Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ERLINGUR Vigfússon
óperusöngvari andaðist á
sjúkrahúsi í Köln í Þýska-
landi sl. sunnudag. Hann
fæddist 15. janúar 1936,
foreldrar hans voru
Kristjana Jensdóttir og
Vigfús Jónsson. Erlingur
ólst upp á miklu söng-
heimili á Hellissandi.
Faðir hans söng í kirkju-
kórnum á staðnum og
systir hans var orgelleik-
ari á Ingjaldshóli á Sandi.
Erlingur hóf snemma að
syngja í kirkjukórnum og
árið 1956 varð hann með-
limur í karlakórnum Fóstbræðrum. Á
þessum árum lagði Erlingur einnig
stund á söngnám hjá Sigurði Demetz
í fjögur ár, og tók þátt í óperuupp-
færslum Þjóðleikhússins. Árið 1964
fór hann í framhaldsnám til Ítalíu og
1966 fór hann með fjölskyldu sinni til
Kölnar. Þar stundaði hann nám við
Rheinische Musikakademie í Köln og
síðar í óperuskóla Kölnaróperunnar.
Árið 1969 var hann
fastráðinn hjá Köln-
aróperunni þar sem
hann söng helstu hlut-
verk óperubók-
menntanna. Árið 1986
hlaut Erlingur ævi-
ráðningu við óperuna
og starfaði þar þang-
að til hann lét af störf-
um 1998, þá 62 ára að
aldri.
Ásamt starfi sínu
við óperuna kynnti
Erlingur íslenska tón-
list í Þýskalandi og
söng einnig við marg-
ar konsertuppfærslur víðsvegar um
Evrópu. Fyrri kona Erlings var
Hulda Jónsdóttir og eignuðust þau
fjórar dætur; Mörtu Jónu, sjálfstætt
starfandi atvinnurekanda, Írisi, söng-
kennara við Söngskólann í Reykjavík;
Guðnýju Kristínu, kaupmann, og
Láru Björk, tölvunarfræðing.
Seinni kona Erlings var Irene Vig-
fússon.
ERLINGUR
VIGFÚSSON
Andlát
HELGI Njálsson, eigandi Ralph
Lauren-verslunarinnar á Lauga-
vegi, kveðst ekki vilja standa í ill-
deilum við Pálma Haraldsson,
framkvæmdastjóra Smáralindar,
en þó verði ekki hjá því komist að
svara ummælum Pálma í Morg-
unblaðinu í gær, enda sé um órök-
studdan rógburð að ræða. Pálmi
lét m.a. svo um mælt að rekstur
Ralph Lauren-verslunarinnar í
Smáralind hefði verið sorgarsaga
frá upphafi til enda og allt brugð-
ist í rekstri hennar; innréttingar,
þjónusta og vöruúrval. Helgi segir
fullyrðingu Pálma um að biðröð sé
eftir plássum í Smáralind mjög
undarlega.
Þótti verslunin áður glæsileg
„Þetta eru merkilegar staðhæf-
ingar því í fyrstu var verslunin ein
sú glæsilegasta í Smáralind að
hans mati og það var í raun ekki
fyrr en kvartað var undan fá-
menninu í verslunarmiðstöðinni að
verslunin varð „ljót og leiðinleg“
og skiljanlegt að enginn vildi fara
þar inn,“ segir Helgi.
„Eftir því sem næst verður
komist er þetta aðferð sem hann
beitir smærri kaupmenn í Smára-
lind, er hafa út á aðsóknina að
setja. Og ávirðingar Pálma í garð
okkar ágæta starfsfólks eru ekki
svaraverðar.“
Hann bendir á að rekstur versl-
unarinnar í Smáralind hafi ekki
gengið verr en það að allir reikn-
ingar til Smáralindar hafi verið
greiddir á tilskildum tíma og unnt
hafi verið að opna að nýju á
Laugaveginum. „Við mátum það
einfaldlega svo að ekkert sam-
ræmi væri á milli veltu, leigu og
raunverulegs fjölda viðskiptavina í
Smáralind, og því ákváðum við að
flytja á annan stað, þar sem leigan
væri hagstæðari og viðskiptavinir
fleiri. Aldrei stóð til að hætta
starfsemi Ralph Lauren á Íslandi,
eins og Pálmi heldur fram,“ segir
Helgi. Hann segir verslunina hér-
lendis á meðal stærstu viðskipta-
vina Ralph Lauren á Norðurlönd-
um og sé vöruúrval sambærilegt,
jafnvel meira en í verslunum í
Evrópu. Þá sé verðlagið ekki
verra en það að margir erlendir
ferðamenn sjái sér hag í að versla
þar fremur en á eigin heimaslóð-
um.
Næsta rými autt í sjö mánuði
„Pálmi segir að verið sé að bera
saman epli og appelsínur þegar
borið er saman leiguverð á „versta
stað“ í Kringlunni og „besta“ stað
í Smáralind. Við erum ósammála
því að verslun okkar í Kringlunni,
sem stendur við hlið Boss, Next
og Bónus, sé á „versta“ stað í
Kringlunni. Hins vegar hefur
verslunarpláss við hliðina á okkur
í Smáralind staðið autt í meira en
sjö mánuði, þannig að fullyrðing
Pálma um að biðröð sé eftir laus-
um plássum er afar undarleg.“
Eigandi Ralph Lauren segir framkvæmdastjóra
Smáralindar fara með órökstuddan rógburð
Ekki biðröð eftir plássi
HANS Christian Schmidt,
sjávarútvegs- og matvæl-
aráðherra Danmerkur,
hefur verið í vinnuheim-
sókn hérlendis undanfarna
daga. Hann heimsótti m.a.
Siglufjörð og Skagafjörð
með íslenskum starfs-
bróður sínum, Árna Mat-
hiesen. Ráðherrarnir
skoðuðu m.a. Síld-
arminjasafnið á Siglufirði
og kynntu sér rannsókna-
starf í fiskeldi á Hólum.
Hér eru þeir fyrir miðri
mynd og hlýða á fróðleik
hjá Helga Thorarensen,
deildarstjóra fiskeld-
isdeildarinnar. Þá kynnti
ráðherrann sér starfsemi
Hafannsóknastofnunar-
innar áður en hann hélt af
landi brott í gær.
Sjávarútvegsráðherrarnir
kynntu sér fiskirannsóknir
Morgunblaðið/jt
EINN af 40 ákæruliðum í Baugsmálinu
snýst um tvo reikninga, samtals að upphæð
108,6 milljónir íslenskra króna sem efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra segir að
séu tilhæfulausir og hafi verið notaðir til að
láta líta svo út að hagnaður Baugs hf. hafi
verið 24,6% meiri en efni stóðu til á fyrstu
sex mánuðum ársins 2001. Þessu er neitað af
hálfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Tryggva Jónssonar og m.a. bent á að hefði
vilji þeirra staðið til að hafa áhrif á hagnað
félagsins hefði þeim verið í lófa lagið að gera
það með öðrum hætti.
Hin meintu brot varða almenn hegning-
arlög, lög um ársreikninga og lög um hluta-
félög.
Annars vegar er um að ræða reikning frá
færeyska verslunarfélaginu p/f SMS, sem
Baugur hafði þá eignast helmingshlut í, að
upphæð 46,7 milljónir íslenskra króna og
hins vegar frá Nordica Inc. í Bandaríkjunum
að fjárhæð 61,9 milljónir. Í ákæru ríkislög-
reglustjóra eru þessir reikningar sagðir til-
hæfulausir og að þeir Jón Ásgeir og Tryggvi
hafilátið færa þá til tekna í bókhaldi Baugs
og með því oftalið tekjur Baugs sem þessu
nam og fram kom í árshlutareikningi fyrir
tímabilið 1. janúar til 30. júní 2001 sem birt-
ur var á Verðbréfaþingi Íslands. Í reikn-
ingnum hafi verið gefið til kynna að
EBITDA-hagnaður fyrstu sex mánuði ársins
vær 15,6% hærri og hagnaður 24,6% hærri
en var í raun. Samkvæmt árshlutareikn-
ingnum var hagnaður Baugs hf. 373 milljónir
á þessu tímabili.
Tveir kreditreikningar
Í athugasemdum sakborninga eru gefnar
skýringar á þessum færslum og jafnframt
vísað til tveggja bréfa Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar til ríkislögreglustjóra og birt voru í
Morgunblaðinu í byrjun júlí.
Í athugasemdunum segir að um sé að
ræða tvo kreditreikninga frá fyrirtækjunum
og þeir eigi sér eðlilegar skýringar. Rifjað er
upp að reikningurinn frá Nordica hafi verið
hluti upphaflegra ásakana ríkislögreglu-
stjóra um fjárdrátt þegar húsleit var gerð í
höfuðstöðvum Baugs í lok ágúst 2002. Reikn-
ingurinn hafi í raun verið gefinn út í kjölfar
samningaviðræðna milli Jóns Ásgeirs og
Jóns Geralds Sullenberger, eiganda Nordica,
vegna viðskipta Baugs og Nordica á árunum
1992–2002 sem hafi numið um 700 milljónum
króna og óánægju vegna mikils lagers af
óseldum vörum. Er m.a. vísað til tölvupósts
sem ríkislögreglustjóri hafi undir höndum
þar sem fram komi ummæli stjórnenda
Baugs um „60 milljóna vandræðalager“ af
vörum frá Nordica.
Afsláttur færður fyrirfram
og síðan bakfært
Í bréfi Jóns Ásgeirs frá 5. júní sl. er vakin
athygli á því að í upphafi hafi ríkislög-
reglustjóri talið að reikningurinn sýndi að
hann og Tryggvi Jónsson hefðu gerst sekir
um fjárdrátt en síðan hafi því verið snúið á
haus og þeir sakaðir um að nota reikninginn
til að sýna aukinn hagnað félagsins. Þá hafi
skattrannsóknarstjóri ekki gert athugasemd-
ir við meðferð á umræddum reikningi.
Varðandi reikninginn frá Færeyjum segir
í athugasemdum sakborninga að hann hafi
verið gefinn út vegna fyrirfram greidds af-
sláttar í tengslum við fyrirhuguð kaffivið-
skipti sem síðan hafi ekkert orðið úr. Reikn-
ingurinn hafi verið bakfærður innan
reikningsársins og því ekki haft nokkur áhrif
á ársreikning félagsins. Hefðu sakborningar,
þeir Jón Ásgeir og Tryggvi, ætlað að hafa
áhrif á hagnað félagsins á þessu tímabili
„hefði þeim verið í lófa lagið að gera það með
öðrum hætti, t.a.m. með því að færa aukna
hlutdeild í gengishagnaði vegna hlutabréfa
félagsins í Arcadia, sbr. tilkynningu félagsins
til Kauphallar um sex mánaða uppgjör … og
draga úr gjaldfærslum vegna niðurfærslu
birgða,“ segir í athugasemdunum.
Vegna rannsóknarinnar á Baugsmálinu
gerðu starfsmenn efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra húsleit í höfuðstöðvum SMS
í Færeyjum 10. september 2002, um hálfum
mánuði eftir að húsleit var gerð í höfuðstöðv-
um Baugs á Íslandi. Einnig voru menn sem
tengjast SMS yfirheyrðir. Í samtali við
Morgunblaðið að kvöldi 10. september sagði
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri að
saksóknari embættisins hefði verið að störf-
um í Færeyjum undanfarna daga ásamt end-
urskoðanda og rannsóknarlögreglumönnum.
Ákært vegna reikninga frá Nordica Inc. og verslunarfélaginu SMS í Færeyjum
Sakaðir um að auka hagnað með
tilhæfulausum reikningum
Segja að þeim hefði verið í lófa lagið að hafa
áhrif á hagnað með öðrum hætti
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ICELANDAIR Cargo tók um
helgina við nýrri Boeing 757-200-
fraktvél og á hún að fara fyrstu ferð-
ina í kvöld, þriðjudagskvöld, til Bret-
lands og Belgíu. Vélin var notuð í
farþegaflugi en breytt til fraktflutn-
inga og getur hún borið 32 tonn. Hún
ber skráningarstafina TF-FIE.
Pétur J. Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Icelandair Cargo, segir að vél-
in verði notuð í áætlunarfraktflugið
til Bretlands, Norðurlanda og Liege
í Belgíu, til Halifax í Kanada og New
York. Pétur segir aukningu hafa ver-
ið bæði í innflutningi og útflutningi
og þörf á að útvíkka leiðakerfið, sem
standi til á næstunni.
Þá segir Pétur að næsta vetur
verði breytt B757-farþegaþotu Ice-
landair, TF-FIH, til að nota í frakt-
flug. Er gert ráð fyrir henni í áætl-
unarflug Icelandair Cargo í apríl.
Verður það fjórða B757-fraktþotan
sem Icelandair Cargo hefur í rekstri.
Ný fraktvél til
Icelandair Cargo
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins