Morgunblaðið - 16.08.2005, Page 16
Akureyri | Þau voru heldur kuldaleg og blaut
hrossin sem hímdu í hóp á túni ofan Akureyrar
í votviðrinu sem gekk yfir fyrri part gærdags-
ins. Snéru afturendanum upp í norðanáttina og
biðu þess eflaust í ofvæni að birti aðeins til.
Heldur fór að draga úr rigningunni þegar leið á
daginn og síðdegis var þokkalegasta veður, í
það minnsta þurrt. Mörgum þykir sumarið hafa
verið í kaldara lagi, en til viðmiðunar eru tvö
síðastliðin sumur, sem ekki er alveg að marka.
Þau voru einhver þau hlýjustu í manna minn-
um.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hrossin hímdu í hóp
Votviðri
Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Met hjá Papeyjarferðum | Allt stefnir
í að nýtt met verði sett í farþegafjölda út
í Papey þetta sumarið. Að sögn Más
Karlssonar framkvæmdastjóra hafa nú
ferðast um 1240 farþegar með farþega-
ferjunni á þessu ári. Allt árið 2004 urðu
farþegar 1414. Því er líklegt að nýtt met
verði slegið áður en sumarið er úti, enda
hefur ferðamannastraumur líklega aldrei
verið meiri á Djúpavogi en undanfarnar
vikur.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Rollurnar reknar úr bæjarlandinu |
Mikið hefur verið að gera hjá lögregl-
unni á Ísafirði undanfarið við að reka
rollur úr bæjarlandinu, en þetta kemur
fram á vef lögreglunnar. Þar segir að
nærri daglega hafi rollurnar komið til
beitar í húsagörðum, nýræktinni í snjó-
flóðavarnargarðinum og inni í Tungu-
skógi.
Sé bæjarbúum mikill ami að þessu og
mjög margar kvartanir hafi borist lög-
reglu. Rollueigendurnir vísi á bæjaryf-
irvöld sem ábyrgðaraðila, þar sem „bær-
inn eigi að girða af bæjarlandið og passa
að gera við ef eitthvað bilar þar“.
Sjómannalög | Hljómsveitin Roðlaust og
beinlaust, sem að mestu er skipuð áhöfn-
inni á frystitogaranum Kleifabergi frá
Ólafsfirði, lék um síðustu helgi á mikilli
tónlistarhátíð í bænum Paimpol í Frakk-
landi. Þessi hátíð, sem haldin er á tveggja
ára fresti, er sérstaklega tileinkuð sjó-
mannalögum og þar er eingöngu leikin
tónlist sem tengist sjómennsku eða sjó-
sókn. Á hátíðinni komu fram tónlist-
armenn frá mörgum Evrópulöndum en
áherslan í ár var á tónlist frá gömlu aust-
antjaldslöndunum og voru tónlistarmenn
frá þeim hluta álfunnar áberandi.
Björn Valur Gíslason, forsprakki hljóm-
sveitarinnar, segir við netmiðilinn Dag að
hátíðin hafi verið mjög vel sótt í ár, um
120.000 manns greiddu sig inn á svæðið
að þessu sinni sem gerir hátíðina að einni
stærstu tónlistarhátíð í Evrópu. Roðlaust
og beinlaust lék á þrennum formlegum
tónleikum auk þess sem spilað var utan
þeirra á veitingastöðum og börum þar
sem því varð við komið. Frakkar tóku tón-
list hljómsveitarinnar mjög vel og gerður
var góður rómur að flutningi hennar á ís-
lenskri sjómannatónlist. Roðlaust og bein-
laust lék sín eigin lög í bland við eldri sjó-
mannalög frá fyrri tímum. Bærin Paimpol
er 8.000 manna bær á Britagneskaganum
og þaðan réru franskir sjómenn á Íslands-
mið áður fyrr.
upplýsingar. Þetta unga fólk hefur ef til
vill verið að fá smáskilaboð í símann
sinn, vonandi góð tíðindi, þar sem þau
skýldu sér fyrir regninu undir regnhlíf
sinni.
Síminn, það er gemsinn svonefndi,er líklega eitt þarfasta þing nú-tímamannsins. Ekki bara hægt að
hringja og spjalla við ættingja og vini,
heldur má í honum finna ótrúlegustu
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Síminn þarfasta þingið
Sigrún Haraldsdóttirsendir póstkort fráVirginíu:
Í Ameríku er sólríkt og
sjóðandi heitt,
sælan af kananum lekur.
Og allvíða hérna er fólkið svo
feitt
að furðu og aðdáun vekur.
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir orti um
barnabarn sitt:
Státinn okkur stikar frá
styrkum fótum veginn gengur
blómarósum blíðum hjá
brosin vekur þessi drengur.
Dansar brátt með fiman fót
fjörið geðjast huga mínum
horfa mun á hýra snót
hann og líkjast afa sínum.
Arnór Ragnarsson er á
leið í veiði í Vatnsdalnum:
Kominn er í góðan gír
girtur vöðlum upp að haus
Alltaf má ef afli er rýr
arka um dalinn buxnalaus.
pebl@mbl.is
Eins og afi
Siglufjörður | Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra sagði þegar hann heimsótti
Siglufjörð um helgina að ákvörðun um gerð
Héðinsfjarðarganga stæði. Ríkisstjórnin
hefði tekið ákvörðun um að ráðast í þessa
framkvæmd og henni yrði ekki breytt.
Þetta kemur fram á vefnum dagur.net.
Á síðasta fundi bæjarráðs Ólafsfjarðar
var gerð sérstök samþykkt um Héðins-
fjarðargöng í tilefni umræðna sem fram
hafa farið um göngin.
,,Bæjarráð Ólafsfjarðar harmar þá um-
ræðu sem fram fer hjá málsmetandi ein-
staklingum í þjóðfélaginu varðandi Héðins-
fjarðargöng. Oftar en ekki er að því látið
liggja að hér sé um óþarft gæluverkefni að
ræða fyrir fáa og ef að fallið verði frá því,
verði hægt að uppfylla allra þarfir og nauð-
synlegar umbætur í vegamálum um land
allt. En það sér hver maður að það er
blekking. Bæjarráð Ólafsfjarðar áréttar að
jarðgöng til Siglufjarðar um Héðinsfjörð
sé mikilvægasta aðgerð í byggðaþróun sem
fram hefur komið á síðustu áratugum fyrir
byggðalög við utanverðan Eyjafjörð og
Eyfirðinga alla.“
Stendur ekki
til að hætta
við göngin
FYRR í sumar lauk borun holu á jarðhita-
svæðinu í Kaldárholti, sem er annað
tveggja jarðhitasvæða sem Hitaveita
Rangæinga nýtir. Holan er að flestu leyti
sambærileg við fyrri vinnsluholuna á svæð-
inu, en er töluvert öflugri og er áætlað að
hún geti afkastað 60–70 l/s af 67–69°C vatni
með dælu á 80 m dýpi.
Með tilkomu holunnar, KH-37, ætti
Hitaveita Rangæinga að vera vel í stakk
búin til að mæta almennt vaxandi notkun
og stækkandi veitusvæði, auk þess sem til-
koma holunnar eykur rekstraröryggi veit-
unnar, segir á heimasíðu Íslenskra orku-
rannsókna, ÍSOR. Orkuveita Reykjavíkur
yfirtók rekstur veitunnar í byrjun árs.
Holunni var valinn staður af sérfæðing-
um ÍSOR og boruð af Ræktunarsambandi
Flóa og Skeiða með jarðbornum Trölla.
Borun holunnar gekk vel og varð hún 522
m djúp. Kaldárholt bættist við sem
vinnslusvæði Hitaveitu Rangæinga í árs-
byrjun 2000 eftir ítarlegar jarðhitarann-
sóknir, sem höfðu staðið yfir í nokkur ár.
Fram að því hafði jarðhitasvæðið á
Laugalandi í Holtum verið eina vinnslu-
svæði veitunnar. Um það leyti stefndi í að
Laugalandssvæðið hætti fljótlega að geta
staðið undir orkuþörf veitunnar, en afköst
þess takmarkast af tregu innstreymi (end-
urnýjun). Á Laugalandi fæst þó allt að
100°C heitt vatn.
Öflug
vinnsluhola
♦♦♦
Eskifjörður | Gamla kempan Óli
Fossberg er með ríkari mönnum.
Hann og kona hans, Bára Guð-
mundsdóttir, eiga 11 börn og 28
barnabörn. Óli hefur átt marga góða
spretti gegnum tíðina, m.a. var hann
kunnur harmónikkuleikari og spilaði
mikið á böllum eystra og víðar um
landið. Þá var hann þekktur í bolt-
anum sem markmaður og dómari.
Það eru ekki vandræðin hjá Óla að
fá aðstoð við lagfæringarnar á hús-
inu sínu á Eskifirði, því mörg barna
hans búa í bænum. Á dögunum voru
þær systur Erla og Alda Fossberg
að hjálpa föður sínum að mála húsið.
Óli fylgdist grannt með og leit í leið-
inni eftir einu afabarninu.
Á gott bakland í börnunum
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Með verkvitið í lagi Óli Fossberg á Eskifirði fylgist með dætrum sínum,
Erlu og Öldu, sem hafa verið að vinna að viðhaldi á húsi föður síns.