Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 26

Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is VIÐ undirritaðir, íbúar við Suð- urgötu í Reykjavík, höfum sent borgarráði Reykjavíkur og borg- arstjóra bréf vegna breytinga á leiðakerfi Strætó bs. sem nýlega hafa verið gerðar. Eftir breytinguna hagar svo til að um Suðurgötuna fara nú að meðaltali 414 stræt- isvagnar dag hvern, eða einn vagn á 2,5 mínútna fresti. Í þessu sambandi má geta þess að ekki er langt síðan Suðurgatan var mjókkuð og settar í hana hraða- hindranir, enda var ráðgert að fella niður umferð strætisvagna um hana. Við höfum því beint þeirri ósk til borgarráðs og borgarstjóra að því ónæði, mengun og lífsgæðaskerð- ingu sem hlýst af þessum stræt- isvagnaferðum verði jafnan niður á fleiri en íbúa Suðurgötu. F.h. íbúa og/eða húseigenda, ANNA KRISTÍN TRAUSTADÓTTIR, GUÐJÓN MAGNÚSSON, Suðurgötu 7, Reykjavík. 414 strætisvagnar Frá 44 íbúum við Suðurgötu: HINIR nafnlausu refsivendir D- listans á Morgunblaðinu skjóta fast þessa dagana og er langt síð- an hægt var að tala um málefna- legar umvandanir. Reykjavíkurlistinn verður undantekn- ingalaust fyrir fall- byssukúlum Stak- steina, leiðara og Reykjavíkurbréfa. Þessar árásir eiga sér áralanga sögu á síð- um Morgunblaðsins enda óumdeilt að þeg- ar skórinn kreppir hjá D-listanum kemur Mogginn til hjálpar. Í leiðara Morg- unblaðsins 11. ágúst sl. tætir höfundur tillögur eign- aðar Vinstri grænum í sig og talar um auknar skattbyrðar á borg- arana. Tillögurnar sneru að lýð- ræðislegum stjórnunarháttum og m.a. að embætti tveggja varaborg- arstjóra yrði sett á laggirnar. Morgunblaðið tók aðeins hlutann um varaborgarstjórana út en leit ekki yfir hina 20 punktana sem settir voru fram jafnhliða. Þetta er ömurleg blaðamennska og af- hjúpar enn og aftur hversu sterk tengsl Morgunblaðsins við D- listann eru raunverulega. Þetta er einkar hlálegt í því ljósi að við þurfum jafnhliða að sitja undir blammeringum eins af eigendum Morgunblaðsins Björns Bjarnasonar. Hann kemur reglu- lega í svörtum ramma, í miðopnu eða á síðu 2 með yfirlýsingar að hættulegast af öllu séu Baugstíð- indi. D-listinn stjórnaði borginni svo áratug- um skipti í skjóli hlið- hollra embættismanna og klíkuskapar. Íbúð- um, lóðum, leik- skólaplássum og at- vinnu var útdeilt út frá stjórnmálaskoð- unum og tengslum við menn. Allan þann tíma studdi Morg- unblaðið D-listann og réðst með hörku á málefnalega gagnrýni á þessa úreltu austur-þýsku stjórnunarhætti. Sprungan hjá Rauðavatni er dæmi sem við get- um hlegið að í dag en á þeim tíma kostuðu árásir m.a. Morgunblaðs- ins vegna þessa máls meirihluta félagshyggjunnar. Í dag stendur nýja Morgunblaðshöllin mitt ofan á þessari stórhættulegu sprungu. Morgunblaðið og vinir þess í D- listanum réðust einnig með fullri hörku gegn öllum tilraunum fé- lagshyggjuaflanna til að koma hér á lýðræðislegum stjórnunarhátt- um. Fjölgun borgarfulltrúa í 21 var kölluð aftur eftir kosningarnar 1982 og í stað raunverulegs ávinn- ings af slíku fyrirkomulagi gargaði Mogginn líkt og nú: „Pen- ingaaustur, þjófnaður, skattaborg- ararnir blæða.“ Hvað leiðir fjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 21 af sér? Hún leiðir af sér fjölbreytni – fleiri raddir komast að í borg- arstjórn og raunveruleg dreifing valds á sér stað – svo ekki sé talað um ef varaborgarstjórarnir flytu með. Hvernig stendur á því að 11 menn stjórna Kópavogi fyrst 15 eru feikinóg í Reykjavík sem er nærri því fjórum sinnum stærri? Í landi þar sem pólitísk umræða og fréttaskýringar í fjölmiðlum detta á slíkt plan sem Mogginn ástundar er ekki skynsamlegt að koma með hugmyndir eins og þessar. Þær verða alltaf gerðar tortryggilegar og njóta ekki sann- mælis. Til þess eru tengslin við gömlu D-listaklíkuna of sterk. Fjölmiðlun í landinu er á háska- legum slóðum. Raddirnar eru miklum mun einsleitari en áður og eignatengslin hættuleg. Árvak- ursmenn eru þar alls ekki und- anskildir með hundana sína. Rauðavatnssprungan enn og aftur Grímur Atlason fjallar um Morgunblaðið ’Fjölmiðlun í landinu erá háskalegum slóðum. ‘ Grímur Atlason Höfundur er stjórnarmaður í VGR. ÍSLENSK vötn eru einhverjar feg- urstu náttúruperlur landsins. Ynd- islegt er að heyra kvak himbrimans, lómsins og álftarinnar langar leiðir, róa litlum árabát út á vatnið og njóta kyrrðarinnar. Undanfarin ár hef eg ásamt fjölskyldu, ættingjum og vin- um átt ómældar ánægjustundir á Skorradalsvatni í Borgarfirði. En tvennt truflar mig : Annars vegar flöktar vatns- yfirborðið allt of mikið vegna starf- semi Andakílsárvirkjunar. Er lífríki vatnsins meira og minna í rugli. Það er nú með öllu óskiljanlegt að svona lítil vatnsaflsvirkjun þurfi svona miklar breytingar á vatnsyfirborð- inu. Nauðsynlegt er að náttúra Skorradalsvatns verði rannsökuð nákvæmlega af fræðimönnum til að fá betri upplýsingar og fá tillögur þeirra hvað og hvernig bæta megi. Hins vegar er það vaxandi umferð vélknúinna farartækja á vatninu. Á dögunum rakst eg á nýuppsett skilti við Skorradalsveg í Hvammslandi þar sem vegfarendur eru hvattir að taka með sér bækling og kynna sér hraðbáta af ýmsu tagi. Mig rak í rogastans. Á boðstólum er m.a. hraðbátur með 640 hestafla Volvo penta vél sem getur komið bát þess- um á ógnarhraða. Eldsneytistank- urinn rúmar á fimmta hundrað lítra! Þarna er kjörið tækifæri fyrir þann sem vekja vill athygli á fífl- dirfsku sinni að taka nánast heilt vatn í gíslingu, trufla allt fuglalíf þess og stofna jafnvel mannslífum í hættu. Ekki sé minnst á hugsanlega handvömm að „missa“ 400 lítra af bensíni um allt vatnið með glanna- legu framferði sínu. Því miður eru Íslendingar þekktir fyrir skjótar en því miður ekki allt of vel ígrundaðar ákvarðanir. Stundum eru þær tekn- ar án þess að hugað sé nægjanlega að afleiðingum þeirra. Svo virðist sem engar takmark- anir séu um hvaða farartæki megi vera notuð á vötnum landsins. Eng- ar hömlur eru á gerð, búnaði né hraða, hávaða og önnur atriði sem verulegu máli skipta. Svo virðist sem algjört „frelsi“ sé í þessum málum. En auðvitað er fólk sem stundar úti- veru og dvöl við vötn landsins fyrst og fremst að sækjast eftir ró og hvíld í kyrrð náttúrunnar. Ég undirritaður leyfi mér að skora á ráðherra umhverfismála, Umhverfisstofnun, Náttúruvernd ríkisins, Fuglaverndarfélag Íslands, Hið íslenska náttúrufræðifélag, Landvernd, sveitarfélög landsins sem og alla aðra þá aðila sem málið varða, að skoða þessi mál betur. Nauðsynlegt er að Umhverfisráðu- neytið setji í samvinnu við sveit- arfélög sanngjarnar reglur um há- vaða og hraðatakmörk vélknúinna farartækja á vötnum. Tilgangurinn er augljós: að koma í veg fyrir meiri röskun en þegar er orðin á þessum náttúruperlum landsins. Við eigum aðeins eitt Skorradals- vatn. Þessu borgfirska nátt- úrudjásni verður að gæta betur að áður en óafturkræft óhapp verður. GUÐJÓN JENSSON, Mosfellsbæ. Skorradalsvatn Frá Guðjóni Jenssyni: NÚ VILJA einhverjir menn skipu- leggja íbúðabyggð úti í Viðey. Viðey á merka sögu og má eiginlega segja að hún sé móðir Reykjavíkur. Gera má þar golfvöll án þess að ásýnd hennar sé spillt, svo má bara byggja á golf- vellinum í Grafarholti. Með nýju ferjulægi styttist sigling- artími út í eyjuna verulega. Sá dug- legi maður Örlygur Hálfdanarson stendur fyrir kvöldferðum þarna út, eru þær bæði skemmtilegar og fróð- legar auk þess sem þátttakendur ganga á ósléttu landi en það er besta heilsurækt sem til er. Örlygur hefir bent á að mikið landrof hefir orðið þarna úti að undanförnu, þar sem áð- ur var perlumöl er nú gróf möl og þar sem var sandur er nú perlumöl, bakk- ar eru að hrynja og lýsisbræðslustöð sem ætti að flokkast sem fornminjar er nánast horfin. Sá er þetta ritar var vinnudrengur í Viðey sumarið 1954 og hefir alla tíð síðan fundist hann vera eins konar agnarsmár hluthafi í eyjunni. Framsýnir menn byggðu þarna þorp í byrjun síðustu aldar með bryggjum, vatnsveitu, rafstöð og nán- ast öllu sem þurfti til að reka vél- vædda útgerð. Með bættri hafn- araðstöðu í Reykjavík minnkaði mikilvægi Viðeyjar og þorpið fór í eyði. Móttaka ferðamanna er vaxandi atvinnugrein, en til að geta tekið á móti ferðamönnum verður að hafa eitthvað til að sýna þeim. Er því ekki upplagt að endurbyggja þorpið í Við- ey, verka þarna saltfisk upp á gamla mátann og selja saltfiskinn ferða- mönnum. GESTUR GUNNARSSON, tæknifræðingur. Viðey Frá Gesti Gunnarssyni: Morgunblaðið/Golli OPINBER umræða um störf í álverum hefur oftar en ekki byggst á nokkrum misskilningi. Misskilningurinn er hins vegar skiljanlegur því löngu úreltar stað- alímyndir um iðnaðinn eru mjög fastar í sessi, t.d. að störf í álveri séu einhæf, líkamlega erfið og henti aðeins körlum. Staðreyndin er hins vegar sú, að ekkert í vinnuum- hverfinu hjá Alcan í Straumsvík eða í ein- stökum störfum úti- lokar konur frá nokkru starfi hjá fyr- irtækinu. Störfin krefjast almennt ekki líkamlegs styrks, ólíkt því sem margir halda, heldur miklu frekar þekkingar á tækni- búnaði og tölvum og hæfni til að vinna í hóp að sameiginlegu markmiði. Raunin er enda sú að konur sinna störfum af öllu tagi hjá fyrirtækinu, í ker- skálum og steypuskála, ýmsum skrifstofustörfum og einnig störf- um sem oft eru skilgreind sem hefðbundin kvennastörf, s.s. í mötuneyti. Erfiðast hefur reynst að fá konur til starfa í stórum hópi iðnaðarmanna, enda sjaldgæft að konur sæki sér menntun í rafvirkj- un, vélvirkjun, bifvélavirkjun, smíði o.s.frv. Af ofangreindu má ljóst vera að kynjahlutfallið er misjafnt eftir því hvaða hópar innan fyrirtækisins eru skoðaðir. Í framkvæmdastjórn eru t.d. þrjár konur en fjórir karl- ar (42% konur), í hópi sérfræðinga er hlutfall kvenna um 24% en ef litið er á heildina er hlutfall kvenna um 15%. Þetta hlutfall hef- ur hækkað lítillega undanfarin ár en sú þróun er hæg, m.a. vegna þess hve starfsmannavelta er lág hjá fyrirtækinu. Rétt er þó að taka fram, að í hópi þeirra 150 starfs- manna sem ráðnir voru til sum- arvinnu í ár voru 46% konur. Í ljósi umræðunnar er athyglisvert að bera þessar tölur saman við hlutfall kvenna í öðrum stéttum, því í ljós kemur að áliðnaður er ekki einn á báti hvað varðar ójafna kynjaskiptingu. Meðal starfandi lækna eru konur um 24% og innan lögreglunnar er hlutfallið um 10%, svo dæmi séu tekin. Þótt kynjahlutfallið sé ójafnt er jafnréttismálum vel sinnt hjá Alc- an. Jafnlaunastefna er við lýði, greidd eru vel sam- keppnisfær laun og unnið er eftir mark- vissri jafnrétt- isáætlun. Sérstakt þriggja manna teymi hefur það hlutverk að taka á eineltis- og áreitnismálum sem kunna að koma upp innan fyrirtækisins og tryggt er að allar vinnuaðstæður séu jafngóðar fyrir bæði kyn. Ýmislegt hefur verið gert á und- anförnum árum til að jafna hlut kynjanna og það er t.d. eitt af markmiðum allra verkstjóra að auka hlut kvenna í sínum vinnu- hópi. Reglulega er staða mála rýnd og gerðar tillögur að úrbót- um og þannig mætti áfram telja. Álver er góður vinnustaður en því miður er hin opinbera umræða um störf okkar og starfsaðstöðu oft ennþá í anda liðinnar tíðar. Gríðarlegar breytingar hafa orðið á þeim 40 árum sem liðin eru frá því álframleiðsla hófst á Íslandi. Það sem í eina tíð var týpískur karlavinnustaður er nú há- tæknivætt iðjuver þar sem karlar og konur eiga jafna möguleika á vel launuðum störfum sem krefjast þekkingar og hæfni miklu fremur en líkamlegs styrks. Það er von mín að viðhorf til starfa í álverum byggist framvegis í meira mæli á raunverulegum aðstæðum en hing- að til. Það hlýtur að vera réttmæt krafa okkar sem störfum hjá álfyr- irtækjum landsins að virðing sé borin fyrir starfsvali okkar og skoðunum. Þannig gætu umræður um málaflokkinn orðið bæði mál- efnalegri og gagnlegri. Konur í álverum Hrannar Pétursson fjallar um störf í áliðnaðinum ’…ekkert í vinnu-umhverfinu hjá Alcan í Straumsvík eða í ein- stökum störfum útilokar konur frá nokkru starfi hjá fyrirtækinu.‘ Hrannar Pétursson Höfundur er upplýsingafulltrúi Alcan í Straumsvík. Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líf- fræðileg hönnun þeirra gaf fyr- irheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum tilvikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppnislög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á honum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi mál- efni sátt og með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrverandi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.