Tíminn - 19.05.1971, Side 13
MEÐVIKUDAGUR 19. maí 1971
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTfR
13.
Landslið - Pressa á morgun
Pressan ekki búin að ákveða leikaðferðina, en hefur í huga að leika varnarleik í öðrum
hálfleiknum en sóknarleik í hinum
klp-Reykjavík,
Ákveðinn liefur verið leikur
milli landsliðsins, sem leika á
gegn Noregi n. k. miðvikudag og
Iiðs, sem íþróttafréttamenn hafa
valið. Leikurinn fer fram annað
kvöld á Melavellinum og hefst kl.
20.30.
Mörg ár eru síðan síðast var
leikinn „Pressuleikur“ hér á laudi,
en slíkir leikir þóttu oft góð
skemmtun, og er ekki að efa að
svo verður í þetta sinn.
Ekki er vitað hvernig landslið
ið verður skipað í þessum leik, en
sjálfsagt verður sama uppstilling
in á því og í leiknum við Noreg,
sem fram fer í Bergen eftir ná-
kvæmlega eina viku. íþróttafrétta
menn hafa valið sitt lið, og er það
skipað eftirtöldum mönnum:
Sigurður Dagsson, Val
Sigurður Indriðason, KR
Marteinn Geirsson, Fram
273.000.000
- boðnar í
Lugi Riva
ftalska knattspyrnufélagið
Juventus bauð í gær Cagliari
tvö hundruð sjötíu og þrjár
milljónir ísl. króna í stjörnu
leikmanninn Lugi Riva.
Þessi upphæð, sém jafngild
ir kaupverði á þrem stórum út
hafstogurum, er sú hæsta, sem
boðin hefur verið í knattspyrnu
mann til þessa.
Forráðamenn Cagliari höfn-
uðu þessu boði og er ástæðan
sú að þeir þorðu ekki að selja
Riva, vegna fólksins á eyjunni
Sardiníu, en þaðan er liðið og
Riva einnig.
Hefur fólkið, sem dáir Lugi
Riva eins og guð, safnað fé
til að láta gera af honum stóra
styttu, sem standa á við leik-
vanginn, og sögðu forráðamenn
liðsins að allt yrði vitlaust, ef
hann yrði seldur.
Fyrir þá, sem fylgjast með
sölum á ensku knattspyrnu-
mönnunum, slcal þess getið til
viðmiðunar á upphæðinni, að
hún jafngildir einni milljón og
þrjú hundruð þúsund sterlings
pundum — en hæsta sala á
leikmanni í Englandi til þessa
er tvö hundruð þúsund
sterlingspund.
LUGI RIVA — í hann var boðið
andvirði þriggja skuttogara.
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Baldur Scheving, Fram
Jón Sigurðsson, KR
Bergsveinn Alfonsson, Val
Skúli Ágústsson, ÍBA
Baldvin Baldvinsson, KR
Kristinn Jörundsson, Fr»>n
Sævar Tryggvason, ÍBV
Varamenn eru: Einar Guðleifs
son ÍA, Björn Árnason KR, Jón
Hermannsson, Ármanni og Eirík
ur Þorsteinsson, Víking.
Mjög ákjósanlegt er að þessi
leikur skuli fara fram nú fyrir
landsleikinn við Noreg, þó betra
hefði verið að hann hefði farið
fram fyrr, því valið á landsliðinu
hefur ekki fallið öllum í geð.
Landsliðið hefur að vísu mörgum
góðum leikmönnum á að skipa,
en það hefur „pressan" einnig, og
í henni eru menn, sem ekki síður
eiga skilið að vera í landsliðinu,
en margir þeirra, sem þar eru
fyrir.
Leikaðferð „pressunnar“ hefur
enn ekki verið ákveðin, en sú
hugmynd hefur komið fram að
leika sóknarleik í öðrum hálfleikn
um en varnarleik í hinum, svo
landsliðið fái sem mest út úr
leiknum — en hvor hálfleikurinn
það verður, er enn hernaðarleynd
armál.
Fram og Þróttur
mætast í kvöld
Mp—Reykjavík.
Næst síðasti leikurinn í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu, fer fram á Melavelíin,
um í kvöld. Það eru Fram og'
Þróttur, sem þá mætast, og
ætti það að geta orðið fjörugur
leikur.
Fram hefur ekki fengið á
sig mark í þessu móti, enda
með eina beztu vörn, sem sézt
hefur hér í langan tíma, en
liðið er nú talið eitt það jafn-
bezta um þessar mundir.
Þróttur átti góðan leik gegn
Víking á sunnudag og sigraði
þá óvænt 3:1 og er ekki að
vita nema liðið komi aftur á
óvart í kvöld.
LAUGARDALSVOLLURINN I VIÐGERÐ
Um næstu holgi hefst I. deildarkeppnin í knattspyrnu og verða þá leiknir 4 leikir, þar af 2 f Reykjavfk. Fara þeir báSir fram á Melavellinum, þvl
þessa dagana er verlð aS vfnna vlS algjðra eridubygglngú á vellinum f La ógardal. VerSur hennl varla loklS fyrr en eftir nokkra daga, og vðllurlnn
ekki tilbúfnn tll keppni fyrr en um miðjan júnf. Skipt er um undirlag á stórum kafla á veilinum, og er mlkill sandur í því lagl, ásamt mold og skarna.
Síðan verður nýtt torf sett á allan völlinn, nema kantana, og ætti hann þv í að verða góður næstu ár. (Tímamynd GE)
SPÁMAÐURINN
Getraunaseðillinn að þessu sinni
er næst síðasti seðillinn fyrir sum
arfrí getraunastarfseminnar að
þessu sinni. Er það seðill nr. 20,
sem er með fyrstu leikjunum í 1.
deildinni hér á landi, en einnig
með tveim landsleikjum og leikj
um í 1. deild í Danmörku.
Seðill nr. 21 verður síðasti seð
illinn fyrir sumarfrí, en það stend
ur til 15. ágúst, og verður þá aft-
ur hafizt handa og þá með leikj-
um úr ensku d Idarkeppnunum.
Spá okkar á seðli nr. 20 er
þessi:
Leilát SS. og SS. ma» 1971 1 X 2
írknd — Wales1) /
Engknd — Skotland1) / -
I3.V. — Valur*) /
K3. — 13A.S) X
Fram — BfeiSablik’) /
Í3K. — ÍA.5) /
Frem — Brönshöj *) /
B-1909 — Vejle*) X
Köge — Hvidovre*) %
Álborg — B-1908 *) X
B-1901 — A3») /
K3. — Randers*) 2u
HVAÐ
VERÐUR
OFAN Á?
Menn hafa verið að velta því
fyrir sér, hvað verði ofan á með
leikaðfcrð hjá íslenzka landslið
inu í knattspyrnu í leiknum
gegn Noregi á miðvikudaginn.
En eftir öllum sólarmerkjum að
dæma, mun ekki vera samkomu
lag um það hjá forráðamönnum
liðsins.
Ríkharður Jónsson, þjálfari
liðsins sagði í viðtali við dag
bl. Vísi eftir landsleikinn við
Frakkland, að meðan hann réði
yrði leikinn vamarleikur. En
í Morgunblaðinu í gær segir
Hafsteinn Guðmundsson „ein-
valdur" landsliðsins, að leikið
yrði til sigurs gegn Norðmönn
um og gefi það auga leið, að
þá verði að leika framar en í
síðasta landsleik. (???)
Hafsteinn — sóknaileikur
Heyrzt hefur að á fundi, sem
haldinn var með landsliðshópn
um á mánudagskvöldið, hafi
Albert Guðmundsson, formaður
KSÍ, tilkynnt að í leiknum
gegn Norégi yrði leikinn sókn
arleikur, og bað þá menn sem
ekki treystu sér til að leika
sóknarleik að gefa sig fram —
því þeir svo og aðrir, sem ættu
að fara með liðinu í þessa ferð,
og væru að tala um að leika
varnarleik, færu ekki með.
Á þessu er helzt að sjá, að
ekki sé samkomulag um hvað
eigi að gera í leiknum. Og eftir
valinu á leikmönnunum, sem
fara utan er heldur ekki að
sjá hvað verðiofaná - en þar
liefur þó „vamarleikurinn“ ör,
lítinn vinning, því framlínan
Ríkharður — varnarleikur
er ekki það sterk — a.m.k. mið
að við síðustu leiki einstakra
manna í henni.
Hjá öðrum þjóðum þekkist
það, að leika varnarleik á
útivelli en sóknarleik á heima
velli, og ætti það einnig að ná
yfir okkur — en svo er þó
ekki, því í leiknum við Frakk
land, sem fram fór hér á landi
var leikinn stífur varnarleikur
allan tímann, og nú á að leika
sóknarleik á útivelli gegn Nor-
egi.
Menn voru að ræða um það
sín á milli í gær, hvort ekki
væri bezt að leika á miðjunni,
svo öllum væri gert til hæfis
í þessum leik við frændur okk
ar í Noregi, og er það víst
bezta lausnin úr því sem kom-
ið er. — klp.