Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 22

Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Skákfélagið Hrókurinn varhrókur alls fagnaðar ígrænlenska bænum Tasiil-aq um helgina. Tasiilaq er stærsti bær á Austur-Grænlandi en þar búa 1600 manns. Hróksliðar höfðu breytt félagsheimili bæjarins í skákhöll og blésu til Grænlands- mótsins 2005 á laugardag og sunnu- dag. Heimamenn á öllum aldri mættu á svæðið og tefldu við sendi- nefnd Hróksins; Íslendinga, Dana, Færeying og Namibíumann. Hrókurinn vinnur sem kunnugt er að útbreiðslu skáklistarinnar á Grænlandi og víðar. Grænlands- mótið var hápunktur skákhátíðar sem staðið hefur í Tasillaq síðan í byrjun síðustu viku. Tók hann eftir í dönskutímum? Össur Skarphéðinsson alþing- ismaður og félagi í Hróknum núm- er 125, hélt ræðu við setningu móts- ins og benti meðal annars á að skákin hæfi sig yfir tungumál. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég reyni að halda ræðu á dönsku og ég geri það á gömlu mennta- skóladönskunni minni,“ sagði Öss- ur kampakátur. Beðið var með að setja mótið þangað til seinustu Íslendingarnir voru komnir í hús í Tasiilaq. Átján manna hópur varð að snúa við á föstudag sökum þoku, eftir að hafa flogið alveg upp að Grænlands- ströndum. Fólkinu tókst að komast frá Reykjavíkurflugvelli um hádeg- isbil á laugardag. Róbert Harðarson með fullt hús stiga Kristín Jónasdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla, lék fyrsta leik mótsins og síðan voru tefldar atskákir með 15 mínútna umhugsunartíma, alls fjórar um- ferðir. Seinni keppnisdaginn voru umferðirnar sex og umhugs- unartími 7 mínútur. Róbert Harð- arson vann flokk fullorðinna glæsi- lega, með fullt hús stiga eða tíu vinninga af tíu mögulegum. Hann skákaði þar með danska stórmeist- aranum Henrik Danielsen sem þótti sigurstranglegur. Stigahæst íslenskra barna var Hörður Aron Hauksson með 7 vinninga. Sá frá- bæri árangur fleytti honum upp í 5-7. sæti í flokki fullorðinna og fékk Hörður Aron verðlaun í bá flokkum. Heimamenn sem blaðam ræddi við voru ánægðir me tak Hróksins. Margir bent Tasiilaq væri lítið við að ve væri gott og gaman fyrir b linga og raunar alla, að tefl in væri auk þess hvorki dýr in í útfærslu, allt sem þyrft taflborð og menn. Hrókur alls fagn Tasiilaq á Grænl Hrund Hauksdóttir, 9 ára stúlka frá Íslandi, spáir í spilin. Áhugi heimafólks á skákmótinu var mikill og áhorfendur margir Ljósmynd/Kristian Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is JÖKULL Máni Kjartansson tefldi á Grænlandsmótinu 2005 með lukkudýr í vasanum, lítinn sel sem honum hafði hlotnast að gjöf. Fyrri mótsdaginn kallaði Máni sel- inn Lilla en breytti um nafn dag- inn eftir. „Mér fannst Lilli ekki al- veg nógu gott. Núna heitir hann Snorri eftir einni bók sem heitir Selurinn Snorri,“ sagði Máni að- spurður. Hann hefur teflt í tvö ár og segir pabba sinn hafa kennt sér mannganginn. „Það er gaman að vera á Græn- landi og skrýtið að sjá ísjakana í sjónum. Við komum með þyrlu frá flugvellinum og hún fór stundum næstum því á hlið. Þegar við flug- um sá ég til dæmis fjöll og svolítið af snjó,“ sagði Máni og bætti við að hann hefði einnig séð dálítið annað en myndi ekki alveg hvað það héti. Eftir smáumhugsunarfrest kom orðið: „Það voru svona kletta- drangar.“ Mána finnst fallegt á Austur- Grænlandi og segir það öðruvísi en Ísland. „Húsin eru öðruvísi og miklu litríkari. Það eru skrýtnir strompar hérna. Ég sá villihunda sem má ekki tala við því einn og einn getur verið laus. Ég var samt ekki hræddur við þá. Það eru líka öðruvísi þök hérna og svolítið kalt,“ sagði hann. Hann sagði að sér hefði þótt gaman að taka þátt í mótinu og lagði áherslu á að í skákinni ætti alltaf að reyna að leika öflugasta leikinn hverju sinni. Ljósmynd/Kristian Guttesen Jökull Máni tefldi með lukkusel í vasanum. Hann var ánægður með mótið og veruna á Grænlandi, en fannst stromparnir á húsunum skrýtnir. Máni og selurinn Snorri MIKISULUK Motzfel var stigahæstur græ barna á mótinu. Hann gamall og hefur teflt í t „Það er gaman að te ur þarf að hugsa miki vinir mínir tefla líka og kenna fleirum,“ sagði M ánægður þegar sigurin höfn. Hann spilar ein bolta og fer stundum út veiða með vinum sínum skyldu. Nokkrum sinnu Mikisuluk Motzfeldt Ols Grænlandi eftir glæsile „Mað hug VIGDÍS OG TUNGUMÁLIN Í þau sextán ár, sem Vigdís Finn-bogadóttir gegndi embætti for-seta Íslands, tók hún ævinlega málstað íslenzkrar tungu, hvatti til varðveizlu hennar og ræktar. Tutt- ugu og fimm árum eftir að hún tók við embætti forseta er Vigdís enn í hópi ötulustu baráttumanna fyrir vel- ferð tungumálsins. Í ræðu sinni á Hólahátíð á sunnu- dag sagði Vigdís að fullyrða mætti að það væri eins og að Íslendingar, sem bera ábyrgð á tungunni, væru að glata árvekni sinni. Hún sagðist ekki hafa áhyggjur af tökuorðum í íslenzk- unni, þau hefðu sinn gang og gætu aðlagazt íslenzku beygingarformi ef þau næðu að festa rætur. Vigdís sagðist hins vegar hafa áhyggjur af nýjum áhrifum enskunnar í setning- um og notkun óþarfra aukasagna til að styðja við sagnir. Hún tók dæmi af setningum, sem því miður eru al- gengar í máli margra, t.d. „ég er ekki að skilja það – það var boðið mér í veizlu – þeir voru að spila vel í gær.“ Vigdís tók svipuð dæmi í viðtali við Morgunblaðið um helgina og benti á að þetta væru setningar, þar sem öll orðin væru íslenzk en setningin eins og þýdd úr ensku. Í ræðunni á Hólum benti Vigdís ennfremur á að fjöldinn allur af orða- tiltækjum væri að glatast úr hugum fólks, „orðatiltæki sem eru svo undurfalleg og lýsandi fyrir íslenska tungu. Eða þá að það er farið svo vit- laust með þau því ungt fólk fær ekki þjálfun í að skilja þau.“ Niðurstaða Vigdísar var að aðkall- andi væri að efla vitund um mikil- vægi þess að varðveita íslenzkt mál og efla íslenzkukennslu í skólum. Jafnframt þyrfti að efla vitund for- eldra um að lykill að sjálfsöryggi barna þeirra í framtíðinni væri að geta komið vel fyrir sig orði á því máli, sem væri opinbert mál í land- inu. Full ástæða er til að taka mark á þessum ábendingum fyrrverandi for- seta Íslands. Einu sinni stóð baráttan fyrir verndun íslenzkunnar ekki sízt við útlendar slettur. Nú felast hin er- lendu áhrif jafnvel frekar í því að orðaröð og setningaskipan verður framandleg, eins og Vigdís bendir á. Það er enn snúnara að berjast gegn þessum áhrifum en slettunum – og enn meiri þörf á að halda vöku sinni. Sama má segja um orðatiltækin, sem Vigdís telur að séu að hverfa úr mál- inu eða afbakast. Full ástæða er til að leggja sérstaka áherzlu á að kenna börnum að nota og skilja orðtök, ekki sízt vegna þess að slík kennsla er til þess fallin að dýpka skilning á þeirri menningu og lífsháttum, sem bjuggu þessi orðtök til. Hvað liggur til dæm- is að baki orðatiltækinu að skera hrúta? Vita þeir, sem á annað borð vita hvað það þýðir – þ.e. að hrjóta – að orðtakið kemur frá korrinu þegar hrútur er skorinn á háls? Tækifærin til að tvinna saman kennslu í sögu, samfélagsfræðum og íslenzku liggja raunar í augum uppi. Vigdís Finnbogadóttir hefur alla tíð lagt áherzlu á að varðveizla ís- lenzkrar tungu sé forsenda þess að Íslendingar haldi áfram að vera þjóð. En hún hefur líka lagt áherzlu á að Íslendingum beri skylda til að varð- veita tungumál sitt og menningu í þágu fjölbreyttrar heimsmenningar. Vigdís bendir í Morgunblaðsviðtalinu á að talið sé að tungumál í heiminum séu nú um 6.500 talsins, en um helm- ingur þeirra sé í útrýmingarhættu. Hún starfar nú á vegum UNESCO, menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, að skráningu og varðveizlu tungumála. Hugmynd Vigdísar, um að rannsóknastofnunin í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands, sem við hana er kennd, geti orðið al- þjóðleg miðstöð tungumála, er allrar athygli verð. Ef hún verður að veru- leika, gæti það bæði stuðlað að því að efla tungumálakennslu hér á landi og vitund Íslendinga um mikilvægi eigin tungumáls. Því að eins og Vigdís bendir á í viðtalinu er tungumálanám engin ógnun við okkar eigin menn- ingu. „[Þ]ekking á tungumálum eyk- ur skilning á heiminum og sannleik- urinn er sá, að til þess að skynja eigið tungumál er ekkert betra en að læra önnur. Og ekki bara eitt tungumál, eins og enskuna, heldur önnur til hliðsjónar,“ segir Vigdís. Einnig í þessu efni er full ástæða til að hlusta á það, sem Vigdís Finn- bogadóttir hefur fram að færa. ÖRYGGI Í FLUGI Flugslysið á Grikklandi á sunnu-dag er hryggilegur atburður og vekur fólk jafnframt til alvarlegrar umhugsunar um öryggi í farþega- flugi. Boeing 737-þota kýpverska flugfélagsins Helios Airways var á leið frá Larnaka á Kýpur til Aþenu þegar hún hrapaði. 121 maður var um borð, þar á meðal 14 börn undir 19 ára aldri, og lifði enginn þeirra slysið af. Erfitt er að átta sig á því hvað gerðist um borð í vélinni, en leitt hef- ur verið getum að því að í henni hafi orðið skyndilegt loftþrýstingsfall með þeim afleiðingum að flugmenn vél- arinnar hafi misst meðvitund. Vélin hafi síðan flogið stjórnlaust í nokkurn tíma á meðan snöggkólnaði inni í henni. Nú mun fara fram rækileg rann- sókn á slysinu og verða meðal annars kannaðar frásagnir og fréttir af vandamálum hjá vélum flugfélagsins og þar á meðal vélinni, sem fórst. Stjórnendur flugfélagsins fullyrða að hvergi hafi verið farið fram hjá ör- yggisreglum. Ástand flugvéla er hvorki einkamál flugfélaga né einstakra landa. Far- þegar eiga heimtingu á því að fyllstu öryggiskröfur séu virtar án undan- tekninga hvar sem þeir eru á ferð- inni. Þegar mannslíf eru í húfi verður ekki við annað unað. Þessi krafa kann að stangast á við kröfur um stundvísi og þægindi, en fyrir því hlýtur að vera skilningur hjá farþegum þegar öryggi þeirra er annars vegar. Lýst hefur verið yfir þriggja daga þjóðarsorg á Kýpur. Á næstu dögum má búast við að margt muni skýrast um orsakir harmleiksins um borð í farþegaþotunni. Vonandi verður hægt að nýta þær upplýsingar til að auka öryggi í háloftunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.