Fréttablaðið - 10.08.2002, Síða 12

Fréttablaðið - 10.08.2002, Síða 12
12 10. ágúst 2002 LAUGARDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Kvikmyndin ódauðlega „Cit-izen Kane“ eftir Orson Welles hafnaði í efsta sæti skoð- anakönnunar sem breska kvik- myndastofnunin lét gera á meðal gagnrýnenda og kvikmyndagerða- manna. Myndirn- ar sem fylgdu í kjölfarið voru, í réttri röð; „Vertigo“ eftir Hitchcock, „La Regle du Jeu“ eftir Renoir, „The Godfather I og II“ eftir Coppola, „Tokyo Story“ eftir Ozu, „2001: Space Odyssey“ eftir Kubrick, „Sunrise“ eftir Murnau, „Batt- leship Potemkin“ eftir Eisen- stein, „8 1/2“ eftir Fellini og „Singing in the rain“ eftir Kelly og Donen. Svo virðist sem ekki sé öll vonúti fyrir NSync söngvarann Lance Bass að komast upp í geim. Rússneska geimferðastofn- unin kvartaði í fyrradag yfir því að hann hefði ekki greitt reikn- inga sína og hót- aði í kjölfarið að hætta við þau áform að senda piltinn út úr gufuhvolfinu í októ- ber. Nú hefur geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, boðist til þess að þjálfa Bass til að auka líkur hans á því að komast upp í geim. Þeir segjast líka vera bjartsýnir á það að reikningar Bass við rússnesku geimferða- stofnunina verði greiddir. Ef Bass kemst upp í geim verður hann fyrstur manna til þess að styðjast við fyrirtækjastyrki til að borga ferðalagið. Vöðvabúntið Vin Diesel hefuropinberað að hann hafi hafn- að 20 milljón dollara boði um að leika í framhaldsmynd „The Fast and the Furious“ sem skaut hon- um upp á stjörnuhimininn. Hann heldur því fram að þetta sé hæstu laun sem nokkur leikari hafi hafnað. Ástæðuna segir hann vera að honum líki ekki við að láta kaupa sig. Og að honum finnist ekki ástæða til þess að gera framhaldsmynd. Hann seg- ist eiga nóg af peningum og að listrænn metnaður hans skipti meira máli en launaávísunin. Næst sjáum við hann í kvik- myndinni „X„ þar sem hann leik- ur á móti Samuel Jackson. MIB 2 kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12 ÍSÖLD m/ísl. tali kl. 2 THE NEW GUY kl. 6 ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900 www.samfilm.is MURDER BY... kl. 8 og 10.20 VIT400 SCOOBY DOO kl. 2, 4 og 6 VIT398 FRÍÐA OG DÝRIÐ 2, 4 og 6 VIT418 BIG TROUBLE kl. 8 og 10.10 VIT406 MR. BONES kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT415 PÉTUR PAN 2 m/ísl. tali 2, 4 og 6 VIT358 MONSTER INC. m/ísl. tali kl. 2 VIT338 VILLTI FOLINN m/ens. tali kl. 8 VIT407 VILLTI FOLINN m/ísl. tali 2, 4 og 6 VIT410 THE MOTHMAN... kl. 10.10 VIT408 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 VIT 414 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12 Kl. 2, 3, 5, 8, 9, 11 og 12 (P. kl. 11 og 12) Sýnd kl. 4, 7 og 10 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 417 kl. 8 og 10.05ABOUT A BOY kl. 6MÁVAHLÁTUR kl. 8 og 9LEITIN AÐ RAJEEV kl. 2 og 4HJÁLP ÉG ER FISKUR NOVOCAINE kl. 10 VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 2, 4 og 6 CLOCKSTOPPERS kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10.20 Sýnd kl. 2, 4, 6 m/ísl. tali KVIKMYNDIR Það kom mörgum á óvart þegar kvikmyndin „Ís- lenski Draumurinn“ sló óvænt í gegn í kvikmyndahúsum fyrir tveimur árum síðan. Myndin var fyrsta barn leikstjórans Róbert I. Douglas, a.m.k. í fullri lengd, og var létt ádeila á neysluþjóðfélag- ið. Nú er Róbert orðinn tveggja barna faðir því kvikmyndin „Maður eins og ég“ er tilbúinn og verður frumsýnd þann 16. ágúst. „Persónan hans Jóns Gnarrs er frekar seinheppin í ástarmál- um,“ segir Róbert um Júlla, aðal- persónu myndarinnar. „Hann kynnist kínverskri konu, verður ástfanginn og nær svo að klúðra því. Í kjölfarið eltir hann hana til Kína og reynir hvað hann getur til þess að bæta sína ímynd. Þor- steinn Guðmundsson leikur vin hans sem er í því að reyna að- stoða hann við að næla sér í al- mennilegt kvenfólk.“ Róbert segir nýju myndina stórt stökk frá „Draumnum“ hvað tækni- og myndvinnslu varðar en segir hana þó svipaða í anda og húmor. Sjálfur skrifar hann handritið í samvinnu við Árna Óla Ásgeirsson. Jón Gnarr tók þátt í því að móta persónu Júlla. „Þetta er samt ekki persóna sem fólk á að venjast frá Jóni. Brandararnir eru meira á hans kostnað. Það er hægt að segja að þetta sé nokkuð alvarlegt hlut- verk, þannig séð.“ Stúlkan sem vinnur hug Júlla í myndinni er leikin af 28 ára kín- verskri poppstjörnu. Hún heitir Stephanie Che og hefur síðastlið- in 2 ár leikið í um tug mynda. „Hlutverkin eru alltaf að stækka. Hún kemst ekki á frumsýninguna út af því að hún var að fá stórt hlutverk í vinsælustu sjónvarps- þáttaröð Kínverja. Hún ætlar þó að hitta okkur á einhverri kvik- myndahátíðinni sem myndin verður sýnd á.“ Um 15 mínútna kafli gerist í Kína eftir að Júlli ferðast yfir hálfan hnöttinn í von um að bjar- ga ástarsambandinu. „Ég og Árni skrifuðum fyrst þann hluta áður en við fórum þangað. Fórum eftir því sem við höfðum séð í mafíu- og kung fu myndum. Við áttum síðan séns á að endurskrifa hand- ritið. Þannig að við vissum hvern- ig það er að vera ferðamaður þarna. Þetta var samt ekki svo fjarri okkar hugarburðum. Það er aragrúi af fiskmörkuðum, skýja- kljúfum og diskótekum sem líta út eins og þau séu í geimnum. Þetta var mjög mikið ævintýri,“ segir Róbert að lokum. biggi@frettabladid.is Júlli og kínverski draumurinn Kvikmyndin „Maður eins og ég“ – rómantísk ástarsaga kvíðasjúk- lings – verður frumsýnd í 5 bíósölum þann 16. ágúst. Með aðalhlut- verk fara Jón Gnarr og kínverska poppstjarnan Stephanie Che. MAÐUR EINS OG ÉG Júlli (Jón Gnarr) og Qi (Stephanie Che) í rómantískri skoðunarferð um herflugvöllinn í Keflavík. RÓBERT I. DOUGLAS Róbert útskýrir töfra keiluíþróttarinnar fyrir Stephanie við tökur. KIMONO Er að vinna að sinni fyrstu breiðskífu sem væntanleg er í október. Tónleikar á Sirkus: Sinfóníu- rokk og sveitatónlist TÓNLEIKAR Bæjarlífið verður lík- legast með fjörugasta móti í kvöld enda verður aukinn samhugur kynvera eftir Gay Pride hátíðina um daginn. Á skemmtistaðnum Sirkus, Klapparstíg 30, verða haldnir útitónleikar í bakgarðin- um þar sem nokkrar af áhuga- verðari rokksveitum jaðarsins leika fyrir gesti. Þar koma fram sveitirnar Kafka, kántríprinsinn Hudson Wayne og rokksveitin Kimono. Hudson Wayne gaf nýverið út þröngskífuna „Slightly out of Hank“ sem fáanleg er í Hljóma- lind. Sveitina skipa m. a. liðsmenn Lúnu og Kimono. Gítarsinfóníusveitin Kimono er nú að leggja lokahönd á sína fyrstu breiðskífu sem væntanleg er í búðir í október. Tónleikarnir hefjast 17:00 og er aðgangur frír fyrir þá sem ald- ur hafa.  TÍSKA KOMIN YFIR STRIKIÐ? Á þessari mynd sést hönnun úr nýjustu línu John Gallianos. Eins og sést er hönnun hans ansi fjarri því sem nútíma- konan myndi klæðast á götum úti. Miklar umræður hafa skapast um það í París hvort tískusýningar séu komnar fram úr venjulegu fólki. Spurningin er hvort kalla eigi þær frekar listasýningar. En hvar er sú lína og hver dregur hana?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.