Morgunblaðið - 16.06.2005, Blaðsíða 24
24
TÍSKA
að er óhætt að fullyrða
að Victoria Beckham sé
tískudrottning 21. ald-
arinnar, enda hefur hún oftar en
einu sinni verið valin best klædda
konan af lesendum tískutímarit-
anna. Victoria lifir fyrir mun-
aðarvörur og lúxus og klæðist að-
eins því besta. Uppáhaldsmerkin
hennar eru Dolce&Gabbana,
Donatella Versace og Gucci. Hún er
mikið í Logo-fötum frá D&G og
sögur segja hana sponseraða af
þeim félögum.
Victoria klæðist efnislitlum fötum
sem undirstrika vöxt hennar og er
hversdagsfatnaður hennar allt frá
gallabuxum, stuttum pilsum í
kjóla. Hún er oftar en ekki berfætt,
í háum hælum og með tösku í stíl.
Að mati hönnuða og verslunareig-
enda er Victoria vænlegur við-
skiptavinur. Sögur segja að þegar
hún mæti í uppáhaldsbúðirnar sín-
ar sé afgreiðslufólkið strax komið
með títuprjónana á loft, því hún er
mikið fyrir að hafa fötin sín þröng!
Victoria er ein af þeim sem leggja
línurnar í tískunni. Nýjasta fyrir-
bærið í tískunni, sem rakið er til
hennar, eru svokölluð sígaunapils.
Hún er mikið í dragsíðum
sígaunapilsum þessa dagana við
litla hlýraboli sem líkjast nær-
bolum. Við þetta notar hún
hippalegt belti, sem hún lætur
hanga um mjaðmirnar, og háa
hæla. Hún skreytir sig mikið með
VICTORIA BECKHAM
TÍSKUDROTTNING 21. ALDARINNAR
6
2
1
7
3
Texti
Kristrún Helga
Hafþórsdóttir
Myndir
Getty Images
54
1. og 2.
Myndir af Victoriu
Beckham sem birtust
í tímaritinu Glamour.
3. og 4.
Victoria í korsilettu-
topp frá Dolce&
Gabbana.
5.
Victoria er mikið í
stuttum kjólum og
pilsum enda með fal-
legar fætur sem njóta
sín í stuttu.
6. og 7.
VB Rock & Republic-
gallabuxurnar er nýj-
asta hönnun Victoríu.
Þ