Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI RANNSÓKNARBORANIR vegna gerðar jarðganga undir Vaðlaheiði standa nú yfir í Fnjóskadal, við Skóga þar sem áætlað er að gang- amunni verði. Boranir stóðu yfir í þrjá daga í júlí og svo var hafist handa á nýjan leik í liðinni viku. Gert er ráð fyrir, að sögn Péturs Þórs Jónassonar, framkvæmdastjóra Eyþings, að boranir muni standa yfir fram eftir hausti, eða langt fram í september. Hann sagði að verkinu miðaði vel, væri á áætlun, „það er góður gír í þessu, en þetta er bara fyrsta lot- an,“ sagði Pétur Þór. Nú er verið að bora tvær holur þar sem vænt- anlegur gangamunni í Fnjóskadal verður, skammt frá Skógum. Verk- ið tekur sennilega einhvern tíma, þar sem þarf að skábora vegna misgengis sem þarna er. Þegar lok- ið verður við að bora austur í Fnjóskadal verður borinn færður yfir Vaðlaheiðina og tekið til við til- raunaholur Eyjafjarðarmegin, upp af Halllandsnesi en á þeim slóðum verður gangamunninn þeim megin. Unnið verður úr upplýsingum á næstu mánuðum, en þess er vænst að upplýsingar fáist um jarðlög svæðisins og vatnsleka í berglög- um. Jarðfræðiupplýsingar fyrir hönnun ganganna liggja að lík- indum fyrir í lok árs og er stefnt að því að skýrsla vegna útboðs þeirra verði tilbúin í febrúar á næsta ári. Kostnaður við boranir og úrvinnslu er áætlaður um 60 milljónir króna. Þess er vænst að boranir nú í sumar muni svara því hvar heppi- legast er að leggja göngin, en um verður að ræða um 7 kílómetra löng göng auk 300 metra vegskála beggja vegna. Heildarkostnaður vegna fyrirhugaðra Vaðlaheið- arganga er áætlaður um 4 millj- arðar króna. Telja menn raunhæft að það taki um 3 ár að fullgera göngin og unnt verði að hefjast handa við gerð þeirra árið 2008 og að þau verði tekin í notkun árið 2011. Félagið Greið leið mun fjár- magna gerð ganganna, láta gera þau og reka með innheimtu veggja- lds. Akureyrarbær er stærsti eig- andi Greiðrar leiðar, á tæp 36%, KEA á tæp 23% og Þingeyjarsveit rúmlega 11%, en hluthafar er um 30 talsins. Rannsóknarboranir vegna Vaðlaheiðarganga standa yfir Verkinu miðar vel áfram Boranir Nú standa yfir tilraunabor- anir í austanverðri Vaðlaheiði, sunnan Skóga í Fnjóskadal, þar sem gert er ráð fyrir að ganga- munni Vaðlaheiðarganga verði. Ljósmynd/Pétur Þór Jónasson EYFIRSKIR kúabændur íhuga að stofna einkafyrirtæki um dýralæknaþjónustu vegna megnrar óánægju með mikinn kostnað við dýralækningar. Þetta kemur fram á vefnum naut.is og að Landssamband kúabænda hafi jafnframt frétt af kúabændum annars staðar á landinu sem vilja skoða þessi mál. Fram kemur í frétt á vefnum að til að sam- bandið geti aðstoðað umbjóðend- ur sína sem best vanti upplýs- ingar um kostnað við dýralæknaþjónustu hér á landi og eru kúabændur því hvattir til að senda afrit af reikningum vegna dýralækninga á liðnum mánuðum til skrifstofu LK. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins blöskrar kúabændum gríðarlegur kostnaður við dýra- lækningar sem og mikil álagning á lyf. Þá þykir aksturskostnaður mikill, en dýralæknar taka hærri taxta fyrir akstur en t.d. tíðkast hjá ríkinu. Yfirleitt er malbikað heim að hverjum bæ og greið leið um Eyjafjörðinn allan en til er í dæminu að dýralæknar taki hærra gjald en svonefnt torfæru- gjald er. Málið er enn á umræðustigi en það sem eyfirskir kúabændur velta fyrir sér þessa dagana er að stofna einkahlutafélag og ráða t.d. nýútskrifaðan dýralækni til starfa sem væri á launum hjá fé- laginu. Eyfirskir kúabændur og dýralækningar Blöskrar gríðarlegur kostnaður NAUSTAHVERFI byggist hratt upp og þar má iðulega sjá iðn- aðarmenn af ýmsu tagi á þönum. Nýlega er búið að úthluta lóðum undir 430 nýjar íbúðir í öðrum skipulagsáfanga hverfisins, sem liggur neðan við golfvöllinn. Bar- ist var um lóðir undir einbýlishús, 92 sóttu um þær 17 lóðir sem til ráðstöfunar voru, en dregið var um hver fékk. Þá úthlutaði um- hverfisráð lóðum undir rað- og fjölbýlishús á fundi sínum í liðinni viku. Þannig má gera ráð fyrir að áfram verði líflegt í þessu nýjasta hverfi Akureyrar, en þessir tveir knáu kappar voru í óða önn að grafa fyrir lögnum þar í heldur hryssingslegu veðri í gærmorgun. Líflegt í Naustahverfi Morgunblaðið/Margrét Þóra LANDIÐ Húsavík | Hún er að verða ómissandi þáttur í menningarlífi Húsvík- inga Tónlistarveislan sem haldin hefur verið í bænum undanfarin ár. Að þessu sinni voru það dægurperlur Gunnars Þórðarsonar sem urðu fyrir valinu hjá tónlist- arstjóra veislunnar, Guðna Bragasyni. Veisl- an var mjög vel sótt en hún var haldin í tvígang á Fosshótel Húsavík. Af nógu er að taka þegar lög Gunnars Þórðarsonar eru valin til flutnings og það sama virðist hafa verið uppi á teningnum þegar áður nefndur Guðni valdi með sér húsvískt tónlistarfólk til að flytja þessar perlur Gunnars. Hilmar Valur Gunnarsson, kynnir veislunnar, sagði Guðna ótrúlega næm- an á að finna flytjendur og endurnýjun á milli ára jafnan nokkur. Þó eru gamlir hundar innan um eins Sigurður Illugason. Þegar Hilmar Val- ur kynnti hann á svið taldi hann ekki margar uppákomur á sviði tón- og leiklistar á Húsavík og nágrenni síðustu áratugi þar sem Sigurður hefur ekki komið við sögu. Þau sem sungu að þessu sinni voru bræð- urnir Aðalsteinn og Unnsteinn Júlíussynir, Ína Valgerður Pétursdóttir, Heiður Sif Heið- arsdóttir, systurnar Bylgja og Harpa Stein- grímsdætur, Sigurður Illugason og bræðurnir Elvar og Guðni Bragasynir. Guðni var einnig í hljómsveitinni ásamt þeim Bjarna Siguróla Jakobssyni, Jóni Gunnari Stefánssyni, Ágústi Guðmundssyni, Grétari Sigurðarsyni og Að- aldælingnum Knúti Jónassyni. Um hljóð og ljós sáu Kristján Halldórsson og Erling Þor- grímsson. Sungu lög Gunnars Þórðarsonar Efnileg söngkona Ína Valgerður Péturs- dóttir er ung og efnileg söngkona og hún tók þátt í Tónlistarveislunni í ár líkt og í fyrra. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Sungu saman Bræðurnir Addi lögga og Unnsteinn læknir, eða Að- alsteinn og Unnsteinn Júlíussynir, sungu lagið Við Reykjavíkurtjörn. Blönduós | Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi fékk að gjöf fyrir skömmu kúnstbróderaða mynd af Herðubreið eftir Guðríði B. Helgadótt- ur í Austurhlíð í Blöndudal. Gjöfin er frá nokkr- um velunnurum safnsins sem töldu vel við hæfi að myndin væri varðveitt í heimabyggð og votta um leið höfundi hennar virðingu og þökk. Allir gefendur utan einn voru viðstaddir af- hendinguna ásamt stjórn safnsins og höfundi verksins. Guðrún Jónsdóttir ættuð frá Bjarg- húsum afhenti myndina og lýsti yfir mikilli ánægju hvernig til hefði tekist með uppbygg- ingu Heimilisiðnaðarsafnsins. Smekkvísi og al- úð einkennir safnið og vitnar um menningarlega reisn, sagði Guðrún. Elín Sigurðardóttir for- stöðumaður safnsins þakkaði gjöfina og þann hlýhug sem á bak við byggi. Fleiri tóku til máls og var að heyra algeran samhljóm með orðum Guðrúnar Jónsdóttur. Að lokum var gestum boðið upp á kaffiveitingar og safnið skoðað. Gefendur eru Eyjólfur Ragnar Eyjólfsson frá Hvammstanga, Guðrún Jónsdóttir frá Bjarg- húsum, Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyrum, Guð- rún Sveinbjörnsdóttir frá Hnausum, Halldór Hlífar Árnason frá Eyjarkoti, Ingibjörg Sólveig Kolka Bergsteinsdóttir frá Blönduósi, Jakob Þorsteinsson frá Geithömrum, Svava Svein- björnsdóttir frá Hnausum, Þorsteinn Jón- mundsson frá Auðkúlu og Ægir Fr. Sigurgeirs- son frá Blönduósi. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi Velunnarar færa safninu gjöf Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Góðar gjafir Lengst til vinstri er listakonan Guðríður B. Helgadóttir í Austurhlíð, þá Guðrún Jónsdóttir arkitekt, Elín Sigurðardóttir, forstöðumaður heimilisiðnarsafnsins, er þriðja frá vinstri og lengst til hægri er önnur Guðrún Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.