Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 17
MINNSTAÐUR
arbúar efndu til götuveislu og
brugðu sér í svonefnt hólmavipp, en
sú keppni felst í að slá golfkúlu sem
næst holu úti í Hólmanum á Lóninu.
Sýning Torgeirs Thorsen frá Ves-
terålen á tréskurði vakti athygli og
kenndi hann jafnframt börnum og
fullorðnum að tálga í tré. Norski
sendiherrann á íslandi, Guttorm
Vik, tók þátt í hátíðinni með Seyð-
firðingum.
Seyðisfjörður | Norskir dagar á
Seyðisfirði þóttu takast með ágæt-
um, en þeim lauk á sunnudag. Tón-
list, útskurður, leiklist og útivist
skipuðu veigamikinn sess á hátíð-
inni, auk hefðbundinna dag-
skrárliða. Lagður var blómsveigur
að minnisvarða við Lónið um at-
hafnamanninn Otto Wathne og
kertum fleytt til heiðurs og minn-
ingar um látna Seyðfirðinga. Bæj-
Norskt í hávegum
Friðsamlegt Kertum fleytt í minningu látinna Seyðfirðinga.
Ljósmynd/Aðalheiður Borgþórsdóttir
Egilsstaðir | Héraðshátíðin
Ormsteiti stendur yfir á
Fljótsdalshéraði og eftir vel
heppnaða dagskrá um helgina
er í dag haldinn lista-
mannadagur í samkomutjaldi í
miðbæ Egilsstaða. Listamenn
og ljóðskáld munu þar sam-
eina krafta sína í sköpun og á
sérstökum kassa geta karlar
og kerlur stigið á stokk og tjáð
sig um hitamál líðandi stundar.
Í gær var dagskráin helguð
börnum og fór m.a. fram skip-
timarkaður á leikföngum, leik-
skólanemar sýndu listir sínar
og hin árlega og geysivinsæla
Fegurðarsamkeppni gæludýra
fór fram með pomp og prakt.
Þar kepptu til úrslita dýr í
katta-, hunda- og blönduðum
flokkum, auk fiðurfénaðar.
Morgundeginum verður svo
varið til að bjóða nýbúa í sveit-
arfélaginu velkomna með ýms-
um hætti.
Glatt í geði Íbúar á Fljótsdalshéraði og gestir skemmtu sér vel um helgina í Orms-
teiti. Teitið heldur áfram í dag, en þá verður svokallaður listamannadagur.
Ormsteiti um allar þorpagrundir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
sínu, auk ómældrar undirbúningsvinnu fyrr á
árinu til að koma að einhverju leyti til móts við
þessa þörf og hyggjast þróa hugmyndina áfram
á næstu árum.
Eiðar | Hljómsveitin Skítamórall gerði storm-
andi lukku í sumarbúðum fatlaðra í Kirkju-
miðstöðinni á Eiðum um helgina. Hljómsveit-
armenn brugðu sér í heimsókn á
laugardagskvöldið, áður en þeir spiluðu á balli í
Valaskjálf og fluttu nokkur af lögum sínum
órafmagnað. Þeir hlutu að launum ómælt þakk-
læti hlustenda sinna.
Þær Aðalheiður Bragadóttir og Rakel Heið-
arsdóttir þroskaþjálfar reka sumardvöl fyrir
fatlaða á Eiðum annað sumarið í röð, nú í þrjár
vikur og buðu einnig upp á sumardvöl á Akra-
nesi í tvær vikur fyrr í sumar. Nú eru um 20
fatlaðir einstaklingar í Kirkjumiðstöðinni og
njóta fjölbreyttrar dagskrár, svo sem útiveru af
margvíslegu tagi og ferða á kaffihús og söfn.
Fólkið er flest komið á fullorðinsár, kemur víða
að af landinu og lætur vel af sér. Þær Að-
alheiður og Rakel segja sárlega vanta úrræði
fyrir fatlað fólk á sumrin og verja sumarleyfi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Myljandi stuð Meðlimir hljómsveitarinnar
Skítamórals heimsóttu sumarbúðir fyrir fatlaða
á Eiðum og fengu góðar móttökur.
Meðlimir Skítamórals
taka lagið fyrir fatlaða
Húsbílafélagið siglir utan | Hús-
bílafélagið áætlar hópferðir með
Norrönu, ferju Smyril Line, til
Hjaltlands 18. ágúst og til Færeyja
25. ágúst nk. Þetta er annað árið í
röð sem meðlimir húsbílafélagsins
munu sigla með Norrænu, en á vefn-
um smyril-line.is segir að ferð fé-
lagsmanna til Færeyja á síðasta ári
hafi tekist með eindæmum vel og
mikil ánægja verið hjá þátttak-
endum.
Bók um skóginn | Nú er í und-
irbúningi bókin Hallormsstaður í
Skógum, eftir Hjörleif Guttormsson,
Sigurð Blöndal og fleiri höfunda.
Edda-útgáfa stefnir að útgáfu um
miðjan október nk.
Í ritinu verður fjallað um sögu og
náttúru Hallormsstaðar og um Hall-
ormsstaðaskóg, en í ár er öld liðin
frá því hann var friðaður. Í bókinni
verða yfir 500 ljósmyndir frá ýmsum
tímum og fjöldi korta og uppdrátta
sem Guðmundur Ó. Ingvarsson hef-
ur útfært.
AUSTURLAND