Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 38

Morgunblaðið - 16.08.2005, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ 400 kr. í bíó!* Sýnd kl. 6 Miðasala opnar kl. 15.00    Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 10.30 B.i 16 ára kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 kl. 3.40 og 5.50 Í þrívídd  VINCE VAUGHN OWEN WILSONVINCE VAUGHN OWEN WILSON KVIKMYNDIR.IS  I I .I Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30 Sýnd kl. 8 og 10.20Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i 10 ára KVIKMYNDIR.IS  I I .I OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS WWW. XY. IS WWW. XY. IS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA ÞRIÐJA STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA Sýnd kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8, 9, 10.20 og 11.20 B.i 10 árawww.borgarbio.is Sími 564 0000         KVIKMYNDIR.COM  RÁS 2 Ó.H.T  S.K. DV  KVIKMYNDIR.IS KVIKMYNDIR.COM  S.K. DV  BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. ÞAÐ merkilegasta við G!-festival er að hún er haldin í miðri byggð og tónleikasvæðið er í raun heilt þorp umvafið fjöllum og sandströnd. Þorpsbúar leggjast á eitt til að gera þennan stærsta tónlistarviðburð sem haldinn er í Færeyjum mögu- legan og slá bændur til að mynda grasið fyrir tjaldstæðið og heima- menn lána hljómsveitunum heimili sín. Hátíðin í ár var sú fjórða sem er haldin. Tuttugu og sex af fjörutíu og fimm hljómsveitum voru færeyskar en erlendu hljómsveitirnar komu að mestu frá Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Þrjú svið eru notuð til tónleikahaldsins; eitt meðalstórt inni í miðju þorpinu (Spæliplássið), eitt stórt svið á sandinum í fjörunni (Sandurinn) og eitt pínulítið þar á milli sem er ætlað minni böndum (Hoyggjhúsið). Spæliplássið Locust Assembling Kit frá Dan- mörku spilaði snemma á föstudeg- inum en sveitin er indí-rokk- hljómsveit sem samanstendur af meðlimum þriggja annarra banda, Meejha, Cody og The Ondt and the Gracehoper. Tveir karlmenn og ein kona skiptust á um að syngja og breyttist tónlistin í hvert skipti mjög mikið. Þau skiptust líka á hljóðfærum og útkoman var alvar- leg og „alternatív“. Hálfsamheng- islaust en góð tilraun og hefði verið betra seinna um kvöldið eftir sól- setur. Það var gaman að sjá færeysku böndin á G!-festival í ár og sum voru mjög góð, eitt af þeim var bandið Gestir. Söngvarinn, sem spil- ar líka á gítar, gerði góða hluti – var eins og færeyskur Jeff Buckley þegar best lét. Gítarleikarinn skreytti svo lögin með einkar fal- legum og grípandi laglínum. Bassa- leikarinn setti skemmtilegan svip á spilamennskuna en hljómborðsleik- arinn sat rólegur og fyllti upp í hljóðmyndina á smekklegan hátt. Gestir spiluðu vel matreitt drama- tískt popprokk á færeysku og söngvarinn var heiðarlegur í flutn- ingi sínum. Hljómsveitin The Dreams sam- anstendur af þremur strákum frá Þórshöfn. Þeir spiluðu skemmtilegt háskólarokk, voru vel samhæfðir og inn á milli gulltryggðra laglína komu skemmtilega úr-takti milli- kaflar, sem voru greinilega þaul- æfðir. Söngurinn var á ensku með færeyskum hreim (mjög mjúk sveifluhljóð), bakraddirnar stóðu sig vel og fólkið sem á hlýddi tók vel undir. Íslenska reggí-hljómsveitin Hjálmar „grúfaði“ vel eins og alltaf á tónleikum: Þungt lopapeysu-reggí með óvenjumiklum skammti af gleði og kærleik. Hjálmar fengu mjög góða umfjöllun í færeyskum blöðum og voru kallaðir „exótískasta“ hljómsveitin á G!.“Eitt af bestu og undarlegustu atriðunum á G!,“ skrifaði Jan Lamhaugh í dagblaðið Dimmalætting. Hann sagði þá líkj- ast Karíusi og Baktusi í útliti og vera sambland af Amish- og rasta- mönnum. Hjálmar náðu upp góðri stemmn- ingu og voru skemmtileg tilbreyting frá alvarlegum rokkböndum og áheyrendur vildu helst ekki sleppa þeim af sviðinu. Hoyggjhúsið Þjóðlagatónlist og órafmagnaðir tónar heyrðust í Hoyggjhúsinu. Nadin (IRQ/S) heitir ung kona sem leikur á gítar. Hún var með mjög sérstakan stíl og blandaði saman austurevrópskum söngstíl og vestrænum kassagítarleik og spilaði arabísk og vesturlensk þjóðlög í bland við sín eigin. Hún var með fal- lega og sorglega rödd og minnti á átökin sem sífellt geisa fjarri okkar skandinavísku heimaslóðum. Spælimennirnir enduðu föstu- dagskvöldið. Píanó, fiðla, kontra- bassi, flautur, lúðrar o.s.frv. Léttir og glaðlegir tónar voru allsráðandi og virkilega færir hljóðfæraleikarar þar á ferð. Meðal annarra í bandinu mátti finna Kristian Blak, Sharon Weiss og Ívar Bærendsen. Sandurinn Direct Level var fyrst á svið á Sandinum. Klisjukennd unglinga- hljómsveit með vælandi söngvara, tveggja tóna lögin og bergmáls- pedallinn var bara ekki nóg. Korn- áhrifin og illa spilaður ný-metallinn áttu alls ekki heima þarna á sviðinu. Makrel er melódísk og melankól- ísk rokksveit með innblásnum söngvara. Þeir náðu ekki að halda athyglinni lengi þrátt fyrir þétta spilamennsku og ágætis pælingar. Pólitísku pönkararnir og aðskiln- aðarsinnarnir í 200% mættu á svið á sandinum og trylltu lýðinn með be- rorðum pönktextum og keyrslu. Þeir voru ekkert að skafa utan af því hvað þeim finnst um Danmörku: „Vond mamma.“ Þeir enduðu svo með því að senda Miðflokknum og öðrum sambandssinnum fingurinn. Fingurinn var þriggja metra hár silfurlitaður skúlptúr af hendi sem myndaði „Fuck You“-merki sem snerist í hringi og upp úr hliðunum komu blys. Svo virtist sem allir áhorfendurnir væru sammála þeim í því að vilja frjálsar Færeyjar og sjálfstæði frá Danmörku. Þegar rokksveitin Týr mætti á sviðið mátti ímynda sér að forfeður okkar víkingarnir sætu upp í fjöll- um vígreifir og ánægðir með ölkrús í hendi, syngjandi með. Europe Stærsta hljómsveitin og sú sem dró mest að var sú mikla og sænska popp/rokk-grúppa Europe. Hljóm- sveitin hefur tekið saman aftur eftir hlé (1992–2000) og gaf út plötu á síðasta ári, Start From The Dark. Europe spilaði um miðnætti á loka- kvöldi G! Einhverjir 25 bátaeig- endur sáu sér leik á borði og sigldu eins nálægt og þeir gátu og hlustuðu þaðan. Europe stóð fyrir sínu og vel það. Það var sungið duglega með lögum eins og „Rock the night“, „Carrie“, „Cherokee“ og „Wings of tomor- row“. Europe er stærsta rokk- hljómsveit sem hefur komið frá Norðurlöndunum og þeir sönnuðu það á sviðinu að það er engin til- viljun. Þeir spiluðu í rúman klukku- tíma og voru svo klappaðir upp. Þá tóku þeir tvö lög í viðbót og enduðu síðan á laginu sem allir höfðu beðið eftir, hinum mikla smelli „The Final Countdown“. Það var sem við manninn mælt, allt ætlaði um koll að keyra þegar hljómborðslínan byrjaði og allir sungu með: „Durudu duuu, duru du du duuu … We are leaving together …“ Langflestir fóru heim að sofa eft- ir Europe en þá var dansveislan rétt að byrja á sandinum og Stanley Samuelson að koma sér fyrir með gítarinn á Spæliplássinu. Við völd- um sandinn. Þegar dans- og hiphop- hljómsveitin Beats And Styles, sem er partur af finnsku dans-innrás- inni, kom fram, léku ferskir tónar um eyrun. Þar voru vanir menn á ferð og tónleikarnir gengu eins og vel smurð vél. Klárir og orkumiklir boltar skoppuðu um sviðið og skemmtileg sviðsframkoma þeirra verður seint toppuð. Áður en þeir luku sér af kynntu þeir á svið finnskan skífuþeytara að nafni Darude. Þeir sögðu að hann myndi spila transtónlist og spurðu svo lýðinn hvort hann hefði farið á „rave“. Þegar fyrstu transtónarnir heyrðust héldum við heim á leið, fegin því að eiga eitthvað eftir að uppgötva, eins og til dæmis tran- stónlist. Fagmennska Hljómburðurinn á G! kom skemmtilega á óvart. Algjör fag- mennska réð ríkjum og nánast öll bönd sem við heyrðum í hljómuðu vel. Það var sama hvort var; fær- eyskur trúbadúr með kassagítar, sænska Europe eða íslensku reggí- strákarnir Hjálmar, tónarnir skil- uðu sér óaðfinnanlega til fólksins. Þó að hátíðin í ár hafi verið fjöl- breytt verður að segjast að heldur mikið var af alvarlegum rokk- hljómsveitum. Vonandi verður fjöl- breytnin enn meiri á næsta ári og óskandi að fleiri en eitt íslenskt band nái upp á sviðið þá. Eitt er víst, að það eru margir farnir að hlakka til næsta G!- festivals, sem er einstök upplifun, tónlistarhátíð í miðju þorpi í Fær- eyjum. Fjölbreytt og fagleg hátíð G!-festival, stærsta tónlistarhátíð sem haldin er í Færeyjum, fór fram dagana 22.–23. júlí. Há- tíðin fór fram í Götu, litlu sjávarþorpi í um sjö- tíu kílómetra fjarlægð frá höfuðstaðnum Þórs- höfn. Guðný Rúnarsdóttir og Markús Bjarnason sóttu hátíðina í ár. Gfestival.com/?fo Gfestival.com/? Ljósmynd/Markús Aðalsvið hátíðarinnar er í fjörunni í Götu. Ljósmynd/Markús Europe var aðalhljómsveit G!-festival í ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.