Morgunblaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 39
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu
Miðasala opnar kl. 17.15Sími 551 9000
☎553 2075
Sýnd kl. 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 8 og 10.15 b.i.14
-S.V. Mbl.
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 Sýnd kl. 4 og 6 Í þrívídd
„EKTA
STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
- BARA LÚXUS-
kl.
Sýnd kl. 6 Í þrívídd
VINCE VAUGHN OWEN WILSON VINCE VAUGHN OWEN WILSON
KVIKMYNDIR.IS
I I .I
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.50 B.i 10 ára
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.i 10 ára Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
WWW. XY. IS
WWW. XY. IS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
INNRÁSIN ER HAFIN
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 39
Hafi maður unun af tónlister fátt jafnstórkostlegtog að fara á góða tón-
leika. Þeir sem það þekkja eru
líklega sammála undirrituðum að
sú upplifun er allt að því trúar-
legs eðlis, bæði frelsandi og full-
nægjandi. Tónlist er í sjálfu sér
stórmerkileg og sú unun sem hún
færir okkur verður ekki útskýrð
með einföldum rökum – ekki
frekar en þörf margra til að
hreyfa sig í takt við hana – en
það er nokkuð áreiðanlegt að
veröld án tónlistar, væri ekki
gæfuleg veröld.
Við Íslendingar erum nokkuð
duglegir að halda tónleika, sér-
staklega í seinni tíð og þá hefur
hlutur stórtónleika erlendra tón-
listarmanna, vaxið hvað hraðast.
Framboð þeirra er orðið svo mik-
ið að einn tónleikahaldarinn
sagði í viðtali á dögunum að Ís-
lendingar væru farnir að taka
svona tónleikum sem alltof sjálf-
sögðum hlut.
Ein aðalforsenda þess aðhljómleikar séu góðir erhljómburðurinn – þetta
segir sig eiginlega sjálft og ætti
ekki að vera neinum tónleika-
haldara ókunnugt. Það hefur hins
vegar þótt brenna við á þeim
stórtónleikum sem haldnir hafa
verið í Egilshöll, Laugardalshöll
og Kaplakrika, að þessi mik-
ilvægi hlutur sé oftar en ekki í
ólagi.
Í samtölum við tónleikahaldara
bera þeir það fyrir sig, (að mörgu
leyti réttilega) að það sé raun-
verulega ekki í þeirra höndum að
útvega góðan hljómburð. Stórum
fjárhæðum sé eytt í atvinnumenn
sem leggi til bæði hljóðkerfi og
annað tilheyrandi til hljómleik-
anna og því sé hljómburðurinn á
þeirra ábyrgð.
Andri Gunnarsson hjá Exton
ehf., sem sér um tæknilega hlið
flestra stærstu tónleikana hér á
landi, segir að þetta vandamál sé
ekki nýtt af nálinni.
„Húsin eru einfaldlega ekki
hönnuð með stórtónleika í huga.
Þetta eru íþróttahús sem síðan er
reynt að breyta í tónleikahús á
stuttum tíma með sáralitlum til-
kostnaði öðrum en að setja upp
hátalarastæður.“
Andri segir að þetta hafi samt
gengið best í Laugardalshöllinni
eftir að þartilgerðir hljóðskildir
voru settir upp. Egilshöllin sé
hins vegar bara stór skemma.
„Ómtíminn er um þrjár sek-
úndur og það er allt of mikið.
Það er líka þannig að því meiri
sem hávaðinn er, því meira er
bergmálið. Þar að auki eru staðir
í húsinu þar sem söngurinn heyr-
ist mjög illa og ef það er slegið í
sneril, heyrist hljóðið koma úr sjö
mismunandi áttum.“
Af þessu virðist það veraljóst að Egilshöll hentar ídag illa til tónleikahalds
þegar litið er til hljómburðar.
Talsmaður Nýsis sem rekur Eg-
ilshöll, segir að þetta mál sé til
skoðunar og það sé að sjálfsögðu
ætlun þeirra að höllin standist
kröfur tónleikahalds. Svona lagað
sé þó ávallt spurning um kostnað.
Halldór Kristinn Júlíusson,
verkfræðingur hjá VST verk-
fræðistofu sem hefur meðal ann-
ars umsjón með nýrri viðbygg-
ingu Laugardalshallar, segir að
þar hafi verið gerðar ráðstafanir
til að draga úr óæskilegum há-
vaða með tilliti til bergmáls og
ómtíma. Hins vegar hafi það ver-
ið gert með íþróttaviðburði ýmiss
konar í huga og að ógerlegt sé að
gera prófanir á þessu fyrr en
byggingin er risin.
„Það er að sjálfsögðu einfalt að
laga svona hús að stórum tón-
leikum en kostnaðurinn getur
verið nokkuð mikill. Það verður
að klæða veggina og í svona
stóru húsi þarf nokkuð mikið efni
til.“
Þetta ástand myndi líklegastekki hreyfa við undirrit-uðum ef tónlistaráhugi Ís-
lendinga væri ekki jafnmikill og
raun ber vitni. Íslendingar eru
mikil menningarþjóð og þar af
skipar tónlistin líklega stærstan
sess. Ár eftir ár sanna íslenskir
tónlistarmenn að þeir eru fylli-
lega samkeppnishæfir úti í hinum
stóra heimi og þó að einhverjir
tónleikahaldarar kalli okkur of-
dekraða, höfum við líka sannað
vilja okkar til að flykkjast í þús-
unda, ef ekki tugþúsunda tali, á
góða tónleika.
Ég velti því fyrir mér hvort hið
sama verði sagt um blessað
íþróttafólkið og aðstandendur
þess sem fá að gjöf glænýja höll í
Laugardalnum innan tíðar. Það
er alla vega öruggt að hvatning-
arhróp mömmu og pabba skera
ekki í eyru afreksfólksins.
’Húsin eru einfaldlega ekki hönnuð með stór-tónleika í huga. Þetta eru íþróttahús sem síðan er
reynt að breyta í tónleikahús…‘
AF LISTUM
Höskuldur Ólafsson
Morgunblaðið/Sverrir
Glæsileg viðbygging rís við Laugardalshöll sem getur rúmað allt að 10 þús-
und tónleikagesti.
hoskuldur@mbl.is
Um hljómburð íþróttahalla
SÖGURNAR verða sífellt fleiri og
spennan magnast í kringum Pete
Doherty og Babyshambles en nú
síðast lenti hann í ævintýrum í Nor-
egi. Kappinn var stoppaður af
norskum tollyfirvöldum á Gard-
ermoen-flugvelli á leið sinni til
landsins til að spila á Öya-
tónlistarhátíðinni í Osló og fundust
eiturlyf á honum. Hann þurfti að
gangast undir líkamsleit og svara
spurningum yfirvalda sem lauk með
því að hann þurfti að dúsa í fanga-
klefa í nokkra tíma. Nánar tiltekið
fundust 1,7 grömm af krakki og 1,5
grömm af heróíni á Pete og sam-
ferðamanni hans. Hvor þurfti að
borga um 80.000 króna sekt fyrir og
þurftu tónleikahaldarar að leysa þá
út. Málið fer ekki fyrir rétt vegna
þess að sektin var greidd.
Babyshambles áttu að spila á há-
tíðinni á föstudagskvöld klukkan
rúmlega fimm en stigu ekki á svið
fyrr en um fimm tímum síðar, þá
sem síðasta atriði dagsins. Blaða-
maður Morgunblaðsins var á meðal
gesta og heyrði Pete greina frá
samskiptum sínum við yfirvöld en
hann var ekki ánægður með fang-
elsisvistina. Áhorfendur voru æstir í
allt sem Pete sagði og gerði, þó
honum hafi tekist að gera fólk agn-
dofa þegar hann tók sig til og kast-
aði upp á sviðinu. Pete henti líka
nær fullri vodkaflösku til áhorfenda
við góðar viðtökur þeirra en öllu
verri viðbrögð frá gæslufólki á
svæðinu.
Ekki sást þó til kærustu Petes,
ofurfyrirsætunnar Kate Moss, á
svæðinu. Samband þeirra gengur
víst vel um þessar mundir og keypti
söngvarinn dýr undirföt á hana á
dögunum.
Ný smáskífa
Smáskífan Fuck Forever með
Babyshambles kom út í gær og
keppir hún um toppsætið við aðra
smáskífu sem beðið hefur verið eft-
ir, This Town Ain’t Big Enough For
The Both Of Us með British Whale,
sólóverkefni Justins Hawkins úr
Darkness.
Pete og Babyshambles eru á leið-
inni til Íslands en sveitin spilar á
tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves,
sem fram fer dagana 19.–23. októ-
ber.
Tónlist | Pete Doherty heldur áfram að hneyksla
Tekinn með eiturlyf
og ældi á sviðinu
Reuters
Breska rokkstjarnan Pete Doherty kann að vekja á sér athygli.