-
aðra og gaman væri nú ef stjórnvöld
færu nú að hlusta á aldraða og taka
mark á þeim, því það eru jú aldraðir
sjálfir, sem vita hvar skórinn krepp-
ir og hvað þarf að gera.
Karl Gústaf Ásgrímsson,
eftirlaunaþegi og form. FEBK.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist alla mánu-
daga kl. 14. Boccia kl. 10. Vinnustofan
opin alla daga.
Aflagrandi 40 | Ath. bókabíllinn kl.
13.30–14.00.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 13–16.30. Smíði/útskurður
kl. 13–16.30. Félagsvist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13–16
brids, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld í Gull-
smára kl. 20.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gullsmára.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids spilað í dag kl. 13.00. Farþegar í
Snæfellsnesferð, munið fundinn
mánudag kl. 14.00 í Ásgarði,
Glæsibæ.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið í Garðabergi frá 12.30 til 13.30.
Hornafjarðarferð: farið verður frá
Garðabergi 14. júní kl. 09.
Félagsstarf Gerðubergs | Á morgun
og miðvikud. kl. 13.30 „Mannrækt,
trjárækt“ gróðursetning í Gæðareit
með börnum frá leikskólanum Hraun-
borg. Katrín Jakobsdóttir, form. um-
hverfisráðs Reykjavíkur, verður með
og fulltrúar frá Garðyrkjufélagi Ís-
lands. Á eftir er kaffihúsastemming í
Hraunborg.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun
og opin vinnustofa, kl. 10 fótaaðgerð,
bænastund, kl. 12, hádegismatur, kl.
13.30 skrautskrift, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–10.
Böðun fyir hádegi. Hádegisverður.
Frjáls spilamennska kl. 13–16. Fótaað-
gerðir sími 588 2320.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum aldurshópum. Betri stofa
og Listasmiðja 9–16: Frjáls handa-
vinna. Félagsvist kl. 13.30. Lands-
bankinn 6. og 20. júní kl. 10–10.30.
Dagblöðin liggja frammi. Hádeg-
ismatur og síðdegiskaffi. Hár-
greiðslustofa 568 3139. Nánari upp-
lýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10
ganga, kl. 13 opin vinnustofa, kl. 9 op-
in fótaðgerðastofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30.
Handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12
Leikfimi (júní–júlí ). Kl. 11.45–12.45 há-
degisverður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt kl. 9.30 til 16.00,
hárgreiðsla, fótaaðgerðir og böðun,
frjáls spilamennska kl. 13.00.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Aukamöguleiki.
Norður
♠9754
♥DG7542
♦104
♣2
Suður
♠KDG10863
♥Á63
♦–
♣ÁKD
Suður verður sagnhafi í sex spöðum
eftir þessar glaðbeittu sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
2 tíglar 3 spaðar 5 tíglar 6 spaðar
Pass Pass Pass
Hvernig er best að spila með tíg-
ulkóngnum út?
Trompásinn verður ekki tekinn af
vörninni, svo engan slag má gefa á hjart-
að. Til greina kemur að spila upp á blank-
an hjartakóng, en betra er að reikna með
kóng öðrum austur og svína. Og það er
jafnvel hugsanlegt að ráða megi við kóng-
inn þriðja réttan, til dæmis ef legan er
þessu lík:
Norður
♠9754
♥DG7542
♦104
♣2
Vestur Austur
♠Á ♠2
♥10 ♥K98
♦KDG982 ♦Á7653
♣76543 ♣G1098
Suður
♠KDG10863
♥Á63
♦–
♣ÁKD
Útspilið er trompað, tígli hent í lauf og
þriðja laufið trompað í borði. Síðan er
svínað í hjarta. Eftir þennan undirbúning
er trompi loks spilað. Og viti menn – vest-
ur lendir inni á stökum trompás og getur
ekki annað en spilað láglit út í tvöfalda
eyðu, sem þýðir að sagnhafi losnar við
hjartatapslaginn heima.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is