Tíminn - 23.06.1971, Side 1

Tíminn - 23.06.1971, Side 1
I ALLT FYRIR BOLTAÍÞtRÓTTIR Sportvöruverrion R4GÓLFS ÓSKARSSONAR Ssppsrstig 44 - Sími 1178$. 137. tM. Miðvikudagur 23. júní 1971 — 55. árg. Guðmundur fertil Washington KJ-Reykjavík, þriðjudag. Töluverðar breytingar eru nu fyrirhugaðar á lykilstöðum í utanríkisþjónustunni, og leiða þær af fráfalli Magnúsar V. Magnússonar ambassadors í Washington. Virðist vera ljóst, að engir stjórnmálamenn munu verða settir á þá pósta, sem nú losna, heldur verður einungis um að ræða tilfærslur innan utanríkisþ j ónustunnar. Ákveðið mun nú, að Guð- mundur I. Guðmundsson am- : bassador íslands í London, j flytjist til Washington, en * hann hefur verið ambassador \ íslands í London frá því í sept.) Framhald a ols. 14. I Taka Fremst á myndinni er umbúnaðurinn yfir einni borholunni í Bjarnarflagi, sem nú er virkjuS, en fjær til hægri er gufuaflsstöS Laxárvirkjunar, sem rekin h&fur verið með góðum árangri. (Tímamynd Kári) Þingeyingar orku- í sínar hendur? Sýslunefnd kýs sérstaka raforkunefnd og athuganir Orku- stofnunar á gufuvirkjun í Námaskarði í fullum gangi KJ—Reykjavík, þriðjudag. Teikn eru nú á lofti um það, að Þingeyingar beiti sér fyrir stofnun orkufélags, með gufuvirkjun í Bjarnarflagi í Mývatnssveit fyrir augum, og taki því orkumálin í héraði í sínar hendur, og verði þar með óháðir Laxárvirkjun með orku sölu, en sem kunnugt er, þá eiga Þingeyingar engan fulltrúa í stjórn Laxárvirkjunar, og enga aðild að henni, nema þeir kaupa þaðan orku sína, og Laxárvirkjun hefur vatnsaflsvirkjanir sínar í Suður- Þingeyjasýslu. Á aukafundi sýslunefndar Suður- Þingeyjasýslu, sem haldinn var fyrir nokkru, var samþykkt sérstök ályktun í orkumálum, og kosin sérstök nefnd til að athuga þau mál. Jóhann Skaptason sýslu- maður á Húsavík sagði Tímanum í dag, að samþykkt sú sem hér um ræðir, hefði verið þannig: „Með hliðsjón af þeim öru fram- förum sem orðið hafa á síðustu árum í rafvæðingu í Norðurlandi eystra, og stóraukinni raforkuþörf byggðanna, telur sýslunefnd tíma- bært að taka til endurskoðunar skipulag orkuvinnslunnar, og sjá til þess að öll héruðin sem orkunnar njóta, eigi þess kost að vera þátt- takendur í orkuvinnslunni, og að hafa tiltöluleg áhrif á stjórn og framkvæmd hennar, og að í því sambandi verði séð um að allir neytendur njóti hagstæðra kjara. Sýslunefnd vill því vera aðili að athugun þess, á hvern hátt kynni að vera bezt að haga þessum mál- um í næstu framtíð. Ákveður hún að kjósa þrjá menn úr nefndinni, sem viðræðufulltrúa hennar í þessu sambandi, og til að beita sér fyrir athugun málsins." 1 nefnd þessa voru kosnir þeir Úlfur Indriðason, Héðinshöfða, Teitur Björnsson Brú og Kjartan Magnússon Mógili á Svalbarðs- strönd. Tilboð frá Japan og ftalíu Að því er Karl Ragnars verk- fræðingur hjá Orkustofnun sagði Tímanum í dag, þá er nú unnið að athugunum á frekari gufuvirkjun í Bjarnarflagi á vegum Orkustofn- unar. Sú gufuvirkjun sem þar er Framhald á bls. 14. Síldveföarnar í Norðursjó Meðalverðið er 16-17 kr. á kílóið ÞÓ—Reyekjavík, þriðjudag. Frá því að síldveiðar hófust í Norðursjónum í vor, hafa alls 36 íslenzk sfldveiðiskip selt afla sinn erlendis, þ.e.a.s. í Danmörku og Þýzkalandi. Á tíenabilinu 14.—19. júní, lönd uðu 31 íslenzkt síldveiðskip, afla sínum í Danmörku og Þýzkalandi. Alls var aflinn sem þau lönduðu 1.573.1 lest af síld. í bræðslu fóru um það bil 73 tonn af sfld, einnig lönduðu skipin tæpum 10 lestum af makríl. Heildarverðmæti alls þessa afla sem bátarnir lönd uðu nam 26.344.731 ísl. kr. en með alverð reyndist vera í kringum 16 krónur, þó er það allmiklu lægra í Þýzkalandi, eða rétt í kringum 11.50 kr. Hæsta meðalverð allra íslenzkra báta á tímabilinu frá 14.—19. júní, fékk Helga Guð- mundsdóttir BA, 20.04 krónur fyrir kílóið. Skipstjóri á Helgu Guðmundsdóttur er Filip Höskulds- son. Eftirtaldir bátar seldu fyrir meira en 1 milljón í söluferð frá 14.—19. júní: Þorsteinn RE 60.9 lestir fyrir 1.119.434, Hilmir SU 72,6 1. f. 1.148.124, Héðinn ÞH 71.21.1 f. 1.169.090, Fífill GK 88.3 1. f. 1.441.498, Bjartur NK 66.3 1. f. 1.099.362, Loftur Baldvinsson EA 83,3 1. f. 1.271.073, Reykjaborg RE 65,5 1. f. 1.033.142, ísleifur VE 62.1 1. f. 1.160.543, Birtingur NK 57,2 1. f. 1.094.823, Helga Guðmundsdóttir BA 52.1 1. f. 1.043.907, og Gissur Hvíti SF 62.3 1. f. 241.643. Allt í óvissu um stjórnar- myndun þar til á föstudag 100-200 flugvélar daglega um íslenzka flugstjórnarsvæðið ET-Reykjavík, þriðjudag. Mesti annatími hjá íslenzk- um flugumferðarstjórum fer nú í hönd. í viðtali við Tím- ann i dag sagði Arnór Hjálm- í»rsson, yfirflugumferðarstjóri, að tímabilið júní-sept. væri mesti annatími íslenzkrar flug umferðarstjórnar, einkurn mið bik þessa tímabils. Fjöldi flug- véla, er fara um flugumferða- stjórnarsvæði íslcndinga er mjög misjafn á degi hverjum, allt frá 100—200 og jafnvel hátt á þriðja hundrað vélar. Á sunnudag fóru t.d. 166 flug vélar á blinc’Hugi um svæðið, en flestar þær vélar, sem um svæðið fara, fljúga blindflug, þ.á.m. allar élar í alþjóða- flugi. Fyrir helgi var umferðin hins veg; þó nokkuð minni, allt niður í 60—70 vélar á 'ndflugi. Ástæðan til þessa mismunar á vélaf jölda er sú, að veðurlag, einkum vindar, ráða því, hvort meginhluti flugvéla á N .rður-Atlantshafsleiðinni flýgur nyrðri flugleiðir yfir hafið, þ.e. á svæði íslendinga, eða syðri leiðir. íslenzka flugstjói-arsvæðið nær frá 61° n.br. norður að 73° n.br. og frá 0° að austur- strönd Grænlands. Starfsmenn flugumferðarstjórnar í Reykja vík oru um 50 talsins og skipt- ast þeir jafnt niður á stjórn Framhald á bls. 14. KJ-Reykjavík, þriðjudag. Framkvæmdastjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna kom saman til fundar í gærkvöldi, og var þar rætt um hugsanlegt stjórn arsamstarf, en forystumenn flokks ins hafa ekkert látið uppskátt um ákvörðun fundar framkvæmda- stiórnarinnar. Þingflokkur samtaka frjálslyndra og vinstri manna heldur fund á fimmtudag, og hefur þingflokkur- inn úrslitavald í málum eins og stjórnarsamvinnu. Á fundi fram- kvæmdastjórnarinnar í gærkvöldi var gerð samþykkt um hugsanlegt stjórnarsamstarf Framsóknar- flokksins, Alþýðubandalagsins og Samtaka fr.jálslyndra og vinstri manna, en samþykktin verður okki opinbor fyrr en eftir að þingflokkurinn hefur fjallað um hana. í framkvæmdastjórninni eiga ellefu manns sæti, og þar af eru þrír af fimm þingmönnum Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna, þeir Hannibal Valdimars- son, Björn Jónsson, sem er for- Framhald á bls. 14. íslendinga- þættir og dag- skrá útvarps- og sjónvarps íslendingaþættir munu fylgja Tímanum á föstudaginn kemur, en þá verður því miður ekki hægt að láta dagskrá útvarps og sjónvarps fylgja líka. Kcmur dagskráin með Tíma.ium á sunnudag í þetta sinn, og eru lesendur vinsamlega beðnir að athuga þessa breytingu, sem verður á útkomu dagskrú ':mar um þessa helgi. Framvegis mun dagskráin sv > koma eins og venju lega.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.