Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 41

Morgunblaðið - 16.08.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 41    Sýningartímar sambíóunum HERBIE FULLY LOADED kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30 HERBIE FULLY LOADED VIP kl. 6 - 8.15 - 10.30 THE ISLAND kl. 6 - 8 - 10 - 10.40 KICKING AND SCREAMING kl. 4 - 6 - 8 - 10 MADAGASCAR m/ensku.tali. kl. 4 - 6 - 8 - 10 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4 - 6 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 ÁLFABAKKI „The Island, virkilega vel heppnuð pennumynd, skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“  S.U.S XFM „The Island er fyrirtaks afþreying. Ekta popp og kók sumarsmellur. “ -Þ.Þ. Fréttablaðið. l i i . ll . - . . r tt l i . ÞEIR VILJA EKKI AÐ ÞÚ VITIR HVAÐ ÞÚ ERT! Hvað myndir þú gera ef þú kæmist að því að þú værir afrit af einhverjum öðrum? EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON Herbie Bjallan sem getur allt er komin aftur og fær hin sæta Lindsay Lohan (“Freaky Friday”, “Mean Girls”) að keyra hana Frábær Bjölluskemmtun fyrir alla. HERBIE FULLY LOADED kl. 4.20 - 6.30 - 8.40 - 10.40 THE ISLAND kl. 8 - 10.40 B.i. 16 ára. THE PERFECT MAN kl. 4.20 - 6.15 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4.20-6.15 BATMAN BEGINS kl. 10 B.i. 12 ára. HERBIE FULLY LOADED kl. 6 - 8 - 10 THE ISLAND kl. 8 - 10.30 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 10.30 HERBIE FULLY LOADED kl. 8 THE ISLAND kl 10.10 FANTASTIC FOUR kl 8 - 10 KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK r i j ll t r llt r i ft r f r i t i (“ r ri ”, “ irl ”) r  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. RÁS 2 13.08. 2005 5 8 2 0 4 0 7 3 3 0 5 8 24 31 36 34 10.08. 2005 9 20 27 28 36 42 2 24 13 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4741-5200-0012-5404 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. þar koma bakraddir Hjálmabræðra sterkar inn, líkt og í slagaranum sem kom Hjálmaævintýrinu af stað á sín- um tíma, „Gott er að gefa“ (af „Það þarf fólk eins og þig“). Næstu tvö lög þar á eftir mætti setja í „gömlu dansa“ flokkinn og eru ekki að virka neitt sérstaklega vel. „Hans kær- leiksást“ er brimsaltur sjóaraslagari, vel heppnaður sem slíkur en skilur lítið eftir. Þau fáu lög sem detta niður í flatneskju hafa þó lítið að segja á endanum, þar eð hljóðfæraleikur all- ur og söngur Rúnars stuðla að þægi- legu, órofa rennsli allt til enda. Textar plötunnar eru í takt við innilegt andrúm plötunnar og fylgja svipaðri línu og á síðustu plötu. Kær- leikurinn, guðdómurinn og vanga- RÚNAR Júlíusson eldist með mikilli reisn, er að verða nokkurs konar ís- lenskur Sean Connery. Hann nýtur ekki einasta óskor- aðrar virðingar sam- tíðarmanna heldur og yngri kynslóða sem finnst hann yfirmáta „kúl“. Rúnar ber enda með sér lát- lausan sjarma – stóísk svalheit sem flæða yfir flestallt sem hann kemur nálægt. Síðustu plötur hans eru markaðar þessu. Þægileg, áreynslu- laus verk; vinaleg og traust enda úr ranni manns sem vart hefur lagt frá sér gítarinn í fjörutíu ár og lagasmíð- arnar virðast svo gott sem sjálf- sprottnar. Auk þessa hefur Rúnar ekki hikað við að leita á náðir sér yngra fólks til aðstoðar að und- anförnu og gaf það stefnumót síðustu plötum, Það þarf fólk eins og þig (2002) og Trúbrotin 13 (2004) byr undir báða vængi. Blæbrigði lífsins gefur Rúnar út í tilefni sextugsafmælis síns og líkt og með Trúbrotin 13 er hún tileinkuð foreldrum hans. Platan var unnin með Hjálmum sem verið hafa heim- alningar í hljóðveri Rúnars, Geim- steini, um árabil og plata sveit- arinnar, Hljóðlega af stað, kom út undir merkjum Geimsteins. Tveir úr sveitinni, þeir Guðmundur og Sig- urður, lögðu þá gjörva hönd á Það þarf fólk... og Trúbrotin 13. „Þetta verður svona reggí og gömlu dansarnir í bland,“ lét Rúnar hafa eftir sér í spjalli er platan kom út og var tónninn í þeirri yfirlýsingu kersknislegur. Þetta er þó ekki fjarri lagi þegar lýsa á plötunni. Platan er róleg og fellur að líkani fyrri verka en við fyrstu hlustanir var þó eins og rennslið væri fulldauflegt og laga- smíðarnar jafnvel helst til ófrumlegar og grunnar. Fljótlega kom þó í ljós að platan er fjári lúmsk og læðist aftan að manni er á líður. Það sem gerir plötuna þó fyrst og síðast er nærvera Rúnars Júlíussonar sem sveipar plöt- una þeim kostum sem einkennt hafa síðustu plötur hans og nefndir voru í upphafi. Besta dæmið um þennan vaxandi eiginleika plötunnar er upphafslagið, „Er þú gengur inn í vorið“. Lauflétt reggístemma sem í blábyrjun virðist fulleinföld og ódýr en opnast fljótlega „upp á gátt“ svo vísað sé i textann. Eftir stendur eitt besta lag plöt- unnar, sólríkur og ómótstæðilegur gleðisöngur. Undir niðri skothelt „grúv“ Hjálma sem klára sitt með miklum sóma út alla plötuna og geta greinilega brugðið sér í allra kvikinda líki ef því er að skipta. Næsta lag á eftir er í svipuðum gír, lítt síðra og veltur um lífið og hvern- ig beri að lifa því eru einkennandi. Er líður að endalokum plötunnar er svo eins og Rúnar spili út tromp- unum. Tvö frumsamin lög, „Það er svo marg- t“og „Tíminn bíður ekki eftir þér“ eru mjög fal- leg, hið fyrsta í reggí- takti en hið síðara rokk- kyns, hrífandi rökkurballaða þar sem Rúnar veltir fyrir sér fallvaltleika lífsins. Söng- urinn er eftirtekt- arverður í þessu lagi, einlægur og nánast ang- istarfullur og maður gengur snortinn frá þeirri smíð. Plötunni er svo lokað með tveimur sálmum, eftir Jónas Tómasson og sjálfan Richard Wagner. Enn kemur Rúnar manni í opna skjöldu með einkar til- finningaþrungnum flutningi og er plötunni slaufað með glans. Blæbrigði lífsins er „lítil“ en snotur plata, en hún er ekki nema ríflega 30 mínútur að lengd. Hún er ekki galla- laus en sýnir og sannar að Rúnar Júl- íusson er einn merkasti tónlist- armaður sinnar kynslóðar. Verklag það sem hann viðhefur og hvernig hann nálgast hlutina er aðdáun- arvert. Á sjötugsaldri situr hann síst með hendur í skauti heldur dælir út plötum og nýtir hæfileika sína sem mest hann má. Hann veit að tíminn bíður ekki eftir honum. Látlaust og innilegt TÓNLIST Íslenskar plötur Rúnar Júlíusson syngur en um hljóðfæra- leik sjá Hjálmar. Þá skipa á þessari plötu Guðmundur Kristinn Jónsson (gítar), Sig- urður Halldór Guðmundsson (píanó, org- el, raddir), Þorsteinn Einarsson (gítar, raddir), Petter Winnberg (kontrabassi, raddir) og Kristinn Snær Guðmundsson (trommur). Rúnar á hér lög og texta í bland við nokkur erlend lög. Þorsteinn Eggertsson og Þórir Baldursson koma þá nokkuð við sögu í lagasmíðum. Útsetn- ingar voru í höndum Rúnars, Hjálma og Þóris Baldurssonar. Um upptökur sáu Rúnar, Ingi Þór Ingibergsson, Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmunds- son. Geimsteinn gefur út. Rúnar Júlíusson – Blæbrigði lífsins  Ljósmynd/Valdimar Sverrisson „Hún er ekki gallalaus en sýnir og sannar að Rúnar Júlíusson er einn merkasti tónlistarmaður sinnar kynslóðar,“ segir Arnar Eggert um plöt- una Blæbrigði lífsins. Arnar Eggert Thoroddsen UPPREISNIN, sem talin er marka upphaf sjálfstæðisbaráttu Indverja, hófst með mótmælum indverskra hermanna, sem flestir voru hindúar og múslimar, gegn ákvörðun Aust- ur-Indíafélagsins, að nota dýrafitu til að smyrja skothylki í byssum. Sögðu þeir slíkt í andstöðu við trú sína. Sagnfræðingurinn Saul David, sem skrifað hefur bók um upp- reisnina, segir engar sannanir á bak við þær aðdróttanir að yf- irmenn Austur-Indíafélagsins, sem fór með stjórn á Indlandi, hafi framið ódæðin, sem fram koma í myndinni. Setur hann spurning- armerki við þær ásakanir að Bretar hafi fyrirskipað að þorpi skuli eytt í kjölfarið að íbúar þess hafi neitað að gefa eftir landsvæði til ópíum- ræktar. „Austur-Indíafélagið höndlaði vissulega með ópíum. Ég hef hins vegar engar heimildir fyrir fjöldamorði í líkingu við þetta og dreg í efa að það hafi átt sér stað,“ sagði hann í samtali við breska rík- isútvarpið, BBC. Indverski sagnfræðingurinn, Ru- drangshu Mukherjee, sagði lítið vitað um sögu aðalsöguhetju mynd- arinnar, Mangal Pandey, sem leiddi uppreisnina fyrir 148 árum. Bretar lögðu til 150.000 pund (rúmar 17 milljónir íslenskra króna) til framleiðslu myndarinnar. Hafi það verið gert af faglegum ástæðum en ekki pólitískum. Í sam- tali við dagblaðið Daily Telegraph, sagði Hugo Swire, talsmaður menningarmála í Bretlandi, að landar sínir ættu fremur að ein- beita sér að því að styðja við bakið á innlendri kvikmyndagerð en er- lendri. Myndin The Rising var frum- sýnd í Bretlandi og á Indlandi síð- astliðin föstudag. Kvikmyndir | Breskir sagnfræðingar æfir vegna indverskrar kvikmyndar Umdeild uppreisn Aamir Kahn í hlutverki uppreisnarleiðtogans Mangal Pandey. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.