Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 21
DAGLEGT LÍF
Opið mán. - fös. 8-18, lau. 10-17 og sun. 13-17
Verð frá
94.900 kr.
10.000 kr. inneign
fylgir hverri fartölvu
Sími 515 5170 • www.oddi.is
Gerðu gott
með góðri
Verslun Odda • Borgartúni 29
Nemendur í Mennta-skólanum við Hamrahlíðeiga nú kost á að kynnasér kvikmyndir Walt
Disney í sérstökum áfanga sem
kenndur verður í fyrsta sinn í vetur.
Hugmyndin að slíkum áfanga kvikn-
aði þegar Klara Kristín Arndal
enskukennari horfði á Dúmbó í 18.
skiptið með litla syni sínum.
„Ég fór að hugsa hvað mikið væri
til af kvikmyndaperlum frá Disney,“
sagði Klara. „Út frá því kviknaði
hugmyndin um að kynna þessar
myndir og Disney sjálfan fyrir nem-
endum í enskutímum. Ég bar þetta
undir deildarstjórann minn í MH í
vor sem tók þessu vel. Við ákváðum
að bjóða upp á áfanga sem fjallar um
gamla efnið frá Disney, eða frá því að
hann byrjaði að gera teiknimyndir til
1966 er hann lést, ævi hans sjálfs og
hvernig fyrirtækið þróaðist. Við-
brögðin voru ótrúleg því tæplega 90
manns skráðu sig í kúrsinn og verður
því kennt í þremur stórum hópum.“
Teiknimyndirnar sýndar
í alvöru bíói
Til þess að teiknimyndirnar njóti
sín sem skyldi var samið við SAM-
bíóin um að sýna myndirnar á stóru
tjaldi. Klara segir líklegt að þetta
unga fólk hafi einungis séð mynd-
irnar af myndbandi á sjónvarpsskjá.
En hvernig fer námið fram?
„Ég ætla að taka fyrir nokkuð
mörg atriði í þessum áfanga og fara
vítt og breitt yfir sviðið,“ sagði
Klara. „Fyrst ætla ég að tala um
Walt Disney, ævi hans og hvernig
fyrirtækið byrjaði. Ég fjalla líka um
teiknarana hans, en hann teiknaði
fæstar persónur Disney sjálfur þótt
hugmyndirnar komi frá honum.
Hann hafði marga mjög færa teikn-
ara á sínum snærum sem hann
hampaði ekki mikið. Þá er saga
Bandaríkjanna á þessu tímabili tekin
fyrir og til dæmis fjallað um krepp-
una og hvernig hún kemur fram í
teiknimyndunum.
Mikki mús verður skoðaður sér-
staklega, en hann varð til árið 1928
og varð fyrsta persóna Disneys sem
sló verulega í gegn, en hefur breyst
mikið í gegnum tíðina. Þá verður
fjallað um Andrés önd og Plútó sér-
staklega og skoðaðar þær breytingar
sem urðu á þeim, auk fleiri þekktra
persóna.
Teiknimyndirnar verða síðan
greindar og skoðað hvernig þær
sýna þjóðfélagið, hjónabönd, kynlíf
og kynþáttafordóma svo eitthvað sé
nefnt.“
„Margar teiknimyndir Disneys
eru byggðar á ævintýrum. Ólíkt
því sem margt ungt fólk heldur,
en það hefur komið í ljós að
sumir halda að Disney hafi
fundið upp söguna um
Bamba, Mjallhvíti, Þyrnirós
og Öskubusku. Þess vegna
munu nemendurnir lesa
Grimmsævintýrin og
bera þau saman við
myndirnar. Ævintýrin
sjálf eru mun grimmi-
legri en myndirnar
sem allar eru með ekta
Hollywood endi.
Í dái eða sofandi
ganga þær
í augun á prinsinum
Hlutverk kvenna er líka
mjög athyglisvert í þessum
myndum. Til þess að þær gangi
út þurfa stúlkurnar helst að vera
í dái eða sofandi eða mjög hlut-
lausar. Þetta munum við skoða út
frá feminískum sjónarhóli.“ Klara er
menntuð í kynjafræði og segist ein-
mitt þess vegna ætla að passa sig á
að dvelja ekki of lengi við þetta atriði
eða sökkva sér of mikið ofan í fem-
ínískar pælingar.
„Farið verður sérstaklega yfir æv-
intýrið um Gosa og nemendurnir
munu lesa það og bera saman við
myndina. Sagan og myndin eru mjög
ólíkar því Gosi var í sögunni illa inn-
rættur, óþekkur strákur sem valdi
rangt og gerði mörgum illt. Í mynd-
inni er engisprettan látin vera sam-
viskan hans og Gosi gerður að hálf-
gerðu fórnarlambi.
Tónlistin í Disney-myndunum er
takast á við verk-
efnið. Ég ákvað að
taka til að byrja
með aðeins
ákveðið tímabil
sem nær yfir ævi
Walt
Disneys
og skoða
hvernig mynd-
irnar breytast. Í
lok áfangans ætla ég
að leyfa nemendunum
að setja nafn á uppáhalds
Disney-myndinni sinni í pott og
skoða þær, en ég býst við að það
verði nýrri myndir.
Walt Disney var sérstakur maður
og ekki algóður þó margir virðast
halda það. Hann var náðaður af
McCarty á sínum tíma og er talið að
það hafi meðal annars verið vegna
þess að hann benti á fólk úr hópi
starfsmanna sinna sem hann taldi
vera kommúnista. Hann vann líka
við að gera áróðursmyndir fyrir
Bandaríkin í seinni heimsstyrjöld-
inni, teiknimyndir þar sem gert var
lítið úr Japönum og Þjóðverjum og
einnig myndir þar sem Bandaríkja-
menn voru hvattir til að ganga í her-
inn. En mér finnst nauðsynlegt að
skoða ekki bara teiknimyndirnar
heldur bakgrunn þeirra og umhverfi
og manninn og fyrirtækið á bak við
þær. Gerðar verða miklar kröfur til
nemendanna í þessum áfanga. Þetta
verða ekki bara bíóferðir, popp og
kók.“
Dúmbó kveikjan að Disney-áfanga í MH
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Reuters
Walt Disney með músina frægu, Mikka, í fanginu.
„Eftir því sem ég best veit er þetta í fyrsta sinn
sem farið er í Disney-myndirnar með þessum
hætti í skóla hér á landi og ég hlakka mikið til að
takast á við verkefnið,“ segir Klara Kristín Arn-
aldsdóttir sem kennir Disney-áfanga í MH í haust.
MENNTUN
yndisleg og tvær kennslustundir
munu fara í að hlusta á hana og
njóta. Ef nemendurnir sofna fá þeir
hins vegar fjarvist!“
Þar sem teiknimyndin um Dúmbó
var kveikjan að þessu öllu saman
finnst Klöru nauðsynlegt að skoða
hana vel. Í henni er gert grín að
mannlegu eðli sem fært er yfir á fíla
og þar koma fram bæði einelti og
kynþáttafordómar.
Ekki bara popp og kók
„Eftir því sem ég best veit er þetta
í fyrsta sinn sem farið er í Disney-
myndirnar með þessum hætti í skóla
hér á landi og ég hlakka mikið til að