Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 11
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á
síðustu sætunum til Mallorca í
ágúst. Njóttu lífsins á þessum
vinsælasta sumarleyfisstað á
frábærum kjörum. Bókaðu sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Mallorca
24. ágúst
frá kr. 29.990
Verð kr. 29.990 í viku
Verð kr. 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í
íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 24. ágúst.
Verð kr. 39.990 í viku
Verð kr. 49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í 1
eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Stökktu tilboð 24. ágúst.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
STJÓRN Neytendasamtakanna
hefur sent bréf til fjármálaráð-
herra þar sem tekið er undir áskor-
un Félags íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) um að stjórnvöld lækki álögur
sínar á bensíni og olíu tímabundið á
meðan heimsmarkaðsverð á þess-
um vörum er jafn hátt og það er nú.
Neytendasamtökin minna á að
stjórnvöld fá í sinn hlut um 60% af
því verði sem neytendur greiða fyr-
ir eldsneyti. Jafnframt að verð á
þessum vörum er með því hæsta
hér á landi borið saman við önnur
lönd. Einnig er minnt á að stjórn-
völd hafa áður gripið til aðgerða af
þessu tagi þegar heimsmark-
aðsverð hefur verið hátt eða í
tengslum við svokölluð „rauð
strik“.
Á heimasíðu FÍB (www.fib.is) er
hafin undirskriftasöfnun þar sem
neytendur sem styðja kröfu um
lægri álögur á eldsneyti geta skráð
nafn sitt. Neytendasamtökin hvetja
neytendur að skrá sig á heimasíðu
FÍB og taka undir kröfuna um
lægri álögur á eldsneyti.
Stjórnvöld
lækki álögur
á eldsneyti
AÐALMEÐFERÐ í máli rík-
issaksóknara gegn Scott Ramsey,
sem ákærður er fyrir að hafa sleg-
ið danskan hermann í höfuðið á
skemmtistaðnum Traffic í Keflavík
í nóvember 2004 með þeim afleið-
ingum að mannsbani hlaust af,
hefst fyrir héraðsdómi 22. sept-
ember. Ákærði hefur játað sök fyr-
ir dómi við þingfestingu málsins.
Á rannsóknarstigi málsins hjá
lögreglu sætti grunaði stuttu
gæsluvarðhaldi en ekki var talin
þörf á að halda honum lengur þar
sem málið upplýstist fljótt að því
er lögregla greindi frá á sínum
tíma.
Réttað í máli
Ramseys 22.
septemer
MAÐUR, sem slasaðist alvarlega
þegar hann velti jeppa útaf veg-
inum í Fljótsdal á sunnudags-
morgun, hefur verið útskrifaður af
gjörgæsludeild. Maðurinn var flutt-
ur með sjúkraflugi á Landspítala –
háskólasjúkrahús í Reykjavík.
Slasaðist
í bílveltu
STANGVEIÐI
FÉLAG leikskólakennara hefur
sent Morgunblaðinu athugasemdir
vegna ummæla Steinunnar Huldu
Theódórsdóttur, nýráðins skóla-
stjóra Suðurhlíðaskóla, en viðtal
við hana birtist í Morgunblaðinu sl.
laugardag.
„Í viðtalinu kemur fram að skól-
inn komi til með að bjóða upp á nám
fyrir 5 ára börn (væntanlega með
leyfi menntamálaráðuneytis).
Skólastjórinn nýráðni segir að
ástæða fyrir þeirri nýbreytni að
taka 5 ára börn inn í skólann sé
m.a. sú að mörg börn séu leið á að
vera í leikskóla, þau séu jafnframt
orðin námfús og því sé kjörið að
bjóða upp á kennslu fyrir börnin í
gegnum leik. Félag leikskólakenn-
ara gerir alvarlegar athugasemdir
við málflutning skólastjórans. Í
fyrsta lagi er fullyrt að börn séu
orðin leið í leikskóla 5 ára gömul.
Þarna er farið með órökstudda full-
yrðingu og verður að teljast miður
faglegt. Í leikskólum fer fram nám
og kennsla í gegnum leik, þar er
unnið eftir aðalnámskrá leikskóla
og skólanámskrá hvers skóla. Í orð-
um skólastjórans felst hins vegar að
svo sé ekki. Félag leikskólakennara
harmar slíkan málflutning og finnst
felast í orðum skólastjórans mikil
vanvirðing við það nám sem fram
fer í leikskólum.“
Athugasemd
frá Félagi
leikskólakennara
RÁÐUNEYTISSTJÓRI landbúnað-
arráðuneytisins, Guðmundur B.
Helgason, segir að mjög vel hafi verið
að ráðningu ráðuneytisins staðið sem
umboðsmaður Alþingis gagnrýnir í
nýlegu áliti sínu. Guðmundur segir
ráðuneytið standa við það mat sem
það hafði á umsækjendum.
Umboðsmaður taldi m.a. að mat
ráðuneytisins á umsóknum um starf
sérfræðings á sviði framleiðslu- og
markaðsmála hefði ekki byggst á lög-
mætum og málefnalegum sjónarmið-
um. Einnig taldi umboðsmaður að
verulegir annmarkar hefðu verið á af-
greiðslu ráðuneytisins á umsóknun-
um.
Guðmundur segir að hér hafi verið
um undirmannsstöðu að ræða í ráðu-
neytinu sem ekki hafi kallað á neina
starfsreynslu umfram aðra. Störfin
séu unnin undir handleiðslu reyndari
aðila.
„Við auglýstum ekki eftir starfs-
reynslu. Þetta er að mínu viti skóla-
bókardæmi um störf innan Stjórnar-
ráðsins sem henta vel menntuðu en til
þess að gera ekki alltof reyndu fólki.
Við töldum okkur vera að ráða í starf-
ið hæfasta umsækjandann,“ segir
Guðmundur en ung kona var ráðin í
umrætt starf, með bæði MS-próf í
iðnaðarverkfræði og B.Sc-próf í mat-
vælafræði. Er hún enn að störfum en
ráðið var í stöðuna fyrir rúmum
tveimur árum.
Vandað ráðningarferli
Varðandi álit umboðsmanns um
annmarka á málsmeðferð og drátt á
svörum segist Guðmundur ekki vilja
tjá sig sérstaklega. Fram komi í álit-
inu að kvartað hafi verið til umboðs-
manns yfir erindi sem aldrei hafi bor-
ist ráðuneytinu. Réttara hafi verið af
umboðsmanni að leiðbeina aðilanum
um að gefa ráðuneytinu færi á að
svara erindinu án milligöngu um-
boðsmanns Alþingis.
Guðmundur segir ráðuneytið ávallt
vinna í því að bæta sína stjórnsýslu.
Margt ágætt hafi komið frá umboðs-
manni Alþingis sem megi læra af.
Hins vegar sé ekkert í umræddu áliti
sem kalli á að ákvörðun ráðuneytisins
hafi átt að vera með öðrum hætti.
„Þetta var ágætlega vandað ráðn-
ingarferli og við töldum okkur hafa
ráðið þann aðila sem hæfði best í
starfið. Það er okkar mat og við
stöndum við það,“ segir Guðmundur
en umboðsmaður taldi annmarka á
ráðningunni ekki leiða til ógildingar á
henni.
Landbúnaðarráðuneytið um álit
umboðsmanns Alþingis
Mjög vel var að
ráðningunni staðið
„VEIÐIN í Selá gengur mjög vel
og fór yfir 1.200 laxa í gærkvöldi,“
sagði Orri Vigfússon formaður
Veiðiklúbbsins Strengs, sem hefur
verið með ána í hartnær 40 ár og
lagt alúð í að rækta hana upp og
hlúa að hrygningarstofninum.
Þessa dagana er veitt með átta
stöngum og nást 35 til 50 laxar á
dag.
„Í fyrra, þegar 1.691 lax veidd-
ist, voru um þrír laxar á stang-
ardag, nú stefnir í ríflega það,“
sagði Orri. „Þessi mokveiði byrj-
aði fyrr nú, um miðjan júlí.“ Hann
segir talsvert veiðast af smálaxi
þessa dagana en síðustu daga hef-
ur líka mikið veiðst af lúsugum
fiski, í síðustu viku kom stór
ganga í ána. „Ég geri ráð fyrir að
margar skýringar séu á þessari
góðu veiði, en við höfum veitt og
sleppt mikið af fiski í 15 ár, ég
efast ekki um að það sé að skila
sér.“
Gríðargóður gangur hefur verið
í veiðinni í Þverá og Kjarrá í sum-
ar og hefur hún verið aflahæsta á
landsins síðustu vikurnar. Fyrir
helgina fór veiðin yfir 3.000 laxa.
Andrés Eyjólfsson leiðsögumaður
segir Kjarrá hafa verið að gefa ör-
lítið betur síðustu daga, en jafnt
sé það, þannig fékk næstsíðasta
holl í Kjarrá 60 laxa en Þverá gaf
49 á sama tíma. Þá segir hann fisk
enn að ganga, lúsugir veiðist af og
til og nýir fiskar renni sér inn.
Misgóðir dagar
Lánið leikur ekki alltaf við
veiðimenn. Maður nokkur sem var
við veiðar á silungasvæði Vatns-
dalsár um helgina ásamt hópi fé-
laga sinna var þakklátur þegar
laugardagurinn var loksins að
kvöldi kominn. Í norðanbelgingi
og kulda hafði hann vaðið djúpt
við Víðihólma, þar sem vitað var
af laxi, og stigið í pytt svo flæddi
hressilega ofan í vöðlurnar. Ekki
fékk hann högg, sama hvað hann
reyndi. Þá ók hann niður að Stíflu
til að kanna aðstæður, en ekki fór
það vel, því hann pikkfesti bílinn.
Eftir langan tíma kom einn veiði-
félaganna á staðinn til að draga
bílinn upp. Þegar veiðimaðurinn
ætlaði í skottið að sækja tóg fór
ekki betur en svo að hann rann í
eðjunni og lá kylliflatur í drull-
unni. Það sem eftir lifði dags fór
hann víða og kastaði, en varð aldr-
ei var við fisk. Veiðimaðurinn var
því daufur í dálkinn er hann hitti
káta félaga í veiðihúsinu um
kvöldið – margir höfðu veitt ágæt-
lega og sumir sett í væna laxa.
En sunnudagurinn beið með
fögur fyrirheit og um nóttina fyllt-
ist veiðimaðurinn bjartsýni að
nýju, reif sig á fætur fyrir allar
aldir og var mættur á Steinnesið
klukkan sjö, en þar var von á laxi.
Eftir fimm mínútur hafði hann
sett í fyrsta laxinn, tuttugu mín-
útum seinna annan og þriðji lax-
inn var kominn á land um klukkan
níu. Svona getur veiðin verið.
Góð veiði í Húnavatnssýslu
Það er því ljómandi laxveiði á
silungasvæðinu í Vatnsdal, rétt
eins og á sama tíma í fyrra; bjart-
ur og fallegur lax var í rennum á
svæðinu neðan þjóðvegar, einkum
við Steinnes og Víðihólma. Reyt-
ingur af silungi var á svæðinu,
ekki síst í Stórhólmahyl, en holl
sem lauk veiði á fimmtudag lenti í
góðum göngum sjóbirtings og sjó-
bleikju við Akurshólma.
Á laxasvæði Vatnsdalsár hefur
veiðst vel, eða yfir 650 laxar, sem
er hátt í 300 meira en á sama tíma
í fyrra. Laxasvæðið gaf þá 779
laxa, þannig að veiðin verður ef-
laust mun betri í ár.
Vel veiðist í fleiri húnvetnskum
ám. Vefmiðillinn votnogveidi.is
greinir frá því að 47 laxar hafi
veiðst á stangirnar tvær í Laxá í
Ásum á tveimur dögum fyrir
skemmstu. Þá er Blanda komin
yfir 1.400 laxa, yfir 900 úr Mið-
fjarðará og 1.000 úr Víðidalsá.
Úr Þistilfirði fréttist af Hafra-
lónsá, sem komin er yfir 200 laxa
og þar er besti veiðitíminn enn
eftir.
Yfir 3.000 laxar úr Þverá –
Kjarrá og 1.200 úr Selá
Veiðimaður í Selá í Vopnafirði en þar hafa nú veiðst fleiri laxar en áður á sama tíma.
veidar@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn