Tíminn - 22.04.1971, Side 2

Tíminn - 22.04.1971, Side 2
TIMINN FTMMTUDAGUR 22. apríl 1971 Hln fornu handrlt, Flateyjarbók og Konungsbók bíða afhendingar í Háskólabíói. (Tímamyndir Gunnar—GE) FYRSTU HANDRITIN ERU KOMBN HEIM SJ, OÓ, KJ, Rvík, miðvikudag. Morgunsigling í sól og vindi Það var sannkallað hátíðaveð- ur í morgun kl. hálf tíu, þegar varðskipið Albert hélt áleiðis út á Viðeyjarsund, þar sem danska eftirlitsskipið Vædderen lá með Codex regius og Flateyjarbók inn anborðs. Um borð í Albert var d&nska sendinefndin, sem hingað Vegleg bók um handriiin f vetur kom út á vegum út- gáfufyrirtækisins Sögu bók um ís- lenzku handritin og íslendingasög urnar, Handritin og fornsögurnar. Texti bókarinnar er eftir Jónas Kristjánsson forstöðumann Hand- ritastofnunarinnar, og er bókin skreytt mörgum fögrum myndum, bæði svarthvítum og í lit. Bókin hefur vakið mikla athygli, enda er hún sérlega vönduð og falleg að allri gerð. Enska þýðingu bók- arinnar gerði Alan Boucher og á ensku heitir bókin Icelandic Sagas and Manuscripts. Myndin er af forsíðu bókarinnar. kom flugleiðis í gær í tilefni af- hendingar fyrstu handritanna ásamt nokkrum íslendingum, sem fygldust með þvl þegar Danirnir fóru um borð í Vædderen til þess að sigla síðasta spölinn með skip inu til hafnar og Gunnar Björns son ræðismaður íslands í Kaup- mannahöfn, fór um borð í Albert, en hann kom einn íslendinga með skipinu frá Kaupmannahöfn. Menn voru léttir í skapi á þess ari skemmtilegu morgunsiglingu út á Sundin. Sumir Danirnir stóðu í brúnni, þ.á.m. eina konan í hópi þeirra Hanne Budtz, en aðrir gengu um á þilfari og létu sér hvergi bregða þótt kaldan blési. í síðari hópnum var Jens Otto Kragh, sem hlustaði áhuga- samur á einn félaga sinn úr sendi nefndinni segja frá fjallahringn um framundan og að Reykvíkingar gætu sagt fyrir um veðrið eftir mismunandi svip Esjunnar. Lúðraþytur og brugðin sverð Eftir skamma stund lagðist Al- bert að hlið Hrútsins (Vædder- ens). Áhöfn danska skipsins stóð fylktu liði á þiljum og dönsku stjórnmálamönnunum var heilsað með lúðraþyt, „honnör" og brugðnum sverðum þegar þeir gengu um borð. Hrúturinn (Vædd eren) er svipaður að stærð og varðskipið Óðinn, en áhöfnin er 3—4 sinnum fjölmennari og eru óbreyttu sjóliðarnir í herskyldu. Á hári og skeggi þeirra mátti greinilega sjá að hippatízkan er ekki síður vinsæl í danska flotan um en í öðrum stéttum. Handritin geymd í loft- skeytaklefanum Gunnar Björnsson, ræðismaður, hlaut ekki eins hermannlegar kveðjur og Danirnir þegar hann kom um borð í Albei’t, en engu að síður var honum vel fagnað. Hann lét vel yfir sjóferðinni með Vædderen, cn sagði að veður hefði vcrið slæmt í nánd við Færeyjar. Flateyjarbók og Konungsbók voru geymdar í loftskeytaklcfa skipsins á þiljum meðan á ferðinni stóð, og hafði hann verið rýmdur í þeim tilgangi. Það var íslenzka ríkisstjórnin, sem ákvað að Danir skyldu koma einir færandi handritin til hafn ar og enginn íslendingur yrði um borð. Þetta fór þó öðruvísi en ætlað var því þrír menn frá íslenzka sjónvarpinu fengu leyfi til að koma inn með skipinu til að taka myndir fyrir danska sjón varpið. Fóru þeir út í Vædderen með Gísla Johnsen fyrr um morg uninn. Síðan sigldi Albert aftur að Ingólfsgarði með aðra íslend- inga. Og þegar við gengum um miðbæinn skömmu fyrir hálf ellefu var fólk þegar farið að streyma í átt að höfninni. Um það leyti, sem Vædderen tók á skrið og sigldi rólega af ytri höfninni og upp að, streymdi fólk að úr öllum áttum að Miðbakka. Þar hóf Lúðrasveit Reykjavíkur að leika kl. 10,30 og skátar og lög- reglumenn gcngu fylktu liði að hafnarbakkanum og stóðu þar heið- ursvörð meðan skipið sigldi inn og afhendingarathöfnin fór fram. Fánar voru hvarvetna við hún í höfuðborginni og við höfnina voru öll íslenzk skip prýdd marglitum fánum. Við höfnina og í miðborg- ina söfnuðust tugþúsundir manna. Á hafnarbakkanum var slík örtröð, að til vandræða horfði. Fjöldi fólks fór um borð í nærliggjandi skip, til að geta fylgzt með, þegar hand- ritin voru flutt á land. Á bakkanum var komið fyrir ræðustól og umhverfis hann söfn- uðust þeir, sem tóku á móti er- lendu gestunum, en það voru ráð- herrar, forseti sameinaðs þings, forseti Hæstaréttar, danski am- bassadorinn á Islandi, deildarstjór- ar mennta- og utanríkisráðuneyt- anna, borgarstjórinn, háskólarekt- or, lögreglustjórií forstjóri Land- helgisgæzlunnar og fleiri. Lagzt aS bryggju Vædderen lagðist að bakkanum kl. 11, eins og ráð hafði verið fyr- ir gert. Um borð var danska sendi- nefndin, sem afhenti handritin hér. Er skipið lagðist að voru dregnir upp marglitir fánar á því. Sendinefndin stóð við borðstokkinn. Strax og landgangurinn var settur á land, gengu sendinefndarmenn upp á bakkann, með Poul Hartling í fararbroddi, og var þeim vel fagnað. Um borð í skipinu birtust nú þrír sjóliðar við landganginn. Héldu þeir hver á sínum pakkan- um, og voru þeir vafðir brúnum umbúðapappír. t pökkunum voru hin langþráðu handrit Flateyjar- bókar og Konungsbókar Eddu- kvæða, en Flateyjarbók er í tveim stórum bindum og pakkarnir því þrír. — Eftir að sendinefndar- menn voru gengnir á land, lék Lúðrasveitin þjóðsöngva Danmerk- ur og Islands. Þá hélt Jóhann Hafstein, forsæt- isráðherra, eftirfarandi ávarp: „Heiðruðu vinir og frændur! Stígið heilir á storð. Yður fagna í dag landið og þjóðin, eða ef til vill væri réttara að orða það svo: Þjóðin og landið. í huga mér voru fornar sagnir um landvæltir ís- lands, sem vörðu það úr öllum áttum, ef að var sótt, en heils uðu með sóma, þegar virðingar- menn og vini bar að garði. Þessar landvættir sjáið þið nú tákngerðar í skjaldarmerki íslenzka lýðveld- isins. Þér komið færandi hendi. Vér höfum af því sagnir, að fólkið hafi þyrpzt niður að ströndinni til þess að taka á móti höfðingj um, sem komu færandi hendi með gull og gersemar. En hvað er það, sem þér nú komið til þess að færa oss? Það eru tvær bækur! Hefur landslýður í fyrri sögum safnazt saman niður við strönd- ina í ofvæni til þess að móttaka tvær bækur? Af þessari spurningu vaknar önn ur: Hverjar eru þessar tvær bæk ur? Þær eru Konungsbók Eddu- kvæða og Flateyjarbók! Þetta eru tvö íslenzk handrit skráð á kálf- skinn endur fyrir löngu — í torf- bæjum við grútartýru. Samt sem áður þóttu þetta konunglegar gjaf ir áður fyrr og eru það vissulega eigi síður enn, þegar þér nú fær- ið oss þær aftur eftir langa varð veizlu. Ennfremur eru þessar tvær bæk ur meira en þær sýnast vera. Þær eru táknræn afhending Dana til íslendinga á íslenzkum handrit- um, sem varðveitt hafa verið í Danmörku. Það væri ekki rétt á þessari stundu að leyna því, að milli þjóða vorra hafi staðið nokkur styr um þessi -íslenzku handrit. Menn hafa á vissan hátt barizt þar í fyrirrúmi og á bæði borð, — eins og segir í fornum víkinga- sögum. Vér færum yður, Danir, þakkir af alhug og bjóðum yður til end- urgjalds einlægan vinarhug. Hvort það er einhvers virði að eiga ein- læga vináttu og þakklæti minnstu þjóðar, sem byggir eyland við norðurheimskautsbaug, læt ég aðra um að svara. En ég lýk máli mínu með því að segja við yður, Dani, fulltrúa þjóðþings og ríkisstjórnar og þar með danskrar þjóðar, það sem skráð stendur f Sæmundar-Eddu í Hávamálum: „-----veizt ef vin átt, þanns vel trúir, far þú af finna opt. Þvíat hrísi vex ok háu grasi vegr, es vætki tröðr.“ Verið ætíð velkomnir til fs- lands! Landvættir munu fagna yður! Ræða Hartlings Þá talaði Paul Hartling, utan- ríkisráðherra Dana og sagði m.a.: „Handritin hafa átt sln örlög. Saga þeirra er eins spennandi og fornsögurnar sjálfar. Sú saga hefst á 12. öld. Tilurð fornritanna stóð framundir árið Hér sést hinn geysilegi mannfjöldi á hafnarbakkanum, sem fylgdist me3 handritakomunni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.