Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.06.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 37 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is CIRKUS CIRKÖR 14.-17. JÚNÍ Sirkusinn sem allir tala um! KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPSELT, Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR FRÁ SVÍÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar Stóra svið BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Þri 14/6 kl 20 - Styrktarsýning, Fi 16/6 kl 20, Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20 Síðustu sýningar Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar 1.–16. júní. Kl. 12: Hádegistónleikar í Sverrissal Hafnarborgar. „Tenór á toppn- um“: Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Antonía Hevesi píanóleik- ari flytja vinsælar canzonettur og aríur frá Ítalíu. Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Kl. 20: Dýragarðssaga eftir Edward Albee í uppsetningu Leikfélags Hafnarfjarðar í gamla Lækjarskóla. Leikarar eru Gunnar B. Guð- mundsson og Guðmundur L. Þorvaldsson. Leikstjóri er Halldór Magn- ússon, þýðingu gerði Þórunn Gréta Sigurðardóttir. Aðgangseyrir kr. 1000. Bjartir dagar ENN á ný hefur ein af helstu val- kyrjum íslensks sönglífs, Margrét Bóasdóttir, drifið fólk með sér og slegið upp kóraveislu við Mývatn í upphafi sumars. Auk þess að sækja tónleikana stendur fólki ýmis af- þreying til boða í Mývatnssveit, m.a. jarðböð, golf, gönguferðir og seta á kaffihúsum. Svipmikil náttúran við vatnið skapar líka alltaf dálítið sér- staka stemningu og gerir fólk opn- ara fyrir furðum og fegurð, ekki síst tónlistarinnar. Föstudagskvöldið 10. júní héldu þrír af kórunum, sem taka þátt í kórastefnunni, fjölsótta tón- leika í Skjólbrekku. Þetta voru Kór Dalvíkurkirkju undir stjórn Hlínar Torfadóttur, Noorus-kórinn frá Eistlandi, stjórnandi Raul Talmar; og Árnesingakórinn í Reykjavík með Gunnar Benediktsson við stjórnvöl- inn. Kór Dalvíkurkirkju byrjaði tón- leikana og var efnisskráin mjög á þjóðlegum nótum. Fyrst gat að heyra meistarastykki Jóns Nordal, Smávinir fagrir og síðan þjóðlagið Á Sprengisandi. Þá kom gamall ís- lenskur sálmur, Að minni sálu amar, í smekklegri útsetningu Báru Grímsdóttur, síðan þjóðlögin, Hér undir jarðar hvílir moldu og Veröld fláa, í flottum og sívinsælum útsetn- ingum Hjálmars H. Ragnarssonar. Kórinn söng gegnumsneitt mjög vel þó stundum væru milliraddir eilítið hikandi á tóninum og bassinn hefði á stundum mátt vera sterkari. Styrk- leikaandstæður máttu líka stundum vera pínulítið skarpari t.d. í útsetn- ingum Hjálmars. Ég á þessi föt eða Buxur, vesti, brók og skór eftir Atla Heimi var lokalag þeirra Dalvík- inga. Lagið er skemmtilegt og smellinn vefn- aður sem hljóm- aði vel og sann- færandi í meðförum kórs- ins. Noorus-kórinn eða „Æskukórinn“, steig næstur á svið. Þetta er margverðlaunaður ungmennakór frá Tallinn, og var það vel við hæfi að fá kórinn norður í land hvar eistneskir tónlistarkenn- arar hafa verið að tón-ala ungdóm- inn um árabil. Kórinn söng lög eftir núlifandi eistnesk tónskáld og voru allir textarnir nema einn eftir eitt helsta ljóðskáld Eista á þessari öld, Hando Runnel. Ekkert laganna var sérlega framúrstefnulegt, laglínur voru mestmegnis tóntegundabundn- ar en ómstríðir hljómar heyrðust af og til. Heiti eistnesku laganna voru ekki þýdd í efnisskrá sem verður að teljast nokkur annmarki þar sem viðbúið var að fáir áheyrenda skildu eistnesku. Stjórnandinn reyndi samt að kynna efni textanna á ensku eftir því sem kunnátta hans á því tungu- máli leyfði. Fyrsta lagið, Homme, (Á morgun) með hnyttnu glissþrástefi í viðlagi og blístursstrófum var eftir M. Siimer. Næst kom lagaröð eftir kórverkasmiðinn Veljo Tormis, eitt þekktasta tónskáld Eista þar sem víða kveður við þjóðlegan tón í bland við nýrra tónmál. Lögin voru áheyri- leg einkum það þriðja, Ei ole mekat meil (Við þurfum Mekku) sem var kraftmikið og fullt af andstæðum. Af tveimur lögum eftir U. Sisask var Kodumaal rännates (Gengið á landi) forvitnilegra, popp/rappkennd tón- smíð þar sem lokatónn hendingar var gjarna beygður niður eins og oft gerist í talmáli. Síðasta lag Noorus- kórsins var Siin mu rõõmumaa (Land gleði og sorgar) eftir fræg- asta kventónskáld Eista, Ester Mägi, geðþekk tónsmíð og sérlega vel sungin af kórnum. Hið sama má reyndar segja um öll lög kórsins, all- ir tónar hljómuðu hreinir, mismun- andi dýnamík var vel fylgt eftir og hendingar mótuðust af mikilli ná- kvæmni og ögun. Sönggleðin hefði samt mátt vera meira áberandi. Eftir hlé var röðin komin að Ár- nesingakórnum. Hann söng fyrst ísraelskt lag Shalom aleichem (Frið- ur sé með þér) síðan tvö popplög eft- ir Magnús Eiríksson Einhvers stað- ar einhvern tíma og Einskonar ást. Þá kom ítalskur madrigal, og gosp- elsöngur og að lokum tvö lög eftir afa kórstjórans. Hið fyrra var Vorið góða eftir Sveinbjörn Bárðarson, fínn rútubílasöngur og hið síðara Máríuerlan eftir Jón Árna Sigfússon bifreiðastjóra og Mývetning. Már- íuerlan er mjög falleg melódía í huggulegum fjárlagastíl. Söngur kórsins var í heild með miklum ágætum hreinn og tær og gott jafn- vægi milli radda þó sópraninn hefði mátt vera sterkari í fyrra laginu eft- ir Magnús Eiríksson. Sönggleðin leyndi sér ekki og var ekki síst að þakka líflegri og gefandi framkomu söngstjórans. Hann lék líka undir á hljómgóðan flygil í nokkrum laganna og gerði það afar smekklega og var á köflum skemmtilega blúsaður. Kórakvöld við Mývatn TÓNLIST Skjólbrekka Kór Dalvíkurkirkju undir stjórn Hlínar Torfadóttur, Noorus-kórinn frá Eistlandi, stjórnandi Raul Talmar; og Árnesingakór- inn í Reykjavík með Gunnar Benedikts- son við stjórnvölinn. Föstudagskvöldið 10. júní. Kórtónleikar Jón Nordal Ívar Aðalsteinsson Á SÝNINGUNNI má upplifa ákveðið afturhvarf til tíma þegar list og vísindi voru ekki aðskildar greinar heldur þjónuðu svipuðum hlutverkum í þeirri viðleitni manns- ins að öðlast skilning og ná valdi á sjálfum sér og umhverfi sínu með því að myndgera það, mæla flokka og skrásetja. Flokkunin sjálf í þekkingarleitinni hefur getið af sér mismunandi og breytilegar vís- indagreinar í tímanna rás. Hinar „ólíku“ greinar hafa ekki bara orðið til vegna mismunandi viðfangsefna heldur einnig vegna ólíkrar nálg- unar á viðfangsefninu. Vestrænar tvíhyggjuhugmyndir hafa átt stór- an þátt í að skapa mismunandi að- ferðafræði og vægi ýmissa greina þar sem tilfinningar og innsæi var stillt upp sem andstæðu rökhugs- unar og vitsmuna og það síð- arnefnda var einangrað sem for- senda vísindaþekkingar. Það hefur verið eitt einkenni okkar tíma að endurskoða þessar forsendur tví- hyggjunnar og nú er runninn upp tími samþættingar um leið og þver- fagleg vinnubrögð eru orðin meira áberandi en áður á fjölmörgum sviðum. Algengt er í dag að sjá myndlist sem byggist á að- ferðafræði vísinda á einhvern hátt og vísindi sem nýta sér sjónræna tækni til að gera ósýnilega hluti sýnilega og myndgera niðurstöður og rannsóknir. Dæmi um þetta er hjartalínurit sem verður mynd, en er ekki myndlist nema listamaður setji það í slíkt samhengi. Sýning Húberts Nóa inniheldur landslags- málverk sem unnin eru eftir skiss- um og minni listamannsins frá ferðalagi umhverfis Hjaltlands- eyjar. Málverkin hafa verið sett í álramma og komið fyrir í eins kon- ar tréferðatöskum sem hanga opn- ar niður úr lofti salarins. Á ál- rammana eru grafnar upplýsingar, ákveðin númer sem tákna GPS- staðsetningarpunkta myndefnisins. Einnig er á sýningunni sýnt lóð sem hangir yfir ákveðnum punkti í sýningarsalnum þar sem þyngd- arhröðunin hefur verið mæld 9.8226286+/-0.0000003m/s2. Þá má sjá ljósmynd af hraunlandslagi með hitamæli í „borunni“ og í kjallara er sýnt myndband af gufuafls- borholu á Hellisheiði sem tekin hef- ur verið með hitamyndavél. Sýn- ingunni fylgir áhugaverður texti eftir Ólaf Gíslason listfræðing þar sem hann fjallar um stjörnusjón- aukann Spitzer sem nýlega náði infrarauðum myndum af plánetum utan okkar sólkerfis, myndir sem þó eru „úreltar“ miðað við okkar tímatal því þær eru um 300 milljón ára gamlar og frá upphafstíma al- heimsins. Ólafur veltir fyrir sér hvort vísindin séu í þann mund að ná því að færa okkur mælanlegar upplýsingar um tilurð alheimsins eða jafnvel frá því fyrir þann at- burð og þar með að höndla hand- anveruna. Efnishyggja samtímans, öfugt við goðsögulegan tíma, leitast við að sætta tvíhyggjuna með því að skilgreina andann á forsendum hins efnislega, og sálina á for- sendum hins líkamlega. Á þennan hátt er heilinn rannsakaður og hugveran mæld, eðli tilfinninga, trúar og minninga staðsett og efna- fræði ástarinnar kortlögð. Sýning Húberts snýst ekki um að gera lítið úr vísindum eða sýna fram á fáfengileika þeirra, miklu frekar má skynja einlægan áhuga á undrum þekkingar sem mannshug- urinn hefur náð, sá sami manns- hugur sem getur umbreytt upplif- unum og reynslu í myndir. Enginn greinarmunur er hér gerður á list og vísindum, vægi ímynda eða tæknilegra staðreynda í þekking- arleitinni, þar sem slíkur munur væri í þessu samhengi aðeins byggður á grundvelli þess mæl- anleika sem skynfærin hafa til- einkað sér og er kannski bara tímabundinn misþroski í vitund- arlífinu. Listir og vísindi MYNDLIST Terpentine gallery Sýningu lokið. Húbert Nói Survey (rannsókn/mæling á yfirborði jarð- ar) Þóra Þórisdóttir VINAFÉLAG Íslensku óperunnar stóð fyrir óperuferð til Vín- arborgar í byrjun júní sl. Upp- haflega var lagt af stað með það í huga að sjá m.a. Kristin Sig- mundsson syngja hlutverk Must- afà í Ítölsku stúlkunni í Alsír í Vínaróperunni, en því miður for- fallaðist Kristinn á síðustu stundu. Vinafélagar létu þó ekki deigan síga og nýttu sér dagana í Vín til að fara á óperusýningar, tónleika, kaffihús, listasöfn og margt fleira. Einnig var farið í skipulagða skoðunarferð um Vín undir leið- sögn Gunnhildar Gunnarsdóttur. Allir í hópnum sáu sýningu í Vínaróperunni á Ítölsku stúlkunni í Alsír og þrátt fyrir að Kristins væri sárt saknað var hópurinn mjög ánægður með sýninguna. Einnig fóru margir á sýningu á Don Carlos, óperu Verdis, í upp- runalegri útgáfu. Þeir sem fóru á Die Verkaufte Braut í Fólksóper- unni voru stoltir af okkar mönn- um í sýningunni þeim Bjarna Thor og Einar Guðmundssyni. Einnig var farið á frumsýningu á Kátu ekkjunni og á tónleika með mezzósópransöngkonunni Vessel- ina Kassarova og margt fleira. Eftir sýninguna á Ítölsku stúlk- unni í Alsír var sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í ná- grenni óperunnar þar sem Bjarni Thor Kristinsson og Örvar Krist- insson, söngvarar sem báðir starfa í Vín, hittu hópinn. Ferðin gekk í alla staði mjög vel, að sögn skipuleggjenda, og veðrið lék við ferðalangana sem eru nú þegar farnir að skipuleggja næstu óp- eruferð. Ítarleg ferðasaga verður í Óperublaðinu sem kemur út í haust. Íslenskir óperuunn- endur í Vínarborg STRENGJAFESTIVAL í Skálholti er nú að hefja sitt fjórtánda starfsár. Fyrri hluti Strengjafestivals verður í Skálholti 13.–16. júní og seinni hluti þess 8.–14. ágúst. Strengjafestival í Skálholti samanstendur af spilatímum, samspili, tónleikum, listsköpun og kvöldvökum. Einnig er miðað við fræðslu um gróður og náttúrufar. Staðurinn er skoðaður og fræðsla um sögu Skálholts veitt. Á Strengjafestivalið eru fengnir kennarar bæði utan- lands og innan. Auk íslenskra kennara verður einnig eistneskur kennari og kennari frá Danmörku. Kennarar á fyrri hluta námskeiðsins eru Lilja Hjaltadóttir, sem einnig er listrænn stjórnandi, Tiina Kuusmik, Kolbrún Anna Björnsdóttir og Anna Rún Atladóttir meðleikari en á seinni hluta námskeiðsins verða kennarar Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Elisabeth Zeuthen-Schneider frá Dan- mörku auk Lilju Hjaltadóttur. Meðleikari verður Kristinn Örn Kristinsson Strengjafestival haldið í Skálholti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.