Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 48

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 48
48 F MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Opið mán.-fim. frá kl. 9-18, fös. frá kl. 9-17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson, Óskar Þór Hilmarsson Löggiltur fasteignasali Pétur Þ. Sigurðsson hrl. Sími 562 4250 Borgartún 31 105 Reykjavík Fax 562 4249 www.fjarfest.is fjarfest@fjarfest.is VANTAR EIGNIR - MIKIL SALA Seljendur hafið samband við sölumenn fjarfest@fjarfest.is • www.fjarfest.is • Einbýlishús Tjaldanes - Garðabær Til sölu stórt og gott einbýlishús/tvíbýlishús með tvö- földum bílskúr, samtals um 370 fm. Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórri aukaíbúð á neðri hæð. Innangengt er úr íbúðinni í bílskúrinn, sem er um 44 fm. Húsið lítur mjög vel út að utan, var málað og yfirfarið í fyrra. Búið er að skipta um þak. Stór og gróinn garður er í kringum hús- ið. Bragagata - einbýli Til sölu gott einbýlishús, klætt bárujárni, samtals 97,7 fm á þremur hæðum, auk 9 fm geymsluskúrs, sem ekki er skráður hjá FMR. Húsið skiptist í eina 48,3 fm samþykkta íbúð og tvær ósam- þykktar í kjallara og risi, með sér inngöng- um. Vilyrði hefur fengist fyrir að byggja megi við húsið að sunnan- og vestanverðu og hækka portveggi þess. Parhús - Raðhús Bjarkarás - Garðabæ Til sölu mjög glæsilegt parhús með innbyggðum bíl- skúr, samtals 185,4 fm, auk sjónvarpsher- bergis í risi, sem er með frábæru útsýni. Gólfefni eru flísar og parket. Sérsmíðaðar inn- réttingar eru í húsinu. Arinn er í stofu. Sérher- bergi með svefnlofti inn af bílskúr. Lóðin er fullfrágengin, hönnuð af landslagsarkitekt, stór verönd með skjólveggjum. Mjög góð staðsetning innarlega í botnlangagötu. 2ja-3ja herbergja íbúðir Vesturberg - 2ja herb. Til sölu mjög falleg 55,3 fm, 2ja hebergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin er töluvert mikið endurnýjuð, bæði eldhús og baðherbergi. Tenging er fyrir þvottavél í baðherbergi. Úr stofu er gengið út á stórar suðvestursvalir. Öll sameignin lítur vel út og hefur verið í góðu viðhaldi. Mikið útsýni er úr íbúðinni yfir borg- ina. Verð 12,3 millj. Ljósheimar - 2ja herb. Erum með til sölu góða 2ja herbergja, 47,9 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Ný- legt parket er á allri íbúðinni. Baðherbergi flísalagt og með sturtuklefa, nýlega endurnýj- að. Eldhús með góðri innréttingu. Sér- geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, ásamt þvottaaðstöðu. Húsið sjálft var klætt að utan fyrir fáum árum og lítur vel út. Hverfisgata - 2ja herb. Mjög falleg 2ja herbergja risíbúð, 55,8 fm (gólf- flötur um 65 fm), á 3. hæð í nýlega yfirförnu fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er öll nýlega standsett og er því í mjög góðu ástandi. Flísalagt anddyri með góðum fata- skáp, baðherbergi flísalagt, en merbau-park- et á öðrum gólfum íbúðarinnar. Glæsileg eld- húsinnrétting úr kirsuberjaviði. Mikil lofthæð er í stofu. Austurströnd - 3ja herb. Til sölu stór og rúmgóð 3ja herbergja íbúð, 137,6 fm, með sérinngangi og stæði í bíla- geymslu. Íbúðin er mjög opin og með útsýni til norðurs. Á gólfum í anddyri, stofu og her- bergi er álímt merbau-parket. Rúmgott eldhús með ágætri innréttingu. Vönduð tæki, gas- eldavél, háfur og ofn, allt úr stáli. Stórt bað- herbergi með flísum á gólfi og veggjum, bað- kar og tengi fyrir þvottavél. Hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Verð 25,9 millj. Engjasel - 3ja herb. Falleg og vel skipulögð 3ja herb., 83,7 fm íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi, ásamt 30,7 fm stæði í lokaðri bílageymslu. Um er að ræða mikið uppgerða íbúð. Ný HTH-eldhúsinnrétting. Þvottahús inn af eldhúsi, með hillum. Eikarperket á gólfi í stofu, gengið úr stofu út á rúmgóðar suður- svalir. Nýlega standsett baðherbergi með innréttingu, flísum á gólfi og í kringum bað- kar. Snyrtileg sameign. Verð 16,5 millj. Laufengi - 3ja herb. Til sölu fall- eg og vel skipulögð 3ja herb., 83,9 fm íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi, með sérinngangi. Flísar eru á gólfi í anddyri, dúkur er á stofu, svefnherbergjum og baðherb. Baðherbergi með glugga og baðkari, tengi fyrir þvottavél. Snyrtileg og góð sameign. Húsið lítur mjög vel út. Núpalind - 3ja herb. pent- house Til sölu glæsileg 3ja herb.102 fm penthouse-íbúð með mikilli lofthæð, á efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi, ásamt stæði í bíla- geymslu. Allar innréttingar eru frá Brúnási. Á gólfum er merbau-parket en í anddyri, á baði og þvottaherbergi eru flísar á gólfum. Úr stofu er gengið út á stórar, flísalagðar suðursvalir. Sérgeymsla er í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu. Húsið er vandað að allri gerð, klætt marmarasalla að utan, byggt af byggingafélagi Gylfa og Gunnars. 4ra herbergja íbúðir Laufvangur - 4ra herb. Til sölu falleg og vel skipulögð 4ra herb., 113,2 fm íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Á gólfum í stofu, holi, gangi og herbergjum er fallegt álímt merbau-parket. Korkflísar eru á eldhúsi. Baðherbergi með glugga og baðkeri, flísar á baðgólfi og upp á miðja veggi. Stórar suð- vestursvalir. Sérgeymsla í kjallara. Húsið hef- ur verið í reglulegu viðhaldi. Norðurás - 4ra herb. Til sölu mjög góð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjöl- býlishúsi sem hefur verið haldið vel við. Íbúðin er 121,1 fm, að auki er 26,1 fm inn- byggður bílskúr, sem er innangengt í úr hús- inu. Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Stofa er með mikilli lofthæð. Stórt herbergi er á efri hæð, sem er í dag notað sem vinnu- stofa og bókaherbergi, geymslupláss er undir súð. Húsið er nýmálað og allt í góðu ástandi, hitalagnir eru í útitröppum og stétt- um næst húsi. Frábært útsýni. Rjúpnasalir - 4ra herb. Til sölu stórglæsileg 130,2 fm, 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með mjög glæsilegu útsýni í nýju, álklæddu lyftuhúsi. Parket er á flestum gólf- um. Innréttingar úr mahóní eru sérsmíðaðar frá Brúnási. Stórar, yfirbyggðar suðvestur- svalir, gengið úr stofu. Flísalagt baðherbergi með nuddbaðkari og glæsilegri innréttingu. Sérgeymsla og hjólageymsla eru í kjallara. Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. Lundarbrekka - 4ra herb. Til sölu góð og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 4. hæð með sér inngangi af svölum. Íbúðin er talsvert endurnýjuð, m.a. nýtt gler. Flísalagður gangur og stofa, úr stofu er útgangur á suðursvalir. Í baðherbergi er flísalagt gólf og veggir og upphengt sal- erni. Þvottaherbergi er í íbúðinni. Stór sér- geymsla er á jarðhæð auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Húsið verður mál- að að utan í sumar. Norðlingaholt - 4ra herb. Til sölu er ný 114,5 fm, 4ra herbergja íbúð, full- búin án gólfefna, með sérinngangi ásamt stæði í bílageymslu. Vandaðar innréttingar eru í eldhúsi, sem ná upp í loft, granít borð- plata og vönduð eldhústæki. Baðherbergi er flísalagt, með baðkeri og góðri innréttingu. Mynddyrasími er í íbúðinni. Atvinnuhúsnæði Grandavegur - Vesturbæ Til sölu í vesturbæ Reykjavíkur atvinnuhúsnæði sem skipt er niður í tvær einingar. Húsnæðið hefur verið notað fyrir verslun og vídeóleigu, heilsurækt og snyrtistofu. Húsnæðið er full- innréttað. SJÁLAND - GBÆ - NÝTT - Strandvegur 21-23 Nýjar og glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni í 3ja hæða fjölbýlishúsum með lyftu, sjávarmegin við Strandveginn. Íbúðirnar verða 99,9-134,8 fm, flestar með suður- eða vestursvölum. Þær afhendast tilb. án gólfefna nema á baðherb. og í þvottahúsi, en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum, sér- smíðuðum innrétt. frá Brúnási. Stæði í bílgeymslu, sem innangengt verður í úr húsinu, mun fylgja öllum íbúðunum. Öll sameignin, lóð og bílastæði, fullfrágengin. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í Smáralind. Afh. er í janúar og apríl 2006. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upp- lýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar, Borgartúni 31, og á www.fjarfest.is. SJÁLAND - GBÆ - NÝTT - Strandvegur 4-8 Nýjar og vandaðar 2ja-4ra herb. íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðirnar verða 71,4-120,2 fm, flest- ar með suður- eða vestursvölum. Þær afhendast tilbúnar án gólfefna nema á baðherb. og þvottahúsi, en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum innréttingum og mun stæði í bílageymslu, sem inn- angengt verður í úr húsinu, fylgja flestum íbúðum. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í Smáralind. Afh. í sept.-nóv. 2005. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikn. og nánari uppl. hjá sölu- mönnum Fjárfestingar, Borgartúni 31, og á www.fjarfest.is. Vogar - Vatnsleysuströnd - NÝTT ÖRFÁAR ÍBÚÐIR ÓSELDAR Hafin er bygging á þremur fjölbýlishúsum við Heiðargerði í Vogum. Íbúð- irnar verða 2ja, 3ja og 4ra herbergja, allar með sérinngangi. Um er að ræða 3ja hæða hæða stein- steypt hús, einangrað og álklætt að utan. Íbúðirnar verða afhentar tilbúnar án gólfefna nema á bað- herbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúðirnar verða með vönduðum innréttingum. Sérþvotta- hús og geymsla í hverri íbúð. Öll sameign frágengin og einnig lóð. Fyrstu íbúðirnar hafa þegar verið afhentar. Byggingaraðili er Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar og á netinu, slóðin er www.fjarfesting.is/tsh/heidargerdi/. Heiðvangur - Hafnarfirði Til sölu einbýlishús á besta stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða timburhús á einni hæð auk frístandandi bílskúrs, samtals um 150 fm. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, flísalagt baðherbergi, stórt þvottahús með útgangi, stofa, borðstofa og eldhús með útgangi á pall. Húsið stendur við lokaða botnlangagötu, rétt við ósnortið hraun. Stutt er í skóla og leikskóla.Verð 37,9 millj. ÞAÐ háði allri íþróttaiðkun í Reykjavík eftir aldamótin 1900 að enginn boðlegur leikvöllur var enn til. Árið 1910 var samþykkt á fundi íþróttafélaganna í bænum að stofna Íþróttasamband Reykjavíkur. Verkefni stjórnarinnar var að sjá um og reka íþróttavöll sem byggð- ur skyldi á Melunum og skipuleggja íþróttastarfið í bænum. Bæjar- stjórn lagði fram 2.500 krónur til framkvæmdarinnar. Áætlaður kostnaður við völlinn var 10.900 krónur svo sækja þurfti 8.400 krón- ur til einstaklinga. Það tókst að lok- um en mestu munaði um framlag dr. Valtýs Guðmundssonar prófess- ors sem útvegaði 2.000 krónur. Völlurinn kostaði um 13 þúsund krónur og var stærsta íþróttamann- virki landsins. Á þessum fyrsta Melavelli voru fjórar hlaupabraut- ir. Fyrir innan hlaupabrautirnar var malarvöllur fyrir knattspyrnu 102x68 m. Fyrir aftan mörkin var aðstaða fyrir frjálsíþróttamenn. Að norðvestan var sandgryfja fyrir há- stökk og stangarstökk. Í hinum endanum var aðstaða fyrir spjót- og kringlukast. Völlurinn var vígður sunnudaginn 11. júní 1911 að við- stöddum um 1.500 manns. Saga Melavallarins Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Frjálsíþróttamót voru haldin á Melavellinum, þessi mynd er frá 1951.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.