Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 13.06.2005, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. FÆREYSKA olíufélagið P/F Atl- antic Petroleum í Þórshöfn verður skráð á aðallista Kauphallar Ís- lands hf. miðvikudaginn 15. júní næstkomandi. Er þetta fyrsta er- lenda félagið sem skráð er í Kaup- höll Íslands og um leið fyrsta fær- eyska félagið sem er skráð á hlutabréfamarkaði. Mosaic Fashions hf. verður að öllum líkindum skráð í Kauphöll- inni 21. júní næstkomandi, að sögn Helgu Bjarkar Eiríksdóttur, markaðs- og kynningarstjóra Kauphallar Íslands. Það eru nokk- ur tímamót, að tvö ný félög séu skráð í Kauphöllinni, því Atlantic Petroleum verður fyrsta félagið sem er skráð í Kauphöllinni frá því í nóvember 2003 að Flaga Group tók upp skráningu. Það er KB banki sem annast skráningu beggja félaganna í Kauphöllinni og mun annast viðskiptavakt með bréf Atlantic Petroleum í Kaup- höllinni. P/F Atlantic Petroleum var stofnað í febrúar 1998 af færeysk- um fjárfestum og er með höfuð- stöðvar í Þórshöfn í Færeyjum. Forstjóri þess er verkfræðingur- inn William Petersen. Markmið Atlantic Petroleum er að verða miðlungsstórt olíu- og gasfélag í Norður-Atlantshafi. Hluthafar í Atlantic Petroleum eru um þrjú þúsund talsins. Verðmæti hlutafjár í félaginu er nú um 74 milljónir danskra króna (um 783 milljónir ÍKR). Heildareignir félagsins 31. mars síðastliðinn voru metnar 111 milljónir danskra króna (1.174 milljónir ÍKR), að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Atl- antic Petroleum tekur þátt í olíu- leit samkvæmt þróunarleyfum við Færeyjar og Stóra-Bretland, bæði í Norðursjó og Atlantshafinu. Þar er félagið í samvinnu við önnur fyrirtæki, svo sem Amerada Hess, British Gas, DONG, Nexen, Petro- Canada, Kerr McGee, Venture, Bow Valley og Geysir. Atlantic Petroleum, ásamt sam- starfsaðilum, fékk fyrsta leyfið sem veitt var til olíuleitar við Fær- eyjar. Borun eftir olíu við Fær- eyjar hófst í september 2001 og tveimur mánuðum síðar var til- kynnt að fundist hefði vænleg olíu- og gaslind. Nú er verið að meta þennan olíufund. Atlantic Petrol- eum tekur einnig þátt ásamt fleir- um í olíuleit og vinnslu á Chest- nut-svæðinu í Norðursjó. Búist er við að olía fari að streyma þaðan árið 2007. Einnig vinnur félagið ásamt fleirum að undirbúningi ol- íuvinnslu á Perth-svæðinu. Færeyskt olíufélag skráð hér á markað Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Fyrsta erlenda hlutafélagið sem skráð er í Kauphöll Íslands ÁRLEGUR Esjudagur fjölskyldunnar var haldinn í gær og er þetta í átt- unda sinn sem SPRON stendur fyrir slíkum degi. Esjudagurinn er fjöl- skylduhátíð þar sem allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Esjukapphlaupið var ætlað hinum alsprækustu og voru verðlaun veitt fyrir árangur í því. Vanir göngugarpar gátu gengið um Laufskörðin með leiðsögn og Haraldur Örn Ólafsson og fleiri voru með leiðsögn fyrir þá sem vildu ganga á Þverfellshorn og Öxl. Þá var boðið upp á skógar- og fræðslu- ferð um svæði Skógræktarfélags Reykjavíkur. Dagskráin tók mið af allri fjölskyldunni og var Benedikt búálfur með skemmtiatriði fyrir yngri kynslóðina. Á svæðinu var líka slegið upp hoppu- kastala og boðið upp á veitingar. Morgunblaðið/Jim Smart Fjölbreytt dagskrá á Esjudegi fjölskyldunnar ÓLAFUR Stefánsson og samherjar hans í ís- lenska landsliðinu í handknattleik unnu öruggan níu marka sigur á Hvít-Rússum, 33:24, í fyrri leik þjóðanna í undankeppni Evr- ópumeistaramótsins í Kaplakrika í gærkvöld að viðstöddum um 2.000 áhorfendum. Íslenska liðið hefur því vænt forskot fyrir síðari leik þjóðanna sem fram fer í Minsk í Hvíta- Rússlandi næsta laugardag. Samtals úrslit úr leikjunum tveimur ráða því hvor þjóðin tekur þátt í Evrópumeistaramótinu í Sviss í byrjun næsta árs. | Íþróttir Morgunblaðið/Árni Torfason Með vænlega stöðu til Minsk TÍU eiturefnakafarar frá Slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins verða meðal þeirra sem taka á móti Lagarfossi, leiguskipi Eimskipa- félagsins, á Grundartanga en von var á skip- inu að bryggju snemma dags í dag. Ammoníaksleki uppgötvaðist úr tveimur hylkjum í einum gámi skipsins um helgina þegar það var statt út af Aberdeen í Skot- landi á leið til Reykjavíkur. Áhöfn Lagarfoss hafði samband við strandgæsluna í Aberdeen og var skipinu snúið til Skotlands þar sem komist varð fyrir lekann. Sú viðgerð tók um sjö klukkustundir en að henni lokinni hélt skipið áleiðis til Ís- lands. Höskuldur H. Ólafsson, aðstoðarfor- stjóri Eimskips, segir það ekki vitað hve mikið af efninu fór út. „Það getur hafa verið að þrýstiloki eða eitthvað slíkt hafi bilað en ekkert hættu- ástand skapaðist. Þegar svona kemur upp vita menn ekki nákvæmlega um hvað er að ræða og því var haft samband við aðila í Bretlandi,“ segir Höskuldur. Eftir að ákveðið var að stefna Lagarfossi til Grundartanga óskaði Slökkvilið Akraness eftir því að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðaði við nauðsynlegan viðbúnað í Grundartangahöfn. Að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra SHS, munu eiturefnakafararnir sjá til þess að alls örygg- is verði gætt við losun gámsins og grípa til frekari ráðstafana ef nauðsyn krefur. Eiturefna- kafarar taka á móti Lagarfossi SKIPSTJÓRINN á Sólborgu ÞH-270 ósk- aði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar um kl. 10 í gærmorgun vegna tundurdufls sem komið hafði upp með veiðarfærum skips- ins sem var þá statt í mynni Reyð- arfjarðar. Sprengjusérfræðingur Land- helgisgæslunnar leiðbeindi skipstjóranum um hvað gera skyldi en tveir starfsmenn sprengjudeildar héldu síðan austur. Flutti Björgunarsveitin Þór á Reyðarfirði þá út í Sólborgu þar sem þeir gerðu duflið óvirkt. Sólborgu var síðan siglt til hafnar á Reyð- arfirði þar sem duflinu var eytt. Fengu tundurdufl í veiðarfærin ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.