Morgunblaðið - 16.08.2005, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
TVÍTUG bandarísk kona í Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli lést af völdum stungusára í
fyrrinótt sem hún hlaut í árás fyrr um nóttina.
Bandarískur varnarliðsmaður er grunaður um
verknaðinn og er í haldi herlögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli, sem hefur forræði yfir
rannsókn málsins. Lögreglan á Keflavíkurflug-
velli aðstoðar við rannsóknina.
Hin látna var fædd árið 1985 og hinn grunaði
er fæddur 1984. Hún fannst í svefnskála fyrir
einhleypa varnarliðsmenn á miðnætti í fyrri-
nótt og var þá lífsmark með henni. Var hún
strax flutt á spítala en úrskurðuð látin er þang-
að kom. Hinn grunaði var handtekinn og að
auki var íslensk kona, fædd 1976, sem stödd var
í húsinu sem gestur, tekin til yfirheyrslu hjá
lögreglu. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar
sýslumanns á Keflavíkurflugvelli var henni
sleppt að loknum yfirheyrslum en var í haldi
lögreglunnar í fyrrinótt samkvæmt samkomu-
lagi. Hún hafði þó ekki réttarstöðu grunaðrar
manneskju.
Það er herlögreglan á Keflavíkurflugvelli
sem ber ábyrgð á vörslu hins grunaða og mun
það því ekki koma til kasta lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli að krefjast gæsluvarðhalds.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hef-
ur hinn grunaði áður komið við sögu lögreglu.
Um tengsl hinnar látnu og hins grunaða gef-
ur lögreglan ekki upplýsingar.
Ung kona hlaut ban-
væn stungusár í árás
Verknaðurinn var framinn í einni þessara
blokka fyrir varnarliðsmenn og hefur her-
lögreglan forræði yfir rannsókninni.
VINSTIHREYFINGIN – grænt
framboð mun bjóða fram lista
undir eigin merkjum í borgar-
stjórnarkosningum á komandi
vori, og var tillaga stjórnar þar
að lútandi samþykkt með miklum
meirihluta atkvæða á tólfta tím-
anum í gærkvöldi. Því er loks
endanlega ljóst að Reykjavíkur-
listinn í núverandi mynd mun
ekki bjóða fram í næstu kosn-
ingum.
Bornar voru upp tvær tillögur
á félagsfundi VG í gærkvöldi,
annars vegar tillaga stjórnar um
að samstarfinu um Reykjavíkur-
lista verði slitið eftir þetta kjör-
tímabil, en hins vegar tillaga
Bjarkar Vilhelmsdóttur borgar-
fulltrúa um að samstarfi um
Reykjavíkurlista verði haldið
arfulltrúum til að axla þá ábyrgð
sem því fylgir.“
Þar segir einnig: „Fundurinn
hvetur félagshyggjuflokkana í
borginni til þess að bindast fast-
mælum um samstarf og myndun
félagshyggjustjórnar á næsta
kjörtímabili, hvernig sem fram-
boðsmálum þeirra verður hátt-
að.“
Í tillögu Bjarkar fólst að sam-
starfi um Reykjavíkurlista yrði
haldið áfram, og að enginn einn
aðili að Reykjavíkursamstarfinu,
VG, Samfylking, Framsóknar-
flokkur eða óháðir, fengju meira
en þrjá fulltrúa í átta efstu sæt-
in, en flokkarnir sem stæðu að
samstarfinu fengju minnst tvo
fulltrúa hver. Röðun á lista færi
fram með prófkjöri meðal stuðn-
ingsmanna, og sá sem fengi flest
atkvæði yrði borgarstjóraefni
listans.
með það að Reykjavíkurlistinn
muni ekki starfa áfram,“ sagði
Björk, eftir að úrslitin lágu fyrir.
Hún segir þó ekki klofning innan
VG í Reykjavík, og hún voni að
félagshyggjuöflin í borginni
starfi saman eftir kosningar.
Í tillögu stjórnarinnar, sem
samþykkt var, segir m.a.: „Fé-
lagsfundurinn samþykkir, miðað
við þær forsendur sem nú liggja
fyrir, að hefja þegar undirbúning
að framboði flokksins fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar 2006.
Fundurinn leggur áherslu á að
VG í Reykjavík stendur að full-
um heilindum að stjórn Reykja-
víkurborgar undir merkjum
Reykjavíkurlistans á yfirstand-
andi kjörtímabili í samvinnu við
Samfylkinguna og Framsóknar-
flokkinn, á grundvelli gildandi
samstarfsyfirlýsingar og mál-
efnasamnings, og treystir borg-
áfram. Greidd voru atkvæði um
tillögurnar saman, 98 greiddu at-
kvæði og hlaut tillaga stjórnar 68
atkvæði, eða 69%, en tillaga
Bjarkar hlaut 28 atkvæði, eða
29%. Tveir seðlar voru auðir eða
ógildir.
Árni Þór Sigurðsson borgar-
fulltrúi, sem studdi tillögu
stjórnarinnar, segir mikilvægt að
afgerandi niðurstaða hafi fengist
á lýðræðislegan hátt. „Það er
ljóst miðað við þessa samþykkt
að við munum undirbúa okkar
framboð fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar, og það verður
ekki um R-lista að ræða í næstu
borgarstjórnarkosningum eins
og verið hefur,“ segir Árni.
Vonbrigði fyrir borgarbúa
„Þessi niðurstaða er ekki bara
vonbrigði fyrir mig, hún er von-
brigði fyrir borgarbúa, vonbrigði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Endalok R-listans ljós
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Sveinn Rúnar Hauksson (t.v.), Björk Vilhelmsdóttir og Árni Þór Sigurðsson báru saman bækur sínar áður en fundurinn hófst í gærkvöldi.
Vinstri grænir í Reykjavík samþykkja að bjóða fram undir eigin merkjum
ÍRANSKI leikstjórinn Abbas Kiarostami
verður heiðursgestur Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík sem hefst hinn
29. september næst-
komandi. Hann verður
viðstaddur Evrópu-
frumsýningu stutt-
myndarinnar The
Roads, og opnun sam-
nefndrar sýningar lista-
mannsins, The Roads of
Kiarostami.
Þá verður efnt til sér-
stakrar dagskrár helg-
aðrar ferli Kiarostamis
á kvikmyndahátíðinni þar sem sýnd verða
eldri verk leikstjórans og efnt til fyrir-
lestra og umræðna.
Abbas Kiarostami er einn áhrifamesti
leikstjóri Írans. Hann hefur unnið til fjöl-
margra verðlauna og viðurkenninga á
ferli sínum, en árið 1997 vann hann m.a.
Gullpálmann á Kvikmyndahátíðinni í
Cannes fyrir Taste of Cherry (Ta’m e
guilass). | 19
Abbas
Kiarostami
til Íslands
Abbas Kiarostami
♦♦♦
RÁÐNINGAR í leikskólana sem Reykja-
víkurborg rekur eru nú í fullum gangi.
Um 130 til 140 manns vantar til starfa og
þar sem ekki er nægt framboð af mennt-
uðum leikskólakennurum eru einkum
ófaglærðir starfsmenn ráðnir.
Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri
menntasviðs Reykjavíkurborgar, segir að
ástandið nú sé svipað og áður á þessum
árstíma, þegar sumarafleysingafólk
hverfur á braut eða fastir starfsmenn
fara í nám. Staðan sé misjöfn eftir skól-
um, allt frá því að marga starfsmenn
vanti upp í það að leikskólar séu full-
mannaðir. Einna erfiðust sé staðan þó í
Grafarvogi.
Gerður telur að miðað við lestur at-
vinnublaðs Morgunblaðsins um helgina
sé mikil vöntun á ófaglærðu starfsfólki á
vinnumarkaðnum. Því geti ráðningar orð-
ið eitthvað erfiðari en oft áður.
Fullmannað í stöður
grunnskólakennara
Nýtt menntasvið borgarinnar sér bæði
um rekstur leikskólanna og grunnskól-
anna. Gerður segir mjög vel hafa gengið
að ráða grunnskólakennara að þessu
sinni, nær fullmannað sé í þær stöður, en
ennþá sé óráðið í mörg önnur störf, m.a.
skólaliða og stuðningsfulltrúa.
Leikskólar
Reykjavíkur
Um 140
manns vant-
ar til starfa
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
♦♦♦
SEGJA má að sagan um að lögreglan sé
aldrei til taks þegar á þarf að halda hafi ver-
ið afsönnuð í gærkvöldi þegar liðlega tvítug-
ur maður hrifsaði veski af þungaðri konu á
veitingastað í austurhluta borgarinnar og
hljópst á brott.
Lögreglukona á frívakt varð vitni að at-
vikinu og tók þegar á sprett á eftir mann-
inum. Hún hljóp þjófinn uppi og sneri hann
niður og hringdi svo á einkennisbúna félaga
sína, sem færðu manninn til yfirheyrslu.
Sneri tösku-
þjófinn niður