Tíminn - 08.09.1970, Síða 16
ÞrtSjudagui* 8. september' T9TW;
Ræða forseta íslantls á Friðriksbergi - Sjá bls. 6 og 7
Prentarar
hafa samið
EJ—Reykjavík, mánudag.
Samkomulag prcntara og prent-
smiðjueigenda var í dag samþykkt
á félagsfundi í HÍP. Samkvæmt
hinum nýja kjarasamningi, hækk-
ar kaup prentara um ca. 18,2—
21,4%, auk þess sem þeir fengu
ýmsar aðrar þýðingarmiklar leið-
réttingar á fyrri samningi.
Frá fundi Hins isi. prentarafélags í Iðnó siðdegis í gær.
(Tímamynd — G6)
Verða að d Ivel ija 14
dae a i katiDH taii na íorn
- Rætt við íslending í sóttkví í Kaupmannahöfn
77 Islendingar í sóttkví
vegna bólusóttarínnar
KJ—Kaupmannahöfn, mánudag.
Páll Sigurðsson rakarameistari
í Reykjavík, sagði fréttamanni
Tímans í Kaupmannahöfn, að hann
og kona hans yrðu að vera í Kaup-
mannahöfn í fjórtán daga, eða þar
til engin smithætta væri lengur.
Páll sagði, að norski námsmaðurinn,
Stein pettersen hefði komið til
Skodsborg, en unnusta hans vinn-
ur þar og er sjúkraþjálfari. Gisti
Pettersen þarna eina nótt, en dag
itm eftir var hann órðinp sjúkur
g 7ar sóttur læknir, sem fann út
*S hann var með a,Varlegan sjúk-
dóim. Þess vegna var pilturinn
fluttur á sjúkrahús. Kom síðar í
ljós að hann var með bólusótt.
4 í sóttkví á Vífilsstöðum:
„Verðum
einangraðar
til 13. sept.“
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Tíminn talaði í dag við eina
af stúlkunum, sem eru í sótt-
kví á Vífilsstöðum,- Höllu Guð-
jónsdóttur. Sagði hún að þær
væru í ágætu íbúðarhúsi, og
hefðu ekki yfir neinu að
kvarta, nema helzt því áð kom
ast ekki út, en stúlkurnar
verða að dvelja í einangrun til
13. sept. Einu aðilarnir sem
heimsækja stúlkumar eru yfir
læknir Vífilsstaðahælisins og
hjúkrunarkona. Er fylgzt vel
i. r ' ^ ^ " r ' - -- -- -------
120 manns af starfsliði Skods-
borg hefur verið einangrað þangað
til 14. þ. m., en búið er að bólu-
setja fólk sem dvaldi í Skodsborg.
— Þess skal getið, sagði Pá.’l,
að norski námsmaðurinn kom
aldrei í hús þar sem dvalargestir
eru, heldur var í allt öðru húsi
og umgekkst dvalargestina alls
ekki. Pál; sagði að sendiráðið hér
í Kaupmannahöfn og Flugfélagið
hefði brugðizt skjótt og vel við,
þegar fréttist um það að íslend-
ingarnir fengju ekki að koma heim
nema að vera í sóttkví og bað hann
blaðið að færa ■ sendiráðinu og
Flugfélaginu alúðarþakkir fyrir
skjót og góð viðbrögð.
mcð heilsu stúlknanna. Auk
Höllu eru í sóttkvínni, Jóhanna
Þórðardóttir, Margrét Beck og
Sigrún Sigurðardóttir.
— Ég og Jóhanna komum til
landsins á laugardaginn og vor-
um „húkkaðar" á flugvellinum
og fluttar hingað. Margrét
Beck kom 2. sept. og var hún
komin heim til sín, austur í
Hornafjörð og var náð í hana
þangað. Sigrún kom 31. júlí.
Við unnum allar á Skodsborg-
í sumar. Þrjár okkar eru í
sfeóla.
— Við höfum hér ágæta
íbúð. Fyrst í stað kom stund-
um fólk á gluggann hjá okk-
ur ,en nú er búið að banna
það, svo að eina sambandið
sem við höfum við ættingja
er gegnum síma. Annars höf-
um við kannski ekkert við heim
sóknir að gera. Við erum búnar
að taka inn svo mikið af mót-
eitri, að við erum all-ar hálf
lasnar. Þetta era mjög stórar
Framhald á 14. síðu.
Engin ástæða til að óttast bólusóttarfaraldur hér, segir landlæknir
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Fjórar íslenzkar stúlkur eru nú
í sóttkví á Vífilsstöðum, vegna
bólusóttartilfellisins, sem upp kom
í Danmörku fyrir nokkru. Sjö ís-
lendingar aðrir eru í sóttkví í
Kaupmannahöfn. Stúlkurnar unnu
allar á Skodsborgarhælinu við
Kaupmannahöfn, en þar liggur
bólusóttarsjúklingur, sem er 22
ára gamall Norðmaður. lljnlr ís-
lendingarnir, sem eru í sóttkví í
Danmörku unnu einnig á liælinu,
en alls unnu þar 23 jslenzkar stúlk
ur í sumar. Fylgzt verður með
öllum íslendingum sem koma til
landsins frá Danmörku á næst-
unni og verða þeir sem ástæða
þykir til settir j sóttkví. Land-
læknir sagði á fundi með blaða-
mönnum í dag, að lítil ástæða
værj til að óttast að veikin breidd
ist út, cn sjálfsagt þykir að við-
hafa allar nauðsynlegar varúðar-
ráðstafanir.
Landlæknir sagði:
Síðast liðið föstudagskvöld kom
frá dönskum heilbrigðisyfirvöldum
tilkynning um staðfest bólusóttar-
tilfélli í Kaupmannahöfn. Aðkomu
maður hafði setzt að á heilsuhæl-
inu Skodsborg seinni hluta dags
26. ágúst í sérst'ökum starfsmanna
bústað, veikfist að kvöldi hins 27.
og var fluttur af hælinu í sjúkra-
hús í Kaupmannahöfn 31. ágúst.
Hann kom ekki í sjálft heilsuhæl
ið. Á Skodsborg unnu þá allmarg-
ir íslendipgar, og bjuggu 7 þeirra
í sama bústað og sjúklingurinn.
Þessir 7 íslendingar eru nú í ein
angrun i Káupmannahöfn.
Það er orðinn árlegur viðburð-
ur, að bólusótt berist til F.vrópu
vegna sífelldra samgangna við
iönd, þar sem veikin er landlæg.
Sjaldnast er tilefni til víðtækra
ráðstafana af þessum sökum utan
þess lands eða staðar, sem veikin
hefur borizt til, en með því að
íslendingar voru nú við störf á
staðnum, þar sem sjúklingur veikt
ist. þykir rétt tit öryggis að gera
frekari ráðstafanir að þessu sinni.
Eftir fund, sem haldinn var á skrif
stofu landlæknis s.l. laugardag,
voru tektiar eftirfarandl ákvarð-
anir:
1. Rétt þykir að einangra þá
íslenzka starfsmenn, sem unnu á
heilsuhælinu Skodsborg í Dan-
mörku frá og með 26. ágúst til
og með 31. ágúst og kynnu að
koma til landsins fyrir 15. septem
ber, þó að litlar líkur séju til, að
þeir hafi smitazt. Einangrað verð
ur í sérstöku húsi á Vífilsstöðum.
Þangað eru nú komnar 4 stúlkur.
Ef koma þarf til þeirra sending-
um, verða þær að afhendast yfir-
lækni Vífilsstaðahælis eða öðrum
í umboði hans.
2. íslenzkir sjúklingar, sem dval
izt hafa á Skodsborg áðurnefndan
tíma, verða hafðir undir sérstöku
eftirliti, ef þeir koma til landsins
fyrir 15. september.
3. Notað verður sérstakt hús á
lóð Kópavogshælis fyrir sjúklinga
ef einhver kynni að veikjast af
bólusótt.
4. Fylgzt verður með farþegum,
sem koma frá Danmörku í sam-
ræmi við sóttvarnarlöggjöf.
5. Ef í ljós kemur. að bólusótt-
arsjúklingurinn í Kaupmannahöfn
hefur smitað frá sér,- verður hert
á eftirliti, einnig í samræmi við
sóttvarnarlöggjöf.
6. Ef einangra þarf fleiri en
fyrir komast á Vífilsstöðum, verð-
ur húsnæði tiltækt, þegar á þarf
að hald a.
7. Ekki þykir ástæða til almennr
ar bólusetningar hér að svo
stöddu.
Norðmaðurinn sem er með bólu
sóttina er þungt haldinn. Er hann
nýkominn frá Afganistan, en þar
er bólusótt landlæg og hefur hann
tekið veikina þar. Kom hann til
Skodsborgar 26. ágúst s.l. Var
maðurinn lasinn og kom brátt í
ljós hvað að honum gekk. Voru
þá þegar gerðar miklar varúðar-
Framhald á 14. síðu.
Framboðslisti í
Norðurlandskjör-
dæmi vestra
GÓ—Sauðárkróki, mánudag.
Á kjörþingi Framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi vestra, sem
haldið var á Hvammstanga í gær,
sunnudag, var endanlega gengið
frá framboðslista flokksins í kiör-
dæminu við næstu alþingiskosning-
ar. Listinn er þannig skipaður:
Ólafur Jóhannesson, prófessor,
Reykjavík, Björn Pálsson, bóndi,
Löngumýri, Magnús H. Gíslason,
bóndi, Frostastöðum, Stefán Guð-
mundsson, byggingameistari, Sauð-
árkróki, Sigurður Líndal, bóndi,
Lækjarhvammi, Bogi Sigurbjörns
son, skattendurskoðandi, Sigíu-
fiitði, Guðmundur Jónasson, bóndi,
Ási, Ólafur H. Kristjánsson, skóla-
stjóri, Reykjum,. Helga fcistjáns-
dóttir, frú Silfrastöðum og Bjarni
Þorsteinsson, verkstjóri, Siglufirði.
Björn Pálsson
Magnús H. Gíslason
Ólafur Jóhannesson
Stefán Guðmundsson
Bogi Sigurbjörnsson
Siguröur Lindal