Morgunblaðið - 10.10.2005, Síða 52

Morgunblaðið - 10.10.2005, Síða 52
Þið verðið ánægð og ræstingarfólkið líka! Viðarhöfða 3 · S. 577-5050 www.gluggasmidjan.is Ál-trégluggar Trégluggar Álgluggar Útihurðir Tréhurðir Álhurðir Bílskúrshurðir Iðnaðarhurðir Hringhurðir Rennihurðir Loftristar Gæðavottuð framleiðsla - yfir 50 ára reynsla Heitir & fallegir Ofnar Ofnlokar Handklæðaofnar Sérpantanir www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is Háteigisvegi 7 Sími: 511 1100 52 F MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Álfkonuhvarf - 3ja herb. - Kópavogi *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í einkasölu 98,8 m2, 3ja herbergja íbúð með geymslu ásamt bílastæði í bílageymslu í nýju 3ja- 4ra hæða lyftuhúsi í Kópavogi. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi og einkalóð. Íbúðin afhendist fullbúin, án gólfefna í nóvember 2005. Verð 21,9 m. Lómasalir - 4ra herb. - Kópavogi Erum með mjög fallega og bjarta 124,2 m2, 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í 4ra hæða lyftuhúsi við Lómasali í Kópavogi. Þrjú mjög rúmgóð herbergi, björt stofa, eldhús með kirsuberjainnréttingu og borðkrók, baðherbergi m/kari og sjónvarpshol. Íbúðinni fylgir stæði í upphitaðri bílageymslu. Mjög fallegt útsýni í vesturátt yfir Rjúpnahæð og út á sundin. Íbúðin er laus til afh. við kaupsamning. Verð 26,9 m.  Þórufell - 2ja herb. - RVK *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá rúmgóða og bjarta 56,7 m2 íbúð á 3. hæð í 4ra hæða fjölbýli við Þórufell í Reykjavík. Stór og björt stofa, eldhús með litlum borðkrók, gott svefnherbergi og lítið baðherbergi m/sturtu. Eldhúsinnrétting og fataskápar ca 9 ára gamlir. Þetta er tilvalin eign fyrir þá sem eru að byrja að búa. Íbúðin er laus til afhendingar strax. Verð 10.9 m. Hvassaleiti - 4ra herb. m/ bílskúr Erum með 101,5 m2, 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í 4ra hæða fjölbýli ásamt 20,4 m2 bílskúr á þessu vinsæla stað í Reykjavík. Íbúð er staðsett í enda og því mjög björt og rúmgóð. Mjög stór stofa og borðstofa og eldhús með góðum borðkrók. Svalir snúa í suðvestur. Húsið var málað að utan fyrir 2 árum og lítur vel út. Hiti er í stétt fyrir framan húsið. Verð 21,6 m. Kleppsvegur - 4ra herb + aukaherb. - RVK *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 4ra herbergja íbúð á 2. hæð auk aukaherbergis í kjallara í 3ja hæða fjölbýli við Kleppsveg, samtals 129,2 m2. Íbúðin sjálf er rúmgóð og björt, eldhús m/borðkrók, góð stofa og sérþvottahús. Svalir bæði í vestur og austur. 21,5 m2 aukaherbergi í kjallara með eldhúskrók og aðgangi að baði, tilvalið til útleigu. Frábær staðsetning, rétt við Holtagarða, fallegt útsýni til Esjunnar. Verð 23,7 m. Árbakki - einbýli á eignarlóð *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 134,8 m2 einbýlishús á mjög fallegum stað á 1.889 m2 eignarlóð við við Bjargsveg í Mosfellsbæ. 4 herbergi. Mikill og hár trjágróður er í kringum húsið sem stendur rétt við Varmána. Mögulegt er að byggja við húsið. Tilvalin eign fyrir náttúru- og dýraunnendur. Verð 34,8 m. Brattholt - 184 m2 einbýlishús *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallegt 144,8 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt 39,2 m2 bílskúr með fallegum grónum garði. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, góð stofa með arni, sjónvapshol, eldhús m/borðkrók, sérþvottahús, baðherbergi og gestasalerni. Þetta er falleg eign á mjög góðum stað, mjög stutt í besta bakarí landins. Verð 35,9 m. Klapparhlíð - 2ja herb. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallega 66,1 m2, 2ja herbergja íbúð með geymslu, á 2. hæð í nýlegu 3ja hæða fjölbýli. Gott svefnherbergi með mahony skáp, baðherbergi m/sturtu, sérþvottahús og eldhús og stofa. Góðar suðvestursvalir og fallegt útsýni. Leikskóli og grunnskóli og væntanleg sundlaug í augsýn. Verð 14,8 m. Markholt - 3ja herb. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 80,7 m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í tveggja hæða fjölbýli rétt við við miðbæ Mosfellsbæjar. 2 rúmgóð svefnherbergi, eldhús með borðkrók, stofa og baðherbergi m/sturtu. Íbúðinni fylgir sérafnotaréttur af lóð. Stutt í skóla og alla þjónustu. Verð 14,8 m. Klapparhlíð - 2ja herb. Erum með 65 m2, 2ja herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli. Rúmgott svefnherbergi m/mahony skáp, baðherbergi með sturtu, sérþvottahús, mahony eldhúsinnrétting, björt stofa og sérgeymsla. Góðar suðursvalir með mjög miklu útsýni. Sérinngangur af opnum stigagangi. **Íbúðin er til afhendingar strax.** Verð 14,9 m. Byggingarlóðir Erum með til sölu 7 lóðir undir einbýlishús á mjög fallegum stað í Mosfellsbæ, rétt við Reyki. Annarsvegar er um 4 lóðir að ræða úr landi Efra-Hvols og hinsvegar 3 lóðir úr landi Ása. Lóðirnar eru allar stórar og rúmgóðar, þ.e. frá 930 m2 upp í 2.200 m2. Allar nánari upp upplýsingar gefur Einar Páll Kjærnested, lg.fs. Völuteigur - atvinnuhúsnæði TIL LEIGU. Vorum að fá til leigu 1.431 m2 atvinnuhúsnæði á 2 hæðum við Völuteig. Rýmið er í dag fullbúið sem skrifstofur. Hægt er skipta rýminu niður í annarsvegar 585 m2 skrifstofur á einni hæð og hinsvegar í 846 m2 skrifstofur á 2 hæðum. Spennandi valkostur á hagstæðu verði. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.