Morgunblaðið - 16.08.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÚR VERINU
VERÐ á útfluttum laxi frá Noregi
hefur nokkuð gefið eftir undanfarnar
vikur eftir að hafa náð hámarki árs-
ins fyrir um mánuði. Verðið á lax-
inum nú er þó enn mjög hátt eða um
28 norskar krónur hvert kíló, sem er
um 31% hærra verð en á sama tíma í
fyrra. Hækkunin frá áramótum er
rétt ríflega 20%.
Hæst hefur verðið farið í 30 norsk-
ar krónur hvert kíló í ár.
Frá þessu er sagt í Morgunkorni
Íslandsbanka Þar segir ennfremur
ennfremur að ekki sé búist við hækk-
unum á laxaverði á næstu vikum,
flestir spái því að núverandi verð
muni haldast lítið breytt á næstunni.
Verð á laxi
lækkar
!! "#$$$!%!
& LANDSSAMBAND íslenskra út-
vegsmanna hefur veitt Hlyni Ár-
mannssyni líffræðingi styrk að upp-
hæð kr. 500.000 til framhaldsnáms
í fiskifræði. Um er að ræða árlegan
styrk sem veittur var í fyrsta sinn
árið 1998. Styrkurinn er ætlaður
náttúrufræðingum sem hafa lokið
eða eru að ljúka grunnnámi í há-
skóla (BS-prófi) og hyggjast hefja
framhaldsnám erlendis á næsta
skólaári.
Hlynur mun stunda nám til
meistaraprófs við Háskóla Íslands
undir leiðsögn Guðrúnar Marteins-
dóttur prófessors. Námið fer að
hluta til fram við Dalhousie-háskóla
í Kanada. Rannsóknaverkefni
Hlyns fjallar um far og útbreiðslu
ufsa við Ísland og Kanada.
Fiskifræði Hlynur Ármannsson hlaut að þessu sinni námsstyrk LÍÚ til
framhaldsnáms í fiskifræði. Á myndinni eru f.v. Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, Hlynur Ármannsson líffræðingur og dr. Kristján
Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ.
Hlynur Ármannsson
hlýtur námsstyrk LÍÚ
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HAGNAÐUR Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar, SPH, fyrstu sex mánuði
ársins nam 183 milljónum króna
og dróst saman um nær 34% mið-
að við sama tímabil 2004.
Vaxtatekjur námu 1.803 millj-
ónum króna og jukust um 33%.
Vaxtagjöld námu 1.142 milljónum
króna og jukust þau um 36,6%.
Hreinar vaxtatekjur námu því 661
milljón króna og hækka um 26%
milli ára.
Hreinar rekstrartekjur námu
tæpum 1,1 milljarði króna.
Rekstrargjöld jukust um 18%
milli tímabila. Hlutfall rekstr-
arkostnaðar af tekjum á tímabilinu
var 71% og hækkaði úr 53,5% frá
því á sama tíma á síðasta ári.
Heildareignir SPH hinn 30. júní
námu 38.383 milljónum króna og
hafa þær lækkað um 0,5% frá ára-
mótum.
Útlán sjóðsins námu 29.798
milljónum króna á tímabilinu og
jukust um 14,8% frá áramótum.
Innlán námu 17.595 milljónum
króna og jukust um 8,4% frá ára-
mótum.
Eiginfjárhlutfall var í lok júní
13,2% en var 12,2% um síðustu
áramót.
SPH hagnast um
183 milljónir
● HEILDARVELTA í Kauphöll Íslands í
gær nam ríflega 2,4 milljörðum
króna, þar af var velta með hlutabréf
fyrir um 1,8 milljarða.
Mest hækkun varð á bréfum
Landsbanka, 2,4%, en mest lækkun
varð á bréfum FL Group, 2%.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 0,42% og er nú 4.458 stig.
Landsbanki
hækkaði mest
HOLLENSKA fyrirtækið Fugro
hefur gert yfirtökutilboð í norska
olíuleitarfyrirtækinu Exploration
Resources A.S.A. þar sem Burðar-
ás er næststærsti hluthafi. Yfir-
tökutilboðið hljóðar upp á 250
milljónir evra, samsvarandi 19,7
milljörðum króna, og myndi Burð-
arás fá 1,64 milljarða króna í sinn
hlut af því.
Hagnaður félagsins yrði um einn
milljarður króna samkvæmt upp-
lýsingum frá Burðarási.
Ragnar Þórisson, fjárfestinga-
stjóri á Norðurlöndum hjá Burðar-
ási, segir í samtali við Morgun-
blaðið að Burðarás hafi fjárfest í
Exploration Resources fyrr í sum-
ar þar sem gengi hluta í félaginu
þótti mjög lágt auk þess sem fýsi-
legt sé að fjárfesta í olíugeiranum
um þessar mundir.
Að sögn Ragnars var ekki lagt
út í þá fjárfestingu með það í huga
að yfirtökutilboð væri á leiðinni.
„Það kemur okkur þó ekki á
óvart,“ segir hann. Fréttastofan
Reuters greinir frá því að G.C.
Rieber & Co., stærsti hlutahafi í
Exploration Resources með 20,4%
hlutafjár, hafi þegar tekið tilboði
Fugro, en að sögn Ragnars eru
sögusagnir á norska hlutabréfa-
markaðnum þess efnis að hærra
tilboð gæti jafnvel borist en nokkr-
ir aðilar munu hafa lýst áhuga á
félaginu.
Gengi Exploration Resources
hækkaði um 31,25% í kauphöllinni
í Ósló í gær og endaði það í 315
krónum/hlut en tilboð Fugra hljóð-
ar upp á 290 krónur/hlut. Ýtir það
undir sögusagnir um hærri tilboð.
Burðarás gæti hagnast
um 1 milljarð króna
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Höfuðstöðvar Burðaráss.
EINAR Þór Sverrisson, lög-
maður, var kjörinn inn í
stjórn sænska lággjaldaflug-
félagsins Fly Me á aukaað-
alfundi sem haldinn var í
gær. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Vangaveltur hafa verið
uppi um framtíð félagsins,
sem bæði Fons eignarhalds-
félag og Burðarás eru stórir
hluthafar í. Norski flugvefur-
inn Boarding.no velti m.a.
vöngum yfir því hvort aðal-
fundurinn myndi taka um það
ákvörðun að leggja félagið
niður en jafnframt hvort
Fons myndi taka það yfir.
Engin slík ákvörðun var tekin
á fundinum samkvæmt til-
kynningunni.
Í stjórn
Fly Me
ÞAÐ virðist ætla að verða harður
slagur um breska fyrirtækið London
Stock Exchange, sem rekur kaup-
höllina í London. Deutsche Börse,
sem rekur kauphöllina í Frankfurt,
og Euronext, sem m.a. rekur kaup-
höllina í París, hafa áður gert yfir-
tökutilboð í LSE án árangurs. Þessi
félög eru þó ekki af baki dottin en
ennfremur hafa sænska félagið
OMX og ástralski bankinn Mac-
quarie verið orðuð við slíka yfirtöku.
Segja má að OMX hafi verið sá að-
ili sem kom öllu ferlinu í gang en fé-
lagið gerði fyrir einum fimm árum
tilboð í kauphöllina í London, sem nú
er 300 ára gömul. Tilboðið vakti
mikla athygli, enda sennilega engum
dottið í hug að hægt væri að kaupa
þessa sögulegu stofnun. Tilboðinu
var hafnað, með látum, en það varð
engu að síður til þess að margir hafa
litið LSE hýru auga síðan.
Sá aðili sem nú er hvað mest orð-
aður við LSE er Macquire, stærsti
fjárfestingarbanki Ástralíu. Athygli
vekur yfirlýsing frá stjórnendum
bankans þess efnis að bankinn íhugi
að bjóða í kauphöllina. Reuters
greinir frá því að verði tilboðið að
veruleika muni það hljóða upp á 1,4
milljónir punda, sem samsvarar
161,5 milljörðum króna.
Gengi LSE hækkaði um 4,71% í
gær.
Hart barist um
breska kauphöll
'(
)!*+,-.
/
)0*+,-.
/+1
-. 2
*+,-.
23*+,-.
/*
"!-.
4
"%
!-.
5
1%
!-.
6
+,7! /
-.
60 + -.
3
"%
!4
"-.
8
-.
942-.
9
++2 . !
%
!-.
:+-.
!"
'
*+,-.
2!
1+4
"-.
,!1
-.
3.; !1+! -. 8
!(2
-! -.
<- !-.
= .
!,!-.
>2'
!(> +
90 +!101-
1.?!--.
@? !
!101! -.
A! +01! -.
# !
$%
2! "!B?
.
1
-. 3
"!4
"-.
9 +.C
9+1+
").
@;!.;!-.
$
&'()
DEBF
91
)!1) 1
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
/ ?! .
.?
)!1) 1
G
G G
G
G
G
G G
G
G
G G
G G
G
G
G
G
G
G
G
G
HIJ
HIJ
HIJ
G
HGIJ
G
H
IJ
G
G
G
H
IJ
HIJ
H
IJ
H
IJ
HIJ
HGIJ
G
G
G
HG
IJ
G
HGIJ
G
G
G
G
G
G
G
G
G
! "
)!1!,!
"
!
@! %1 "
#
6
+,9
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
A!1!,!7
'@K'-+ +
!! 20 "!
)!1!,
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
G
'@GA
.?!)
+. 0 + .C
'@G
A
.?!-+
1
. !
'@G2?!-+
1+
+ !
"
L
9M>
I
I
2@9B
N'O
I
I
E'E
=8O
I
I
62O
! !
I
I
DEBO N$5
I
I