Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 15

Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 15 ERLENT Tókýó. AP. | Japanar minntust þess í gær að 60 ár eru liðin frá því að þeir gáfust upp í síðari heims- styrjöldinni, en uppgjöf þeirra markaði endalok Kyrrahafshluta styrjaldarinnar, með því að biðja aðrar Asíuþjóðir afsökunar á því hvernig þeir komu fram í stríðinu, á þeim „mikla skaða og sársauka“ sem þeir ollu nágrannaþjóðum sínum. Junichiro Koizumi forsætisráðherra fór ekki að minnisvarða um Japana sem féllu í stríðinu í tilefni dagsins eins og hann hefur þó gert fjórum sinnum síðan hann tók við embætti forsætisráð- herra, en það hefur farið mjög fyrir brjóstið á þeim þjóðum sem liðu fyrir grimmdarverk Jap- ana í stríðinu. Tugir þingmanna fóru á hinn bóginn, þar á meðal tveir ráðherrar, auk þess sem tugir þús- unda borgara komu á staðinn. Minnisvarðinn hefur verið Kínverjum og Suður-Kóreumönnum mikill þyrnir í augum en við hann eru meðal ann- ars dæmdir stríðsglæpamenn heiðraðir. Saka þessar þjóðir Japana um að iðrast ekki af ein- lægni og benda í því sambandi á kennslubækur sem gefnar voru út í apríl þar sem fjallað var um seinni heimsstyrjöldina en lítið sem ekkert minnst á glæpi Japana. Segir Japana auðmjúka Það var Koizumi sem baðst afsökunar á fram- göngu Japana í stríðinu í gær og fullyrti hann að þjóðin væri auðmjúk þegar kæmi að því að gera upp þátt hennar í stríðinu. „Japanar ollu gríð- arlegum skaða og þjáningum hjá mörgum þjóð- um, sérstaklega þjóðum í Asíu, með nýlendu- stjórn sinni og yfirgangi,“ sagði Koizumi við athöfn í Tókýó þar sem 7.000 ekkjur og ekklar sem misstu maka sína í styrjöldinni voru við- stödd. „Ég biðst hér enn og aftur innilegrar af- sökunar og læt í ljós iðrun og sorg vegna allra fórnarlamba stríðsins, bæði hér heima og er- lendis,“ sagði hann. Japan biðst afsökunar 60 ár frá uppgjöf Japana í síðari heimsstyrjöld Helsinki. AFP, AP. | Fulltrúar stjórnvalda í Indónesíu og að- skilnaðarsinna í Aceh-héraði skrifuðu í gær undir friðar- samkomulag í Helsinki í Finn- landi sem vonast er til að marki lyktir þrjátíu ára langra átaka í Aceh sem talið er að hafi kostað um fimmtán þúsund manns lífið. „Þetta markar upphaf nýrra tíma í Aceh,“ sagði Martti Ahti- saari, fyrrverandi forseti Finn- lands, en hann hafði milligöngu um gerð samkomulagsins. „Mikil vinna er þó framundan.“ Tilraunir til að binda enda á átökin í Aceh komust á skrið eftir flóðbylgjuna miklu í SA-Asíu í desember á síðasta ári en hún lagði stór svæði í Aceh, sem er vestast á eyjunni Súmötru, í rúst. Er talið að meira en 130 þúsund manns hafi farist þar. Enn nokkur spenna Aðskilnaðarsinnar í Samtökum um frjálst Aceh (GAM) sam- þykkja fyrir sitt leyti með samn- ingsgerðinni að láta af kröfu sinni um fullt sjálfstæði til handa Aceh og þá kveður samkomulagið á um að þeir afvopnist. Í staðinn skrifa þeir upp á að Aceh hafi tiltekið forræði í eigin málum, auk þess sem GAM mun í framtíðinni geta umbreyst í stjórnmálaflokk. Indónesísk stjórnvöld munu hins vegar minnka verulega um- fang Indónesíuhers í Aceh, verð- ur hermönnum fækkað þar úr 35.000 í 14.700 og lögreglumönn- um úr 15.000 í 9.100. Einnig verð- ur pólitískum föngum frá Aceh sleppt úr haldi og mörgum liðs- mönnum GAM veittur landskiki ir að þeir hafi afvopnast. Sagði hann að þá yrði að afvopna einnig. Átök hófust í Aceh 1976 en upp- reisnarmenn sökuðu stjórnvöld í Jakarta um að arðræna svæðið. Svöruðu indónesísk stjórnvöld of- beldi skæruliða af mikilli hörku. hermenn staðsettir í Aceh en nokkurs staðar annars staðar í Indónesíu,“ sagði hann eftir að hafa undirritað friðarsáttmálann. Þá vakti Mahmud athygli á tilvist vopnaðra sveita manna sem hótað hafa árásum á liðsmenn GAM eft- til að eiga auðveldara með að að- lagast samfélaginu á ný. Fulltrúi GAM, Malik Mahmud, sagðist þó enn telja að viðvera ör- yggissveita stjórnvalda væri of mikil. „Við lyktir þessarar sátta- gjörðar hér verða tvöfalt fleiri Samið um frið í Aceh AP Íbúar Aceh fagna undirritun friðarsamkomulagsins í gær en fylgst var með athöfninni í Helsinki í beinni sjónvarpsútsendingu víða í Banda Aceh-borg. Vonast menn til þess að þrjátíu ára átökum sé lokið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.