Fréttablaðið - 10.08.2002, Síða 24
Lenti um daginn í kjallara hússvið Skútuvog. Þar eru þrjár
skrifstofur, kaffistofa og bast-sófa-
sett úr Rúmfatalagernum á gang-
inum. Skrifstofur Bónus - veldisins í
13 ár. Allt upprunalegt og óbreytt.
Framkvæmdastjórinn með lítinn
glugga uppundir lofti. Tveir bókarar
í öðru herbergi með tvo slíka glug-
ga. Þriðja herbergið hins vegar al-
veg gluggalaust. Þar er skrifstofa
Jóhannesar í Bónus enn og hefur
alltaf verið. Sófi sem hann kastar
sér í að loknum erfiðum vinnudegi.
Skrifborð yfirfullt af pappírum og
tölva úti í horni. Lítið notuð.
UPPI Á HÖFÐA er svo Orkuveita
Reykjavíkur að reisa nýjar höfuð-
stöðvar. Byggingin nemur við him-
inn og sést víða að. Verður eitt af
kennileitum Reykjavíkur þegar
fram líða stundir. Orkuvarða á
hæstu hæð. Þar eru skrifstofur raf-
væddar. Gluggar tíu sinnum stærri
en hjá Bónus og glerið dekkist þegar
ýtt er á takka. Sólarljósinu er stjórn-
að innandyra. Borðplötur allar 24
millimetra eikarplötur þegar venju-
legar borðplötur eru aðeins 17. Og
stjórnin lætur belgískan listmálara
teikna af sér myndir fyrir ársskýrsl-
una.
BÓNUS OG ORKUVEITAN eru
að hluta til lífæð íslenskra fjöl-
skyldna. Bónus útvegar og selur
matvæli á besta verði. Orkuveitan
sér okkur fyrir hita og rafmagni á
verði sem hún ákveður sjálf. Erfitt
yrði að búa í landinu án þeirra. Velta
fyrirtækjanna er álíka.
Í BÓNUS STJÓRNA MENN úr
gluggalausum kjallara til að halda
vöruverði niðri. Þeir gætu svo sem
byggt sér glæsilegar skrifstofur á
besta stað. En þá myndi matarreikn-
ingurinn hækka hjá flestum. Kostn-
aðurinn við skraut - og monthýsi
Orkuveitunnar uppi á Höfða er inn-
byggður í orkureikning okkar allra.
Við tökum ekki eftir því. Það munar
ekki svo miklu. En munar samt.
Mættum við biðja um Bónusorku?
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
nú á
allt a›
seljast
*af upprunalegu ver›i
60%
*
til mánudags í Kringlu,
Smáralind og Skeifu
www.hagkaup.is
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
Bónusorka
Sandtex V 10 lítrar
TILBOÐ
kr. 6.490.-
ÚTIMÁLNING