Tíminn - 25.07.1970, Page 14
TÍMINN
LAUGARDAGUK 25. JÚLf 1970
FJÖLFÆTLAN
MEST SELDA BUVÉLIN
Allir bændur
þekkja FAHR
fjölfætluna,
sem er
ómissandi
við heyskap-
inn. Nú eru að verða síðustu forvöð að tryggja
sér FAHR fjölfætlu á hagstæðu verði. Nýju gerð-
irnar eru endurbættar og afkastameiri.
Tryggið yður góða heyverkun og pantið FAHR
fjölfætluna strax.
SLÁTTUÞYRLA
BETRI
SLÁTTUR
FAHR sláttuþyrlurnar eru afkastamestu sláttuvél-
arnar á markaðinum og hafa hlotið frábæra dóma
hjá bútæknideildinni og bændum um land allt.
Vér getum enn afgreitt til yðar FAHR sláttuþyrl-
ur, ef pantað er strax. Athugið hagstæð verð og
greiðsluskilmála.
ÞORHF
REYKJAVÍK SKÓLAVÖROUSTÍG 25
B U VE LAR
Ferðafólk - Ferðafólk
Heitur matur i hádeginu og á kvöldin.
Grill-réttir — kaffi og smurt brauð allan daginn
Staðarskáli, HrútafirðL
LEIORÉTTING
Því miður komst prentvillupúk-
inn í afmælisvísuna fil Guðmund
ar Kr. Guðmundssonar í tilefni af
áttræðisafmæli hans, sem birtist
í Waðinu í gær. Hún átti að réttu
lagi að hljóða á bessa leið:
Síðbúin afmæliskveðja.
Um þinn farna ævistig,
andar blærinn frjáls og glaður.
Elli felli aldrei þig,
aldni snjalli glímumaður.
Einn af Sandlækjarætt.
Laxveiði
Framhald af bls. 16
veiða um 330 laxa úr EUiða
ánum og mun það vera mjög
álíka veiði og var þar á sama
tíma í fyrra, en í lok júlímán
aðar í fyrra, var búið að veiða
442 laxa úr ánum.
Athygli hefur vakið, hve seint
laxinn fór fyrir alvöru að ganga
í árnar, og álitu margir að EU-
iðaárlaxinn væri að ganga upp
í Korpu, en bar var búið að
veiða 123 laxa um miðjan mán
uðinn, sem verður að telja
góða veiði þar.
Miðfjarðaráin fremur treg.
Þann 19. júlí s. 1. var alls
búið að veiða 150 laxa úr Mið
fjarðará og verður að telja það
íremur lélega veiði borið sam
an við sumarið áður.
Eins og kunnugt er, var
Miðfjarðaráin mjög góð lax-
veiðiá, áður fyrr. t. d. veidd
ust 1900 laxar úr henni eitt
sumarið. Hins vegar hefur ver
ið léleg veiði í henni síðustu
árin, þótt hún færi nokkuð
upp 1968, en þá veiddust yfir
þúsund laxar úr henni, en í
fyrra veiddust þar aðeins 670
laxar. Er vonandi að áin taki
við sér í ágústmánuði.
f Víðidalsá hefur verið sæmi
leg veiði og var 19. júlí búið
að veiða 320 laxa úr henni, þá
hefur einnig verið sæmileg
veiði í Svartá og Blöndu.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af ols. 8
innihaldi möl eða gjall, cr al-
kunn, en fyrir bragðið hcfur
landið hið næsta vegun-
um, víða verið svipt siiuii
náttúrulegu fegurð. Einkum er
þetta áberandi þar sem vcgir
liggja nálægt gjallhólum, og
getur víða að líta hörmuleg
dæmi um það.
Hverfi hólarnir alveg er það
ekki svo slæmt, en oftast standa
þó eftir rústir þeirra, líkt og
hrunin hús. Slík umgengni ætti
að vera óþörf jafnvel þótt vega
gerðin eigi í lilut. Engum dett-
ur í hug, að komizt verði af
án ofaníburðar. Spurningin er
aðeins sú, hvort ekki megi fara
að með ofurlítið meiri gát. T.d.
ætti að mega prófa efni hól-
anna með rekum eða litlum
jarðlior, í stað þess að senda
jarðýtuna upp á liólinn til að
kanna hann.
Gerum betur
Frá upphafi mun svo hafa
verið til ætlazt, að Vegagerð-
in græddi upp þau sár, sem
hún veldur í grónu landi- Þetta
hefur þó jafnan verið van-
rækt, þar til nú á allra síðustu
árum, að sumir vegaverkstjór-
ar eru byrjaðir að framkvæma
þessa skyldu. Þá vill hins veg-
ar ekki betur til en svo, að
oftast er sáð í fáeina metra
belti, hið næsta veginum, en
það sem er þar fyrir utan er
látið ógrætt. Þessi vinnubrögð
eru ekki sæmandi Vegagerð-
inni.“ _ TK
Skuttogarar
Framhald af Dls. 1.
búnaði en jafnvel búizt var við,
áður en farið var að heiman. Tog-
ara þessa telja þeir fyrsta flokks
skip hvað smíði véla og allan frá-
gang snertir , og eigi þeir qie{j.
smávægiiegum breytingum, varð-
andi Ísíertzkar aðstæður, að geta
fullnægt fyllstu kröfum til þeirra
togveiða sem skipin eru ætluð
fyrir.
Er hér um að ræða 1000 lesta
nýtízku skuttogara af sömu gerð
og stærð og Skuttogaranefndin
hefur lagt til að byggðir verði, en
sem munu ekki vera tilbúnir til
veiða fyrr en eftir 2—3 ár. Þar
að auki eru þessir nýju Útha.fs-
togarar útbúnir tvennum afkasta-
miklum fiskiaðgerðartækjum hvor
fyrir sig, ásamt fiskþvottavélum
og nauðsyiilegum færiböndum til
að flytja fiskinn eða úrganginn
milli vélanna og til lestanna, sem
eru tvær, framlest og afturlest.
Öll eru þessi tæki af þekktum
viðurkenndum gerðum og sama
má segja um öll önnur tæki og
vélar í skipunum. Er þá sama
um hvers konar vélar eða spil er
að ræða, siglinga- og fiskileitar-
tæki, radartæki og loftskeytatæki,
en af flestum þessum tækjum eru
um borð tvennar gerðir.
Þá eru allar vistarverur næg-
ar og rúmgéðar og vélknúin loft-
ræsting í hverju herbergi og á
vinnustað. Atals vatnseimingar-
tæki framleiða allt vatn, sem þarf
í skipinu. Þá eru í skipunum góð-
ar og stórar frystigeymslur fyrir
matvæli.
Skipin eru mjög nákvæmlega
skoðuð og ýfirfarin. Farið var í
„prufutúr" á öðrum togaranum
út á Biskayflóa og einnig var
annar togarinn tekinn upp í þurr-
kví til að skoða í honum botninn.
Þá voru öll tæki í þáðum skipun-
um sett í gang og „prófuð“ með
ýmsum hætti, jafnvel teknir upp
stimpla.- í aðalvél til athugunar
og reyndist allt í bezta lagi.
Stjórn Úthafs h.f., hefur gengið
frá samningum um kaup á báðum
skipunum og seljendur hafa skuld-
bundið sig til að bera ábyrgð á
öllum tæknilegum göllum er
kynnu að koma fram í vélum skip
anna næstu 6 mánuði og munu
tveir spánskir tæknimenn fylgja
skipunum til að bvrja með, að
ósk stjórnar Úthafs h.f.
Þann dag, sem hinir opinberu
aðilar eru tilbúnir að greiða sitt
lofaða framlag, 7,5% frá riki og
bæ, hvoru fyrir sig, verða skipin
afhent Úthaf h.f., og munu skipin
þá geta siglt hingað inn á höfnina
ca. 10 dögum síðar, tilbúin til
veiða.
Þó nú stjórn Úthafs h.f. hafi
ákveðið að festr. kaup á báðum
þessum skipum, vegna þess að
hér er um vandaða nýtízku s'kut-
togara að ræða og því um aug-
ljósan ávinning hvað snertir endur
nýjun íslenzka togaraflotans, sem
lengi er búið að vera eitt höfuð-
markmið íslenzkra sjómanna, þá
er stjórn Úthafs h.f. samt enn
þeirrar skoðunar ,að hún hefur
alltaf haft, að kaup á fullkomnu
verksmiðjufiskiskipi, hljóti að
verða arðvænlegri útgerð og
mesta framfarasporið og jafn-
framt stórvirkasta aðferðin til
g j ald ey risöf lun ar.
Stjórn Úthafs h.f. á þvi eftir
að athuga hvort félagið geri sjálft
út skipin, sem það vissulega getur,
eða afhendi þau öðrum aðilum,
ef það gæti flýtt fyrir kaupum
á verksmiðjuskuttogara þeim,
sem er aðalmarkmið félagsins.
Verð þessara togara er um 90
milljénir kréna, eða 50 milljónum
lægra verð á hvort skip en lægsta
lilboðið er í þá togara, sem verið
er að semja um að byggja.
Týnda flugvélin
Framhald af bls 1
að þær myndu lenda með 10
mínútna millibili.
Bandarískar flugvélar hafa
farið 44 flugferðir með lyf og
hjálpargögn til jarðskjálfta-
svæðanna í Perú, og frá Kúbu
hafa farið 20 flugvélafarmar af
hjálpargögnum, að þvf er segir
í nýútkomnu Newsweek.
Heyskaparútlit
Framhald af bls 1
er seinni fyrir það. En bað er
kuldinn, sem Tangmesta sökina á,
hann veldur því, að lítt skemmt,
eða óskemmt land sprettur illa.
Ef sprettutíð hefði verið góð,
hefði mikið af kalinu getað gróið
upp og náð sér.
— Eru bændur almennt farnir
að slá?
— Það eru allir farnir að slá
sem eitthvað hafa til að slá. En
það eru bara fjölmargir, sem ekk-
ert hafa til að slá. Horfurnar
eru mjög slæmar eins og er, en
það getur rætzt úr, ef fer áð
hlýna verulega.
— Ef ekki rætist úr, til hvaða
ráða taka menn þá?
— Það er ómögulegt að segja,
til hvaða ráða verður tekið, en
það er bezt, að vona að úr rætist,
sagði búnáðarmálastjóri að end-
ingu.
íþróttir
Framhald af bls. 12
Stefánsson og Hrafnhildi Tómas-
dóttur, Sigluf., í úrslitum, 15:1
oa 15:2.
Meyjaflokkur: einliðaleikur:
Hrafnhildur Tómasdóttir, Siglu
firði, vann Svanbjörgu Pálsdóttur,
Sigluf., í úrslitum, 14:6 og 11:4.
íþróttir
Framhald af bls. 13.
Trine Krogh, -N 4.56.4
(N. metl
Vilborg Júlíusdóttir, I 504.4
(ts'. met)
100 m. skriðsund drengja
Thomas Göransson, f 58.2
Bernt Zarnowiecki, S 59.5
Thomas Palmgren, F 59.7
Ove Kath, D 1.00.0
200 m. bringusund stúlkna
Marina Eklöf, S 2.55.3
Susanne Tour, S 2.58.1
Kristin Sta'.lvik, N 3.00.4
Helga Gunnarsdóttir, í 3.01.0
100 m. flugsund drengja
Risto Kaipainen, S 1.04.3
Cató Kristensen, N 1.05.5
Jan Peter Sjögren, S 1.07.0
Hafþór Guðmundsson, í 1.07.6
100 m. baksund drengja
Lars Borgesen, D 1.04.6
Tom Olav Sekse, N 1.06.1
Ronnie Palm, S 1.07.3
Leif Eriksson, S 1.09.3
4x100 m. fjórsund stúlkna
Svíþjóð 4.57.0
Danmörk 5.03.5
Noregur 5.04.3
Finnland 5.07.2
Dýfingarnar unnu unglingar frá
Finnlandi. — Kari Saastamoinen,
3 m. og 10 m. drengja, og Laura
Kivela, 3 m. og 10 m. stúfkna.
Rætt við ísleif
Framhald af bls. 8
hlaðanum, þar kenoir margra
grasa.
— Já, ég er búinn að fara um
allt landið nema Öræfin og Borg-
arfjörð eystra.
— Rauðisandur í öllum reg'n-
boganslitum, þegar sjórinn flæðir
út af sandinum. Sjöundará — fræg
ur staður, Út í Skor — Þaðan lagði
Eggert Ólafsson í sina síðustu för.
Melanes, þar sem ívar karlinn býr.
— Skriðuklaustur — þar bjó skáld-
ið.
Ég hef málað drangana hjá Mý-
vatni, ég er spenntur fyrir dröng-
um og vogum. Strandirnar — Já,
það er erfitt að ferðast um Strand-
irnar. Myndirnar þaðan eru sumar
málaðar eftir minnd.
Hér er Hvítserkur — Grímsey,
falleg mynd, Kleifar, Hafnarhólm-
ur og Hamar.
Kaldrananes, þar sem ég var
íenmdur. Sjáðu, þarna er kirkjan.
Eyjar — varpið, fuglarnir og heið-
in fyrir ofan.
Ég hef mikið yndi af að mála,
get ekki sofið fyrir áhuga. En
þetta er svakalega mikil vinna.
Gróðinn af þessari iðju verður
ekki mikill. Efnið er dýrt og ég
hcf selt „hillega". Þessir „ahstrakt“
málarar selja rándýrt. Ég vil ekki
líta á svo'eiðis rusl. Það er bara
fúsk.
Það má heldur ekki selja of
„billega", þá eyðileggja menn
bara fyrir öðrum. En það er eins
og listfræðingurinn segir: „Fólk
er óútreiknanlegt í vali“. Sjáðu,
þetta er SvínafeH í Öræfum. Þar
er fjárbýli. Svona er staðurinn —
bóndabær, tún og skógur.
Það bezta, sem fólk getar kosið
sór, er nóg starf og gott kaup.
Hefði ég heila fætur þá færi ég
út á land. Ég er leiður á þessu
borgarlífi. Fagurt landslag í sveit
á sumrin, það ér alveg dásamlegt
Mér er sama þó ég væri í tjafdi
norður á Bjarnarnesi, jafnvel einn.
Betra þó að vera tveir saman, ef
báðir eru hneigðir fyrir að skynja
fjölbreytni náttúrunnar og lifandi
list.
Nú er ég á öðru ári yfir áttrætt
og ég ætla að halda sýningu í
september. Sjáðu þessa mynd
hérna, Veiztu hvað þetta er?
— Nei. það er ekki von. En þetta
er fífa. Úr henni voru snúnir kveik
ir í Iýsislampana í gamla daga.
Listamannsferii’linn er ekki
langur — Ónei — Bara síðan ég
komst á ellilaun og hitti hann
Jóhannes Kjarval í Bankastrætinu
— manninn, sem vísaði mér þann
veg, er gerði elliár mín bærileg.
Þ. M.