Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Ver› á mann í tvíb‡li á Midtown Hotel.
25.-28. nóv., 12.-15. jan., 26.-29. jan., 17.-20. feb. og 3.-6. mars.
Innifali›: Flug, gisting, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
www.icelandair.is/boston
Boston
Flug og gisting í þrjár nætur
Verð frá 49.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og
Icelandair notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
BREYTING á gjaldskrá fyrir Leik-
skóla Reykjavíkur tekur gildi hinn
1. september næstkomandi en eins
og áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu hefur hún í för með sér um-
talsverða hækkun á leikskólagjöld-
um fyrir foreldra þar sem annað
foreldri er nemandi en hitt útivinn-
andi. Félagsstofnun stúdenta hefur
sent bréf til foreldra barna á leik-
skólum stúdenta, Sólgarði og Efri-
hlíð, þar sem fram kemur að hækk-
un á heilsdagsvistun barna foreldra,
þar sem annað er í námi, hækki úr
33.830 kr. á mánuði í 41.030 kr. á
mánuði. Þá var einnig sent bréf til
foreldra barna á Mánagarði.
Hingað til hefur gjaldskrá leik-
skólanna verið þrískipt. Í fyrsta
flokk féllu giftir foreldrar eða sam-
býlisfólk og foreldrar þar sem ann-
að foreldrið er í námi í annan flokk.
Þriðji flokkurinn var hins vegar
skipaður einstæðum foreldrum og
þeim foreldrum þar sem báðir for-
eldrar eru í námi og annar eða báðir
foreldrar eru öryrkjar. Breytingin
er í því fólgin að annar flokkurinn er
felldur út og þeir sem tilheyra hon-
um færast í fyrsta flokkinn.
Rebekka Sigurðardóttir, kynn-
ingarfulltrúi Félagsstofnunar stúd-
enta, segir að stúdentar hafi haft
samband við stofnunina vegna máls-
ins og lýst yfir óánægju sinni en svo
virðist sem foreldrum barna á leik-
skólum borgarinnar hafi ekki verið
kynnt hækkunin.
Ekki þörf fyrir þennan flokk
„Þegar um er að ræða leikskóla-
gjald fyrir barn sem er yngra en
tveggja ára hækkar gjaldið um
u.þ.b. tíu þúsund krónur, sem er
töluverður peningur fyrir þá sem
framfleyta sér á námslánum. Rökin
eru þau að umhverfið sé orðið
breytt hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna (LÍN) en blekið er
varla þornað á nýjum samningi þar
sem kjör námsmanna eru leiðrétt
þegar það á að hækka leikskóla-
gjald. Þetta kemur sér illa fyrir hóp
sem er kannski ekki stór en hefur
yfirleitt litla peninga á milli hand-
anna. Það er spurning hvað þeir
hafa á bak við sig þegar þeir full-
yrða að kjör fólks séu orðin svo góð
að það geti farið að greiða þetta
gjald,“ segir Rebekka.
Þorlákur Björnsson, formaður
leikskólaráðs Reykjavíkur, sagði í
viðtali við Morgunblaðið hinn 12.
nóvember 2004, að með þessum
breytingum væri verið að taka út
gjaldflokk sem hefði verið bætt inn
þegar aðstæður voru aðrar […].
Hann sagði að búinn hefði verið til
sérstakur flokkur fyrir foreldra þar
sem annað foreldrið væri í námi þar
sem námslán frá LÍN voru lækkuð
vegna tekna maka, en þar sem nú
væri búið að afnema þessa tekju-
tengingu væri ekki lengur þörf fyrir
þennan gjaldflokk.
„Á sama tíma og ráðamenn tala
um að styðja við bakið á fjölskyld-
unni og að fjölskyldugildin séu á
undanhaldi sér maður ekki að það
sé verið að gera mikið í samfélaginu
til þess að hlúa að fjölskyldunni.“
Rebekka segir að það sé fyrir-
sjáanlegt að einhverjir stúdentar
sem breytingin kemur niður á muni
skrá sig úr sambúð en við það lækk-
ar gjaldið.
„Fáum engin viðbrögð“
Elías Jón Guðjónsson, formaður
stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir
að breytingunni hafi verið mótmælt
og meðal annars hafi 1.900 stúdent-
ar skrifað undir mótmælabréf. Svo
virðist hins vegar sem ráðamenn
borgarinnar hafi lítinn vilja til þess
að hlusta á stúdenta.
„Það hefur verið reynt að fá fund
með formanni menntaráðs Reykja-
víkur, Stefáni Jóni Hafstein, undan-
farna tvo mánuði en ekki fengist.
Við höfum verið á skrifstofunni þeg-
ar hann hefur verið við en hann hef-
ur samt sem áður ekki viljað hitta
okkur. Þannig fáum við engin við-
brögð þrátt fyrir að hafa sótt mjög
hart að honum undanfarnar tvær
vikur og hringt nánast daglega. Við
viljum fá hann til þess að skýra sitt
mál og svara því hvort einu rökin
fyrir þessari hækkun séu þau að
hagur stúdenta hafi batnað,“ segir
Elías og bendir á að það séu þau op-
inberu rök sem sett hafi verið fram
með bókun í stjórn Leikskóla
Reykjavíkur.
„Þegar það er búið að afnema
tekjutengingu maka hjá LÍN vill
borgin endilega taka þessa tekju-
tengingu upp hjá stúdentum. Þetta
fólk sem hafði það svo slæmt þegar
það var í skóla getur ekki séð hag
stúdenta batna með tímanum en
mikið af þessu fólki var í framlínu
hagsmunabaráttu stúdenta hér á ár-
um áður þannig að það er nokkuð
skrítið að sjá þau spila þetta svona.“
Stúdentar borga tekjuauka
„Það má segja að það sé verið að
hvetja fólk til þess að vera ekki
skráð í sambúð en ef fólk skráir sig
úr sambúð fellur það aftur í neðri
flokkinn. Það má því segja að í
þessu felist óhagræði fyrir stjórn-
kerfi borgarinnar. Í stað þess að
þetta sé sparnaður er þetta tekju-
auki fyrir leikskóla Reykjavíkur
upp á 21 milljón á þessu ári og
væntanlega 40 milljónir á því næsta.
Það eru stúdentar sem borga þenn-
an tekjuauka. Það má spyrja að því
þegar borgaryfirvöld eru að tala um
það að fara í gjaldfrjálsan leikskóla
– hvort stúdentar eigi að greiða fyr-
ir kostnaðinn af því.“
Elías segir að stúdentaráð muni
halda áfram að reyna að ná tali af
Stefáni Jóni og vonast til þess að
hann muni skýra mál sitt.
„En við munum auðvitað vekja at-
hygli á þessu máli enda er hækkun-
in á næsta leiti. Stúdentar munu ef-
laust verða óánægðir þegar þeir fá
greiðsluseðla hinn 1. september og
gera sér grein fyrir því að borgin
virðist ekki ætla að bakka með
þetta.“
Breyting á gjaldskrá fyrir Leikskóla Reykjavíkur tekur gildi 1. september
Fyrirsjáanlegt að stúdentar
muni skrá sig úr sambúð
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Breytingar á gjaldskrá leiða til þess að gjald fyrir börn stúdenta þar sem
annað er í námi, hækkar úr 33.830 kr. á mánuði í 41.030 kr. á mánuði.
JÓNATAN Þórmundsson
lagaprófessor, höfundur álits-
gerðar sem fjallaði um ýmis
álitaefni tengd lögreglurann-
sókn á Baugi, og nefndarmaður
í yfirskattanefnd sem fjallaði
um kæru 365 ljósvakamiðla, áð-
ur Íslenska útvarpsfélagið,
mun hafa fengið vitneskju um
það í lok júní sl. að hann ætti
sem nefndarmaður að fjalla um
málefni 365 ljósvakamiðla.
Ólafur Ólafsson, formaður
yfirskattanefndar, sagðist að-
spurður í gær að líklegt væri að
Jónatan hefði fengið umrædda
vitneskju um málið á þessum
tímapunkti, miðað við eðlilegan
gang mála fyrir nefndinni.
Í frétt Morgunblaðsins 6. júlí
sagðist Jónatan „í raun enga
hugmynd hafa um hvort ein-
hver mál gegn Baugi væru nú
til meðferðar hjá yfirskatta-
nefnd“. Í ársreikningi Norður-
ljósa fyrir árið 2003, sem mót-
tekinn var hjá Ríkisskattsjóra
2. maí sl., segir að Baugur eigi
44,7% í Norðurljósum, eiganda
alls hlutafjár í sameinuðu félagi
Sýnar og ÍÚ.
Fyllilega hæfur
til setu í nefndinni
Ólafur Ólafsson ítrekar að
Jónatan hafi verið fyllilega
hæfur til að sitja í yfirskatta-
nefnd í máli 365 ljósvakamiðla
en úrskurður var kveðinn upp
20. júlí um að félagið fengi
endurgreidda 136,1 milljón
króna úr ríkissjóði vegna end-
urálagningar Ríkisskattstjóra
vegna áranna 1997 og 1998.
Ólafur ítrekar ennfremur þá
skoðun sína að umrætt mál ÍÚ
sé í sínum huga ekki tengt
Baugi. Bendir hann á að fyrr-
nefndar upplýsingar um eign-
araðild Baugs í Norðurljósum
hafi ekki komið fram í þeim árs-
reikningum sem yfirskatta-
nefnd hafði til skoðunar vegna
málsins.
Fékk vitn-
eskju um
mál 365
í júnílok
ÁSGEIR Friðgeirsson mun ekki
taka sæti á Alþingi í haust fyrir
Samfylkinguna í Suðvesturkjör-
dæmi. Ásgeir er fyrsti varaþing-
maður Samfylkingarinnar og hefði
átt að taka sæti Guðmundar Árna
Stefánssonar, en hann tekur við
embætti sendiherra í Stokkhólmi í
næsta mánuði. Valdimar Leó Frið-
riksson tekur því sæti Guðmundar
Árna á Alþingi og fyrsti varamaður
verður Jón Kr. Óskarsson úr Hafn-
arfirði.
Ásgeir segir við Morgunblaðið að
þessi ákvörðun hafi verið erfið og
tekið sinn tíma. Víða hafi hann leit-
að ráðgjafar en niðurstaðan verið
sú að hann teldi sig koma meira að
gagni í sínum daglegu verkefnum
við miðlun upplýsinga. Í yfir 20 ár
hafi hann starfað við frétta-
mennsku, ritstjórn og almanna-
tengsl og öðlast góða reynslu í al-
þjóðlegum samskiptum. Ásgeir
segist ætla að einbeita sér að ráð-
gjafarstörfum íslenskra fyrirtækja
og fjárfesta sem hafa haslað sér völl
erlendis á síðustu árum. Hefur
hann aðallega unnið fyrir fyrirtæki
tengd Björgólfsfeðgum og Magnúsi
Þorsteinssyni, fyrirtæki og félög
eins og Novator, Avion Group,
Samson, Burðarás og Landsbank-
ann.
Ásgeir bendir á að umfjöllun um
Ísland og íslensk fyrirtæki hafi
margfaldast í erlendum fjölmiðlum
á síðustu tveimur árum. Umfjöll-
unin í Bretlandi og á Norðurlönd-
unum sé að móta betur og skýrar
viðhorf til Íslendinga og íslensks
viðskiptalífs heldur en aðrir þættir.
Það sé því spennandi og ögrandi að
takast á við og bregðast við aukinni
athygli erlendis.
Ásgeir segir ekki skilið við Sam-
fylkinguna og hefur áhuga á að taka
þátt í störfum flokksins og nýta
sína reynslu af útrás íslenskra fyr-
irtækja. Hvort hann taki aftur þátt
í prófkjöri fyrir þingkosningar seg-
ir Ásgeir það ólíklegt, án þess að
hann vilji útiloka neitt í þeim efn-
um.
Leggst vel í Valdimar
Valdimar Leó kemur sem fyrr
segir inn á þing í stað Ásgeirs og
tekur sæti Guðmundar Árna. Hann
starfar sem framkvæmdastjóri
íþróttafélagsins Aftureldingar í
Mosfellsbæ en hefur nokkrum sinn-
um verið á Alþingi sem varaþing-
maður fyrir Samfylkinguna á þessu
kjörtímabili, samtals í fjóra mánuði.
Valdimar segir þingmannsstarfið
leggjast vel í sig. Spurður um
helstu áherslumálin segir hann það
vera málefni íþróttahreyfingarinn-
ar. Sitt fyrsta verk verði að beita
sér fyrir því að föst 100 milljóna
króna fjárveiting komi árlega til
sérsambanda ÍSÍ. Sem varaþing-
maður hafi hann einnig skipt sér af
málefnum einhverfra og langveikra
barna, einkum barna með Golden-
har-heilkenni.
Breytingar hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi
Ásgeir hættir við að
taka sæti á þingi
Valdimar Leó
Friðriksson
Ásgeir
Friðgeirsson