Tíminn - 23.06.1971, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.06.1971, Blaðsíða 6
5 AugSýsing frá lánasjóði ísl. náms- manna um fimm ára sfyrki Hér með eru auglýstir til umsóknar 10 styrkir, sem veittir eru þeim, sem í vor luku stúdentsprófi eða prófi frá raungreinadeild Tækniskóla íslands og hyggjast hefja nám í háskóla eða tækniskóla á komandi hausti. Sá, sem hlýtur styrk, heldur honum í allt að 5 ár, enda leggi hann árlega fram greinargerð um námsárangur, sem lánasjóðurinn tekur gilda. Þeir einir koma til greina, sem hlutu ágætiseinkunn eða háa fyrstu einkunn. Styrkir verða veittir til náms bæði í raunvísind- um og hugvísindum. Umsóknir, ásamt afriti af prófskírtpini, eiga að hafa borizt skrifstofu lánasjóðs ísl. námsmanna, Hverfisgötu 21, fyrir 30. júní n.k. Skrifstofan afhendir umsóknareyðublöð og veitir allar nánari upplýsingar. Reykjavík, 22. júní 1971. Lánasjóður ísl. námsmanna. BEZT AÐ LESA AUGLÝSINGAR VARLEGA NEYTENDASAMTÖKIN Er útihurdin ekki Dessvftl? Fýrir 7700 krénur gefum viS gert útihiirðina eins og nýja útlits eða jafnvei fallegri. Géstir yðar munu dósf að hurðinnl ó meðan þeir bíða eftir að lokið só upp. Kaupmenn, hafið þér athugað/ Tdlleg hurð að verzluninni eykur ónœgju Yiðskiptavina og eykur söluna. Mörg fyrirtœkl og ein- Stakiihgac hafa notfœrt sér okkar þjónustu og bor öllum saman um ágœti okkar vinnu og al* hienna ánœgju þeirra or hurðina sjá. Hringið strax í dag og fáið nánari upplýsingar. Sfmi -23347. Hurdir&póstar • Sérní 23347 1 Höfum ávallt fyrirliggjandi aliar stærðir skraut- hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með svartri rönd. Sendum gegn póstkröfu hvert á land'sem er. GÚMMfVINNUSTOFAN H.F. Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688 MIÐVIKUDAGUR 23. júní 1971 TÍMINN Starfsfóllc við hinn nýja veitingaskála Hafsteins Sveinssonar f Viðey, fyrir framan skálann. (Tímamynd ET) FERDAMANNAPARAOlS VB NEffl k REYKVlKINGUM Sagt frá Viðeyjarferð í boði Hafsteins Sveinssonar Blaðaínönnum var á laugar-.i daginn boðið út í Viðey, til að kynnast af eigin raun Viðeyjar- ferð með Hafsteini Sveinssyni, og þeim möguleikum, er slík ferð býður upp á. Lagt var upp frá Reykjavík- urhöfn á báti Hafsteins, Moby Dick; þeim sama og flytja mun ferðalanga til Viðeyjar í sum- ar. Á leiðinni var komið við í Sundahöfn, en þaðan verða á- ætlunarferðirnar í sumar. Moby Diek er aðeins um 2 mín. í för- um frá Sundahöfn til Viðeyjar, svo að ferðafólk á ekki að þurfa að bíða lengi eftir fari til Við- eyjar í sumar. Auk þess hefur Hafsteinn í bakhönd- inni annan bát, Veiðibrest, til viðbótar Moby Dick, ef sá síð- arnefndi hefur ekki undan við fólksflutningana. I lendingunni niður af Við- eyjarstofu hefur Hafsteinn kom- ið fyrir langri flotbryggju og þar leggjumst við að landi. Eft- ,ir, skamma stund stöndum við á hlaði., Viðeyjarstofu og skyggn- umst inn í kirkjuna, sem er for- vitnileg og snotur, þótt hún láti lítið yfir sér séð að utan. Þegar komið er upp á eyjuna sést, að hún er víðáttumikil; hvarvetna blasa við lautir og skorningar, tilvaldir hvíldar- og sólbaðsstað ir fyrir ferðafólk. Að sögn Haf- steins er eyjan 5 km á lengd og u. þ. b. 1 km á breidd, þar sem hún er breiðust, þ. e. um mið- bikið. Austan til á eynni hefur Haf- steinn reist veitingaskála, mjög óvenjulegan útlits. Skálinn er þríhyrningslaga plastdúkur, strengdur yfir trésperrur, og inni er vel hlýtt, a. m. k. þegar við vorum á ferð á laugardag- inn, í sæmilegu veðri. Við þág- um kaffi og heimabakað brauð, er bragðaðist mjög vel. „Ég sel aðeins kaffi og meðlæti hér í skálanum, svo að ekki berist rusl út um eyna,“ sagði Haf- steinn okkur. „Takmark okkar er að halda eynni ósnortinni; það tókst í fyrrasumar með þeim ágætum, að eina ruslið, sem hér fannst í fyrrahaust, var einn opalpakki! Ég vona, að verð veitinganna sé sanngjarnt, 75 kr fyrir kaffi og meðlæti.“ Því má skjóta inn, að far með Moby Dick til Viðeyjar kostar aðeins 75 krónur. Eftir þessa Viðeyjarferð er blaðamaður Tímans sannfærður um það, að einmitt þarna er framtíðardvalarstaður Reykvík- inga um helgar og í stuttum fríum. Ætli íbúar nokkurrar annarrar höfuðborgar geti stig- ið um borð í bát og stigið úr honum aftur eftir 2 mín. sigl- ingu á nær ósnortið land með óteljandi möguleika til dægra- styttingar, þ. á m. sjóböð við ágætar sandstrendur eyjarinn- ar? — ET TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu GUOM ÞORSTEINSSON gullsmiður. Bankastræfi 12. Hafsteinn Sveinsson og samstarfsmaður hans, Þórarinn Ragnarsson, um IsorS í Moby Dick. (Tímamynd ET)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.