Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 14

Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT AÐ MINNSTA kosti sex farþega kýpversku þot- unnar, sem fórst skammt frá Aþenu á sunnudag, voru á lífi þegar flugvélin lenti á fjallshlíð. „Við höfum lokið krufningu á sex manns. Niðurstaða okkar er sú að blóðrás þeirra hafi verið í gangi sem og öndun þegar þeir létust,“ sagði gríski meina- fræðingurinn Filipos Koutsaftis í gærkvöld. En hann lagði áherslu á að þetta útilokaði ekki að fólk- ið hefði verið meðvitundarlaust. Fyrr um daginn höfðu grísk stjórnvöld sagt það líklegt að flestir farþeganna hefðu verið látnir þegar vélin hrapaði til jarðar. Með vélinni fórst 121, farþegar og áhöfn. Flestir þeirra sem fórust voru frá Kýpur og hef- ur verið lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í land- inu. Að minnsta kosti fimmtán þeirra sem fórust voru börn undir 10 ára aldri en þeir einu um borð, sem ekki komu frá Kýpur voru flugstjórinn, sem var þýskur, og tíu Grikkir. Líkin „frosin föst“? Yfirvöld leita nú skýringa á því hvernig staðið getur á því að svo virðist sem bæði áhöfn og far- þegar hafi misst meðvitund í miðju fluginu. Hafði AFP-fréttastofan í gærdag, áður en Koutsaftis greindi frá niðurstöðu krufninga, eftir embætt- ismönnum og sérfræðingum í flugmálum að líkleg- asta skýringin væri sú að skyndilegt loftþrýstings- fall hafi valdið því að allir um borð köfnuðu. Haft var eftir grískum embættismönnum að lík farþeg- anna hefðu verið „frosin föst“. En Koutsaftis kvaðst ekki geta staðfest þetta, líkin hefðu brunn- ið illa eftir að flugvélin fórst og sólin hefði einnig leikið þau grátt. „Það er einfaldlega útilokað – eft- ir að líkin voru brennd og eftir að þau höfðu legið svo lengi í sólinni – að kveða upp úr um þetta,“ sagði hann. Búið er að finna báða flugrita vélarinnar, sem var af gerðinni Boeing 737 og í eigu Helios-flug- félagsins kýpverska. Sá seinni er hins vegar í slæmu ásigkomulagi og ekki víst að neitt verði á honum að græða. En flugritarnir munu verða sendir til Parísar til rannsókna. Segist sjálfur fljúga með Helios Talsmenn Helios, sem er lággjaldaflugfélag, báru um miðjan dag í gær til baka fréttir þess efn- is að þeir hefðu ákveðið að aðrar flugvélar félags- ins færu ekki á loft. Sagði Andreas Drakou for- stjóri að flug væri skv. áætlun. Þá neitaði hann fregnum þess efnis að flugmenn hjá Helios hefðu neitað að fljúga vélinni, sem fórst í fyrradag, vegna annmarka í öryggismálum hennar. Vísaði hann algerlega á bug ályktunum í þá veru að Helios Airways hefði sýnt kæruleysi hvað varðar öryggismál flugvéla félagsins. „Ég flýg sjálfur reglulega með Helios ásamt börnum mínum og það myndi ég aldrei gera ef það væri ekki fyllilega öruggt,“ sagði hann. Lögreglan á Kýpur fram- kvæmdi engu að síður leit í húsakynnum Helios í gærkvöld. Enginn var þó handtekinn. Ekki allir farþegarnir látnir þegar vélin fórst Forráðamenn Helios Airways neita því að öryggi hafi verið ábótavant Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is AP Ættingjar fólks sem dó í flugslysinu brustu í grát eftir að hafa þurft að bera kennsl á ástvini í gær. FLUGSLYSINU skammt frá Aþenu á sunnudag svipar til flugslyss í Suður-Dakóta haustið 1999 sem varð hinum þekkta golfleikara Payne Stewart að bana ásamt fimm öðrum. Þá, eins og nú, voru orr- ustuþotur sendar á loft til að fylgja eftir vélinni eftir að samband við hana rofnaði og vitnuðu herflug- mennirnir um hélu innan á rúðum. Skapast slíkt ástand eftir þrýstings- fall og skyndilegt hitatap. Líklegast þótti að allir hefðu misst meðvitund í kjölfarið. Atvik þar sem loftþrýstingur fell- ur í flugvélum hafa nokkrum sinn- um á liðnum árum átt sér stað í ís- lensku fragtflugi að sögn Þormóðs Þormóðssonar, rannsóknarstjóra Rannsóknarnefndar flugslysa. Um- rædd atvik eru flokkuð sem alvar- leg flugatvik en í þeim brugðust flugmenn samkvæmt verklagi við þrýstingsfallinu með því að setja á sig súrefnisgrímur og lækka flugið verulega, niður í hæð þar sem loft- þrýstingur er hærri. Þetta virðist ekki hafa tekist hjá flugmönnum kýpversku þotunnar. Hugsanleg skýring á snöggu þrýstingsfalli gæti verið leki vegna gats á vélinni eða önnur bilun í jafn- þrýstibúnaðinum svo sem bilun í þrýstiventli að sögn Þormóðs. „Flugmenn þurfa að bregðast snöggt við þrýstingsfalli ef það hendir í 34 þúsund feta hæð eins og talið er að hér hafi verið raunin,“ segir Þormóður. „Flugmenn eru sérstaklega þjálfaðir í þessum at- riðum og alla- jafna hafa þeir um 15–30 sek- úndur til að setja á sig súrefnis- grímur í þessari hæð. Það kann þó að vera að flugmennirnir á kýpversku vél- inni hafi ekki náð því í tæka tíð, eða að þeir hafi ekki fengið súrefni úr grímunum.“ Þormóður segir þrýstingsfall alls ekki mesta ógn- vald í flugi, því súrefnisbúnaður í vélum og þjálfun flugmanna eiga að geta tekið á atvikum sem þessum, eins og dæmin hafa sýnt á Íslandi. „Þetta á því ekki að valda slysi,“ bendir Þormóður á. „En ég geri ráð fyrir rannsakendurnir leggi áherslu á í upphafi að skoða gögn flugritanna og jafnframt að finna súrefnisgrímur, ventla og súrefn- iskút í stjórnklefa vélarinnar. Einn- ig verður áhersla lögð á að finna og rannsaka alla helstu hluti jafn- þrýstibúnaðar flugvélarinnar.“ Hann tekur fram að einn súrefnis- kútur sé fyrir báða flugmenn og ef eitthvað vandamál er varðandi kút- inn þá er hugsanlegt að þeir fái ekkert súrefni. Jafnþrýstibúnaði í flugvélum er ætlað að halda loftþrýstingi eins og hann væri í 7–9 þúsund feta hæð. Dælur sjá um að dæla inn lofti og það loft er einnig notað til að hita upp farþegarýmið. Þar er komin möguleg skýring á því hvers vegna fimbulkuldi innanborðs tekur völd- in þegar loftþrýstingurinn fellur. Hafa 15–30 sekúndur til að bregðast við þrýstingsfalli Eftir Örlyg Stein Sigurjónson orsi@mbl.is Þormóður Þormóðsson Berlín. AFP. | Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, var í gær sak- aður um kosningabrellur en nokkur dagblöð og stjórnarandstaðan í land- inu segja augljóst að með yfirlýsing- um sínum um Íransmálin vilji hann reyna að leika sama leikinn og fyrir þremur árum en hörð andstaða hans við innrásina í Írak tryggði honum óvæntan sigur á endaspretti barátt- unnar fyrir þingkosningarnar 2002. Schröder hóf baráttu jafnaðar- manna (SPD) vegna þingkosning- anna 18. september nk. með ræðu um helgina þar sem hann lýsti því yf- ir að hótanir um valdbeitingu gegn Írönum væru út í hött; en Schröder var þar að vísa til ummæla George W. Bush Bandaríkjaforseta á föstu- dag um að ekki væri hægt að útiloka hernaðaraðgerðir gegn Írönum vegna fyrirætlana þarlendra ráða- manna í kjarnorkumálum. „Dæmir sig úr leik“ En þýsk útgáfa Financial Times sagði ræðu Schröders um helgina skaða viðræðurnar við Írana. „Schröder hyggst reyna að sigra aft- ur í kosningum nú sem kanslari frið- arins, þetta er augljóst. En afstaða hans byggist á rangfærslum og er heimskuleg,“ sagði blaðið. „Banda- ríkjamenn eru alls ekkert um það bil að ráðast á Íran, eins og þeir voru um það bil að ráðast á Írak 2002. Vilji menn reka skynsamlega stefnu í ör- yggis- og utanríkismálum halda þeir hins vegar alltaf öllum kostum opn- um, það má ná ýmsu fram með þrýstingi sem byggist á hótun,“ sagði þar ennfremur. Handelsblatt sagði Schröder „enn á ný hafa dæmt sig úr leik sem vís stjórnmálamaður“ með ræðu sinni og Die Welt sagði að kanslarinn „ætti að skammast sín“. Reuters Gerhard Schröder ávarpaði í gær flokksmenn sína í Dresden. Ummæli Schröders gagnrýnd Washington. AFP. | Lífshamingj- an er föl fyrir peninga að því er greinir frá í nýrri bandarískri rannsókn. Niðurstöður hennar sýna að ríkt fólk á það til að vera hamingjusamara en þeir sem fátækari eru. Það hvernig menn meta eigin hamingju virðist þó að miklu leyti stjórn- ast af því hvernig þeir telja sig koma út í samanburði við aðra. Hefur afbrýðissemi þar mikið að segja, því lægri sem tekjur einstaklings eru miðað við aðra í hans aldurshópi, því minni er hamingja hans. Þeir sem standa að rann- sókninni segja hana senda sam- félaginu sterk skilaboð: fólk sé svo upptekið af því að bera tekjur sínar saman við tekjur annarra, að það sækist sífellt eftir því að græða meira og meira. Í stað þess að öðlast al- menna hamingju, dragist fólk inn í hið hraða lífsgæðakapp- hlaup og neyslan verði meiri og meiri, en raunveruleg hamingja standi nær í stað. Hamingjan er föl, en hverful Colombo. AFP, AP. | Útför Lakshman Kadirgamar, utanríkisráðherra Sri Lanka, fór fram í gær að viðstöddu margmenni en hann var ráðinn af dögum sl. föstudag. Hefur morðið á honum orðið til þess að menn óttast um framhald friðarferlis á Sri Lanka, sem Norðmenn hafa haft milligöngu um, en stjórnvöld hafa sakað Tamíl-tígrana, aðskilnaðar- samtök tamíla, um að bera ábyrgð á morðinu. Mikill viðbúnaður var í Colombo vegna útfararinnar og voru þúsundir lögreglumanna á verði. Chandrika Kumaratunga, forseti Sri Lanka, sótti óvænt útförina en ekki hafði verið reiknað með þátttöku hennar af öryggisástæðum. Hún hafði á sunnudag heitið því að efla baráttu sína fyrir friði á Sri Lanka. Tamíl-tígrar, sem barist hafa gegn stjórnvöldum á Sri Lanka um ára- tugaskeið, neita allri aðild að morð- inu á Kadirgamar og hafa sagt, að ríkisstjórnin yrði „að líta sér nær“. Ýmis öfl meðal Singhalesa, sem eru meirihluti landsmanna, væru andvíg vopnahléi því sem ríkt hefur síðan 2002 og vildu það feigt. Þjóðarleiðtogar og ríkisstjórnir víða um heim hafa fordæmt morðið á Kadirgamar utanríkisráðherra og lýst þeirri von sinni, að það verði ekki til, að núgildandi vopnahlé fari ekki út um þúfur. Utanríkisráðherrann syrgður Óttast er um framtíð vopna- hlés á Sri Lanka Reuters Stuðningsmenn Lakshman Kadirgamars halda á lofti spjöldum með myndum af honum í líkfylgd hans í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.