Morgunblaðið - 13.06.2005, Page 40

Morgunblaðið - 13.06.2005, Page 40
40 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á hvert annað lí i í i Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma. ROGER EBERT ROLLING STONE S.K. DV.  Capone XFM H.L. MBL. Ó.H DV S.K DV Ó.H.T RÁS 2 Inside Deep Throat kl. 7 - 9 og 11 b.i. 16 A Lot Like Love kl. 10.30 Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 og 10.15 Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16 The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy kl. 5.40 - 8 og 10.20 aston kutcher amanda peet RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU Er þetta ást? Er þetta vinátta eða er þetta hvort tveggja. Þetta er mynd sem þú og þín þurfið að sjá.   Heimildarmynd frá Óskarsverðlaunahafanum Brian Grazer Myndin var tekin á 6 dögum fyrir 25.000 dali. Ríkisstjórnin vildi ekki að þú sæir myndina. Hún var bönnuð í 23 ríkjum. Myndin halaði inn 600 milljónir dala á heimsvísu. Hún er arðsamasta mynd kvikmyndasögunnar. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Halldóra - Blaðið  Í DÓMI mínum um Ást rakti ég lítillega tilurð þessara plötutvennu og ég mæli eindregið með því að sá dómur verði lesinn áður en byrjað er á þessum. Á ... í 6 skrefa fjar- lægð frá Paradís snýr Bubbi sér að al- mennari vangavelt- um um skilnað sinn við Brynju. Lögin eru lágstemmdari og það er þyngra yfir hér ... svo þungt reyndar stundum að manni stendur ekki á sama. Trúbadúrinn Bubbi fær að skína hér og hann sannar, enn og aftur, að í þeim geiranum er hann mikill meistari. Í „Stjórna og stýra“ bregður þannig fyrir barnagælustíl á borð við það þann sem hann notaði í „Þingmannagælu“ (Af Von, 1992) og „Þú sem ert mér fjær“ er vel heppnaður, hefðbund- inn vísnasöngur með „latin“-blæ. Í „Einn dagur enn“ nær Bubbi að slá mann út af laginu með ótrú- legum játningum. Lagið er einkar þunglyndislegt og þar segir: „Stundum er sársaukinn of mikill/ Að dauðinn verður lausn og lykill/ Burtu frá því lífi sem þú lifir/ Framkvæma og þú ert kominn yf- ir“. Blákaldar sjálfsmorðshugleið- ingar semsagt og Bubbi er „fullur af heitri dauðaþrá“. Það er hrika- legt að hlusta á þetta. Þunglyndið sækir svo að af fullum krafti í „Svartur hundur“ en svo kallaði Winston Churchill þetta ömurlega ástand sem hann stríddi víst reglu- lega við. Drungi og deyfð fylgir laginu eins og svo mörgum hér en einnig fegurð. „Svartur hundur“ er afspyrnu vel heppnað lag, snið- uglega brotið upp eftir tvær og hálfa mínútu með glúrnum milli- kafla. Líkt og á Ást skiptast hér á einfaldar stemmur og lyklaðri, lengri lög. „Vonin blíð“ og „Draumur“ eru þannig lítil og falleg lög og sama má segja um eitt besta lag tvennunnar, „Get bara ekki“. Þar er Bubbi einn með gítarinn og viðurkennir að sál sín sé löskuð og þreytt, hann sjái bara eina konu og því er það svo að: „Ég get bara ekki sofið hjá“. Tvö síðustu lögin eru glæst. Strengir styðja smekklega við „Ástin getur aldrei orðið gömul frétt“ og lokalagið, „Breiðstræti ástarinnar“ er sígildur Bubbi, harmrænt og dramatískt lag sem hæglega má stilla upp við hlið þess besta sem hann hefur gert. ... í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís er heilsteyptara verk en Ást, laga- smíðarnar eru sterkari en það er ekki hægt að aðskilja þetta tvennt. Plöturnar eru eitt verk. Nú má ekki láta hjá líða að geta þáttar Barða Jóhannssonar upp- tökustjóra. Allur hljóðfæraleikur og hljómur eru fyrsta flokks og Barði ljær plötunni nánast „franska“ áferð því þrátt fyrir dep- urðina renna þær ljúflega í gegn. Hljómurinn er mjúkur og þægileg- ur. Einnig verður að geta söng- raddar Bubba sem er frábær á báðum plötum. Röddin lágvær og kröftug á víxl – ávallt einlæg og einbeitt – og Bubbi beitir sér á mismunandi hátt eftir efni og að- stæðum og gerir það mjög fag- mannlega. Nú er kvartöld liðin frá því að Bubbi gaf út sína fyrstu plötu og það er ekki hægt að segja að glað- værð fylgi þeim tímamótum. En þessar tvær plötur, og heildar- hugmyndin á bak við þær, eru verðugir vottar þess að Bubbi Morthens er stórkostlegur tónlist- armaður og því er a.m.k. hægt að fagna. Hann hefur sannarlega lent í því að misstíga sig á löngum ferli og oft má færa rök fyrir því að hann hafi farið í hluti af meira kappi en forsjá. En þannig vinnur Bubbi og hann væri fyrsti mað- urinn til að játa þessu. En bara þessar tvær plötur sanna að Bubbi Morthens er enn skapandi – og hann skiptir enn máli. Og úr því að það er verið að leggja öll spil á borðið vil ég segja við þig, Bubbi Morthens, að lífið er þess virði að lifa því þrátt fyrir erfiðleika, fals og vonbrigði. Með tilvísun í þig sjálfan: „Lífið, lífið, lífið er dásamlegt.“ Myrkrið svart TÓNLIST Íslenskar plötur Bubbi Morthens syngur, leikur á kassa- gítar og semur lög og texta. Barði Jóhannsson stýrði upptökum. Upp- tökumenn voru Barði og Óskar Páll Sveinsson. Útsetning í „Ástin getur aldr- ei orðið gömul frétt“ var í höndum Hreið- ars Inga Þorsteinssonar. Aðrir hljóðfæra- leikarar/söngvarar eru Denis Benarrosh (trommur, ásláttur), Barði Jóhannsson (bassi, Rhodes, Hammond, forritun, Cuica, Melodica), Laurent Vernerey (bassi), Christian Chenet (rafgítar), Guð- mundur Pétursson (rafgítar, kassagítar), Kjartan Valdemarsson (Rhodes), Esther Talía Casey (bakraddir), Nói Steinn Ein- arsson (trommur) og Jakob S. Magn- ússon (bassi), Róbert Þórhallsson (kontrabassi), Hrafnkell Orri Egilsson (selló), Þórunn Ósk Marinósdóttir (víóla), Monika Abendroth (harpa) Sena gefur út. Bubbi – … í sex skrefa fjarlægð frá Paradís Arnar Eggert Thoroddsen ÞAR eð plöturnar tvær sem Bubbi gefur út í dag, Ást og ...í 6 skrefa fjar- lægð frá Paradís, eru hugmynda- fræðilega samofnar er rétt að tæpa á nokkrum hlutum sem eiga við þær báðar. Lesendur ættu því að byrja lesturinn hér. Báðar eiga þessar plötur það sam- eiginlegt að það er nánast óþægilegt að hlusta á þær. Ekki það að tónlist eða flutningur hennar séu að valda þeirri tilfinningu heldur eru textarnir það berorðir, einlægir og sársauka- fullir að það er eins og maður hafi slysast til að heyra eitthvað sem mað- ur átti alls ekki að heyra. Plöturnar fjalla hvor á sinn hátt um skilnað Bubba og konu hans Brynju en þau tvö slitu samvistum seint á síð- asta ári. Rætt hefur verið um plöt- urnar þannig að Ást sé einslags poppplata en ...í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís sé lágstemmd kassagít- arplata. Þetta á ekki við nema að litlu leyti, því að í raun er svipbragðið nokkurn veginn það sama. Öllu glað- værari tónar einkenna þó Ást, en þar er Brynja sjálf í forgrunni og er plat- an hreinskiptin ástarjátning, án kala eða kergju. Á ...í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís má hins vegar heyra sértæk- ari pælingar og sára sjálfskoðun. Þjáningin er mjög svo áþreifanleg og er hún til muna myrkara verk. Bubbi er margslunginn maður en eitt hefur aldrei dulist, að hann er yf- irmáta einlægur og ástríðufullur. Á báðum plötunum leiðir hann hlust- andann óhikað um innstu hugar- fylgsni sín og áhrifin af því að hlusta eru á köflum sláandi – hreinlega lam- andi þegar sorgin er hvað mest. Inn- tak platnanna á sér einskonar hlið- stæðu við „Love Will Tear Us Apart“ með Joy Divison að því leytinu til að hér eru öll spil lögð miskunnarlaust á borðið. Til að undirstrika stemn- inguna eru ljósmyndir umslaganna beggja teknar í kirkjugarði. Bubbi er þar fjarrænn á svip og á sumum myndunum má sjá unga konu, ein- hvers konar gyðju eða jafnvel vofu. Í vissum skilningi eru þessar tvær plötur mikilvægustu plötur sem Bubbi Morthens hefur gert á ferl- inum og þær eru al- gerlega einstakar í ferilskrá þessa iðna og hæfileikaríka listamanns. Því Bubbi varð að gera þessar plötur. Fyrst og síðast eru þær meðferð, hugleiðing, leið út úr erfiðri sál- arkreppu. Efnið sem hér er að finna var sam- ið í einni kippu og á köflum bera plöt- urnar merki þess. Lagasmíðarnar eru mestan part einfaldar, stundum full einfaldar, og sum lögin minna meira að segja sterklega á eldri lög Bubba. Ekkert er þó verulega slakt hér, nema í einstaka tilfellum. Text- arnir eru líka einfaldir, stundum nán- ast barnslegir, og stundum falla þeir illa við laglínurnar. Það er samt merkilegt með þessi lög hans Bubba að í fyrstu og annarri hlustun virðast lögin lítið merkileg en í þriðju, fjórðu hlustun og áfram er eins og ljósið hjá manni kvikni. En þessir þættir eru ekki það sem gerir plöturnar að því af- reki sem þær eru. Það er heildarmyndin og það að Bubbi stígi fram af þess- ari svaðalegu hreinskilni sem er svo magnað. Ástæðan fyrir þessum plötum vegur í raun meira en sjálf tónlistin þegar öllu er á botninn hvolft. Báðar plöturnar eru meira eins og ein stór dagbókarfærsla frá manni í djúpstæðri ást- arsorg. Einstaka lög skipta ekki máli í hinu stóra samhengi. Ást er einlægur ást- aróður til þeirrar sem „fyllir hjarta“ Bubba eins og lesa má út úr skila- boðum í upplýsingabæklingi. Hver þetta er verður svo skýrt í laginu „Stór pakki“ en þar segir: „Stafurinn B hefur lengi fylgt mér/nítján ár og hann tilheyrir þér“.Það er freistandi að álykta að titillinn vísi til Bubba sjálfs, sé einhvers konar sjálfsýni/ sjálfskoðun en hann syngur ákveðið í viðlaginu: „Ég er stór pakki...“ Tónn plötunnar/platnanna er sleg- inn af festu strax í fyrsta laginu sem heitir einfaldlega „Ástin mín“: „Skugginn þinn fyllir hjarta mitt/ Móðir barna minna yndið mitt/Hver hvíslar í nótt ég elska þig/Hver hlust- ar í nótt á hjarta þitt slá“. Hér gefur að líta bæði þá innilegu ást sem Bubbi ber til Brynju um leið og örvæntingin og afbrýðisemin lætur á sér kræla. Fyrri helmingur plötunnar rennur vel, lögin fín og grípandi og þola vel endurspilun. En svo kemur að laginu „Nafnið þitt“ sem er varla lag – ein- tóna tveggja mínútna stemma sem fer ekki neitt og kannski hefði verið best að sleppa henni. Eða hvað? Nú erum við komin að dæmi um hvernig heildin virðist skipa meira máli en einstakir hlutar. Texti lagsins, sem er síendurtekið „Og ég hrópa hrópa upp nafnið þitt/Get ekki hætt að elska þig“ virkar meira eins og mantra, einskonar hugleiðslustef til sáluhjálp- ar. Lagið þarf líklega að vera þarna, þó að það sé ekki merkilegt sem slíkt. Við enda plötunnar liggja tvö lög, einkar áhrifamikil. Í „verður að sleppa“ liggur þungamiðja þessarar plötu. Lagið er þunglamalegt, skríður hægt áfram en yfir því er mikil reisn og söngur Esther Talíu Casey gerir mikið. Það er greinilegt að Bubbi hef- ur legið yfir textanum og hér dregur hann marga þætti saman. Þetta er af- skaplega sárt lag og Bubba liggur hvergi meira á hjarta en hér. Segir m.a.: „Þú deyrð á hverjum degi ert orðinn aðeins fjarlæg minning nú“, „Inní þér brennur ofsafenginn eldur þig langar að skaða þann/Sem hvílir sæll við hlið hennar...“. En hér er líka von og tilraun til lausnar: „Þú verður að sleppa sleppa engin önnur leið út/ Ef þú elskar hana svona mikið“ og „Ég verð að komast út í ljósið út í ljósið ég verð að ná“. Það er svo hrein snilld hvernig platan endar. Lokalagið „Hvað sem verður“ (að vísu er eitt falið lag á eftir því) er hresst og fönklegið og Bubbi endar hugrakkur og keikur á því að lýsa því yfir að: „Hvað sem verður mun ást mín fylgja þér“ og enn- fremur að „Megi skuggi aldrei falla á þig/Fallega yndið mitt/Þó ég sé far- inn þú verður alltaf ljósgeislinn minn/ Megi hver einasti dagur í lífi þínu verða happadagurinn þinn.“ Þetta er hrífandi endir, Bubbi hugsar ekki illa til Brynju heldur að- eins af hreinni, tærri ást. Bubbi Morthens hefur lengi verið á meðal fárra íslenskra tónlistarmanna sem hafa virkilega eitthvað fram að færa í textum sínum en aldrei hefur hann verið berorðari en hér. Nema ef vera skyldi á hinni plötunni... TÓNLIST Íslenskar plötur Bubbi Morthens syngur, leikur á kassa- gítar og semur lög og texta. Barði Jóhannsson stýrði upptökum. Upp- tökumenn voru Barði og Óskar Páll Sveinsson. Aðrir hljóðfæraleikarar/ söngvarar eru Denis Benarrosh (tromm- ur), Barði Jóhannsson (bassi, Rhodes, rafgítar, Hammond, forritun), Daði Birg- isson (Rhodes, orgel, píanó, Mellotron), Laurent Vernerey (bassi), Christian Che- net (rafgítar), Guðmundur Pétursson (rafgítar, kassagítar), Kjartan Valde- marsson (píanó), Arnar Geir Ómarsson (trommur), Ellen Kristjánsdóttir (bak- raddir), Esther Talía Casey (söngur), Nói Steinn Einarsson (trommur) og Jakob S. Magnússon (bassi). Sena gefur út. Bubbi – Ást  Plötutvenna Bubba, Ást og …í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís, er á vissan hátt mikilvægustu plötur sem hann hefur gert, plötur sem hann varð að gera. Arnar Eggert Thoroddsen Brynja … ég elska þig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.